Morgunblaðið - 22.10.1940, Page 5

Morgunblaðið - 22.10.1940, Page 5
:í»riðjudagiir 22. október 1940 Jplorjgtm&lafctS Út*ef.: H.f. Árvakur, Beyklavlk. BltatJOrar: Jón KJaatanuóo, Valtýr Stefáneeoa (ADyrgBanM Auglýsingar: Árni Óia. Bltetjðm, auglýelngar om af*rei»»lat Ausíurstceeti t. — Blml X&ðO. Áakrif targjald: kr. R.BO A OÁaOtU lnnanlanas, kr. 4,00 tttanlands. 1 lausasdlu: 2U aura eintakW, 26 aura maB lenbók. Furðuleg skrif PAÐ var nýlega hjer í blaðinu minst á grein í enska blað- inu „Spectator" ,eftir Snæbjörn -Jónsson bóksala. í grein þessari ræðir bóksalinn um ástandið, sem :nú ríkir í okkar landi. Hann * minnist á þá meðferð mála í æðstu stjórn landsins, sem komst á 9. apríl s.l. og segir rjettilega, að jJ>etta ástand sje aðeins til bráða- birgða. En þegar svo höf. fer að ræða nm framtíðina, segir hann, að ísland þurfi vernd erlends ber- veldis, til þess að halda sjálf- •stæði sínu. Þetta hafi „gáfaðri íMuti“ þjóðarinnar sjeð fyrir löngu og því til sönnunar vitnar höf. í skrif tveggja alþingismanna, þeirra Jónasar Jónssonar og Hjeð- ins Valdimarssonar. Jónas hefir mótmælt því í Tímanum, að hann hafi haldið þessn fram. Bóksalanum var í allri vinsemd bent á hjer í blaðinu, að það væri á öllum tínnim skaðlegt að vera að skrifa í erlend blöð um mál- efni íslands á þann veg, að and- stætt væri hagsmunum og vilja Islensku þjóðarinnar. En á tím- nm sem nú eru, væru slík skrif beinlínis háskaleg. Það var búist við, að bóksalinn kæmist við nán- ari athugun að raun um, að hanu hefði hjer hlaupið á sig og hegð- að sjer á annan veg en samboðið væri íslenskum þegn. Hann myndi því afsaka sínar gerðir og sjá til þess, að skrif hans gleymdust skjótt. En það virðist svo sem bóksalanum sje þetta ekki ljóst ennþá, því að hann er svo smekk- laus, að trana hinu enska blaði út í sýningarglugga í verslun sinni og bendir vegfarendum alveg sjer- staklega á hans eigin grein. Það má vel vera, að hóksalinn finni með þessu náð hjá hinum erlendu hermönnum, sem fram hjá ganga, en allir sannir íslendingar hafa skömm á þessu atferli. Fyrir tveimur árum eða svo, bjeldu kommúnistar uppi þeim iætti, að skrifa í erlend blöð og tímarit um íslensk mál þannig, að íslensk stjórnarvöld urðu að mót- mæla. Skrif kommúnista heindust einkum að því, að telja umheim- inum trú um, að íslendingar væru orðnir svo háðir þýsku stjórninni, að segja mætti, að hún rjeði hjer lögum og lofum. Sumt af þessum -skrifum kommúnista birtist í ame- rískum og enskum tímaritum. Við vítum ekki hvaða áhrif þessi skrif kommúnista kunna að hafa haft, á hresk og amerísk stjórnar- völd. Hitt vitum við, að okkar land er nú hernumið af bresku -setuliði. Skrif kommúnista hjer áður fyr og skrif hóksalans nú, eru öll í óþökk íslensku þjóðarinnar og •gegn hennar hagsmunum. Þau eru ®ðeins til þess, að vinna landi og þjóð tjon. $ Mjólkurskipulagið og hlutur bænda í nágrenni Rvíkur Eftir Eyjólf Jóhannsson í eftirfarandi grein svarar höfundur síra Sveinbirni Högnasyni og aðdróttunum hans í garð Mjólkurf jelags Reykjavíkur um viðskifti þess við hændur áður en nú- verandi söluskipulag mjólkur komst á. Hann sannar að mismunur á því, sem neytendur greiða og framleiðendur fá, er ca. 31 eyrir á hvern lítra. Hann bendir á, að síra Sveinbjörn telur dreifingar- kostnaðinn 3,22 aura á lítra. Þá segir Páll Zophoníasson að sami kostnaður sje rúmlega 13 aurar á lítra. Þá lýsir hann rangsleitni þeirri, sem bændur í ná- grenni Reykjavíkur eiga við að búa, þar sem þeir verða að búa við alt aðra og strangari flokkun, heldur en gæða-flokkun sú, sem viðhöfð er á mjólk frá Flóabúinu. Að lokum sýnir hann fram á, að bændur í nágrenni Reykjavíkur fá ekki nema 27% hæra verð fyrir mjólk sína nú, en árið 1914. Og verri ert þú“, sagði strákurinn. Ennþá lifir í kolunum, varð mjer að hugsa, þegar jeg las grein síra Sveinbjarnar Högna- sonar í „Tímanum“ frá 5. þ. m., sem svar til mín út af Morgun- blaðsgrein minni frá 1. okt., þar sem jeg var að segja frá því, að hændur í nágrenni Reykj'avíkur og Reykjavík fengju of lítið fyr- ir mjólkina sína, svo að til vand- ræða horfði. Benti jeg þar á nokkrar misfellur í framkvæmd mjólkurskipulagsins. Aðalvörnin í grein síra Svein- bjarnar er sú, að meðferðin á bændum hafi verið ennþá verri undir stjórn Mjólkurfjelags Reykjavíkur eða Eyjólfs Jóhanns- sonar áður en mjólkurskipulagið komst á. Ef síra Sveinbjörn færi hjer rjett með, væri það ekki nema lítilf jörleg afsökun, þótt hægt væri að benda á annað verra. Jeg ætla ekki að fara út í sjálfsmat á mínura verkum, eins og síra Sveinbjörn á sínum. Við verðum báðir að sætta okkur við dóm sög- unnar, og hann mun hvorki batna nje versna þó við hlöðum sjálfir á okkur lofi. Oft þegar jeg les greinar eftir síra Sveinbjörn Högnason eða hlusta á ræðuflutning hans, þá dettur mjer í hug gömul indversk uppfinning. Indverji nokkur fann einu sinni upp undralyf, sem hafði þann eiginleika, að hver sá, sem tók inn ákveðinn skamt af lyfi þessu, gat ekki sagt ósatt í heila viku. Eu hann hjelt þessari mikilsverðu uppfinningu sinni leyndri og dó út frá öllu saman. Annars hefði verið nógu gaman að panta eina inntöku og gefa síra Sveinbirni við hentugt tækifæri, og vita hvað kæmi úr skjóðunni. ★ Sem svar við því, að bændur hjer í hjeraðinu sjeu flestir að komast á vonarvöl, segir síra Sveinbjörn, að verra hafi það ver- ið hjá Eyjólfi. Einu sinni hafi hann tekið mikið af kúm þessara hænda og selt upp í skuldir þeirra, svo að þeir hafi staðið slyppir eftir. Þá segir hann, að Eyjólfur Jóhannsson hafi á sínum tíma skilað þeim í hendur Kreppu- lánasjóði, álíka stöddum og þeir sjeu nú. „Og hann fór ekki með þá í Kreppulánasjóð til að ljetta af þeim hyrðunnm, eins og öll önn- ur samvinnufjelög (leturbr. mín) gerðu á viðskiftamönnum sínum, heldur ljet hann þá taka lán til að greiða skuldina hjá sjer að fullu“. Fyrra atriðið er algerlega til- hæfulaus uppspuni; jeg hefi aldr- ei látið selja kýr bænda upp í skuldir, nje heldur Mjólkurfjelag Reykjavíkur, sem hann mun eiga við, þegar hann gerir samanburð á Eyjólfi Jóhannssyni og öllum hinum samvinnufjelögunum. Um síðara atriðið er það að segja, að þegar Kreppulánasjóður var stofnaður, vegna þá yfirstand andi erfiðleika bænda um land alt, fóru margir bændur af fje- lagssvæði Mjólkurfjelags Reykja- víkur í Kreppulánasjóð, þó að þeir væru tiltölulega fáir af öllum fjöldanum. Kreppulánasjóður var stofnaður til þess að veita bænd- um hagkvæm lán, og l.jetta af þeim lausaskuldum og erfiðum veð- skuldum, gegn veði í fasteignum miðað við fasteignamat frá 1930, enn fremur veði í bústofni og Iausafje samkvæmt mati. Sjóður- inn lánaði ekki nema iit á nokk- urn hluta þessa matsverðs fast- eigna og lausaf jár. Skuldir hænda umfram þetta matsverð voru tap- aðar. Mjólkurfjelag Reykjavíkur samþykti öll skuldaskil fyrir sitt leyti, með þeim undantekningum, að það óskaði eftir endurmati á eitthvað 4 jörðum í samráði við jarðeigendurna sjálfa, enda hafði það þarna í stærstum stíl lánað byggingarefni til húsabygginga og ræktunarvörur til ræktunar, og var því vitanlegt, að þessar eignir höfðn stóraukist að verð- mæti frá síðasta fasteignamati fyr ir atbeina Mjólkurfjelags Reykja- víkur. Að Mjólkurfjelag Reykjavíkur hafi krafist og fengið allar skuld- ir bænda borgaðar, er því niiður rangt, og er það órækast vitni móti síra Sveinbirni, að fjelagið fórnaði þá rúmlega 300.000 krón- um af sjóðum sínum til að ljetta undir með bændunum. Nokkuð af þessu var gert samkvæmt ákvæð- um kreppulaganna. um að láta innieignir bænda í sjóðum og við- skiftaskuldir ]ieirra mætast, en mjög mikið af þessari upphæð var greitt til bænda, sem ekki fóru í kreppuna, en fengú skuldajöfnuð hjá fjelaginu á þennan hátt. Fje- lagið var þá fjárhagslega sterkt og gat hlaupið undir bagga fvr- ir meðlimi sína á þennan hátt, Mjólkurfjelag Reykjavíkur hafði á undanförnum árum hjálp- að bændum í hjeráðinu til að byggja upp íbúðar- og penings- hús, lánað þeim ræktunarvörur til að stækka túnin og til kaupa á jarðyrkjuverkfruæm, alt til end- urgreiðslu á nokkrum árum. Hjer- aðið tók því á fáum árnm þeim stakkaskiftum, sem óþekt eru annarsstaðar á landinu á jafn- skömmum tíma. Vill síra Sveinbjörn Högnason benda mjer á eitthvert annað sam- vinnufjelag, sem hefir á sama hátt greitt bændum út sjóðseign- ir sínar umfram það, sem þau voru skuldbundin til samkvæmt kreppulögunum? Ætli hann gæti ekki frekar, ef hann leitaði vel, fundið eitthvað af samvinnufje- lögunum, sem ekki drógu sjóðs- eignir bænda frá viðskiftaskuld- unum, þegar þau gerðu kröfulýs- ingar sínar til Kreppulánasjóðst ★ Síra Sveinbjörn vill rifja upp leigunám mjólktírstöðvarinnar. Flest heldur hann að sje fram- bærilegt sínum auma málstað til varnar. Þegar Mjólkursamsalan tók til starfa, bauð Mjólkurfjelag Reykjavíknr að gerilsneiða alla mjólk fyrir lcostnaðarverð og að Samsalan hefði eftirlit með rekstri og reikningshaldi stöðvarinnar. Þetta vildi síra Sveinbjörn ekki, nje hans fylgismenn í nefndinni. Hann tók því upp samninga við mig fyrir hönd Mjólkurf jelags Reykjavíkur fyrir ákveðið gjald fyrir gerilsneiðingu mjólkurinn- ar. Samningar tókust og var gjaldið heldur lægra en það, sem lægst gerist á Norðurlöndum fyr- ir sambærilega vinnu í mjólkur- stöðvum. En þegar síra Svein- björn komst að því, að jeg hafði ekki samið af Mjólkurf jelagi Reykjavíkur, heldur getað rekið mjólkurstöðina svo, að fjelagið græddi nokkuð á þessum samn- ingum, ætlaði hann að ærast og fjekk landbúnaðarráðherrann til að setja hámarksgjald á geril- snevðingu í mjólkurstöðinni. Var hið tilskipaða gjald svo lágt, 2.2 aurar pr. lítra, fyrir gerilsneyð- ingu og flöskun mjólkurinnar (flöskurýrnun og aluminiumbönd áttu að greiðast auk þess eftir reikningi), að fyrirsjáanlegt var, að ekki var hægt að framkvæma rekstur gerilsneyðingarinnar með því. Eigendur stöðvarinnar buðu enn sem fyr að gerilsneyða fyrir kostnaðarverð undir eftirlit Sam- sölunnar, eða með föstu gjaldi 3 aurum pr. lítra í stað 2.2, en neit- uðu að taka mjólk til vinslu fyrir 2.2 aura pr. lítra. Fyrir þessa „ósvífni*4!! eigendanna var mjólk- urstöðin af þeim tekin með bráða- birgðalögum, sem frægt er orðið. Nú kom til kasta landbúnaðar- ráðherra að hera ábyrgð á því, aS rekstnr stöðvarinnar færi ekki upp úr hinu tilskipaða gjaldi. Hann mun víst ekki hafa treyst Mjólkursölunefnd til þess, og valdi því til starfans þrjá sóma- menn, sem að vísu höfðu enga reynslu til slíkra hluta. Þessir þremenningar sán, strax, að þeir voru settir í slæma klípu, því að reka stöðina með því að fá 2.2 aura pr. líter mundi ekki hægt. Nú voru góð ráð dýr. Reksturskostnaður stöðvarinnar varð að greiðast, en 2.2 aurar dugðu ekki, og þá var tekið upp þetta gullvæga ráð, að taka það sem á vantaði í duldum greiðsl- um; þetta var bara kallað „vinsluafföll og annar kostnaður". Þarna var upp fundinn jöfnunar- sjóður, sem enginn gat fengið að vita, að hve miklu leyti fór til vinsluaffalla, og að hve miklut leyti í annan kostnað, en það var viðurkent af þáverandi stjÓm mjólkurstöðvarinnar, að til þess arna hefði orðið að grípa, þar sem hið tilskipaða gjald hrökk hvergi nærri fyrir kostnaði, Ekki leið á löngu þar til stöðváfgjaldið var opinberlega hækkað upp í 3 aura pr. lítra, sama og eigendur stöðv- arinnar buðu. Virtist þá mesta glorían á presti og landbúnaðar- ráðherra farin að dofna, sú er þeir hjeldu sig hafa fengið fyrir stöðvartökuna. Einhverntíma á þessu tímabilí var svo stjómin tekin af þremenningunum og feng in í hendur Mjólkursölunefndinni. Það er varla hægt að hætta við að skrifa um skandalana í mjólk- urstöðvarmálinu, þar er af svo miklu að taka, en það yrði út af fyrir sig meira en nóg efni í heila blaðagrein, og læt jeg því hjer staðar numið í bili. Meira. 5. herdeildln í Englandi T'\aily Express“ skýrir frá því, að grunur sje um, að ó- vina flugvjelum sje gefið merki á meðan á loftárásum stendur í Eng- landi. Merkin eru gefin: með því að hreyfa gluggatjöld í herbergjum, sem npplýst eru, með ljósum og kyndlum, með íkveikjum, sem gerðar eru af ráðnum hug. Scotland Yard fekk eina vikima a. m. k. .50 kærur daglega frá fólki, sem hjelt að það hefði sjeð merki gefin. En þessar kærur reyndust ekki allar vera á rökum reistar, en snmar þeirra „sýndu að fimta herdeildin væri að verki“, segir Daily Express.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.