Morgunblaðið - 23.07.1940, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. júlí 1940-
•COQODOOOOOOOOOOOe
ÚR DAGLEGA
LÍFINU
<xxxxxx
000000«
Hjér eru nokkrar frjettir úr Morg-
unblat5inu fyrir 25 árum, frá í júní
og julí 1915:
15. júní 1915.
Ma'öur keypti fisk í gær og fól dreng
nokkrum að bera hann heim fyrir sig.
Síðan hefir hann hvorki sjeð fiskinn
nje drenginn. Er þetta sagt mönnum
til viðvörunar um það, að trúa ekki
of vel drengjum, sem standa á hverjum
degi niður á fiskitorginu og bjóðast til
að bera fisk fyrir menn.
17. júní 1915.
PrÖf var haldið í fyrradag í bifreiða-
akstri. Var Jessen vjelfræðikennari
prófdómari. Tóku 5 próf: Egill Vil-
hjálmsson, Arni Magnússon, Haflðii
Hjartarson, Björgvin Jóhannsson og
Valdemar Stefánsson. Eftir þetta má
enginn stjóma bifreið, sá er eigi hefir
leist próf af hendi.
18. júní 1915.
Símskeyti frá Akureyri:
Ceres komst hingað við illan leik í
gær. Sagði töluverðan ís fyrir utan.
Skipið ætlar að dveljast hjer til morg-
uns, til þess að vita hvort ekki rætist úr-
Komist Ceres ekki vestur um, er sagt
að skipið muni halda aftur benit til
illanda.
20. júní 1915.
Hestur drapst fyrir vagni hjema of-
an við bæinn í fyrradag. Atti hann
sveitamaður, sem var á leið hingað.
Sennilegt er að ofþreyta hafi valdið,
þlví eigi verða hestar bráðkvaddir að
jafnaði.
23. júní 1915.
Fjöldi sveitamanna hefir komið til
bæjarins þessa dagana. Koma þeir nú
fjestir á vögnum austan yfri fjall, en
lestir, sem tíðkuðust í gamla daga, eru
mikið að hverfa úr sögunni.
24. júní 1915.
j Tvær kýr vom á beit á Austurvelli
í gær og gerðu hann lítt þrifalegri. Nú
hafa blessuð börain eitthvað til að leika
sjer að á vellinum!
28. júní 1915.
Pjöldi fólks fór upp í Mosfellssveit í
gær sjer til skemtutiar og hressingar.
29. júní 1915.
Lax var seldur á 60 aura ktlóið í
gær. Alt hækkar í verði.
29. júní 1915.
Maður nokkur gerði það að gamni
sínu á sunnudaginn að veita því ná-
kværna eftirtekt hve margir fóru upp í
Mosfellssveit sjer til skemtunar Frá kl.
ÍO árd. til 5 síðd. taldist honum 318
manns fara inn Laugaveginn ríðandi,
í lystivögnum, í bifreiðum og á hjólum.
29. júní 1915-
Síðasti konungkjörinn. Konungur
hefir kvatt dr. Jón Þorkelsson til þing-
Setu í stað Júlíusar heit. Havsteen amt-
manns.
Verður dr. Jón áreiðanlega hinu síð-
asti konungkjörinn, ef alt er með feldu,
12. júlí 1915.
, Flóra komst á Sigluf jörð á leið aust-
pr með Norðurlandi. En þar varð hún
að snúa við þar eð ís var mikill á
Húnaflóa.
Bifreið ók á vagnhest í fyrradag og
i'ótbraut hann. Hestinum var auðvitað
íjlátrað þegar í stað og er oss sagt að
hifreiðarstjórinn hafi orðið að greiða
fyrir hann 250 krónur. Hestar em dýr-
ir nú-
18. júlí 1915.
Viðgerðinni/ á Aðalstræti er nú lok-
íð og er nú sem stöfugólf í þurki. Em
terkamenn nú famir að grafa upp Suð <
urgötu, sem verður ,,asfaltemð“ í sum- j
ar. Þá þarf ekki lengur að kvarta yfir:
for og illri færð á þessum strætum mið- ^
hæjarins. En nóg er eftir samt.
Framh. af 2. siOu
jr
Oðinn vann reiptogið
að Eiði
FSAMH. A7 ÞRIÐJTJ SÍÐU.
kvæmt, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði öllum öðrum flokkum
fremur skilyrði til þess að sinna
þessu mikilvæga verkéfni. Hann
Væri flokkur allra stjetta þjóð-
fjelagsins og sameinaði því þeg-
ar innan sinna vjebanda þau mis
munandi sjónarmið, sem raun-
verulega gæti verið um að ræða
í þjóðlífinu.
„1 þessu ljósi kemur hið al-
varlega ástand mjer fyrir sjónir,
frá flokkslegu sjónramiðií*.
Þessu næst vjek formaður að
viðhorfi einstaklinganna. Hann
sagðist tróa því, að hver og einn
einstakur leysti nú sem endra-
nær af höndum sína skyldu
gagnvart þjóðinni með því að
rækta með sjálfum sjer þær
dygðir, sem þjóðinni hefðu
reynst hai^bestar og heillarík-
astar á umliðnum tímum. Þess-
ar dygðir væru iðni og atorku-
Sémi, sjálfsbjargarlöngun og
vinnugleði. Ekkert tryggði betur
framtíð þjóðarinnar, en að hver
og einn gengi að sínu starfi, við
framleiðslu til lands og sjávar,
við iðnað, við verslun og við-
skipti, með glóandi löngun til
þess að leysa úr læðing meiri
orku Og nýj^n kraft til efling-
ar þjóðfjelaginu.
Og mestu máli skipti, að æsk-1
an byggi yfir slíkum áformum.
Dávíð stefánsson frá Fagra-<
skógi segir á einum stað í litlu
Ijóði: „Sá máttur fylgir meist-<
arans höndum, að leysa fjötraða
fegurð úr böndum“. Það ættu
að vera háleitustu vonir og göf-
ugustu óskir æskunnar, að
henni megi hlotnast sú ham-
ingja að leysa úr læðing ný og
skapandi öfl, sem búa í landinu
og með þjóðinni".
Næst fluttu ræður: Óttar
Möller, og talaði um æskuna og
þjóðina. Bjarni Björnsson, og
talaði um æskuna og Sjálfstæð-
isflokkinn, og Guðmundur Guð-
mundsson, er talaði um frelsi og
sjálfstæði -íslensku þ.jóðarinnar.
Voru ræður þessara ungu Sjálf-
stæðismanna skörulegar og
djarfar og bera vott um hinn
vaxandi þrótt í fjelagslífi ungu
mannanna.
Á milli í'æðanna ljek lúðra-
sveitin ,,Svanur“, undir stjórn
Karls Runólfssonar, íslensk ætt-
jarðarlög og síðast þjóðsöngur-
inn, ,,Ó, guð vors lands“.
Á eftir ræðuhöldunum fór
fram reiptog milli Heimdallar
og Óðins. Voru 8 menn frá
hvoru fjelagí á reipinu. Reip-
drátturinn fór fram í 3 Iotum og
sigraði Óðinn í 2 lotum en
jafntefli var í miðlotunni. Óð-
inn bar því sigur úr bítum. Á-
horfendur fylgdust með miklum
áhuga með reiptoginu, og er
mjög vel til fallið að efna til
svipaðrar eða samskonar kepni
milli Sjálfstæðisfjelaganna á
skemmtunum þeirra. En nokk-
uð vantaði á, að það væri nægi-
lega vandað til kepninnar, þar
sem staðurinn, sem dregið var á,
var ekki sem heppilegastur.
TöLuverður skáhalli á grupdinni
skapaði nolokurn aðstöðumun,
sem að þessu sinni var Heim-
dalli í óhag.
Annars virtust bæði lið fjelag
anna skipuð knálegustu mönn-
um. Óðinsliðið skipuðu þess-
ir menn: Gísli Guðnason, Snæ-
björn Eyjólfsson, Þórður Þórð-
arson, Þórður Björnsson, Axel
Þórðarson, Guðjón Þorsteinsson,
Guðni Guðnason og Ingimundur
Guðmundsson. Heimdallar-liðið
skipuðu: Magnús Jónsson, Arn-
old Pjetursson, Sveinn Sveins-
son, Hreiðar Ágústsson, Gunn-
ar Kristinsson, Vilberg Her-
mannsson, Kjartan Bergmann
og Ingólfur Möller. Lárus Bl.
GuðmundSson stjórnaði reiptog-
inu.
Að reiptoginu loknu sýndu 5
Ármenningar íslenska glímu.
Fór glíman prýðilega fram og
sýndu glímumenn mikla leikni
við mikið lof áhorfenda. Glímu-
mennirnir voru: Ingimundur
Guðmundsson, glímukongur ls-
lands, Kjartan Bergmann, glímu
snillingur, Gunnlaugur Briem,
Sigurður Hallbjörnsson og Jó-
hannes Bjarnason.
Þegar hjer var komið, hófst
sá liður skemtunarinnar, sem
vakti mestan hlátur áhorfend-
anna, en það var pokahlaupið.
Kept var í tveim flokkum, yngri
og eldri flokk. Keppendur
stukku og kútveltust í pokum
upp undir hendur og notuðu
„allan gang“ til þess að komast
að markinu. Fyrstir urðu, 1
yngra flokki Sigurður Pálsson,
en í eldra flokki Hreiðar Ágústs
son.
Að endingu var dansað fram
til miðnættis.
Síldveiði-
skipio
FRAMH. AF ÞRIDJU SÉÐU
geir goöi 2003, Þórir 1808, Þorsteinit
4086, Sæuttn 2021, Valur 270.
Mótorbátar (2 um nót) :
A age, H.jörtur Pjetursson 1470,
Alda, Hilmir 1266, Alda Stathav
1150, Aama, Einar Þveræingur 1901,
Asbjörg, Auöbjörg 606, Baldur,
Björgvin 1834, Barði, Vísir 2171,
Bjarni Ólafsson, Bragi 2076, Björg,
Magni 1785, Bjöm Jörundsson, Leif-
tti' 2837, Bliki, Muggur 1810, Brynj-
ar, Skúli fógeti 706, Cristíanne, Þór
1906, Eggert, Ingólfur 2788, Einir
Stuðlafoss 1180, Erlingur I-, Erlirlg-
ur II. 2868, Freyja, Skúli fógeti 2285,
Frigg, Lagarfoss 2193, Fylkir, Gyll-
ir 2734, Gisli J. Johnsen, Veiga 2773,
Gulltoppur, Hafalda, 2016, Haki, Þór
625, Hannes Hafstein, H.elgi Hávarðs-
son 1976, Hvanney, Síldin 1073, ís-
lendingur, Krist.ján 997, Jón Finns-
, Víðir 1871, Jón Stefánsson, Von-
;n 2061, Muninn, Þór 431, Muiiinn,
.Egir 2062, Óðinn, Ófegiur II. 2792,
Reynir, Víðir 792, Snarfari, Villi
1908, Stígandi, Þréinn 2204.
Fyrsti dagur
Allsheri armótsins
Allsherjarmót í. S. t hófst
í gær. Undanrás í 100
metra hlaupi fór fram kl. 6
e. h. Af 17 skráðum kepp-
endum komu 11 til leiks.
Kept var í 3 riðlum (4 í tveim
fyrstu og 3 í síðasta) komst 1
maður úr hverjum riðli í úrslit.
Þessir urðu hlutskarpastir:
1 1. riðli Jóhann Bernhard (K.
R.) 11.8 sek.
í 2. riðli Sveinn Ingvarsson (K.
R.) 11.6 sek.
í 3. riðli Haukur Claessen (K.
R.) 12 sek.
Síðan fór fram kepni millj.
þeirra er urðu nr. 2 í hverjum
riðli og fekk sá, sem sigraði, rjett
til þess að taka þátt í úrslita-
spretti. Þar sigraði Sigurður Guð-
mundsson úi- Ungmennafjelaginu
Skalagrímur, Borgarfírði, á 11.8.
KI. 8x/‘2 hófst kepni í stangar-
stökki. Urslit urðú þessi:
1. Anton Björnsson (K. R.) 3.17 m.
2. Sigurður Steinss. (í. R.) 3.12 m.
3. Sig. Sigurðsson (í. R.) 3.01 m.
4. Þorst. Magnúss. (K. R.) 3.01 m,
Síðan fór fram úrslitakepni í
100 m. hlaupi, sem lauk þannig:
1. Sveinn Ingvarsson 11.5 sek.
2. Jóhann Bernhard 11.6 sek.
3. Ha,ukur Claessen 11.6 sek.
4. Sig. Guðmundsson 11.7 sek.
Þvínæst var 800 m. hlaup. Þar
varð fyrstur Sigurgeir Ársælsson
(Á.) 2 mín. 3.5 sek., annar Ólafur
Símonarson (Á.) 2 mín. 8.§ sek.,
þriðji Óskar A. Sigurðsson (K. S.)
2 mín. 11 sek. og fjórði Árni Kjart
ansson (Á.).
Þá fór fram kringlukast. Þar
sigraði frækilega Gunnar Huseby
(K. R.) og er hann aðeins 16 ára
að aldri. Kastaði hann 42.81 m.,
en ísl. met er 43.46 m., og má
mikið vera ef þess er langt að
bíða að hann fari fram úr því.
Næstur varð Kristján Vattnes (K.
R.), kastaði 37.86 m., þriðji Ólaf-
ur Guðmundsson (í. R.) 37.07 m.
og' fjórði Sveinn Stefiánsson (Á.)
35.24 m.
í langstökki var allhörð keptú
milli Jóhanns Bernhard (K. R.),
sem bar sigur úr býtum, og Oliver
Steins (F. II.).
Urslit í langstökki urðu þessi:
1. Jóh. Bernhard (K. R.) 6.23 m.
2. Oliver Steinn (F. H.) 6.16 m.
3. Sig. Guðmundsson (Sk.) 5.97 m.
4. Sig. Norðdahl (Á.) 5.91 m.
Að lokum fór fram 1000 metra
hoðhlaup. Fyrst er 100 m. sprett-
síðan 200 m., 300 m. og loks
400 m. í fyrri umferð hlupu A-
sveit K. R., A-sveit Ármanns og
í. R. Fyrstu 100 m. fylgdust sveit-
irnar að, eftir 200 m. sprettinn
liafði Baldur Möller (Á.) komist
ca. 2 m. fra mfyrir K. R.-inginn,
en þá tók við keflinu Sveinn Ingv-
arsson (K. R.) og hljóp hann um
30 m. fram úr Ólafi Símonarsym
(Á.). Síðustu 400 m. hlupu þeir
Jóhann Bernhard fyrir K. R. og'
Sigurgeir Ársælsson fyrir Ármann.
Jóhami hljóp geyst af stað og
hjelt sama millibili Jengi vel, en
þó fór svo að Sigurgeir vann
I drjúgt á, en ekki nóg' og K. R.
! vann „með glans“. Hlaup þetta
i var liið skemtilegasta.
Síðan hlupu B- og C-sveit K. R.
og B-sveit Ármanns.
Úrslit boðhlaupsins urðu þessi:
1. A-sveit K. R. 2 mín. 10.2 sek.
2. A-sveit Ármanns 2 mín. 12.3 sek.
3. B-sveit K. R. 2 mín. 15.3 sek.
4. í. R. 2 mín. 15.7 sek
Þegar hjer er komið hefir K. R.
fengið 55 stig, Ármann 20, í. R.
12, Fimleikafjel. Ilafnarfjarðar 5,
Ungmennafjel. Skallagrímnr, Borg
arnesi, 4 stig.
Stigin reiknast þannig: 7 fyrir
1. mann, 5 fyrir 2., 3 fyrir 3. og
1 fyrir 4. mann.
Sildin
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Á hádegi í dag voru 47 skip
við Ríkisverksmiðjurnar í los-
un og sem biðu losunar. Vom
þau samtals með um 27000 máL
Á Raufarhöfn voru þá 19 skip
með 10 þúsund mál, í Krossa-
nesi 4 skip með 2500 mál, en
2000 mál voru komin þar í land.
Á Djúpavík voru þá 8 skip með
5 þúsund mál, og ættu því að
hafa verið 53 skip á miðunum á
þessum tíma, eða á leiðinni til
lands eða frá landi.
Síldin er víða mjög nálægt
landi.
Alt er gert sem unt er til að
hraða afgreiðslu skipanna sem
mest, og rg,ða þeim þannig við
bryggjurnar, að þau komist það-
an sem hraðast að löndun lok-
inni.
Ákveðið hefir verið að hefja
rekstur Sólbakkaverksmiðjunn-
ar við Önundarfjörð.
Á HJALTEYRI.
Mánudagskvöld.
Ellefu skip bíða hjer losunar.
Frá því á laugardagskvöld hafa
þessi skip losað hjer: Bisko
1112, ' mál, Normann 657,
Thurid 640, Jökull 669, Ivonne
486, Sjóborg 577, Skallagrímur
2400. Fjölnir 765, Gaapaa 673,
Fylkir 574, Ármann 843, Bjarn-
arey 957, Hrefna 662,Fróði 796.
SlLD VIÐ SELSKER.
Djúpavík, mánudagskvöld.
Yfir helgina hafa borist hjer
á land um 25000 mál síldar. 7
skip bíða nú löndunar og munu
þau verða losuð í nótt.
Síldin er að mestu veidd við
Grímsey og út af Siglufirði. Fitu
magn síldarinnar er 19—20%.
Lítið hefir enn orðið síld-
arvart hjer á Húnaflóa, en í
dag sáu menn frá Ófeigsfirði
mikla síld vaða við Selsker.
í gær og í dag hafa m. a.
þessi skip lagt hjer upp afla
sinn: Sæhrímnir 876 mál, Kefl-
víkingur 575, Huginn III. 511,
Freyja 609, Jón Þorláksson 669,
Geir goði 489, Sæfari 550, Hug-
inn II, 539, Grótta 452, Sigrún
546, Huginn I. 766, Tryggvi
gamli 2022, Rifsnes 823, Sur
prise 972, Sæfinnur 1074, Þor-
steinn 605, Isleifur 685, Pjeturs-
jey ca. 700, Gunnvör ca. 1200,
Ari ca. 1000, Rán ca. 1000.