Morgunblaðið - 11.02.1941, Síða 6

Morgunblaðið - 11.02.1941, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 11. febrúar 1941 Sj álf stæðismálið. Alyktun Sjált- stæðisfjelags Akureyrar Bílslysið FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. og upp á akveginn aftnr. Þar var svo bíllinn stöðvaður. Hjer hefir bersýnilega verið mikill hraði á bílnum og telur bíl- stjórinn ekki útilokað, að hann hafi í fátinu, sem á hann kom, stigið í ógáti á bensíngjafann í stað hemilsins. Afundi, sem haldinn var í fjelagi Sjálfstæðismanna á Akureyri 5. þ. m., var sam- þykt einróma svohljóðandi til- lága í sjálfstæðismálinu: „Með því að sambandslög- in eru úr sögunni fyrir rás við- burðanna, en ríkisstjórnin hef- ir tekið konungsvaldið í sínar hendur til bráðabirgða, og með J>ví að nauðsyn er á því að end- anleg og tryggileg skipun sje gerð um hver fari með þetta vald, þá skorar fundurinn á Alþingi að gera stjórnarskrár- breytingu í þessu skyni, enda gengur fundurinn út frá því, að vald þetta verði lagt í hend- ur þar til kjörins forseta". Þingmálafundur i Vestmannaeyjum ingmálafundur var haldinn í Vestmannaeyjum á mið- vikudaginn var. Þingmaður kjördæmisins, Jóhann Þ. Jós- efsson, boðaði til fundarins. Eigi mættu á fundinum for- svarsmenn annara flokka, nema Isleifur Högnason fyrir kommúnista. Margar tillögur voru sam- þyktar á fundinum, þ. á. m. svohljóðandi tillaga í skatta- málum: „Fundurinn skorar á Alþingi að! setja þegar á þessu þingi ný skattalög með hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengist hef- ir jaf núgildandi skattalöggjöf. Skattfrelsi sje afnumið en skattaálagningu þannig hagað, að atvinnufyrirtæki fái aðstöðu til að safna hsefilegum .ara- sjóðum, og efía framleiðslu- tæki sín“. 1 sjálfstæðismálinu var sam- þykt svohljóðandi tillaga: „Fundurinn lýsir yfir því, að hann telur ráðstafanir Alþing- is, þær er gerðar voru síðast- liðið ár, um meðferð utanrík- ismála og ráðstöfun konungs- valdsins, sökum þess ástands, er ríkir, nauðsynlegar og rjott- mætar. Ennfremur telur fund- urinn nauðsyn þess að varð- veitt sje þjóðleg eining og verð- mæti frelsisbaráttu þjóðarinn- ar undanfarna áratugi, að alt sje förðast í orðum eða athofn um, er til þess geti leitt, að er- lendar þjóðir reyni að ná var- anlegri íhlutun um málefni lands vors, en að því sje unnið, að þjóðin fái óskoruð yfirráð allra sinna mála á þeim grund- velli, sem lagður er með sam- bandsíögunum frá 1918“. Nytt námskeið í þýsku hefst í háskólanum bráðlega. Kennari Ingvar Brynjólfsson. Uppl. hjá háskólaritara fyrir vikulok. Köstuðust af bflnum. Þegar bíllinn rann út af veg- arkantinum, köstuðust piltarnir 5, sem stóðu á pallinum, af bílnum og lentu sumir á grjóti. er þeir komu nifiur og hlutu mikil meiðsl. Piltarn% voru: Guðmundur Eiríksson, Hofs- vallagötu 19. Hans meiðsl voru mest og andaðíst hann á Lands- spítalanuih um kl. 7 á sunnudags- kvöld. Guðmundur sál. var einka- sonur Eiríks Einarssonar, er lengi vann hjá Ölgerðinni Egill Skalla- grímsson. Hann var mesti efnis- piltur. Magnús Guðbrandsson (Guð- brandar forstjóra Áfengisverslun- arinnar) hlaut mikil meiðsl á höfði og blæðing á heila; einnig meiðsl á handlegg og fleiri smærri meiðsl. Hann var fluttur meðvit- undarlaus á spítala, en læknar telja þó von um, að hann sje ekki í lífshættu. Ásbjöm Magnússon, Grjótagötu 14. Fekk sár á höfði og sennilega viðbeinsbrot. Skúli Petersen og Haraldur Gíslason sluppu með minni meiðsl. Sjötti pilturinn, sem var á pallinum, Halldór Guðmunds- son, fjell ekki af bílnum. Það merkilega skeði, að þeg- ar bíllinn stöðvaðist upp .4 veginum, lá Halldór á hægra frambrettinu. Hann veit ekkert hvernig þetta hefir skeð. Bretar bundu um sárin. Breski hermannabíllinn, sem fyr getur, kom þarna fyrst að. Hermennirnir, sem í bílnum vom, höfðu meðferðis sáraumbúðir og bundu til bráðabirgða um sár hinna slösuðu, hagræddu þeim, vöfðu í teppi og yfirhafnir, Var strax sent niður að Bald- urshaga og símað til Reykjavíkur. Komu brát.t tyeir sjúkrabílar og læknir og voru hinir sæx*ðu menu fluttir á Landsspítalann. Orsakir slyssins. Bílstjórinn segir, að hjól bílsins hafi lent í holu á veginum, auga- blöð á báðum framfjöðranum hafi brotnað og við þetta hafi bíllinn „skrollað“ og hann mist stjórn- ina á honum. Annars er vegurínn tiltölulega sljettur þarna, en á vegbraninni er lausamöl, en þar sem svo er, er erfitt að hafa stjórn á bíl, ef ferðin er mikjl. ★ Rannsóknarlögreglan hefir mál- ið tíl rannsóknar. Hún gat ekki sagt neitt ákveðið um það í gær, hver væri orsök slyssins. Hjónaefni. S.l. laugardag opin- beruðu trúlofun sína ungfra Sig- ríður Eggertsdóttir, Leifsgötu 3 og Oddgeir Þ. Oddgeirsson (síra Þórðar Oddgeirssonar), starfsmað- ur hjá H. í. S. Sjötugur: Páll Bergs- son írá Hrfsey Páll Bergsson kaupmaður frá Hrísey á sjötugsaf- mæli í dag. Hann er fæddur á Atlastöðum í Svarfaðardal og ólst þar upp í foreldrahúsum. Gekk í Möði'uvallaskóla árið 1891, útskrifaðist þaðan 1893. Árið 1897 kvæntist Páll Svan hildi Jörundsdóttur frá Hrísey. Fluttist sama ár til Ólafsfjarð- ar og rak þar verslun og út- gerð. Hann varð brátt forystu- maður sveitarinnar, vegna á- gætra hæfileika. Árið 1916 fluttust þau hjón til Hríseyjar og settust að á föðurleifð Páls, Syðstabæ. Þar reisti Páll stórt og vandað hús. Hann rak útgerð frá Hrísey til ársins 1930. Hann fluttist til Akureyrar á s. 1. ári. Aðalstarf Páls hefir verið við útgerð og verslun. En hann gegndi einnig lengst af ýmsum opinberum störfum. Var t. d. hreppstjóri í 18 ár og oddviti í 9 ár, sýslunefndarmaður í 24 ár, símstjóri 10 ár, spari- sjóðsformaður 22 ár. Hann stofnaði fyrsta bátaábyrgðar- fjelagið við Eyjafjörð og var förmaður þess í 5 ár. Þau hjón, Páll og Svanhild- ur, eignuðust 13 börn, en tvö dóu ung. Elsta soninn mistu þau 22 ára gamlan. öll hafa börnin notið skólamentunar, átta synir verið í Mentaskóla Akureyrar og tekið próf það- an. Dæturnar hafa hlotið margs konar mentun. Börn þeirra á lífi eru: Hreinn, kaupfjelags- stjóri í Hrísey, Gestur, skrif- stofustjóri, Rvík, Bjarni, frysti hússtjóri í Hrísey, Gunnar, skrifstofumaður, Rvík, Jörund- ur, listteiknari, Rvík, Bergur, 1 Stýrimannaskólanum, Svavar, í Háskólanum, Guðrún, gift Hjeðni Valdimarssyni, Eva, gift Jóhanni Kröyer, verslunar- stjóra, Akureyri, Margrjet, símamær á Akureyri. Páll Bergsson er einn af þeim, sem menn meta því meira og þykir því vænna um, sem þeir þekkja þá betur. Hann er alt í senn, hagsýnn maður og gleðimaður, fullhugi og gæt- inn, strangur við sjálfan sig, en mildur við alla, sem hann umgengst. Hann er einn af þeim mönnum, sem skilja al- vöru lífsins, en meta hvem þann sólskinsblett sem hann hittir á lífsleiðinni, svo öllum, sem þekkja hann, hlýnar um hjartarætur í hvert sinn er þeirj hugsa til hans.' V. St. Wiilkie í dag Wendell Willkie er nú kom- inn til Bandaríkjanna og nran verða yfirheyrður af utanrík- ismálanefnd öldungádeildar.innar í dag (þriðjudag). Það var tilkynt í Washington í gær, að Willkie myndi fara á fund Roosevelts, þegar að lokinni yfir- heyrslunni í ntanríkismálanefnd- innj. Samkepni um teikn- ingu á Háskúlabíúinu Þrenn verðlatin Nefnd sú, sem Háskólinn hefir falið að hafa fram- kvæmdir í bíó-málinu, hefir á- kveðið að láta fram fara sam- kepni um teikningu á húsinu. Þrenn verðlaun verða veitt: 4000 kr., 2000 kr. og 1000 kr. Teikningum á að vera skilað fyrir 10. mars n. k. B|örnæi FRAMH. AF FIMTU SÍÐU. annað, verða frá glötun geymd- ur. Vonandi verður einhver til að gera þetta og það sem fyrst. Því enginn veit hve nærri er æviendi. Björnæs minn, gamli vinur! Þú hefir nú, þegar fyrir nokkru, unnið þjer vinsemd og virðingu þeirra samverkamanna þinna, sem tókst að skilja þig og þjer að skilja þá. Hlýji slík vinátta og samúð að þjer á allar hlið- ar svo að þau spor, sem þú enn átt óstígin hjer, megi verða þjer unaðsrík. Njóttu þeirrar sælu um ólifaða ævidaga! Elsti samverkamaður. Berganzoli FRAMH. AF ANNARI SÍÐU upp fyrir breskum majór. Ame- rískur frjettaritari lýsir því, er hann hitti Berganzoli í Soluch. Hann lýsir honum sem litlum manni með rautt kjálkaskegg. Berganzoli barðist með ítölsku sjálfboðaliðssveitunum á Spáni og hlaut þá viðurnefnið „maðurinn með rafmagnaða kjálkaskeggið“. Berganzoli varðist í Bardia, en komst þaðan undan. í Sollueh var hann klæddur í einkennisbúning óbreytts hermanns. Ilann var þar í hópi 6 annara ítalskra herfor- ingja, og voru þeir allir fluttir til Kairo í gær. f tilkynningu bresku herstjóm- arinnar í Kairo í gær var skýrt frá því, að verið væri að hreinsa svæðið hjá E1 Agheila, á landa- mærum Cyrenaica og Tripoli. Maitland Wilson hershöfðingi,- sem stjórnaði bresku hersveitun- um í Cyrenaica, hefir nú verið skipaður landstjóri þar. Hann hafði verið yfirhershöfðingi breska hersins í Egyftalandi frá því í maí 1939. Minningarorð um Guðíúnu A. Júnsdúttur r dag verða jarðneskar leifar Guðrúnar sál. Jónsdóttur born ar til hinstu hvílustaðar. Hún and- aðist 5. þ. m. Guðrún' sál. var ættstór í báð- ar ættir. Foreldrar hennar vorn merkishjónin Þórdís Bjarnadóttir og Jón llalldórsson bóndi að Hofsá í Svarfaðardal, en þar fæddist hún 9. maí 1849. Naut hún hins besta uppeldis í föður- húsum og dvaldi auk þess á Ak- ureyri til mentunar um skeið,. sem á þeim tímum var þó ótítt. Góðir meðfæddir hæfileikar og að- hljmning þeirra varð þannig sá grundvöllur, er Guðrún sál. gar bygt framtíð sína á. Hún giftist á ungum aldri Jóni Þorvaldssyhi frá Krossum, en hann andaðist fyrir allmörgum ár- um. Þau hjónin bjuggu búi sínts. að Hofi í Svarfaðardal, og eru börn þeirra: Snjólaug, ekkja, Jóhann J. Eyfirðingur kaupm.. Þórdís J. Carlqvist ljósmóðir, Jóií J. Eyfirðingur bóndi, Þofsteinh J. Eyfirðingur skipstj. og Sigur- laug, gift Th. Thomsen vjelfræð- ingí. Barnabörn og barnabarna- börn hennar eru hátt á þriðja tug. Síðustu ár æfinnar bjó hún hjá Sigurlaugu dóttur sinni. Ytra útlit Guðrúnar var hið prýðilegasta. Hún var Ijett í spori og frjálsleg í fasi, ljóðelsk, ákveð- in í skoðunum og minnug vel. Og alt þetta hjelst í hendur til æfi-, loka með þeim ágætum, að eins, dæmi má heita. Ilún hafði fóta- vist nær alla tíð og bar ávalt lif- andi áhuga á því, sem gerðist í kringum hana nær og f jær. En ef við ættum þess kost að líta með henni til baka á hoi’fna slóð, mætti sjá að bernska, glaðvær æska, full- orðinsár með alvöru, móðurgleði og baráttu, efri ár og elli, alt bar sömu einkenni: kjark, þrautseigju og óbilandi lífsþrá. Árangurinn varð líka mikið lífsstarf, en laun- in einhver þau bestu, er lífið veit- ir: Hún naut kærleiks og um- hyggju ástúðlegra barna og bama bama, sá þau vaxa upp og verða að nýtum borgurum og sjálf hafði hún óskerta líkams og sálar krafta alla tíð. Frá þjóðfjelagslegu sjónarmiði verður líf og starf slíkrar konu hvorki mælt nje vegið, en jeg veit að „vel er fátæku fósturlandi meðan jafngóða getnr svanna“. S. S.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.