Morgunblaðið - 22.10.1940, Side 7
Þriðjudagur 22. október 1940
MORGUNBLAÐIÐ
Minningarorð
Þórð Þórðarson
Idag, þegar duftið hnígur til
jarðar, verður mörgum roskn-
um Reykvíkingi ljúft að minnast
„Þórðar í Lauganesi“. Þar bjó
hann í 15 ár, 1900—1915, og var
jafnan mörgum kunnugur að
góðu einu og hjálplegur fjölda
manna nær og fjær. Bigi síður
hjálplegur langferðamönnum með
hesta þeirra, en márgt annað.
Þórður var fæddur á Leiru-
bakka á Landi, sonur hjóna þar :
Þórðar Jónssonar og Valgerðar
Árnadóttur á G-altalæk, Binnhoga-
sonar á Reynifelli Þorgilssonar.
Foreldrar Þórðar Jónssonar voru:
Jón bóndi í Svínhaga, systurson-
ur Jóns skálds Þorlákssonar, pr.
á Bægisá, og k. h. Valgerður
Brynjólfsdóttir hrstj. í Kirkjubæ,
Stefánssonar á Árhæ Bjarnasonar
á Víkingslæk. Þ. Þ. var þannig í
báðar ættir af traustum Rangvell-
inga bændaættum, og ólst upp við
sjálfstæði, trúrækni og siðmenning
þeirra. En hann hafði eigi, frem-
ur en aðrir á þeim árum, mikið að
segja af sællífi, bóknámi eða leikj-
nm — á kostnað annara. íþrótt-
irnar voru smalamenska, heyannir,
gripahirðing o. s. frv. Við slíkar
íþróttir varð hver að læra af öðr-
um að bjarga sjer sjálfur. Eigi
síst þar, sem 16 urðu hörnin, eins
og hjá þeim Leiruhakka hjónum.
Fáir þekkja nú eða reyna, hvílíkt
feikna þrek og atorku, sjálfsaf-
neitun og sparneytni það krefur,
að annast á eigin spýtur sömasam-
lega um allan þann barnahóp,
hæði við uppvöxt þeirra, er lengi
lifðu, og andlát liinna. Átta þeirra
náðu fullorðinná aldri, flest gift-
ust og eignuðrrst horn, og eru
systkinin nú öll dáin: Valgerður
fyrir fáum vikum, Margrjet í
fyrra (89 ára), Jón Þ. kaupm. í
Reykjavík (1911), Árni verslm.
hjer, Bogi hóndi í Varmadal á
Rv., Lýður og Valgerður önnur.
Á þroskáárum varð Þórður að
fara að heiman í vinnumensku.
Var hann m. a. 6 ár á Stóranúpi
óg ráðsmaður hjá síra Valdimari
Briem. Eftir það fór hann á Eyr-
arbakka og giftist 1893 Ingunni
(d. 1937) Einarsdóttúr bónda á
Urðarfossi, ekkju Jóhanns (d.
1883) trjesmiðs Jónssonar. Voru
Verkamönnunum í
Bretavinnunni seldir
enskirhappdrættis-
miðar
Salan brýlur í bág
|vlð isleosk ’ lög og
VBrJiic sl'SIiLiI j
Þórður Þórðarson.
þau 1 ár á Bakkanum, en hjuggu
svo 6 ár á Ormsstöðum í Gríms-.
nesi, þá 15 ár í Lauganesi. Síðan
dvöldu þau hjónin til æviloka hjá
dóttur og stjúpdóttur þeirra, Jó-
honnu Jóhannsdóttur og manni
hennar, Emil Rokstad á Bjarina-
landi h.jer í bæ, og hutu'þar dótt-
ur og sonarlegrar ræktar og um-
hyggju.
Þórði varð ekki harna auðið, en
fósturson ólu þau hjónin upp, Þor-
kel Þórðarson, sem enn er á
Bjarmalandi.
Geðprúðhr var Þórður og greið-
vikinn við alla, trygglyndur og
vinfastur, trúrækinn og siðsam-
ur, en fáskiptinn um hagi og
háttu annara. Lengstum var hann
hraustnienni og hlaut hægt og ró-
legt andlát 13. þ. m. V. G.
Kolasundi lokað
fyrir bilreiða-
akstur
Bejarráð hefir samþykt til-
lögu frá lögreglustjóra um
að loka Kolasundi fyrir bif-
reiðaakstur yið Hafnarstræti.
Lögreglustjóri hafði einnig
lagt til við bæjarráð, að komið
verði upp járngrindum við gang
stjettir á krossgötum Austur-
stærtis, Bankastrætis og Lækj-
argötu.
Bæjarráð samþykti að fresta
ákvörðun um þá tillögu.
Anglýsing
verlflagsákvæði
Verðlagsnefnd hefir samkvæmt heimild í lögum nr. 70 31. des.
1937 sett eftirfarandi ákvæði um hámarksálagningu á eftirgreindum
reiðhjólahlutum:
Dekk, slöngur, sæti, stýri, pedalar, gjarðir, fríhjól, framná,
bjöllur, bretti, lugtir, lásar, handföng og keðjur.
Álagningin má ekki vera hærri en hjer segir:
1. I heildsölu 20%
2. f smásölu:
a) Þegar keypt af innlendum heildsölubirgðum 35%
b) Þegar keypt beint frá útlöndum 55%
Brot gegn þessum verðlagsákvæðum varða alt að 10.000 kr. sekt-
um, auk þess sem ólöglegur hagnaður er upptækur.
Þetta birtist hjer með þeim sem hlut eiga að máli.
Viðskiftamálaráðuneytið, 21. okt. 1940.
EYSTEINN JÓNSSON.
Jón Guðmundsson,
egar verkamenn, sem vinna í
1'-^ svokallaðri Bretavinnu, fengu
útborgað fyrir síðustu helgi, var
þeim um Ifeið boðnir til kaups
happdrættisseðlar í happdrætti,
sem Bretar hafa hjer sín á milli
til kaupa á „Spitfire" orustuflug-
vjelum.
Verkamönnunum kom þetta sem
og von var einkennilega fyrir
sjónir. Neituðu sumir að kaupa
miSana, en aðrir keyptu þá. Mun
ekki hafa verið laust við að verka
mönnum hefði skilist að vissara
væri fyrir þá að kaupa miða, ef
þeir ættu að halda vinnunni áfram
Vitanlega er íslendingum ekki
leyfilegt að kaupa happdrættis-
miða í erlendu happdrætti eða í
neinu öðru happdrætti en því, sem
ríkisstjórnin íslenska hefir leyft,
og er því sala þessara harppdrætt-
ismiða með öllu óheimil.
Morgunhlaðið spurðist fyoeirum
þessa happdrættismiðasölu hjá eft-
irlitsþjónustu bresku herstjórnar-
innar í gær. Var því mótmælt, að
verkamönnum hefði á neinn hátt
verið þröngvað til að kaupa miða.
Einnig var hlaðinu skýrt svo frá,
að eftir 'að herstjórnin komst að
því, að þessi happdrættismiðasala
til ísléndinga væri ólögleg, hefði
verið gefin út skipun um að hætta
henni strax.
Heimdallar-íunúur
i
¥ kvöld verður haldinn fundur í
^ fjelagi ungra Sjálfstæðis-
manna, „Heimdalli“, og hefst
hann kl. 8y2 í Varðarhúsinu.
Á dagskrá eru ýms fjelagsmál-
efni, rætt um vetrarstarfsemina,
kosnir fulltrúar á Sambandsþing
ungra Sjálfstæðismanna, sem
haldið verður 9. og 10. nóv. o. fl.
Þá verður rætt um Þjóðrækni
og kommúnisma og er formaður
Heimdallar, Jóhann Hafstein,
framsögumaður. Umræðuefnið er í
nánu sambandi við æskulýðsfund-
inn, sem haldinn var í Gamla Bíó
fyrir nokkru, en kommúnistar
hafa býsnast yfir því, að þeim
skyldi vera haldið utan við hin
þjóðlegu samtök æskulýðsfjelag-
anna í bænum. Umræðurnar á
Heimdallarfundinum munu leiða í
ljós rökinfyrir því frá sjónarmiði
ungra Sjálfstæðismaima.
Mikill þróttur og áhugi er nú
í starfsemi Heimdallar og nýtur
fjelagið mikils trausts og fylgis
meðal unga fólksins í bænum.
Sjálfstæðismönnum er heimill
aðgangur að fundinum og má bú-
ast við að hann verði fjölsóttur.
Hlutaveltu heldur St. Verðandi
nr. 9 í G. T. húsinu í dag.
Dagsbrún
scgir npp
samn-
ingum
Afundi trúnaðarmannaráðs
Dagsbrúnar, sem haldinn
var s.l. sunnudag, var samþykt að
segja upp frá áramótum öllum
gildandi samningum, sem fela í
sjer kaupgjaldsákvæði.
Tillaga í þessa átt var borin
upp af stjórninni og samþykt í
einu hljóði.
Þá var einnig samþykt að segja
upp samningum við Höjgaard &
Schultz og vinnuskiftasamningi
Dagsbrúnar og Trjesmiðafjelags-
ins, en þar gildir 6 mánaða upp-
sagnarfrestur.
Formaður Dagsbrúnar, Sig.
Halldórsson skýrði frá því á fund-
inum, að stjórn fjelagsins hefði
rætt við ríkisstjórnina um ýmsa
hagsmuni verkamanna í sambandi
við vinnuna hjá setuliðinu og
hefði von um lagfæringar á ýms-
um misfellum.
Ýms fleiri hagsmunamál verka-
manna voru rædd á fundinum.
Æskulýðs-
f undur í Hafn-
arfirði
Þórarinn Jónsson liðsforingi í
breska hernum, sem verið hefir í
Bnglandi undanfarnar vikur, ei*
kominn hingað til Rvíkur aftur.
„Danger schooI“. Skiltum með
þessari áletran (skóli hætta á ferð
um) hefir verið komið upp hjá
öllum skólum bæjarins og er gert
vegna enskra ökumanna, sem aka
framhjá skólunum.
f grein um áttræðisafmæli frú
Jóhönnu Jónasdóttur frá Vatns-
nesi í laugardagsblaðinu misprent
aðist föðurnafnið Jónsdóttir fyrir
Jónasdóttir.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Fundur sá, sem æskulýðsfje-
lögin í Hafnarfirði boðuðu
til í Hafnarfjarðarkirkju síðast-
liðinn sunnudag var fjölsóttur
og fór mjög vel fram.
Eins og kunnugt er, vúr
fundur þessi boðaður til að
ræða vandamál æskulýðsins £
Hafnarfirði, sem skapast hefir
við hemámið.
Fundarstjóri var Stefán Jóns-
son og setti hann fundinn með
ræðu.
Frumræðuna flutti síra Jón
Auðans, en aðrir ræðumenn
voru: síra Garðar Þorsteinsson,
Guðjón Gunnarsson, Sveinn V.
Stefánsson, Hermann Guð-
mundsson og Jóhann Þorsteins-
son. Ennfremur kvaddi sjet
hljóðs utan dagskrár Sigurgeir
Gíslason.
Fundurinn samþykti tillögur
sem hnigu mjög í sömu átt og
tillögur þær, sem æskulýsfund-
urinn í Reyltjavík samþykti ^
dögunum. , , .;
0 Helgafell 594010227 — IV.-V.
— 2. ' ■ m
I. O. O. F. Rb.st. 1 Bþ. 9010228^
Næturlæknir Halldór Stefáns-
son, Ránargötu 12. Sími 2234.
Næturakstur annast Bæjarbíl-
stöðin. Sími 1395.
Útvarpið í dag:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.20—16.00 Miðdegisútvarp.
20.30 E.rindi: Gullaldardraumur
fornsagnanna (Björn Sigfússon
magister). '.j:-:;
Maðurinn minn og sonur
GUÐNI JÓNSSON járnsmiður
andaðist að Vífilsstöðum 21. þessa mánaðar.
Margrjet Gestsdóttir. Jón Vilhjálmsson.
Jarðarför móður og tengdamóður okkar
ÞORBJARGAR EINARSDÓTTUR
fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 23. þ. m. Athöfnin
hefst með húskveðju að heimili hennar, Barónsstíg 10 B
kl. 1 miðdegis.
Guðmundur Halldórsson. Fríða Aradóttir.
Bróðir minn
HELGI LAXDAL lögfræðingur
verður jarðsunginn frá dónxkirkjunni miðvikudaginn 23. þ. m.
kl. 3 e. h.
Fyrir mína hönd eg annara aðstandenda
Halldór Laxdal.
Innilegar þakkir til svo margra nær og f jær fyrir samúð
við fráfall og jarðarför
ÓLAFAR JÓNSDÓTTUR
í Hvammi.
Aðstandendur.