Morgunblaðið - 23.07.1940, Síða 2

Morgunblaðið - 23.07.1940, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. júlí 1940. Halifax lávarður svarar Hitler Bretar liætta ekki stríðinu ffyr en ffrelsi þeirra og allra undir- okaðra þjóða er trygl HALIFAX lávarður, utanríkismálaráðherra Breta, svaraði áskorun Hitlers, um að stríðinu yrði hætt, með ákveðinni neitun, í 10 mínútna ræðu, sem hann flutti í gærkvöldi, og sem útvarpað var um allar breskar stöðvar og útvarpsstöðvar í Bandaríkjunum. Halifax lávarður mælti á þessa leið: Menn hafa heyrt eða lesið ræðu þá, er herra Hitler flutti fyrir tveim döguín, þar sem hann beindi þeirri áskorun til hinnar bresku þjóðar, að beygja sig undir vilja hans og gefast upp. Ekki mun jeg hirða um að orðlengja missagnir hans og rangfærslur um það, sem gerst hefir. Hann kvaðst enga löngun hafa til þess að leggja breska heimsveldið í rúst. Hann mintist ekki einu orði á, að friðurinn yrði rjettlátur, nje hvernig ætti að tryggja sjálfsákvörðunarrjett þjóðanna. 1 stað þess beindi hann orðum sínum til hinna lægstu kenda manna — til hræðslunnar. Röksemdafærsla hans voru ógnanir. Halifax lávarður. Þrjú samveldis- Iðnd Breta hafa sagt: „Nei“ FRELSISHUGSJÓNIN. En einmitt það, að hann leiddi það gersamlega hjá sjer, að minnast einu orði á framtíð þeirra þjóða, sem hann hefir undirokað, sýndi greinilega, hvernig hann hugsar sjer að Þýskaland skuli framvegis ríkja yfir þessum þjóðum, sem hann hefir svift frelsi. Friðarhugsjón okkar, sem oft hefir verið gerð grein fyrir, nú síðast af Roosevelt forseta og Smuts hershöfðingja, er aftur á móti sá, að í hinni nýju veröld sem upp af styrjöldinni rís, verði frjálst samfjelag óháðra þjóða. Þess vegna munum við láta ógnanir sem vind um eyrun þjóta. Hitler hefir nú boðað að hann muni leggja fram alla orku sína í árás á land okkar. Og því er það, sem þið sjáið svo óbrigðula staðfestu jafnt í borg sem bygð. Ef Hitler sigraði, þá myndi hann eyðileggja alt, sem gerir lífið þess virði að því sje lifað. HEILÖG SKYLDA. Enda þótt barátta sú, sem við eigi^m fyrir höndum, kosti okk- ur alt, þá teljum við það helga skyldu okkar, beinlínis forrjett- indi, að fá að berjast og leggja alt í sölurnar fyrir málstað okkar. Ekki var það okkar vilji, að lagt var út í þessa styrjöld, og vissulega óskar enginn okkar þess, að styrjöldin standi degi Jengur en nauðsynlegt er. En ótrauðir berjumst við og aldrei látum við hugfallast fyrri en við höfum trygt eigið frelsi og þeim þjóðum frelsi, sem nú eru und- irokaðar. ÓHÁÐIR GESTAPO. Fyrir hverskonar frelsi berj- umst við? Við berjumst fyrir því, að menn geti frjálsir lifað sínu lífi, óháðir eftirliti Gestapo. Við berjumst fyrir trúar- bragðafrelsi. Við viljum mega hafa leyfi til að tilbiðja drott-, inn vorn, eftir eigin sál og sam^ visku. Við viljum varðveita sam- viskufrelsi manna, en ekki þurfa að afhenda það öðrum. 1 Þýskalandi hafa menn afhent Hitler sjálfstæði sitt og sam- visku. Hann hefir gert fólkið þar að vjelum, sem framkvæma fyrirskipanir hans án þess að spyrja, hvort þær sjeu rjett- látar. VAXANDI ÁGENGNI. Hvaða afleiðingar hefir það haft á Hitler, að hann hefir fengið hið mikla vald? í upphafi var hann hógvær. Þá kvaðst hann ekki ætla sjer annað en berjast fyrir velferð Þýskalands. Síðan hefir ágengni hans far- ið vaxandi og nú sjáum við, að hann gerir sig ekki ánægðan með minna en að vera æðsti verndari allra þjóða Evrópu. Við sjáum hvernig hann hefir gert sjálfan sig að „verndara“ yfir undirokuðum þjóðum í Norður- og Mið-Evrópu. Musso- lini, sem espaðist við sigra Hitlers, gerður „vemdari“ yfir Frakklandi, sem hann barðist aldrei við og krefst að fá að ríkja yfir Miðjarðarhafi, sem hann aldrei hefir náð á sitt vald. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Auk Mensis, forsætisráðherra Ástralíu, hafa nú forsæt- isráðherrar Kanada, Mr. Mac-> kenzie King og forsætisráð- herra Suður-Afríku, Smuts hers- höfðingi, svarað Hitler. I ræðu, sem Smuts flutti á sunnudaginn, lýsti hann einbeittum vilja Suð- ur-Afríku, að halda stríðinu á- fram „þar til að ráðið hefði ver- ið niðurlögum þýsku ofbeldis- stefnunnar“. Mackenzie King sagði í ræðu sem hann flutti í fulltrúadeild kanadiska þingsins í gær, að „hann myndi ekki svara ræðu Hitlers, vegna þess að hún svar-< aði sjer sjálf“. Framtíð Kanada verður ekki ákveðin af Hitler eða Mussolini, heldur af hinni frjálsu kanad- isku þjóð. Vígblikan grúfir nú yfir því landi, þar sem vagga frelsisins stendur , „Innrás í England“, sagði Mackenzití King, ,,er innrás í helgidóm allra frjálsra manna“. SJÓORUSTARNAR I MIÐJARÐARHAFI Herstjórn ítala tilkynnir, að samkvæmt ítarlegum eft- irgrenslunum um viðureign ít- alskra herskipa og flugvjela við bresk herskip dagana 8.—13. júlí hafi komið í ljós, að auk flugvjelaskipsins „Ark Royal“ og orustuskipsins ,,Hood“ hafi skemt enskt herskip af „War- skemst enskt herskip af „War- „Gloucester", sem er 10000 smálestir að stærð, og annað 5200 smálesta beitiskip. Kúgun Rússa Eystrasaltsrfkin látin svifta slg sjátfstæfii Eystrasaltsríkin þrjú, Eist- land, Lettland og Lithau- en, sóttu í gær um upptöku í rússneska ráðstjórnarríkjasam- bandið. Til þess að samþykkja þetta, þarf að kalla saman æðsta ráð ráðstjórnarríkjanna. í R'eutersfregn segir, að um- sókn Eystrasaltsríkjanna hafi ekki komið á óvart í Moskva. Fregnir frá Berlín herma, að umsókn Eystrasaltsríkjanna, sje rnálefni, sem á engan hátt varði Þjóðverja. Þingið í Lithauen samþykti í gær, að setja rekstur allra banka og stórra iðnfyrritækja undir stjórn ríkisins. Ríki þau, sem nú hafa sótt um að komast undir járnhæl rússneska bolsje- vismans hefðu öldum samatí barist fyrir að losna undan yfir- iráðum Rússja, er þau hlutu sjálfstæði sitt eftir heimsstyrj- ^ldina 1918. Bretar loka írska hafinti Bretar hafa lagt nýtt 50 mílna breitt tundurdufla belti frá suð-vesturströnd Eng- lands til írsku landhelginnar. Er innsiglingum í írska hafið og Bristol-flóann þar með lokuð, sunnan frá. Skip, sem ætla að sigla til hafna á austurströnd írlands, eða að vesturströnd Englands, verða að fara vestur og norður fyrir írland. Norskir fiótta- menn í Kanada Nýlega er kominn til hafn- ar í Kanada níu smálesta síldveiðibátur, frá Tromsö í Noregi. 23 flóttamenn voru í bátnum og lentu þeir í miklum hrakn- ingum á leiðinni vestur um haf. Þegar báturinn fór frá Trom- sö í Noregi, reyndu Þjóðverjar að hindra það og hófu skothríð á hann og ber báturinn mörg merki skothríðarinnar. Franskar flugvjelar tóku þátt í loftárásum á Vestur-Þýskaland í gær. Sðk Roosevelts ef strfðifi heldur áfram Dýsk blöð veittust í fyrsta skifti í gær að Roose- velt, fyrir ræðu þá, sem hann flutti á sunnudaginn. „Frank- furter Zeitung“ segir, að „Roose velt sje faðir þeirrar ímyndunar Breta, að þeir geti barist til sig- urs“. Bl£.ðið segir, að Roosevelt eigi mesta sök á því, ef stríðið held- ur áfram. „Völkischer Beobachter" vitn ar í grein eftir Signor Gayda, þar sem ségir, að ræða Roose- velt hafi verið ósamboðin stjórn málamanni. Cordell ffull segir við Ameríku-tiióðirnar: „Verum samtaka!“ Mr. Cordell Hull, utanríkis- málaráðherra Bandaríkj- anna, hvatti Ameríkuþjóðirnar til að vakna til meðvitundar um þær hættur sem yfir þeim vofa, í ræðu, sem hann flutti á al-amerísku rað- stefnunni í Havanna í gær. Til ráðstefnu þessarar hafði verið boðað að undirlagi Bandaríkjanna og var hún sett á sunnudaginn. Cordell Hull varaði Ameríku- þjóðirnar við því, að aðhafast ekk- ert i því trausti, að engin tilraun myndi verða gerð til að fara með stríð á hendur þeim frá öðrum heimsálfum. í þessu sambandi ræddi lianu um England, sem hann kallaði síð- asta varnargarðinn gegn ofbeldinu í Evrópu. Hann lagði til, að allar Ame- ríkuþjóðir tækju sameiginlega í sína vernd öll lönd Evrópuþjóð- anna í vesturálfu, á nteðan sti'íðið stæði yfir. Þær gerðu það ekki vegna þess að þær ásældnst þessi lönd, heldur vegna þess, að þær vildu hindra að gerð yrðu hrossa- kaup með þau, til að jafna ágrein- ingsmól Evrópuþjóðanna eða til þess að koma í veg fyrir, að á- ■greiningsmálin yrðu jöfnuð í þess- um löndum og Stríðið þannig lát- ið breiðast út. Ráðherrann varaði einuig við á- róðri þeim, sem rekinn væri í íVesturálfu, og sem. stjórnað værí frá Evrópu. Hann sagði að gera yrði strangar ráðstafanir til að ltveða niður þenna áróður. Loks lagði hann til að Ameríku- þjóðirnar tækju upp samvinnu sín á ntilli í viðskiftamálum til að vinna upp það tjón, sem þær hefðu beðið við það að missa marlt- aði í Evrópu. Það var tilkynt í Washington í gærkvöldi, að ráðstafanir myndu verða gerðar til að auka höfuð- stól útflutningsbankans í Banda- jríkjunum nm 500 milj. dollara upp í 700 milj. dollara, til þess að efla viðskiftín milli Bandaríkjanna og þjóðanna í Suður-Afríku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.