Morgunblaðið - 01.05.1941, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.05.1941, Blaðsíða 7
Fimtudagur 1. maí 1941. MORGUNBLAÐIÐ 7 Grikkland FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. í þinginu, að brottflutningnr breska hersins í Grikklandi befði farið fram í samróði við og’ samkvæmt ósk grísku stjómarinnar Las hann upp orðsend- ingu frá forsætisráðherra Grikk.ia, sem ii' dagsett 21. apríl. Þann dag tók Tsouderos við starfi forsætisráðherra af Georgi konungi, sem gegnt hafði því starfi í tvo daga eftir andlát Koryzis. I orðsendingu Tsouderos er vakin at- hygli ó því, að gríski herinn sje upp- gefiiin, og geti þess vegna ekki gert sjer von jum sigur. Þess vegna sje tilgangs- laust að halda áfram að berjast, því að það gæti leitt til upplausnar gríska hemins og þarflausa blóðbaðs a.lríkis- herstns. RÚSSAR OG ÞJÓÐVERJAR FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. einbum aðra leiðina, til Japan, bafa farið vaxandi undanfarið. Eru Þjóð- veírjar og Japanar sagðir hafa gert með sjer samninga nýlega um að Jap- anar eigi að fá flugvjelar og flug- vjelahluta. frá Þýsbalandi gegn því að láta Þjóðverja fá herskip. Reuter tilfærir fregn, sem borist hef- irrtil hinnar óhóðu frönsku frjettastofu, um að bann Rússa hafi vakið gremjtí raeðal ; japanskra sjóliðsforingja. Mótmæll lögð fram I Berlín FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. sendifulltrúa Svía hjer. Þeim skiln- ingi þýsku st.jórnarinnar á rjett- arstöðu íslands, er komið hefði fram í ummælunum um „danska eyju“, hefði jafnframt verið.mót- mælt. I mótmælunum var þetta m. a. tekið fram: 1. ísland væri yfirlýst fullvalda ríki. Þess væri því krafist að leið- rjettur yrði sá misskilningur er kæmi fram í heitinu „dönsk eýja“. 2. íslendingar hefðu harðlega mótmælt hernámi Breta á landinu. 3. Bent á það að ísland væri áfram hlutlaust ríki. 4. íslendingar væru mjög háðir innflutningi til landsins og að inn- flutningsvörur væru eingöngu not- aðar í þágu landsmanna en ekki til hernaðar þarfa. 5. Þá var hafnbanninu harðlega mótmælt og lögð áhersla á, að rík- isstjórnin vænti skjótra svara þetta varðandi. Ennfremur hefði sendifulltrúa Islands í Kaupmannahöfn verið símað og honum boðið að vekja athygli dönsku stjórnarinnar á þeim skilningi, sem fram hafi kom- ið í tilkynningu Þjóðverja. Þá lýsti ráðherrann því yfir, að sendiherra Breta á íslandi hefði nú verið afhent mótmæli ríkis- stjórnarinnar gegn brottflutningi þriggja íslendinga, þar af eins alþingismanns. j KAUPI OG SELj j allskonar Verðbr)ef og fasteignir. Símar 4400 og 3442. Garðar Þorsteinsson. n —gnmiH!1 1 ji i —»r ■"■■■ *■ . 1 - —i rr' « CIW 4 II , H , L1" tt I _ L Fískvcrðíð í Englandí „alt ot hátt“ Umræðtir í þíngína ¥ umræðum, sem fóru fram í breska þinginu í gær, um starfsemi breska matvælaráðuneyt- isins, komst einn af fulltrúum frjálslynda flokksins svo að orði, „að fiskverðið í Englandi væri hneykslanlegt“. Lloyd George, majór, (sonur gamla Lloyd ; Georges) fulltrúi í matvælaráðuneytinu, svaraði að ráðuneytinu væri ljóst að fisk- verðið væri alt of hátt. Hann sagði, að ef ekki tækist að lækka kostnaðinn við dreifing fiskjarins, þá myndi matvælaráðuneytið taka í taumana. Hann sagði, að þeim aðilum, sem sæju um dreifing- una, hefði þegar verið gert þetta fyllilega ljóst. Hnsvegar benti Lloyd George á, að fiskurinn myndi aldrei geta vegið upp á móti' skdrtinum á öðrum matvælum. Hann kvaðst efast um, að til landsins bærust nú 30% ,af því fiskmagni sem fcorist hefði þangað fyrir stríð. Fulltrú- inn raiddi nokkuð um matvælaástandið alment og sagði, að það væri örðugt. Hann benti á til samanbúrðar, að í síð- ustu stvrjöld hefðu Bretar getað birgt sig upp með matvælum frá Hollandi og Norðurlöndum, en nú yrðu þeir að flytja þau margfalt lengri veg. MatvælaráSuneýtið, sagði hann, væri ilang-stærsti matvælakaupandi í heim- inum. Það hefði síðastliðið ár varið 600 miljón stpd. til innkaupa. 90 miljónum stpd. var varið árið sem leið til að kindra verðhækkim. ?9 þúsund dauðir 40 þús. særðir Breska öryggismálaráðuneytið upplýsti í gær, að manntjón af völdum loftárása á Englandi hefði orðið, þar til í lok mars, 29 þús. dauðir og 40 þús. særðir. Þjóðverjar gerðu í fyrrinótt 5. loftárásina á 9 dögum á Ply- mouth. Prú Astor, borgarstjóri í Plymouth, sagði í gær, að Ply- mouth hefði orðið harðast úti í loftárásum af öllum borgum í Englandi. Sumar götur í borgjnni eru ekki annað en rúst og auðn. Tjónið í fyrrinótt varð mikið, og er einnig óttast að manntjón hafi orðið mikið. Engar fregnir höfðu borist af þýskum flugvjelum yfir Englandi kl. 2 í nótt. Bretar vörpuðu í fyrrinótt hinni nýju sprengjutegund sinni í Mann heim, og einnig á olíubirgðastöðv- ar í Rotterdam. Þjóðverjar halda því fram, að sprengjum hafi verið varpað á háskólaborgina Heidelberg, sem er ekki fjarri Mannheim. Lúðrasveit R.eykjavíkur mún leika. íiti við og við í sumar, eins og að undanförnu, en vegna til- mæla mun það ekki verða auglýst í hvert sinn. Að jafnaði mun verða leikið einu sinni eða tvisvar í viku, eftir því sem veður og aðrar að- stæður levfa. Breski Kafbáturinn FRAMH. AF ANNARI Sfi)U Flotamálaráðuneytið tekur það fram, að á leiðinni inn í höfnina hafi kafbáturinn orðið að sigla í gegnum tvö tundurduflabelti, og fram hjá þesum beltum fór hann aftur á útleiðinni, en að þessu sinni í kafi. Hann komst út í Adriahafið og til bækistöðva sinna, og hafði allan tímann ít- alska gislann um horð. Tilkynningu flotamálaráðuneyt- isins lýkur með þeim orðum, að þótt kafbátnum hafi. ekki tekist að hjarga Sir Ronald, þá sýni þó vera hans í óvinahöfn, í fullar 9 klst., hversu hugdjarfir og ósjer- blífnir hreskir kafbátsforingjar og kafbátsmenn sjeu. ★ Þær fregnir bárust til London í til Durazzo í Albaníu og biði þar gærkvöldi um ferðir Sir Ronalds Campbells, að bann væri kominn eft.ir sjerstakri flugvjel, sem á að flytja hann til London. Dagbóh á Stuart 594Í5Í7 Fyrírl. I. O. O. F. 5 = 123518V, = 9. III Næturlæknir er í nótt Axel Blöndal, Eiríksgötu 31. Sími 3951. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Næturakstur: Bifreiðastöð Rvík- ur. Sími 1720. Hjónaband. Nýlega hafa verið gefin saman í hjónaband ungfrú María Magnúsdóttir (Sigurðsson- ar bankastjóra) og Sverrir Briem stórkaupmaður. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af síra Jakobi Jónssyni ungfrú Fjóla Jófesdótcir, Kárastíg 9, og Magnús Bærings, Skólavörðustíg 42. Hjónaefni. Fyrsta sumardag op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Kristín Gísladóttir, Austurgötu 31, Hafnarfirði, og Eiríkur Sigurjóns- son, Hverfisgötu 55, Hafnarfirði. Sumardvöl barna. Skrifstofa sumardvalarnefndarinnar í Mið- bæjarskólanum verður lokuð næstu daga vegne ýmissa aðkallandi starfa, sem fyrir nefndinni liggja. Á barnaskemtun sjálfstæðisfje- laganna í Nýja Bíó í dag syngur Sólskinskórinn, undir stjórn Guð- jóns Bjarnasonar. Spegillinn kemur út á morgun. Sundhöllin verður opin. í dag kl. 7.30—9 f. hád. fvrir alla, kl. 9—2 fyrir bæjarhúa og kl. 2—4 fyrir alla. Leikfjelag Reykjavíkur og Tón- listarfjelagið sýna óperettuna ,,Nitouche“ kl. 8 annað kvöld, og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Útvarpið í dag: 11.00 Messa í Hafnarfjarðarkirkju (síra Jakob Jónsson). Sálmar: 556, 229 — 420. 638. 20.00 Frjettir. 20.30 Útvarpshljómsveitin leikur ættjarðarlög. 20.40 Ræða,- Ármann Halldórsson magister. 21.00 Söngur. — Takið undir! 21.20 Upplestur; Kvæði (Pjetur Pjetursson bankaritari). 21.40 Útvarpshljómsveitin leikur íslensk alþýðulög. Sumardvðl barna. Vegna ýmsra aðkallandi starfa í sambandi við lausn húsnæðismálsins og annars undirbúnings, áður en börn- um og mæðrum er ákvarðaður dvalarstaður á sumar- dvalarheimilum, verða skrifstofur sumardvalarinnar lok- aðar í dag og næstu 2 daga. Læknisskoðun fer þá fram á áður auglýstum tíma. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. FR AMKV ÆMD AST J ÓRNIN. Bilferðlr frá 1. mai — 1. okóber Reykjavfk - Kjalarnes - Kjis Frá Reykjavík: Sunnudaga kl. 8 f. h., 5 og 10 e. h., mánu- daga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimtu- daga og föstudaga kl. 6 síðd. Laugar- daga kl 2y2 síðd. Frá Laxá: Sunnudaga kl. 10 f. h. og 7.30 e. h. — mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimtudaga og föstudaga kl. 7 f. hád. Laugardaga kl. 7 f. h. og kl. 7 e. h. Júlíus Jónsson B. S. R. 1)n Ferðaáætlun Slrætlsvagna Reykjarikur að Lögbergl 1041 I. maí til 20. maí: Frá Rvík kl. 7 — 8.30 — 13.15 — 18.15 — 21-15- Frá LÖgbergi kl. 7.45 — 9.15 — 14.15 — 19.15 — 22.15. 21. maí til 10. sept.: Frá Rvík kl. 7 — 8.30 — 13.15 — 15.15 — 17.15 — 19.15 — 21.15 — 23.15. — Frá Lögbergi' kl. 7.45 — 9.15 — 14.15 — 16.15 — 18.15 — 20.15 — 22.15 — 24. Á sunnudögum aukaferð kl. 10 frá Rvík, kl. 10.15 frá Lækjar- fcotnum, ef þörf krefur. II. sept. til 30. sept.: Frá Rvík kl. 7 — 8.30 — 13.15 — 18.15 — 21.15. — Frá Lögbergi kl. 7.45 — 9.15 — 14.15 — 19.15 — 22.15. 1. okt. til 15. okt.: Frá Rvík kl. 13.15 — 17.15. — Frá Lögbergi kl. 14.15 — 18.15. ATH. Á sunnudögum hefst akstur kl. 8.30. Strætisvagnar Reykjavíkur. h.f. Jarðarför PÁLS sonar okkar hefst frá heimili okkar, Ásvallagötu 5, föstudag- inn 2. maí kl. 3. Jarðað í Fossvogi. Ragnhildur Pálsdóttir. Jón Sigtryggsson. Kveðjuathöfn JÓHÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR, frá Langholti í Meðallandi, fer fram á heimili hennar, Njáls- götu 26, föstudaginn 2. maí kl. 11 f. hád. Aðstandendur. Kveðjuathöfn . SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR frá Grýtubakka í Höfðahverfi, sem andaðist á Landspítalanum 27. apríl, fer fram í Dómkirkjunni kl. 2 í dag, 1. maí. Vandamenn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu og vinsemd við fráfall og jarðarför LOFTS JÓNSSONAR. Börn, tengdabörn og’ barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.