Morgunblaðið - 23.01.1941, Blaðsíða 7
Fimtudagur 23. janúar 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
Sigríður Steinsdóttir
Minna-Hofi
*7 2g er búin að bíða eftir því í
j ár, að mjer ritfærari kona
mintist 40 ára ljósmóðursstarfs
frú Sigríðar Steinsdóttur á
Minna-Hofi, en jeg hefi ekki
sjeð það í sVeitablöðunum.
Byrja jeg því þakklætislínurn-
ar. Mjer er það svo minnisstætt
í fyrsta sinni, sem Sigríður kom
til mín í hvíta sloppnum, ljós
í andliti, bláeyg með dökt bylgj
að hár, stilt og blíð í viðmóti.
Frú Sigríður Steinsdóttir er
fædd að Minna-Hofi á Rangár-
völlum 1872. Lærði ljósmóður-
fræði hjá dr. J. Jónassen land-
lækni og lauk prófi 20. janú-
armánaðar 1900. Var henni
veitt Rangárvallaljósmóðurum-
dæmi 24. jan. sama ár og er því
búin að vera þjónandi Ijós-
móðir í 41 ár með mikíum á-
gætum, aldrei dáið hjái henni
kona eða barn í fæðingu, enda
•er það hennar góða fylígja, að
vera sjerstaklegá athugul og
fljót að átta sig, ef læknis-
hjálpar hefir þurft með.
Hún hefir gegnt störfum, auk
síns umdæmis, í Hvolhreppi
(þar sem hún er nú sett ljósm.
í hálfum hreppnum), Útland-
eyjum, Holtahreppi og alla leið
upp að Næfurholti, sem er í
Landhreppsljósmóðurumdæmi í
forföllum annara ljósmæðra.
Ekki hefir Sigríður látið vega-
lengdir nje slæmt færi á sig fá,
farið út í snjóbylji og sandbylji
jafnt nætur sem daga, æðru-
laus, aðeins hugsað um að kom-
«st sem fyrst til konunnar sem
beið hennar hjálpar og mjer
jhefir verið sagt, að Sigríður
væri ekki lengur að búa sig, en
maðurinn sem sækti hana, væri
að leggja á hestinn sem hún
ætti að sitja á.
Frú Sigríður er gift Ingvari
■Úlafssyni frá Voðmúlastöðum í
Landeyjum. Þau hjón hafa bú-
ið sínum fyrirmyndar búskap á
Minna-Hofi. Þau hjón hafa átt
10 syni, 3 dóu ungir en 7 lifa.
Sigríður er nú farin að eldast,
njrðin 69 ára, en er ung í sjón
og reynd, aðeins hrokkna hárið
farið að grána, hún sinnir ljós-
móðurstörfum sem ung væri.
Við erum margar, konurnar,
sem höfurn notið þinnar góðu
hjálpar og þinnar mÖðurlegu
umhyggju, Sigríður, þegar okk-
ur lá mest á. Við þökkum þjer
hjartanlega þitt góða og fórn-
fúsa-starf í 41 ár og óskum að
þú getir gegnt ljósmóðurstörf-
iim í hreppnum sem lengst.
Ein af mörgum.
Fyrirlestur um
útvarpsstarfsemi
B. B. C.
m * r. Cyril Jackson sendikenn-
IVl ari flytur fyrirlestur í
kvöld, á fundi fjelagsins „Anglia“.
Fjallar fyrirlesturinn um þætti úr
útvarpsstarfsemi, en fyrirlesarinn
hefir síðastliðin 5 ár verið starfs
maður hreska útvarpsins og aðal-
lega haft með höndum fræðslu-
sfarfsemi og fyrirlestrahald hjá
B. B. C.
Mr. Jackson er-mörgum Islend-
ingum að góðu kunnur, síðan hann
dvaldi sjer árin 1929—1931, en
þá var hann tvo vetur enskukenn-
ari við Mentaskóla Akureyrar.
Talar hann íslensku prýðilega, og
mun betur en flestir útlendingar
aðrir. Hann hefir nú byrjað ensku-
kenslu sína, við Háskólann, og
mun innan skamms hefja fyrir-
lestra þar, Mun hann þá m. a.
einnig flytja fyrirlestra um
hreska útvarpið. Eir auk starfa
síns við Háskólann mun hann
vinna áfram að þýðingum úr ís-
lensku á ensku, og vinna að því
að kynna íslenskar bókmentir í
Bretlandi.
Það má því vænta skemtilegs
fyrirlesturs í kvöld, því að bæði
ér, að íyrirlesarinn er efninu mjög
kunnugur og að bann ©r þaulvan-
úr og skemtilegur fyrirlesari.
Eins og venjulega lýknr fund-
inum með dansi.
Sterka ölið
Herra ritstjóri!
eg vil biðja yður að birta eft-
irfarandi athugaseöid í blaði
vðar:
I smágrein í dagbók Morgun-
blaðsins frá 18. þ. m., með yfir-
skriftinni „Áfenga ölið“, stendur,
að fi’ásögn blaðsins um áfenga
ölið daginn áður hafi bvgst á við-
tölum við marga breska liðsfor-
ingja — en frásögn þeirra átti að
byggjast á viðtali við mig. —
Ályktar blaðið síðan að erfitt sje
að átta sig á því hvað rjétt sje.
þegar sami maðurinn ségi við-
skiftavinuip sínum alt annað en
síðar í blaðaviðtali,
Út af þessu vil jeg taka fram,
að umræður um þgsgi mál hafa
aðeins farið fram milli mín og
þeirra tveggja foringja, sem sjer-
staklega hafa með þau mál að
gera, og hafa þeir háðir tjáð rnjer,
að Morgunblaðið, eða frjettaritari
þess, hafi ekki fengið upplýsingar
sínar hjá þeim, oji að frásögn mín
í „Yísi“ sje að öílii íeyti rjett,
Staðhæfing blaðsins úm tví-
sögli mína, er því út í* bláinn.
Reykjavík. 22. janúar 1941.
Tómas Tómasson.
★
Morgunblaðið sjer enga ástæðu
til, að vera að karpa um þessa
smámuni. Aðalatriðið er, að hjer
er farið að framleiða gott, sterkt
öl, en sá er gallinn á, að íslend-
ingar fá ekki' áð bragða þenna
góða drykk.
Sálarrannsóknafjelag íslands
hehlur fund í kvöld kl. 8% í Iiá-
skólanum. Gengið inn um s'uður-
dyr.
••••«•«••••• oooooooooooo
Dagbóh
000000000009 000900000000
I. O. O. F.6 = 1221238‘/2 =
Næturlæknir er í nótt Kristján
Hannessop, Mímisveg 6. Sími 3836.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Næturakstúr annast Bifreiðastöð
Reykjavíkur. Sími 1720.
Frú Guðrún Hermannsdóttir,
Hverfisgötu 59, á fimtugsafmæli í
dag.
Spegillinn kemur út á morgun.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
„Logann helga“, eftir W. Somer-
set Maugham, kl. 8 í kvöld. —•
„Hái Þór“ verður sýndur á sunnu-
dag.
Faust yerður leikinn í Varðar-
húsinu annað kvöld kl. 8.30.
Verkefni við skriftarkenslu.
Guðmundur I. Guðjónsson skrift-
arkennari við Miðbæjarbarnaskól-
ann hefir gert verkefni við skrift-
ai'kenslu handa börnum ög ung-
lingum. „Skrift verkefnanna er
nokkuð misstór, stærsta skriítin
er fremst í heftinu, og várla ætl-
andi vngri börnum en 9—10 ára.
.... Skriftarstærðina á síðustu
sýnishornunum tel jeg hæfilega
hjá 12—14 ára börnum“, segir
höf. í formála fyrir heftinu. Ef
foreldrar og kennarar láta börnin
nota þessi hefti. má spara mikið
fje, því að þá má nota almennar
strikaðar bækur Við kensluna, í
stað forskriftarbóka, sem auk þess
hafa gefist misjafnléga. ,.
fsland í erlendum blöðum, Meirá
hefir undanfarið verið rætt um ís-
land í enskum blöðutn, en nokkrn
sinni fyr. Flestar greinaúna um
ísland eru í sambandi við dvöl
setuliðsins hjer. Setuliðsmenn, sem
skrifa heim, fara yfirleitt lofsani-
legum orðum um land og þjóð.
Pjetur Sigurðssön háskólaritari
hefir ritað nm Háskóla tíslands í
tímaritið „Nature". Fvlgja þeirri
grein myndir af próf. Alexandei'
Jóhannessyni háskólarektor og
háskólgbyggingunni nýju, — -i.
Þórðardóttir ritai- grein í t ímaritið
„Lady“, sem nefnist „Flower
growing in lcéíánd“. — Þá liefif
.ungfrú Ethel Píckering haldið
fyrirlestur um Island í Landfræði-
fjelaginu í Manchester. Enski
frjettaritarinn W. K. Bliss, frá
„Evening Standard", áem hjer var
á ferð í haust, hefir ritað fjölda
greina Um Island og he niámið.
Kennir ýnisra grasa í greinum
hans, sem þó eru vfirleitt ritaðar
af vingjarnlégÚúi húg í garð ís-
lands og íslendinga. ;
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 22.—28. des. (í svigum töl-
ur næstu viku á undan): Hlás-
bólga 47 (42). Kvefsótt 361 (230).
Blóóðsótt 1 (1). Gigtsótt 0 (1).
Iðrakvef 26 (19). Kveflungnabólga
12 (2). Taksótt 1 (2). liauðir
hundai' 61 (43)!Tleiniakoma 1 (1).
Kossageit 2 (0). Ristill 2 (0).
Hlaúpábóla 1 (0). Mannslat 3 (0).
Laúdíækiiisskrifstofaii.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarþ.
19.25 Illjómplötnr: Danslög.
19.40 I.esin dagskrá n:nst,u vikn,
20.00 Frjcttir.
20.30 Erindi: Fjelagsmál og.utan-
fíkismál 1940 (Stefán Jóh. Stef-
ánssön fjelagsmálaráðberra).
21.10 Hljómplötur* fslenskir söng-
ménn.
21.20 Mimiisvet'ð tíðiudi (Sigurð-
ur EinárssóVi/- 1
2Í.40 „Sjeð og bévrt":
21.50 Frjettir.
R
Verkefnft vftð skriftarkensln
eftir Guðmund I. Guðjónsison, skriftarkennara yið Mið-
bæjarbarnaskólann, eru nú komin út. Þetta eru lítil hefti,
sem ætlast er til að börnin hafi til fyrirmyndar, en ekki
til að skrifa í, svo að þaú endast barninu allan veturinn.
Heftið kostar 1 krónu.
BÓKAVERSLUN ÍSTFOLDARPRENTSMIÐJU.
SVEINAFJELAG HÁRGREIÐSLUKVENNA.
FUNDUR
verður haldinn í Sveinafjelagi hárgreiðslukvenna í dag
kl. 1.30 e. hád. í Alþýðuhúsinu (efstu hæð). Afar nauð-
synlegt að allar mæti.
STJÖRNIN.
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFJELAGIÐ
VORBOÐl
Hafnarfirði, heldur fund föstudaginn 24. janúar kl. 8.30
að Hótel Björninn.
Spil og kaffidrykkja.
STJÓRNIN.
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
Móðir og tengdamóðir okkar,
frú KRISTÍN EINARSDÓTTIR
Skálholtsstíg 2, andaðist á Landakotsspítala 22. þ. mán.
Dætur og tengdasynir.
Jarðarför mannsins mins og föður okkar,
EINARS KR. ÞORSTEINSSONAR beykis,
fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 25. þ. mán. og hefst
með húskvéðju að heimili okkar, Lindargötu 16, kl. 1 e. hád.
Athöfninni í kirkjnnni verður útvarpað.
Ólina Oddsdóttir og böm.
Jarðarför konunnar minnar,
VILHELMÍNU ÁRNADÓTTUR,
fer fram frá heimili okkar, Garðakoti, Miðnesi, laugardaginn
25. þ. m. og hefst kl. 1 e. h.
Þorlákur Eyjólfsson.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
GRÓU HALLDÓRSDÓTTUR,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. þ. m. og hefst með
'i'l1! f‘D/>v ,,
bæn að heimili okkar, Bræðraborgarstíg 49. kl. iy2 e. h.
Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
j Sigurður Pálmason og börn.
Jarðarför ' T" |
JÓNÍNU HELGADÓTTUR
fer fram frá heimili hinnar látnu, Ölhól, Stokkseyri, laugar-
daginn 25. þ. mán. kl. iy2 síðd.
Theodóra ’Helgadóttir. Ingibjörg Magnúsdóttir.
Bílferð kl. 9 frá Laugaveg 144.
ÞÖkkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningn við and-
lát og jarðarför okkar kæru móður og tengdamóður,
HÓLMFRÍDAR JÓNASDÓTTUR.
Ásdís Jónsdóttir. Ingvar Benediktsson.
Þuríður Hallbjörnsdóttir. Jóhann Jónsson.