Morgunblaðið - 23.01.1941, Blaðsíða 3
Fimtudagur 23. janúar 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Stfórnarkosnimgin I Bagsbrún
Markmiðið er: Ópólitískt
stjettarf jelag - án allra áhrita
kommúnista
Alþýðuflokkurinn
vildi kommúnista-
stjórn i Dagsbrún
HINN 25. þ. m. hefst stjórnarkosning í verka-
mannafjelaginu „Dagsbrún“, fjölmennasta
og öflugasta verkalýðsfjelagi landsins.
Þrír listar verða í boði. Einn listinn er fram borinn í sam-
einingu af Málfundafjelaginu Óðni (Sjálfstæðismenn) og Mál-
fundafjelagi verkamanna, þ. e. óháðir verkamenn (er hafa fylgt
Hjeðni Valdimarssyni) ; annar listinn er borinn fram af Al-
þýðuflokknum og þriðji af kommúnistum.
Reykjarmðkkur-
inn myrkvaði
sigiinoaieiOina
Skipstrandið
á Skerjafirði
Laust fyrir hádegi í gær sigldi
enskur togari, „Lapageria* ‘
frá Grimsby, á sker í mynni
Skerjafjarðar og sat þar fastur.
Togarinn var á leið hingað til
Reykjavxkur. En svo mikinn
reykjarnxökk lagði þangað út frá
Reykjavík, að vart: sáust haudar-
skil. Gátu togaramenn því ekki
áttað sig á siglingaleiðinni og
vissu ekki fyr til en skípið' rakst
á Kepp, sem er sker sunnan til x
mynni Skerjafjarðar.
Magni, dráttarbátur hafnarinn-
ar, var strax sendur á vettvang.
Um flóðið í gær tókst hpnum að
snúa togaranum það til á gkerinu,
að hanxx sneri béint í öldurnar.
Munaði og minstn að Magna, tæk-
ist að draga togarann út af sker-
inu á þessu sama flóði; togarinn
flaut allur, nema bláhællinn. En
þá var farið að falla það mikið
út, að rjett þótti að bíða næsta
flóðs, sem var kl. 2 s.l. nótt. Var
ekki talinn vafi á, að togarinn
næðist þá út.. Hann var með öllu
óbrotinn.
KawpgfaldsmáHn
Samningaum-
leitanir við loft
skeytamenn
Samningar standa nú yfir milli
togaræigenda og eigenda
farmskipa annarsvegar og loft-
skeytamanna hinsvegar, um kaup
og kjör loftskeytamanna.
Samkomulag hefir ekki náðst
ennþá. Hefir sáttanefndin fengið í
hendur þann þátt deilxuxnar, er
snertir loftskeytamenn á farm-
skipum.
Einnig standa yfir samningar
við stýrimenn á farmskipunum.
Verkfall hárgreiðslustúlkna held
ur áfram.
Verkfall er hafið á Bfldudal og
hefir umboðsmaður sáttasemjara á
Vestfjörðum fengið það mál í
hendur.
í Stykkishólmi er verkfall boð-
að á sunnudag út af ósamkomu-
lagi milli verkalýðsfjelagsins ann-
arsvegar og Sigurðar Ágústssonar
og kaupfjelagsins hinsvegar.
Fara samningar fram um þetta
mál hjer í Reykjavík.
Það hefir verið mikill gaura-
gangur undanfarið í blöðum
sósíalista og kommúnista yfir
því, að Sjálfstæðismenn í Dags-
brún skyldu að þessu sinni
géra kosningabandalag við ó-
háða verkamenn, þ. e. fylgj-
endur Hjeðins Valdimarssonar.
En hvað var eðlilegra og
rjettara, eins og á stóð, en það,
að Sjálfstæðisverkamenn gerðu
einmitt slíkt bandalag?
★
Það er einkum tvent í verka-
lýðsmálunum. sem Sjálfstæðis-
menn keppa að. Annað er
það, að halda verkalýðsmálun-
um utan við pólitískar flokka-
deilur og gera þau óháð stjórn-
málaflokkunum. Hitt er það, að
útiloka með öllu hin háska-
legu áhrif kommúnista í verka-
lýðsfjelögunum.
Um tvær leiðir gat verið að
ræða fyrir Sjálfstæðismenn í
Dagsbrún, til þess að ná .þessu
marki.
önnur var sú, að hafa
bandalag við Alþýðuflokks-
menn. Þessi leið var reynd í
fyrra. En hvernig fór? Alþýðu-
flokksmenn sviku öll loforð,
sem þeir gáfu þá. Alþýðublað-
ið hefir og sjálft upplýst,
að þessi leið hafi verið
útilokuð. Á laugardag segir Al-
þýðubl. svo (orðrjett): „Sjálf-
stæðismenn í Dagsbrún báðu
beinlínis um það fyrir nokkru
síðan, að Alþýðuflokksverka-
menn hefðu samvinnu við þá
um stjórnarkosninguna í Dags-
brún. En Alþýðuflokksmenn
neituðu“. Um þessa leið gat því
ekki verið að ræða.
Hin leiðin var farin, að gera
kosningabandalag við óháða
verkamenn, þ. e. stuðningsmenn
Hjeðins Valdimarssonar. Tókst
hið besta samkomulag um upp-
stillingu lista milli þessara að-
ilja og um framtíðarstarfið í
Dagsbrún.
Alþýðuflokksmenn völdu þá
leiðina, að stilla upp einlitum
flokkslista við þessa stjórnar-
kosningu í Dagsbrún. Þetta er í
fullu samræmi við þá stefnu,
sem þing Alþýðusambaixdsins
tók á s. 1. hausti. Þar voru rofin
gefin heit um það, að leysa Al-
þýðusambandið úr flokksviðj-
unum. Algert flokkseinræði Ál-
þýðuflokksins ríkir næstu tvö
árin í Alþýðusambandinu.
Hver hefðu orðið afleiðingar
þess, ef Sjálfstæðismenn í Dags
brún hefðu farið eins að og
stilt upp flokkslista við stjórn-
arkosninguna í Dagsbrún?
Fyrstu afleiðingarnar hefSu
I sennilega orSiS þær, aS
' kommúnistar hefSu náS öllum
j völdum í Dagsbrún. En þaS
iþýddi vitanlega þaS, aS Dags-
brún hefSi þar meS veriS búin
aS vera, sem verkalýSsf jelag.
Er það ekki einmitt þetta,
sem Alþýðuflokksmenn eru að
keppa að? Vilja þeir ekki upp-
lausn Dagsbrúnar?
Jú; þetta er það,: sem þeir
óska. Þeir vilja alt til vinna, til
þess að gera Dagsbrún óstarf-
hæfa. Þeir vita, að ein örugg-
asta leiðin til þess að ná þessu
marki er sú, að gera kommún-
ista allsráðandi í Dagsbrún.
★
Sjálfstæðismenn í Dagsbrún
og óháðir verkamenn unnu
saman í allsherjaratkvæða-,
greiðslunni í vetur, er um það
var að ræða, að Dagsbrún
gengi í Alþýðusambandið. Þeir
stóðu gegn þessu og gátu kom-
ið í veg fyrir, að þetta yrði
gert. Þeir ákváðu, að halda á-
fram baráttunni um óháð verk-
lýðsfjelög.
Hvað er eðlilegra, en að ein-
mitt þessir sömu verkamenn
standi saman nú, þegar á að
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Verður verkfall
í veitingahúsum
í kvöld?
T7undur var haldinn í gær
-*■ milli veitingamanna og
samninganefndar starfs-
stúlkna á veitingahúsum, og
varð ekkert samkomxxlag. Var
útlitið þannig í gærkvöldi, að
allar líkur bentu til, að samn-
ingar náist ekki í dag. En
fari svo, hefja starfsstúlkur
veitingahúsanna verkfall kl.
12y2 í nótt.
Skákþing
Reykjavíkur
hefst í dag
Skákþing Reykvíkinga hefst i
kvöld kl. 8 í Góðtemplara-
húsinu.
Þátttakendur eru þessir:
Meistaraflokkur: Sæmundur Ól-
afsson, Guðmundur S. Guðmunds-
son, Sturla Pjetursson, Eggert
Gilfer, Einar Þorvaldsson, Áki
Pjetursson, Magnús Jónasson, Sig-
urður Gissurarson, Sigurður Lár-
usson, Steingrímur Guðmundsson,
Hafsteinn Gíslason, Guðmundur
Ágústsson, Ásmundur Ásgeirsson,
Baldur Möller.
I. flokkur: Kristján Sylveríus-
son, Víglundur Möller, Óli Valdi-
marsson, Lárus Johnsen, Guðjón
Helgason, Aðalsteinn Halldórsson,
Pjetxxr Guðmundsson, Ólafur Ein-
arsstöi.
II. flokkur: Eyjólfur Guðbx-ands
son, Pjetur Jónsson, Léó Sveins-
son, ^Þorvaldur Kristmundsson,
Róbert Sigmundsson, Hannes Frið-
riksson, Rafn Árnason, Sigfús Sig-
urðsson, Snjólfur Sveinsson.
Teflt verður í Góðtemplarahús-
inu, uppi, á fimtudags-, föstudags-
og sunnudagskvöldum.
Núverandi Skákmeistari Reyk-
víkinga er Ásmundur Ásgelrsson.
Sprengian svíftí
hann klæðum
egar sprengjurnar fjellu á
byggingu' breska útvarpsins
í London fyrir nokkru, fór einn
af starfsmönnum útvarpsins út í
aðaldyr byggingarinnar, eftir að
nokkurt blje var orðið á sprengju-
regninu, til þess að gæta að því,
hvort flugvjelarnar væru farnar.
En í sama mund fjell sprengja
all-langt frá honuin og loftþrýst-
ingurinn frá henni var svo mikill,
að öll klæðin sviftust af honum.
Háskóla-
bíó í Austur-
stræti?
Sá orðrómur flaug fyrir í
gær og var á margra
vörum, að komið hefði til orða
að Háskólinn keypti lóð við
Austurstræti undir fyrirhug-
að kvikmyndahús sitt.
Er það lóðin Austurstræti
5, gegnt ísafoldarprentsmiðju.
Nær sú lóð alla leið til Hafn-
arstrætis, svo inngangar í
samkomuhús, sem þar yrði
reist, geta verið frá báðum
götunumr
Ekki ér blaðinu fullkunn-
ugt hýe samningum er langt
komið um lóðakaup þessi.
•
Stór hermanna-
spitali bygður
á íslandi
Samkvæmt frásögnum breskra
blaða, sem hingað hafa bor-
ist nýlega, hafa Bretar í hyggju
að byggja hjer á landi fullkom-
inn nýtísku spítala, sem verður á
stærð við stærstu sjúkrahús Lund-
únaborgar.
Sjxikralxúsið á ,að vera svo stórt,
eftir því sem „Evening Standard“
segir frá, að aðeins tvö sjúkrahús
í London hafa fleiri sjxikrarúm, en
það eru Guy’s Basts. og St. Thom-
as sjúkrahúsin.
í tímaritinú „Nursing Mii’ror“
segir svo' um þenna spítala:
„Yerið er að byggja nýjan her-
mannaspítala á íslandi og verða
þar stárfandi hjúkrunarkonur úr
hjúkrunársveitum „Tbe Territorial
Army“, en þær eru einustu bresku
konurnar, sem vinna á íslandi.
Alls verður starfsfólk spítalans
350 manns og verður svo útbúið
í alla staði, að ekki þarf að ganga
á lækningaáhöld eða meðul lands-
ins.
Sjerfræðingar í augna-, eyrna-,
nef- og háls- og brjóstsjúkdómum
starfa við spítalann auk skurð-
lækna og meðalalækna. 1 spítalan-
um verður röntgendeild.
Gert er ráð fyrir, að sjúkra-
flugvjelar, með sjúklinga frá ein-
angruðum hjeruðum á Norður- og
Ansturlandi, geti lent svo aS segja
á hlaði, spítalans.
Fyrir utan alt þetta hefir veriS
sjeð fyrir þeim, sem eru að hvflá
sig eftir sjúkdóma. Við spítalann
verða kixattspyrnnvellir, tennis-
vellir og setustofur handa þeim,
sem eru að ná sjer eftir sjúkdóma.
Kapella verður einnig í sambandí
við sjúkrahús þetta“.
Tímaritið „Nursing Times“ get-
ur þess ennfremur, að hitalagnir
til spítalans sjeu lagðar neðan-
jarðar og síðar meir sje í ráði aS
hita hann upp með hveravatni.
Á Urriðakotsvatni og Hörðuvöll-
m er prýðilegt skautasvell, eftir
ví sem Hafnfirðingur skýrði
laðinu frá í gær.