Morgunblaðið - 22.10.1940, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.10.1940, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. október 1940 Hæslirf etlur: Það var heild- söluverslun Alagningin því of há HÆSTIRJETTUR kvað í gær upp dóm í mál- inu: Valdstjórnin gegn Óla Vernharði Metú- salemssyni. Tildrög málsins eru þau, að hinn 27. mars 1939 kom eftirlits- maður Verðlagsnefndar í verslun Ó. V. Jóhannsson & Co. og tók þar tvo verðreikninga yfir húsgagnaáklæði, sem verslunin hafði til sölu. Iieiknaðist honum svo til, að álagning verslunarinnar væri sem næst fylsta leyfileg smásöluálagning. Þótti eftirlitsmanni þetta ein- kennilegt, því honum virtist hjer væri um að ræða heildverslun. Hann færði þetta í tal við framkvæmdastjórann, Óla V. Metúsalemsson, en hann hjelt því ákveðið fram, að hjer væri smásöluverslun. Voru svo síðar þetta sama ár tekin fleiri verðsýnishorn og þau sýndu einnig smásöluálagningu. Við nánari athugun komst Verðlagshefnd að þeirri niður- stöðu, að hjer hlyti að vera um að ræða heildverslun og 31. ágúsc f. á. kærði hún verslunina fyrir úlöglega verslunarálagningu. Viðskiftamenn verslunarinnar voru aðallega húsgagnabólstrara- meistarar, sem seldu húsgögn í heilu lagi. Þeir voru 'margir leidd- ir sem vitni í málinu og háru það, að ]>eir hefðu oftast keypt áklæði ■gegn framsali gjaldeyris- og inn- flutningsleyfa. Þeir hefðu því lit- ið svo á, að hjer væri heildversl- nn og með tilliti til þess hefðu þeir sjálfir lagt á áklæðin sem svaraði leyfilegri smásöluálagn- ingu. Lögreglurjettur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu, að hjer væri heildverslun og að versl- nnin hefði því brotið ákvæði !. nr. 70, 31. des. 1937, um verðlag á vörum. Var Óli V. Metúsalems- son dæmdur í 800 kr. sekt og skyldi ólöglegur ágóði, kr. 1565.51 gerður upptækur. Þessum dómi áfrýjaði Óli V. Metúsalemsson. Hæstirjettur lækk aði sektina niður í 200 kr., en feldi burtu ákvæði undirrjettardómsins nm upptækan ágóða. , í forsendum dóms Hæstarjettar segir svo: ,,Það verður að líta svo á eftir til- högun þeirri, sem kærði hafði í versl- unarrekstri sínurn, að hann hafi komið fram sem heildsali gagnvart iðnrek- «ndum þeim, er hann seldi hÚ3gagna- áklæði á áriiiu 1939, svo sem nánar segir í hjeraðsdóminum. Hann hef,r jneS of hárri verSIagningu á vöm þes-a brotið ákvæði 3. mgr. 8. gr. laga nr 70 frá 1937 um verðlag á vörum, sbr- auglýsingu atvinnu- og samgöngumála ■ ráðuneytisins 11. febr. 1939 og aug- lýsingar verðlagsnefndar 17. febrúar og 13. apríl sama ár. Ber uú að ákveða refsingu fyrir brot þetta eftir 3. mgr. 13. gr. laga um verðlag nr. 118 frá 1940, sbr. 2. gr. almennra hegningar- laga. Eftirlitsmaður verðlagsnefndar at- hugaði verðlagningu kærða, fyrst 27. mars 1939 og síðan 12. apríl, 4. maí, 22. júlí og 18. ágúst s. á., og var verslunartilhögun og verðlagning kærða með svipuðum hætti allan þann tíma, að því leyti, sem hjer skiftir máli. Samt sem áður hefir verðlagsnefnd ekki, svo sjeð verði,. ámint kærða eða lagt fyrir hann að breyta um verð- lagningu áður en hún kærði hann fyrir lögreglustjóra þann 31. ágúst 1939. — Með tilliti til þessa þykir refsing kærða hæfilega ákveðin 200 króna sekt til ríkissjóðs, og komi 12 daga varðhald í stað sektarinmvr, ef hún verður ekki greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa. Með hjeraðsdómi er gerður upptæk- ur ólöglegur ágóði kærða að fjárhæð kr. 1,565,51. Af próftm málsins verður ekki sjeð, hvemig þessi fjárhæð er reiknuð nje við hafa sölur hún er miðuð, og ekki s.jest heldur, að hún hafi verið borin undir kæru og hor.um veitt færi á að gæta rjettar síns í því sam- bandi. Er því ekki kostur þess að á- kveða nú, hverju óiöglegur ágóði kærða kann að hafa numið, og verður að sýknh hann af þessu kæruatriði. Eftir þessum málalokum ber að stað- festa ákvæði hins áfrýjaða dóms um greiðslu sakarkostnaðar í hjeraði. Svo ber kærða og að greiða allan áfrýjun- arkostnað sakarinnar, þar með talin málflutningslaun skipaðs sækjanda og verjanda í hæstarjetti, 100 krónur til hvors“. Sveinbjörn Jónsson hrm. var sækjandi málsins, en verjandi Eggert Claessen lirm. Bifreiðarstjóri getur fenglð atvlnnu §trax. Afgrelðsla blaöslns visar á. Símar 1540, þrjár línur. Góðir bflar. Fljót afgreiðsla. B. S. í. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNPLAÐINU. H ELGI LAXDAL Kveðja frá skólabróður Helgi Laxdal sagði eitt sinn við mig af venjulegri glettni sinni, þegar fram af hon- um gekk, hve skólasetur mínar lengdust og próf mín drógust, að ekki yrði þess langt að bíða, að allir embættismenn á fslandi yrði skólabræður mínir. En þegar jeg lít nú í huga mjer yfir allan þenn- an sæg skólabræðra, þá er þar einn, sem er mjer langsamlega hugstæðastur, og sá maður er — Helgi Laxdal. Það er ekki ein- ungis af því, að hann var mjer kunnugri en ýmsir aðrir náms- fjelagar mínir, heldur fyrst og fremst af hinu, að fyrir mínum sjónum er hann frumlegasti, svip- mesti og sjerstæðasti einstkling- urinn í þeim flokki. Við hjetum því eitt sinn hvor öðrum, að sá, er hinn lifði, skyldi eftir hann skrifa, ef nokkur yrði til þess. Og við tókum þess dýra eiða hvor af öðrum, að þau eftir- mæli yrði ekki tómt skrum og skjall, grátstafir einir og guðs- orðalestur, heldur drög til mann- lýsingar, eins og við þekktum hana sannasta og gætum dregið hana gleggsta. Auðvitað bjuggumst við þá við langri og merkilegri ævi- sögu, ef til vill ekki miklum mann- virðingum, en að minnsta kosti merkilegum verkum og miklum afköstum, þar sem vilji okkar og vitnnd hefði kristallast og ein- staklingseðlið lifði að nokkru leyti áfram, eins og gengur og gerist um drauma skólapilta. Nú er kom- ið að þeim skuldadögum, að jeg efni heit mitt við Helga, sem hef- ir nú sjálfur greitt þá miklu skuld, sem við eigum öll að gjalda. Enginn, sem Helga þekkti, myndi segja það hræsnislaust, að hann hefði verið lipurt ljúfmenni í dagfari sínu, enda hefði hann þá ekki verið jafn-yfirbragðsmik- ill og eftirminnilegur og raun ber vitni .Hann var í framkomu sinni óþjáll og napur, stríðinn og stund- um allt að því kaldhryssingslega ónotalegur. Sumir, sem við hanu áttu lítil skipti, eygðu aldrei inn fyrir ysta borðið og kváðu hann kaldlyndan mann og ónærgætinn. En undir þessu hrjúfa yfirborði bjó í senn einhver viðkvæmasta sál og sterkasta skapgerð, sem jeg hefi kynnst. Að upplagi var hann manna næmastur á öll ytri áhrif, og við það bættust hin þyngstu veikindi og árlangar rúmlegur. Allar þær raunir bar hann af þrotlausu þreki, og nú síðast vann hann fram undir andlát sitt og leyndi sjúkdóm sinn jafnt lækni sínum sem vinum, þótt hann vissi sig feigan. En hann 'Vildi hvorki vægja og lúta örlögum sínum nje láta sjálfan sig uppi við aðra, og þess vegna brynjaði hann sig gegn umhverfinu, faldi þunglyndi sitt undir glettninni, viðkvæmni sína undir kaldranahætti. Það, sem Helga þótti merkileg- ast allra fyrirbæra í þessum heimi, var maðurinn,' einstakling- urinn. Athyglisgáfa hans var frá- hær, og með hinni óvæntu fram- komu sinni og opinskáu spurn- ingum stóðu menn oft varnar- iansir gagnvart honum og ljetu þá óvart uppi ýmislegt það, sem öðrum var huiið. Þannig komst hann fyrir margt, og hann hugs- aði mikið um þá menn, sem á lífsleið hans urðu, og hann var ákaflega nærfærinn á eðli þeirra og innstu hvatir, gat oft lesið leyndustu hugsanir manna og ráð- ið bældustu kenndir þeirra, svo að Helgi Laxdal. furðu gegndi. Hann er einhver mesti mannþekkjari, sem jeg hefi kynnst. — Við þessa sífelldu um- hugsun hans um mannlegt eðli og einstaklingseinkenni bættist mik- ill lestur ágætustu bókmennta, því að Helgi var listhneigður mjög og ljóðelskur, kunni til að mynda utan að mikið af kvæðum Step- hans G. Stephanssonar og Einars Benediktssonar, og flestum mönn- um bar hann betur skyn á leik- list, þeirra, sem ekki hafa lagt sjerstaka stund á þá grein og aldrei farið utan, því að saman fór hjá honum frábær smelckvísi og dæmafá dómgreind, sem birt- ist að vísu fremur í einstökum skarplegum athugunum en heild- argagnrýni, og stundum gat svo virst, að glöggskvggnin beindist meir að véilum en verðleikum, meir að göllum en giidi, eins og títt er um gáfaða íslendinga. En iistir og skáldskapur voru honum engin hjegómamál eða fánýt leik- föng, heldur rammur þáttur í hans eigin þroskasögu. Áhugi hans og ást á þessum efnum birtist m. a. í því, að hann hafði varla lokið lögfræðiprófi, er hann sótti um innritun í heimspekideild háskól- ans, þar sem hann lagði stund á íslenska bókmenntasögu allt frá próflokum sínum í lögfræði í janú- ar 1939. Ásamt veikindum Helga urðu öll þessi hugðarefni til að auka honum andlegan þroska og afla honum menntunar í sannasta og eiginlegasta skilningi þess orðs. Það var ekki aðeins, að það væri hið mesta yndi og ógleymanleg nautn að heyra Helga ræða um skáldsakp, þegar komið var inn ur þeirri hörðu en þuunu skel, sem hann hafði brætt utan um sig, og skarpskyggni hans og dómgreind voru yljuð af hjartafólginni hrif- næmi, heldur ATar eins og manni sjálfum ykist þá hugkvæmni og hyggjuvit í návist hans, sú and- lega snerting ein við þennan þung- lynda bölsýnismann gat öðrum orðið örvun og afigjafi. Frumlegastir og frjóastir hafa hæfileikar Helga líklega verið á hin listrænu hugðarefni. En í lög- fræði hafði hann lokið góðu prófi og var talinn svo efnilegur í þeirri grein, að skömmu eftir próflok var hann skipaður setudómari. Hann hafði hart nær lokið þeim störfum, er hann andaðist af berklum 15. okt. s.l., tæplega þrí- tugur að aldri (f. 29. okt. 1910 að Tungu í Svalbarðssókn). Það væri til lítils að leggja hjer fyrir sig þá gátu, sem menn hafa árangurslítið spreytt sig á, allt frá því að saknaðarkennd kviknaði mönnum í brjósti, hvers vegna menn með mikla hæfileika og hálf- notað starfsþrek hverfa hjeðan aS óunnu dagsverki. En ef til vill hafði Helgi lokið því, sem mestu skiptir einstaklinginn sjálfan og persónuþroska hans, hann hafði sett sjer takmark, tekið hina end- anlegu ákvörðun, hafnað og valið. Líklega veit jeg einn manna um þessa ætlun Helga, og öðrum kanu að virðast hún litlu skipta úr því, sem komið er. En það er hvort- tveggja, að hún lýsir manninum mæta vel og gæti orðið öðrum að hollu hugleiðingarefni. Fyrir skömmu stóð hann á krossgötum. Um tvennt var að velja. Annað var föst staða, sem hefði getað gefið fyrirheit um heimili, borgaralega virðignu og áhyggjulítið líf. Eu sjálfur ól hann í hrjósti þrá Tim að semja lært verk og mikið og hafði hugsað sjer viðfangsefnið. Fyrir þessu var engin skynsam- leg ástæða, því síður hjegóma- girnd, þótt þetta kynni í hæsta lagi að afla honum doktorsnafn- bótar einhvern tíma síðar meir. Þetta var af óskýranlegri imuri þörf, ómótstæðilegri hvöt, sem á hann sótti, þrá til að reyna krafta sína, nauðsyn þess, að sanna það fyrir sjálfum sjer, að hann væri nokkurs megnugur. Honum var Ijóst, að hann yrði að hafna mörgnm heimsins lystisemdum, ef hann hyrfi að þessu ráði. Hann yrði fyrst að starfa árum saman til að afla sjer fjár og síðan að vinna um margra ára skeið að verkefni sínu. Honum var einnig ljóst, að hann.yrði fyrir vonbrigð- um, hvorn kostinn, sem hann kysi. T ritstörfum sínum og fræðagrúski myndi hann sakna hinna föstu iauna og hins friðsæla heimilis. En hann komst að þeirri niður- stöðu, að fastastaðan yrði sjer ó- bærilegri. Hann viðurkenndi gagn- semi hennar fyrir þjóðfjelagið eg gildi hennar fyrir þá, sem hún hentar. En þar sæi hann engin merki starfs síns, skapaði ekkert, helsta takmark lífsins yrði þar að spara af mánaðarkaupi sínu til næsta sumarleyfis og helsta vandamál lífsins að ráða fram úr því, hvernig þessu sumarleyfi yrði varið. Slíkt líf hefði aldrei veitt honum neina fullnægingu, til þess var það of tilgangslaust, andlega innantómt og fátæklegt. Þar hefði honum stöðugt fundist hann eiga óleyst verkefni það, sem á hann sótti, hafa brugðist köllun sinni, selt sál sína, látið sóma sinn, glat- að virðingunni fvrir sjálfum sjer. Það gat hann ekki. Hann A'ildi vera mikill af sjálfum sjer. Þess vegna hafði hann sett sjer tak- mark, tekið hina eridanlegu á- kvörðun, hafnað og valið. Hanu fjekk ekki flúið örlög sín fremur en aðrir menn. En hann beygði sig aklrei fyrir þeim, hvikaði ekki frá marki sínu, sveik aldrei sjálfan sig. Steingrímur J. Þorsteinssou. rúúií hoffiá' mea RITS m)fiEiEeiiBáu)íi EF LOFTUR GETUR ÞAI> EKKI-----ÞÁ HVER?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.