Morgunblaðið - 25.02.1941, Side 5

Morgunblaðið - 25.02.1941, Side 5
f»riðjudagur 25. febr. 1941. or^tmblaMð Útgcf.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjörar: Jðn Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýslngar og afgrelBsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Áskrirtargjald: kr. 3,60 á mánuBl innanlands, kr. 4,00 utanlands. 1 lausasölu: 20 aura eintakiB, 25 aura meB Lesbök. Fniimfíting á óperettu Tónlistarfjelagsins og Leikfielags Reykjavíkur NITOUCHE eftir Harvé Stríðsfjárlögin Fjárlagafrumvarp það, sem Jakob Möller leggur nú fyrir Alþingi, gefur nokkra hugmynd um, hvernig stríðs- fjárlög okkar koma til að líta út. Gjöldin á rekstrarreikningi 'hækka um rúmar þrjár milj. króna. Þessi hækkun stafar ná- lega eingöngu frá hinni ört vaxandi dýrtíð. Allur tilkostn- aður við rekstur ríkisbúsins hækkar gífurlega. Alt verðlag hefir stórhækkað og það hefir vitanlega áhrif á allan rekstur ríkisins. Alt, sem hin marg- þættu og risavöxnu skrifstofu- bákn þurfa til sinnar starf- rækslu, hækkar í verði. Þar við bætist verðlagsuppbótin til hinna opinberu starfsmanna. Hún nam 560 þús. krónum á síðastliðnu ári, en er áætluð 1 milj. og 200 þús. kr. í fjárlaga- frumvarpinu. Þetta er ein upp- skeran frá dýrtíðinni. En þrátt fyrir hinar miklu hækkanir á gjöldum fjárlaga- frumvarpsins, vegna drýtíðar- innar, er það eftirtektarvert, að tekjurnar standast þetta alt — og betur þó. íFjármálaráðherrann áætlar tákatta og toila rúmum 4 milj. Ikróna hærri en í núgildandi /járlögum og kveðst þá miða við reynsluna, sem fekkst á jþessum tekjustofnum s.l. ár. Það eru aðallega þrír tekju- stofnar, sem hafa gefið þessa góðu útkomu fyrir ríkissjóð- inn. Tekju- og eignarskattur- inn er áætlaður 1,3 milj. kr. hærri í fjárlagafrv. en í gild- andi fjárlögum, vörumagnstoll- urinn 1,4 milj. hærri og verð- tollurinn 1,2 milj. kr. Þá er það og athyglisvert, að fjármálaráðherrann gerir í frumvarpinu ráð fyrir, að tveir tekjustofnar verði feldir burtu með öllu. Það er hátekjuskatt- urinn, sem er áætlaður 200 þús. kr. í gildandi fjárlögum og stimpilgjald af ávísunum og kvittunum, áætlað 75 þús. kr. Frumvarp er fram komið um afnám stimpilgjaldsins, en hátekjuskatturinn bíður senni- lega eftir endurskoðun skatta- löggjafarinnar. Annars er það nýja tollskrá- in, sem mest hefir aflað ríkis- sjóðnum umfram þáð sem áður var. Þótt deila megi óendan- lega um einstaka liði tollskrár- innar, verður það að teljast ómetanlegt happ, að hún kom til framkvæmda í byrjun stríðs- ins. Hún tryggir afkomu ríkis- sjóðsins.Er ríkissjóður því ólikt betur staddur nú en var í síð- asta stríði. Þá var það ekki fyr en eftir stríðið, að menn komu . auga á miljóna hallana a xekstri ríkisins. Pau nýmæli hafa orðið í leiklífi bæ.iarins, að Tónlistarfjelag'ið og; Leikfje- lag Reykjavíkur hafa tekið höndum saman um sýningu hinnar árlegu óperettu. Er ekki nema gott um slíka sambræðslu að segja, því að oft hefir það viljað brenna við, að leikurinn í óperettunni og söng- urinn hjá Leikfjelagonu væru í ljelegara lagi, og það eitt er AÚst, að þessi óperetta er mun betur leikin en þær, sem áður hafa ver- ið sýndar. „Mam’selle Nitouéhe" eftir Flori niond Hervé er líklega gamall kunningi flestra þeirra, sem eitt- hvað hafa dvalið erlendis, því þó að frökenin sje kominn allmikið til ára sinna, er híin enn sýnd svo að segja árlega í flestum löndum álfunnar, og nýtur allsstaðar sömu vinsælda. Músikkin er raunar ekki veigamikil, og þykir þess jafnvel oftast AÚð þurfa, að skreyta óperettuna með allskyns lánsfjöðrum. Á þessari sýningu voru það þeir Offenbaeh, Maill- art, Grétry og e. t. v. fleiri, sem lögðu til lánslög. En þó að lögin í Nitouche sjeu ef til vill ekki þung á metum tónfræðinnar, og höfundurinn hætti sjer sjaldan út úr öruggri höfn dominants og toniku, þá er þó heildarsvipur- inn mjög geðþekkur, lögih eru spriklandi af fjöri og frönskum þokka, aðgengileg og fljótlærð — en ef til vill líka fljótgleymd. Hervé hefir líka gott. lag á . að nota tónana á hnittna vísu í þágu leiksins, eins og t. d. í andstæð- unum milli helgislepju klaustur- söngsins og skops óperettunnar. Það hafði verið allveg vandað til þessarar sýningar um leiksviðs- búnað allan, tjöldin. mjög smekk- leg, og búningarnir ágætir all- flestir — þó ekki allir — má þar til nefna gardínupils dansmeyj- anna í 2. þætti. Leikhússvinir biðu þessarar sýningar með mestri eftirvænt- ingu, vegna þess, að Lárus Páls- son, nýlega heimtur úr helju frá sambandslandinu hei’tekna, birt- ist nú í fyrsta sinn hjer í bæ í stóru hlutverki. ITann hafði áð- ur sjest hjer í danskri kvikmynd, en tækni danskra kvikmynda er þannig liáttað, að góðir leikarar fá sjaldnast notið sín sem skyldi. Nú fengum við að sjá liann, þar sem hann á heima, á leiksviðinu sjálfu. Og það varð viðburður, ekki aðeins vegna þess, að hann er afbragðs leikari, vel mentað- ur, hefir ágæta framsögu, hreim- fagra rödd og, í einu orði sagt „charme“, heldur og vegna hins, að hann greip hlutverkið fínni og látlausari tökum,- en við eigum að venjast um skophlutverk. Leikur hans bar oft keim af bestu dönsku kýmnileikurum — en þeir sa.'kja aftur alt sitt til franskrar leiklistar — en Lárusi tekst altaf að færa sier mentun sína í nyt I sem tslendingur í íslensku mn- liverfi, og verður ekki stæling á jjieim, sem hann hefir numið af. Þó að Lárus sje ekki söngvari, hefir hann þó næga sönghæfileika til þess að fara vel með ekki erf- iðari söngva, en hjer lágu fyrir, og ýar t. d. meðferð hans á „Hún snýst, hún snýst“ einn besti vísna- söngur af því tagi, sem lijer hefir heyrst. Sigrún Magnúsdóttir Ijek aðal- kvenhlutverkið, Denise. Þetta er lang-s.tærsta sönghlutverkið í leiknum, og hvað sönginn snerti, hefir Sigrúnu aldrei tekist bet- ur í óperettum. Ilún hefir líka til að bera alla þá .eðlilegu, streym- andi kæti, sem er önnur hlið Majór Fégure (Brynjólfur Jóhannesson), Celestin Floridor (Lárus Pálsson) og Corinna (Inga Einarsdóttir Laxness). Chemplatreux (Kristján Kristjáns- son) og Nitouche (Sigrún Magn- úsdóttir. Denise. Á himi bóginn skorti nokk uð á skinhelgina, sem er hin hlið- in á hlutverkinu; til þe*s stóð leikur Sigrúnar allur um of í merki lífsgleðinnar. Hún var sjer- staklega aðlaðandi, og kæti henn- ar smitandi í trumbu-söngnum í þriðja þætti. Elskhugann, Champlatreux, ljek Kristján Kristjánsson. Söng hann, sem vænta mátti, hlutverkið af mestu prýði, og sem leikari virð- ist hann vera í framför, t. d. var leikur hans í 1. þætti ósvikin kýmni. Brynjólfur Jóhannesson ljek Fégure majór, aldraðan, af- brýðissamaií flagara. Hann lagði í fyrri hluta leiksins mesta á- herslu á ofsa og A’aldsmenslcu lier- foi’ingjans, og þessvegna kom blíðan og kvenhollustan í síðasta þætti nokkuð á óvænt. Jeg hefi sjeð hlutverkið leikið á. nokkuð annan veg, en þar með er ekki sagt, að skilningur Brynjólfs á því sje ekki fullkomlega rjettmæt- ur. — Sýstur lians, abbadísina, ljek Gunnþórunn Halldórsdóttir. Hlutverk þau, sem hún fær í hendur, ,eru venjulega með nokk- uð öðru sniði, en þó tókst henni hjer að skapa sanna mynd af þessari guðhræddu, auðtrúa klaust urmóður. Inga Laxness, sem er nýliði á leiksviðinu, Ijek Corinne, aðsóps- mikla og skapstóra leikkonu. Hjer í lívík hafa oft birst ný andlit á leiksviðinu, til þess eins flest að hverfa aftur í glevmskunnar djúp. Ef dæma má af þessu fyrsta hlutverki Ingu Laxness, þarf liún ekki að óttast þau örlög. Fas hennar, öryggi- í hreyfingum og tilsvör báru öll vott um ágæta leikhæfileika — en það sem á vantar er. auðvitað komið undir rjettri tilsögn. Þá er að geta Al- freðs Andrjessonar, sem skapaði enn einu sinni eina af þessum ó- gleymanlegu skopmyndum sínum, þennan fáránlega regissör, sem hafði áreiðanlega ekkert, hvorki í hausnum nje á, nema hárkolluna. Lárus Ingólfsson sýndi einnig ó- svikna, græskulausa „komik“ í lið- þjálfanum, sem er á móti riddara- liðinu, af því að hestarnir kunna ekki að „salutera“. Leikstjóri var Haraldur Björns- son, og ljek hann einnik hlutverk leikhússtjórans. Óðagot og fum þessarar persónu* sýndi Haraldúr svo vel, að jeg fyrir mitt leyti er hjer eftir sannfærður um, að skop- hlutverk sjeu hans sanna verks- svið. Nokkur minni hlutverk eru hjer ótalin, en þau fjellu öll vel inn í heildina, og var ekkert þeirra til lýta. Þýðinguna hafði Jakob J. Smári gert, og virtist hún mjög smekkleg. Þó þótti mjer miður, að Tindáta-dúettinn í fyrsta þætti, sem er í frumbúningnum einn af skemtilegustu söngvum leiksins, hafði verið færður í all-mjög dauflegra form. Dr. von Urbantschitsch hafði veg og vanda af þeirri hlið máls- ins, sem að tónlistinni vissi. Keyndist hann nú sem fyr örugg- ur stjórnandi, er kunni skil á að sameina margþætta þræði hljóm- sveitar og söngvara í eina taug. E. Th. Sigríður í • •• SJO Brattholti tug Sjötug varð í gær Sigríður Tómasdóttir í Brattholti í Biskupstungum. Hún er dóttir hinna alkunnu sæmdarhjóna Tóm- asar Tómassonár og Margrjetar Þórðardóttur, sem þar bjuggu all- an sinn langa og ágæta búskap. Tómas faðir hennar vár arþ fædd ur og uppalinn og tók við búi for eldra sinna. Hann ljest áttræður árið 1926. En Margrjet móðir henn ar var frá Kjóastöðum, næsta bæ við Brattholt. Ilún andaðist árið 1928 áttatíu og þriggja ára göm- ul. Sigríður liefir aldrei verið við karlmann kend, en unnað og unn- ið heimili sínu í Brattholti alt sitt æfistarf. Faðir hennar og hún voru sjerlega samrýmd. Komst því sneúima á sú liefð, að hún hjálp- aði honum við útiverkin og fó' með honum lestaferðir haust og vor. Var hún lionum sem dugleg- asti vinnumaður alt frá æsku. Eigi má þó ætla, að hún hafi vanrækt kvenlegast listir fvrir því. Þvert á móti þótti hún skara fram úr jafn- öldrum sínum í kvenlegum íþrótt- um. Hann\*rðir hennar voru bæði listrænar og frumlegar. Auk þessa er hún hið besta að sjer \ fornum, íslensltum fræðum. Það sem þó sjerstaklega gerði liana um eitt skeið líklega þjó5- kunna, voru afskifti hennar af Gullfossmálunum gömlu. En upp- haf þeirra var það, að sumarið 1906 kom austur að Gullfossi og Geysi Englendingur nokkur vell- ríkur. Er hann hafði verið við fossinn og var kominn út að Geysi, sendi hann eftir Tómasi, föður Sig- ríðar, og lagði stríðar fölur á foss- inn til kaups. Bauð hann Tómasi í hann kr. 50.000.00 — fimtíu þús- und krónur. Var það á þeím tím- um all-laglegur skildingur. Virð- ist sem á hann hafi rnnnið í fyrstn tvær grímur við boð Englendings- ins, en kvaðst þó ekki vilja gera út um það fyr en hann hefði ráð- fært sig við Sigríði dóttur sína. Var þá sent eftir henni. Er þang- að kom, var hún eigi lengi að á- kveða sig, fremur en st.undum endranær, og þvertók fyrir söluna. Bjargaði hún þannig frá þeim þjóðarósóma, að fossinn lenti í eigu útlendings. Atvik þetta varð og til þess, að Bjarni Jónsson frá Vogi beitti sjer fyrir því — þótt eigi væri hann þá orðinn þing- maður — að Alþingi gaf út á næsta þingi Fossalögin frá 22. nóv. 1907, sem þegar í 1. gr. sinni FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.