Morgunblaðið - 01.04.1941, Síða 3

Morgunblaðið - 01.04.1941, Síða 3
Þriðjudagur 1. apríl 1941. MORGUNBLAÐl i> 3 Þýsk sprengjuflug- vjel af stærstu gerð á sveimi yfir Reykjavík __• Þessl kúlna- brot gátu valdið bana Flaug fram hjá Vestmanna' eyjum í báðum ieiðum Loftárásarhættan stúð yíir í klukkustund Myndin er af þýskri sprengjuflugvjel sömu tegundar og hingað kom á sunnudaginn (Foeke-Wulf Fw. 200K Kurier). Þessi tegund er ternaðarvjel, endurbætt úr Focke-Wulf Condor farþegaflugvjelum. Þær eru með tveimur skotturnum að ofan og stóru sprengju-,,rúmi' að neðan og þar er einnig lítil fallbyssa, sem hægt er að skjóta úv bæði fram fyrir og aftur fyrir vjelina. Flughraði þessara vjela er um 280 mílur á klst. Hjólin, sem eru tvöföld (eins og aftur-hjól á sumum stórum vörubílum), eru dregin inn á meðan vjelin er á flugi. Ahöfnin er venjulega sex menn. FJÖGRA HREYFLA þýsk Focke-Wulf-Kurier sprengjuflugvjel birtist skyndilega yfir Reykjavík laust eftir klukkan 10 á sunnu- dagsmorguninn. Sveimaði flugvjelin yfir bænum og ná- grenni dágóða stund, en hvarf síðan í suðurátt. Engri sprengju var slept frá flugvjelinni og gerði hún ekki til- raun til árásar. Skotið var að flugvjelinni úr loftvarnabyssum setuliðsins breska, eu ekkert skot hæfði flugvjelina þó að nokkur þeirra færi all-nærri lienni. Breskar flugvjelar frá flugvelli hjer nálægt hófu sig til flugs, cn ekki kom til viðureignar svo vitað sje. Sást flugvjelin síðast fljúga í austurátt frá Yestmannaeyjum og voru þá þrjár breskar flugvjelar á eftir henni. Myndin er af þrem brotum úr sprengikúlum loftvarna- byssa (myndin sýnir fulla stærð brotanna), sem fjellu niður hjer í bænum í skothríðinni á sunnudaginn var. Eitt brotið, sem er 115 gr. að þyngd, fanst í skemtigarðinum sunnan við Tjörn; annað (85 gr.) fanst sunnarlega í Tjarnargötu, og þriðja (58 gr.) fanst í Ingólfsstræti. — Mörg kúlnabrot, af svipaðri stærð, hafa fundist víða um borgina. Má af þessu sjá hve mikil hætta það er, að vera á ferli um bæinn, meðan verið er að skjóta úr loftvarnabyssum. En almenningur gerir sjer ekki enn grein fyrir þessari hættu. — Kúlnabrotin eru til sýnis í glugga Morgunblaðsins. Þýska flugvjelin kom aust- an með landi og sást fyrst úr Vestmannaeyjum kl. 9.43, eða fullum stundarfjórðungi áður en hún flaug hjer yfir bæinn. Hefði því verið nægur tíma að gera Reykvíkingum aðvart frá Eyjum, því þaðan flaug vjeíin í norðurátt og því nokkumveginn augljóst á hvaða leið hún var. í bakaleið flaug þýska flug- vjelin einnig framhjá Vest- mannaeyjum tæpri klukku- stund síðar, eða klukkan 10.35. Loftárásarhættumerki var ekkí gefið hjer í bænum fyr en flug- vjelin hafði sveimað góða stund yfir bænum og byrjað var að skjóta úr loftvarnaþyssum að henni. Hættumerki með símahring- ingu kom svo fvrst enn seinna, eða ekki fyr en mínútu eftir að gefið hafði verið merki með loft- varnalúðrunum. Yfirleitt leituðu vegfarendur til loftvarnabyrgja ,en þó bar of mik- ið á því, að margir eru þeir bæj- arbúar, sem ekki hafa látið sjer skiljast hver hætta stafar af' því að vera á ferli á bersvæði meðan verið er að skjóta af loítvarna- byssum, að ekki' sje talað um ef flugvjelar gera árás á bæinn, en altaf verður að gera ráð fyrir að slíkt sje tilgangur þýskra flug- vjela, sem hingað koma. Einkum bar á því að fólk leit- aði úr loftvarnabyrgjum áður en merki hafði verið gefið um að hættan væri liðin hjá og er slíkt með öllu óforsvaranlegt. Þó tók út fyrir alla óskammfeilni, er fólk sást aka barnavögnum um göturn- ar á meðan á hættunni stóð, eins og ekkert væri um að vera. Til dæmis um hve sprengju- brot frá loftvarnabyssukúlum geta verið hættuleg er atvik, sem kom fyrir á Njálsgötu 17 á sunnudagsmorguinn eð var. Kona, sem býr á efsta lofti í húsinu, var heldur sein á sjer að leita í kjallara hússins. Hún stóð undir þakglugga á ganginum fyrir framan íbúð sína er sprengjubrot kom fljúgandi irn um gluggann. Munaði ekki nema hársbreidd að hún yrði fyrir sprengju- brotinu, og loftþrýstingurinn var svo mikill, að það var engu líkara en að konan hefði orðið fyrir höggi. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Hafnarfjarðar- togarar stöðvast C'undur var haldinn í Sjómanna- fjelagi Hafnarfjarðar í gær kvöldi og samþykti fundurinn ein- róma að sjómenn færu ekki á salt- fisksveiðar á togurunum nema að full áhættuþóknun yrði greidd, auk hins umsamda kauptaxta. Fyr í gær höfðu farið fram sam- töl milli fulltrúa sjómanna og út- gerðarmanna og sögðust útgerðar- menn ekki sjá sjer fært að gera út á saltfisksveiðar með því að greiða áhættuþóknunina. Hafnarf jarðartogararnir eru því stöðvaðir, að minsta kosti í bili.' LOFTVARNAÆFING Á FÖSTUDAG Loftvarnanefnd hefir ákveðið að halda loftvarnaæfingu hjer í bænum n.k. föstudagsmorg- un. — Verður æfingunni í alla staði hagað eins og um loftárás væri að ræða, og mun verða gengið ríkt eftir að bæjarbúar fari eftir sett- um reglum. Togararnír komnír heim Togararnir sex, sem voru í erlendri höfnxer útgerðar- menn tóku þá ákvörðun að hætta að láta skip sín sigla milli landa, eru nú komnir heilu og höldnu til íslands. Skipin höfðu sanifloti yfir hafið og kom ekkert óvenjulegt fyrir þau á leiðinni. „Þór“ hefir ónýtt 11 tundurdufl Frjettaritari Morgunblaðsins á Djúpavík hefir haft tal af mönnum á varðskipinu ,,Þór“, sem verið hefir að tundurdufla- veiðum við strendur landsins. Alls munu skipsmenn á „Þór“ hafa eyðilagt 11 tundurdufl þær 3 vikur, sem liðnar eru síðan skipið hóf herferðina gegn rek- duflunum. Tvelr menn dæmdlr fyrlr eð keupe varnlng af breskum hermðnnum Dómur var kveðinn upp í lögreglurjetti Reykja- víkur í gærmorgun yfir tveimur mönnum, sem höfðu orðið upp- vísir að því, að kaupa vaming af breskum hermönnum. Voru báðir dæmdir í fjársektir. Annar mannanna hafði keypt sjö teppi, nokkuð af vindling- um, niðursoðna ávexti, eina skó, eina vetlinga og fleira. Þessr maður var dæmdur í 300 króna sekt. Hinn maðurinn hafði keypt eitthvað af vindlingum, og á- vexti. Hann var dæmdur í 100 króna sekt. Báðir höfðu þessir menn selt nokkuð af varningnum, sem þeir keyptu af hermönnunum. Eins og skýrt hefir verið frá hjer í blaðinu er íslendingum ó- leyfilegt áð kaupa varning af hermönnum, þiggja af þeim gjafir eða taka að sjer að selja fyrir þá vörur. Mun lögreglan ganga ríkt eftir að lögum hjer að lútandi verði hlýtt í framtíð- inni. Þrfr Púlverjar af Charzow dænid: Ir I fangelsi Skipstjórfnn dæmdur í eins árs fangelsi Sakadómari kvað í gærmorgun upp dóm í máli Pólverjanna af skipinu „Charzow", sem mestu lætin stöfuðu frá hjer í höfninni fyrir skömmu. Þrír þeirra voru dæmdir í fangelsi, en einn sýkn- aður. Pólverjar þessir hafa setið 1 gæsTuvarðhaldi síðan þeir voru handteknir og sitja enn, því þeir áfrýjuðu dómnum til Hæstarjett- ar. — Pólski skipstjórinn, Sigmunt Gora, sem aðallega stóð fyrir ógn- unum við lögregluna og sem m. a. bar vopn og skaut’ á bíl á hafn- arbakkanum, var dæmdur í eins árs fangelsi. Annar Pólverji, Adam Babisz, var dæmdur í fimm mán- aða fangelsi. Þriðji maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Hafði hann átt þátt f vínstuldi úr öðru pólsku skipi, „Puck“. Næturakstur: Aðalstöðin. Sími 1383.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.