Morgunblaðið - 17.12.1940, Side 5

Morgunblaðið - 17.12.1940, Side 5
J»riðjudagur 17. des. 1940. JPforgisttblitötð , Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. : , Rltatjörar: Jön Kjartanaaon, Valtýr Stef&nsaon (ábyrKOarm.). Aug-lýsingar: Árnl Óla. i Ritatjórn, auglýaiugar oe afgrelOaia: Austurstræti 8. — Slaai 1800. Áakriftargjald: kr. 8,50 á aaánuBI innanlands, kr. 4,00 utanlanda. : I lausasölu: 20 aura elntaklB, 25 aura meB læabök. Hvar strandar? ÞAÐ fer ekki vel á því, að blöð- in fari að rífast um hita- 'veituna, eins og það mál er kom- ið nú. Hitt væri nær, að blöðiu gerðu nú alt sem í þeirra valdi stendur til þess að greiða fyrir framgangi málsins og stæðu þar .eiríhuga og samtaka. Svo sem kunnugt er, hafa framkvæmdir hitaveitunnar strand að á því, að ekki hefir tekist að fá flutt hkrgað efni, sem liggur í Danmbrku, og hefir legið þar síð- ; an Eteunmörk var hernumin í apríl í. á., en þá stöðvuðust allar skipa- samgöngur milli landanna, sem kunnugt er. Ríkisstjórnin hefir stöðugt ver- íð að vinna að því, að fá málið leyst. Stundum hefir heyrst orð- rómur um það, að málið myndi leysast — ’)að ófriðaraðiljarniv myndu leyfa, að efnið yrði flutt hingað. En svo hefir altaf einhver snurða komið á þráðinn og ekk- •ert orðið úr framkvæmdum. Eftir að sendiherra Breta, Mr. Howard Smith kom hingað, ljet hann svo um mælt í viðtölum við blöðin, að hann myndi gera alt, sem í lians valdi stæði, til þess að greiða fyrír hitaveitunni. Þessi timmæli sendiherrans glöddu mjög Reykvíkinga, því að þeir treystu jþví, að með slíkum liðsmamii mýndi málið leysast giftusamlega. En vikur, mánuðir liðu og ekk- •ert greiddist úr málinu. Svo loks, í síðastliðnum mánuði samþykkir hæjarstjórn að leita fyrir sjer annarsstaðar um kaup á efni. Að vísu fvlgdí ])að með, að }>ett<i foæri ekki að skllja þannig að bú- íð væri að gefa upp alla von með : að fá efnið frá Danmörku og vaeri enn unnlð að því. Þannig horfir málið við, í stór- Tim dráttum, frá sjónarmiði al- mennings í hænum. Bæjarbúar vita hinsvegar ekkert um það, á hverju málið stramlaí^. í rauu og vern. Strandar það á því, að ekki fæst samþykki ófi’iðaraðilja, aím- ars eða beggja, fyrir því, að efn- ið sje flutt hingað frá Danmörku ? Eða strandar það á hinn, að það sje raunverulega ómögulegt, að fá efnið flutt? Skip sje ófáanlegt; vátrygging sje svo dýr, að ekki sje af þeirn sökum kleift að fá ^efnið, eða þvíumlíku. En, sem sagt, alt er þetta óljóst fyrir almenningi. Hinsvegar er jbetta mikla hagsmunamál Reyk- •víkinga og þjóðarinnar í lieild nú ■komið í það öngþveiti, að fylsta ástæða er að krefjast þess, að gerð sje full grein fyrir því opinber- lega, hveniig málið stendur í raun og veru, og á hverju það strandar, að ekki hefir tekist að ífá efnið flutt frá Damnörku. fÞess er að vænta, að ríkisstjórn ..i.n ]>essa skýrslu, því að þjóð- ín á heimting á að fá að vita hið rjetta og sanna. 5 Higarður Nordal LtF OG DA17DI Sennilega hefir eng’inn er- indaflokkur, sem flutt- ur hefir verið í Ríkisútvarp- ið, vakið jafnmikla athygli og fyrirlestrar Sigurðar Nordals prófessors um líf og dauða. Er hvorttveggja, að efnið sjálft er engum manni, hvort sem hann er lærður eða leikur, óviðkom- andi, en hins vegar er Sigurður Nordal sjálfsagt snjallasti fyrir- lesari, sem nú er uppi með þjóð- inni. Menn væntu mikils, en urðu hvergi vousviknir. Erindi þessi ero nú komin út, með all-löngum eftir- mála, þar sem ýms atriði eru nán- ar skýrð en kostur var á í fvrir lestrunum. ★ Efni þessara erinda er almenn- ingi svo kunnugt, að þess gerist ekki þörf að rekja það hjer í heild, og mun jeg því frekar stikla á nokkrum aðálatriðum. Markmið fyrirlestranná er að greiða úr eft- irfarandi spurningum: „Hvað get- um við vitað’ eða hugsað rjettast um tilgang mannlegs lífs og hvern- ig þeim tilgangi verði náð ? Hvað eigum við að meta mest í lífinu ? Hverjar eru leiðirnar til þess að verða sem farsælastir, til sem mestrar gæfu sjálfum okkur og öðrum?“ í þessum spurningum felst reyndar viðfangsefni allrar siðfræði og lífsspeki, en höfundur- inn takmarkar brátt svið sitt, vel- ur eitt aðalsjónannið: „Hvaða þýð- ingu hefir viðhorf okkar við dauð- anum, trúin á annað líf fyrir sið- ferði okkar og persónuþroská ? Hann „skoðar lífið frá sjónarmiði dauðans og dauðanu frá sjónar- miði lífsins“. Höfundur er sanufærður um, að við lifum eftir dauðann. Megin- uppistaða í lífsskoðun hans er sú, að oltkur farnist þetta líf best, ef við skoðum það sem undirbúning annars lífs. Þessa skoðun styður hann með morgum rökum, og er síðasti fyrirlesturinn, „Ferðin, sem aldrei var farin“, niðurstaða og kjarni hugleiðinga hans. Dæmi- saga þessi er frábærlega vel rituð, og frá listrænu sjónarmiði má hik- laust telja hana í r<’»ð fremstu smásagna, sem skráðar liafa verið á íslenska tungu. Höfundur gerir sjer vel grein fyrir því, að hjer er ekki um hlutlæga, vísindalega sönnun fyrir öðru lífi að ræða, heldur aðeins leiðsögutilgátu, sem menn verða að prófa með sínu eigin lífi. Við eigum að lifa lífinu upp á djörfustu leiðsögutilgátuna, því að annars getur farið svo, að við finnnm aldrei hið sanna gildi lífsins. ★ Aður en jeg ræði frekar þessa meginhugmynd bókarinnar, vil jeg drepa á nokkur atriði í lífsskoðun höfundar, eiiis og hún kemur fram í þessari bók: Höfundur er víð- sýnn trúmaður, sem ekki getur felt sig við kenningakreddur neins sjerstaks trúarflokks. Hann vegur á báðar hendiir. Hann greiðirþung högg hinni vfirborðslegu efnis- hyggju, sem er nú vfirleitt löngu úr sögunni meðal vís indamanna og heimspekinga, en á enn mikil ítök hjá almenn- ingi og stjórnmálastefnum, sem löngum hafa bjargast við lje- legar og úreltar heimspeltikenn- ingar. Hins vegar veitist hann að kirkjunni. t’irðist honum hún láta kjarna og anda trúarinnar kafna í fjarstæðum kennisetningum, sem stríða á móti heilbrigðri skynsemi og jafnvel prestarnir sjálfir veigra sjer við að halda á lofti og leggja áherslu á í ræðum sínum. 11öf- undur er svo frjálslyndur, að hann viðurkennir tilverurjett hvers trú- arflokks, þó með tveim skilvrðum: að þeir ofsæki ekki aðra menn fyrir trúarskoðanir þeirra, og að trú þessara manna nái settu tak- marki. Hann tekur hina víðsýnu trúmenn langt fram yfir hina þröngsýnu. Leið trúarbragðanna á að vera svo bein, að enginn mað- ur þurfi að hika við að leggja út á hana af skynsamlegum nje siðférðilegum ástæðum. Hlutverk spámanna og siðbótamanna er á- valt í því fólgið, að skilja liismið frá kjarnanum, að greiða veg drottins, gera beinar brautir hans. Þykit1 böfundi íslenska kirkjan eiga f’áft Slíká leiðsögumenn. Þótt höfuiidur telji trúhneigð- ina eðlisnauðsyn flestra manna, e? liann fjarri því að vamneta sltyn- semi og þekkingu, svo langt sem þær ná. „Það er ekki hlutverk trúarbragðanna að bæla niður vit okkar og þekkiiigu, heldur að taka þar við, sein þeklíingin nær ekki til .... Enginn maður getur ver- ið heill og einlægur í trú sinn>, tiema hann láti skynsemina lýsa sjer eius langt og hún nær“. Trú- in á að taka við, þar sem örugga þekkingu þrýtur; trúin er fyrir utan vísindin, en ekki á móti þeim, ultra scientiam, non contra, svo að vikið sje við einkunnar- orðum Ilelga Pjeturss að Nyali. Nordal hefir trú og ást á lífinu. Hann er enginn meinlætamaður og vill að menn njóti lífsins í allri ]>ess fyllingii. En í nautn jarð- neskra gæða vill hann að menn gæti meðalhófs, þessa gullna veg- ar, sem flestir spekingar heimsins. frá upphafi söguiinar til þessa dags, hafa jafnan hent meðbræðr- um sínum á. Hamingjan er þó ekki markmið lífsins, heldur að- eins merki um það, að við sjeura á rjettri leið. ★ En víkjum nú aftur að þunga- miðjunni í bókinni, skoðum lífið frá sjónarmiði dauðans og dauð- ann frá sjónarmiði lífsins. Jeg dreg ekki eitt augnablik í efa, að trúin á annað líf hafi gildi fyrir persónuþroska og siðferði margra manna, að þeim sje um- hugsunin mn annað líf besta vega- ljósið til að greina á milli sannra og falsaðra gæða lífsin, og loks, að skynsamlegur undirbúningur amiars lífs komi ekki í hága við sanna velferð í þessu lífi. En trú- in á annað líf þarf eklci ein út af fyrir sig að leiða til aukinnar á- byrgðartilfinningar gagnvart líf- inn. nje heldur til góðs lífernis. Hún getur jafnvel orðið einskonar skálkaskjól; tíminn er nógnr fram undan, enginn segir flýttu þjer. hinum trúaða kæruleysingja fer líkt og lötum nianni, sem hefir sig ekki að verki, en huggar sig við það, að nógur sje tíminn fram- undan til að ljúka því. Jeg hygg, að á vegi Norals hafi orðið menn, engu síður en á mínum, sem hafa verið mjög trúaðir og eklti hafa efast um, að annað líf væri til, en sennilega myndum A’ið báðir hika við að telja suma þeirra í hóp hinna hestu manna, sem við höfum kynst, og e. t. v. hvorki telja þá góða drengi eða göfuga menn. Þeir eru trúaðir, en „eitt- hvað vantar þarna“, eins og Jón fiá Iilíð sagði. Eins og Nordal bendir líka rjettilega á, voru sið- ir og siðferði manna síst betri en nú á þeim tímum, er trúin á ann- að líf var almennari og Sterkari en nú virðist vera. Reyndar má varpa fram þeirri spurningu, hvoi't þessum mönnurn hefði ekki verið enn meira siðferðilega áfátt, ef þeir liefðu ekki trúað á annað líf. Hvað sem því líður er hitt þó víst, að trúin á annað líf nægði ekki til að gera hugsunar- hátt þeirra göfugan og breytni ]>eirra góða. Mjer virðast rökin fyrir þeirri lífsskoðun, senl þarf að styðjast við ódauðleik sálarinnar eða tni á annað líf, vera aðallega tvenns- konar; Manninnm’ er nauðsynlegr að trúa á annað líf til þess að geta lifað fullu siðferðis- og menn- ingarlífi, og í öðru lagi er þessi trú nauðsynleg til að fá einhvern tilgang í lífið. Skal jeg nú stutt lega athuga þessi rök. ★ Þar sem ekki er enn fengin hlutlæg sönnun fvrir öðru lífi, eru margir menn til, sem ekki triia á það, en flestir gera þó sjálfsagt ráð fyrir þyí sem möguleika. Ýms- um þessum mönnum farnast á eng- an hátt illa í þessu lífi, lífsstjórn þeirra er í besta lagi, þeir eru góðir og göfugir menn. Nægir í þessu sambandi að benda á Step- han G. Stephansson og menn, sem svipaða lífsskoðun hafa og hanu. Það er því hægt að ná háum sið- ferðis- og persónuþroska án þess að trúa á annað lif. Fyrir mitt levti ]>vkir mjer þessi lífsskoðnn hin fegursta og karlmannlegasta, á meðan ]>ekking okkar á þessum málum er ekki lengra komin. Lífið hefir ýms þau verðmæti, sem h’afa gildi í sjálfu sjer, hvort sem per- sónuleiki mannsins lifir eftir dauð- ann eða ekki. Og það eru þessi verðmæti, sem gera lífið þess virði að því sje lifað. Viðleitni manna til liærra siðferðis og menningar mvndi ekki missa gildi sitt, þótt annað líf væri ekki til. Mjer virðist Nordal líka hall- ast nokkuð að þessari lífs- skoðun. Hann segir til dfflm- is, að ráðvendnin hafi sitt eigið takmark, að siðferðisþroskinn beri í sjer sín eigin laun, en það þýðir. að siðferði og menning mannsins þarf ekki að styðjast við trúna á annað líf. Og í „Ferðinni, sem aldrei var farin“, lætur liann I.ueius spyrja sjálfan sig: „Elsk.i jeg Jiennan dag af því að hann flytur mig nær ferðinni, sem er takmark lífs míns, eða er slíkur dagur nóg takmark í sjálfu sjer?“ Fæst mi nokkuð fyllri tilgang- ur í lífið, þótt því sje trúað, að það sje óendanlega langt, ef ekfei sjest neinn tilgangur með þessn stutta lífi eiiistaklingaiina manntegundarinnar lijer á jörð- unni? Jeg veit ekki, hvort mann- lífið, lífið yfirleitt og heimurinn í heild hafa nokkurn tilgang, nje heldur, liver sá tilgangur kynni að vera. Lífið hefir ef til vill ekkr annan tilgang en þann, er við sjálfir setjum því. En hitt er víst, að hver hugsandi maður leitast við að sjá einhvern tilgang með lífi sínu, þótt svörin við spurn- ingunni, hver er tilgangur lífsins,, sjeu harla mörg og ólík. Tniin á framhaldslíf persónuleikans eftir dauðann ér að mmiii reynslu ekfei nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að sjá tilgang með lífinu, ]iví að öll eilífðin er jafnfánýt og tilgangs- laus, ef mannsævin hefir ekkert innra gildi eða tilgang. Aðeins trú á gildi lífsins er naúðsynleg til að sjá t-ilgang með því, og þessi trú og reynsla gera lífið þess virði að því sje lifað. Að minni skoðnn liefir leitin að hinu fagra, góða og sanna sjálfsgildi, tilgang og mark- mið í sjálfu sjer, laun þessarar viðleitni eru í henni sjálfri fólgin, ogj ef hún hefði ekki sjálfsgildi, væri líf okkar jafntilgangslaust og fánýtt, þótt það væri óendanlega miklu lengra. í stuttu máli: eleg sje livorki, að trúin á annað líf sje nauðsyn- legt til að lifa fullu siðferðis- og menningarlífi, nje að þessi trú leysi gátuna um tilgang lífsins. Loks fæ jeg Heldur ekki sjeð, að trúin á annað líf, eða jafnvcl hlutlæg sönnun fvrir öðru lífi, þurfi nauðsynlega að hafa mikil bætandi áhrif á hugarfar og hreytni manna og auka ábyrðgar- tilfinningu þeirra. Fyrir þá, sem hafa ekki „fundið lífið“, fundið liin æðstu gildi þess, myndi þessi þekking vera dauður bókstafur og því sáralítil áhrif hafa á breytni þeirra og hugarfar. ★ Bókin er ritnð af mikilli sann- léiksást, alvöru og lireinskilni, í hverju atriði ber hún svip per- sónuleika höfundar og sjálfstæðr- ar umhugsunar. Ef það á fyrir okkur að liggja, að enn syrtt meira í lofti, og ófrelsi og þræls- hugsun herði enn tökin í þjóðlífi oltkar, mnn þetta rit verða óbrot- gjarn minnisvarði frjálsrar og víð- sýnnar hugsunar hjer á Islandi á þessari öld. En ef til vill- má vona að þessi bók sje árroði þeirrar aldar, sem hefir það hlutverk að „skapa hreiitna siðferði, spaklegri lífsskoðun og trúarbrögð, sem skírð eru í eldi allrar þeirrar reynslu og efasemda, sem við ráð- um yfir, í fullu samræmi við alt eðli okkar og hugsun“. Símon Jóh. Ágústsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.