Morgunblaðið - 22.05.1941, Side 3
Fimtudagur 22. maí 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
r r
,Oskandi að Islending-
um vegni vel‘
Dönsk blöð telja ákvörð-
un Alþingis í sjálfstæðis-
málinu eðlilega
STAUNING forsætisráðherra Dana gerði í gær
að umræðuefni samþyktir Alþingis í sjálfstæð-
ismálinu, í ræðu, sem hann flutti meðal danskra
Socialdemokrata.
Stauning skýrði frá því, að íslendingar hefðu í'jett sarnkv.
sambandslagasáttmálanum til að segja upp sáttmálanum frá ár-
inu 1941. Hann sagði að ekki væri ástæða til að gera mikið veður
út af þeim tíðindum, sem nú hafa gerst, þótt önnur leið hafi
verið farin heldur en ráð var fyrir gert í sambandslögunum;
þetta væri afleiðing af ástandi því, sem báðar sambfmdsbjóð-
irnar ættu við að búa.
Bíll með 24
verkamönnum
veltur á hiiðina
11 hafnfirskir verka-
inenii ilasasl
BRESKUR HERMANNABÍLL, með 24 hafn-
firskum verkamönnum, valt á hliðina á Hafn-
arfjarðarveginum í gær. Köstuðust verkamenn-
irnir af bílnum og út af veginum; 11 slösuðust meira og
jninna, en enginn þó alvarlega.
Það var verið að flytja verkamennina heim frá vinnu, þeg-
ar slysið varð. Ekið -var Vífilsstaðaveginn. Bíllinn var opinn ,og
stóðu verkamennirnir, 24 talsins á pallinum aftan á bílnum. Var
ekið all-hratt og ekki hægt neitt á ferðinni, er komið var á vega-
mótin. Vegna hraðans er var á bílnum, þoldi hann ekki hina
kröppu beygju og valt á hliðina á veginn.
Stauning ljet í ljós þá ósk,
að Islendingum vegnaði vel á
þeirri braut, sem þeir væru að
leggja út á. Plann ljet einnig í
ljós þá ósk, að íslendingar
hjeldu tengslum þeim, sem
binda þá við Norðurlönd.
Dönsku blöðin ,,Politiken“
og „Berlingske Tidende“ láta
einnig í ljós þá ósk, að tengl-
in við Norðurlönd haldist. —
„Berlingske Aftenavis“ skrifar
á þá leið, að það væri hin mesta
óhamingja, ef tengsl þessi ættu
eftir að rofna.
Bæði „Berlingske“ og ,,Poli-
tiken“ leggja áherslu á það, að
íslendingar hafi samkvæmt
sambandslögunum rjett til að
segja sambandinu slitið, og ís-
lenska þjóðin ráði því sjálf
hvað hún gerir í því máli.
,,Politiken“ segir að danska
stjórnin verði að kynna sjer
hvort samband Danmerkur og
Islands sje rofið með samþykt-
um Alþingis, en það segi sig
sjálft að íslendingar hafi frjálst
val í því efni.
★
Danskur fyrirlesari, Hemm-
ing Krabbe (?), talaði um Is-
land í danska útvarpinu frá
London í gær. Fyrirlesarinn
rakti fyrst sambandslagasamn-
inginn frá 1918 og gat þess að
bæði íslands og Danmörk hefðu
haft rjett til endurskoðunar á
samningnum eftir árslok 1940.
Síðan gat hann um samþyktir
Alþingis þann 17. maí s.l., sem
gerðar hefðu verið vegna þess
að Danir hefðu ekki lengur get-
að farið með utanríkismál ís-
iands eða staðið við samninga.
Islendingar hefðú því ákveðið
að taka öll sín mál í sínar eig-
in hendúi' og ákveðið að velja
sjer ríkisstjóra.
Fyrirlesarinn sagði, að það
væri einskær áróður frá hendí
Þjóðverja, er þeir hjeldi því
fram, að breska stjórnin hefði
neytt íslendinga til að stíga það
spor, sem nú hefði verið stigið.
Samþyktir Alþingis hefðu
ekki komið þeim á óvart, sem
fylgst hefðu með íslenskum mál-
efnum. Á Norðurlöndum hefði
verið síðan 1918 litið á Island
sem sjálfstætt ríki við hlið hinna
Norðurlandanna. Ráðstafanir
Alþingis væru ekki gerðar af ó-
vináttu við Dani, síður en svo.
Það bæri gleggstan vott um
vináttu íslendinga í garð Dana,
að þeir vildu ekki ganga end-
anlega frá st.órnarfarslegri
skipan landsins, fvr en stríðinu
væri lokið, í von um að ná í
þessum málum vingjarnlegu
samkomulagi við hina fyrri
sambands þjóð sína.
í þes.s-a 50 lireppa var talið
vanta vinnufólk, sem hjer segir:
667 konur, 628 karlmenn, 194
unglinga (drengi og stúlkur inn-
an 15 óra), 40 ársmenn, 27 árs-
konur; ennfremur 22 konur og
42 karlmenn til vorvinnu.
Nokkru áður en Ráðningarstof-
an tók til st.arfa, skoraði jeg í
útvarpinu á bændur. að endur-
nýjá ráðningafbeiðnir sínar. Ilafa
síðan borist beiðnir úr 17 sýsl-
um og beðið um starfsfólk, sem
bjer segir: 55 karla, 72 konur og
47 unglinga. fei beiðnirnar
streynfa að jafnt ög þjett, svo áð
gera má ráð fyrir, áH 'þessar töl-
ur eigi eftir að hæfcka mjög, þó
gera megi einnig ráð fyrir hinu,
a.ð bændur hafi s.jálfir ráðið til
■sín eitthvað af fólfci.
— En hvernig hefir gengið að
fullnægja óskum bænda? Hefir
tekist að ráða margt fólk í sveit-
ina?
— Ráðningarstofa Búnaðarfje-
lagsins hefir verið opiu í 5 daga.
Á þessum tíma hafa henni borist
— Stauning
Kappleikur Vals
m Vlklnos
f kvðld
Meistaraflokkar Vals og
Víkings keppa á íþrótta-
vellinum í kvöld klukkan 8,30
og rennur allur ágóði af leikn-
um til sjúklinga á Vífilsstöð-
um.
Það er nú sá tími kominn er
hæjarbúa er farið að langa til
að sjá góðan knattspyrnuleik
og má búast við að margir sæki
völlinn í kvöld, ef veður verður
hagstætt.
Það verður líka gaman að sjá
hvernig íjslandsmeistararnir og
Reykjavíkurmeistararnir frá í
fyrra standa sig nú í byrjun
knattspyrnutímabilsins. Leik-
urinn milli Vals og K. R. á dög-
unum sýndi að talsverður þrótt-
ur er í knattspyrnumönnum
vorum.
vinnútilboð frá 40 karlmönnum,
50 konum, en aðeins 5 ungling-
um. Er þegar búið að ráða mik-
inn hluta þéssa fólks og hafa
ráðningar yfirleitt gengið mjög
greiðlega.
FRAMH. Á SJÖTTXJ SÍÐU
Fyrsti barnahðpurinn
ter á morgun
Fyrsti reykvíski bárnahópúr-
inn, á vegum Sumardvalar-
nefndar, fer á morgun. Eru það
nm 50 börn, sem dvelja á Braut-.
arholti á Skeiðum.
Ráðgert er, að um næstu helgi
fari bornin, sem dvelja á Hvann-
eyri og í Réykholti í Borgarfirði.
Einnig fara börnin að Staðarfelli
strax og fært. verður vestnr; en
vegna þess að ár hafa verið í
vexti, hafa bílar elcki kömíst þang
að vestur undanfarna daga.
Mæðradagurinn
á sunoudagtnn
Mæðradagurinn er næstk.
sunnudag. Verða þá að
venju seld merki mæðradags-
ins. Öllu, sem inn kemur við
söluna er jafnan varið til þess
að hjálpa fátækum mæðrum og
börnum til sumardvalar í sveit.
1 þetta sinn verða það einkum
mæðurnar með litlu börnin, er
hjálpar njóta. Mæðrastyrks-
nefndin, sem hefir þennan dag
fyrir fjársöfnunardag sinn, mun
í sumar eingöngu taka að sjer
þær mæður, sem eiga svo ung
börn, að þær geta ekki sent þau
frá ser ein síns liðs. Nefndinni
er það nú afar áríðandi að sal-
an gangi vel, en hinsvegar eru
svo mörk þeirra stálpuðu barna
sem áður hafa unnið fvrir
nefndina þennan dag, farin úr
bænum. — Vegna þess vijdi
mæðrastyrksnefndin mjög ein-
dregið beina þeim tilmælum til
alíra mæðra bæjarins, sem enn
hafa heima stálpuð börn eöa
unglinga, a.ð þær hvetji þá til
þess að koma á þá staði, sem
síðar verða auglýstir og hjálpa
til við söluna.
Það er skemtilegt fyrir stálp-
uðu börnin og unglingana að
geta með þ.eirri fyrirhöfn sinni
átt þátt í því, að litlu börnin og
mæður þeira komist úr bænum
í sumar. Við vitum öll að þess
hefir aldrei verið jafn mikil
þörf og nú.
Loítbelgur finst
vestur í Dölum
Loftb.elgur, hefir nýlega fund
ist í lilíðinni inn af bænum
Olafsdal í Dalabýslu. Hafði vír-
strengur, ca. 400 metra langur,
sem festur var í belginn. orðið
fastur í klettaskoru og haldið
belgnuiú. Er belgurinn nú allur
rifinn og erfitt að ná honum. Virð
ist hann hafa legið þarna síðan
snemma í ve.tur.
Verkamennirnir köstuðust
allir af bílnum og lentú í kös
út í móa, en vegarkanturinn er
þarna um 14 m. á hæð. Þarna
hefði áreiðanlega orðið stór-
slys, ef ekki hefði viljað svo yel
til, að mjúkt var undir, þar sem
mennirnir komu niðuf. En 11
menn slösuðust.
Kanadiskur hermannablll
kom þarna fyrst að. Hann tók
hina slösuðu menn og flutti á
sjúkrahúsið í Hafnarfirði. Þar
gerði læknir að meiðslum þeirra.
Að því loknu fóru allir menn-
irnir heim til sín.
Mennirnir, sem slösuðst
voru:
Eyþór Jónsson, Öldugötu;
skarst hann á höfði og hlaut
auk þess nokkrar skrámur.
Ásgeir Gíslason, Hverfis-
götu; meiddist á höfði.
Guðmundur Ólafsson, Vest-
urgötu; meidd,ist á handlegg
og fæti.
Sigurður Jóhannesson, Gunn
tarssundi; meiddist á ökla.
Davíð Gíslason, Öldugötu;
meiddist á læri og hnje.
Petur Þorbjörnssön, Vörðu-
stíg; meiddist á mjÖðm.
Friðþjófur Sigurðsson. Hverf
isgötu; meiddist á höfði.
Eiríkur Smith, Selvogsgötu;
skarst lítilsháttar af gleraugum
sem brotnuðu.
Sigurjón Pjetursson, Ki'oss-
eyrarveg; meiddist á hnje.
Guðm. Eyþórsson, Hverfis-
fötu; meiddist á baki.
Jóhannes • S. Magnússon,
Hverfisgötu; meiddist á læri.
Enginn þessara manna verð-
ur fær til vinnu næstu daga. —
Aðrir sluppu að mestu ómeidd-
ir.
Hjúkrunarkvennablaðið, J. tbl.
17. árg. er nýlega komið út. Þar
eru m. a. þesar greinai’: Erindi,
flutt af Magnúsi . Tjeturssyni
hjeraðslækni um sóttvarnir og
sóttvaTnarreglur, Heilbrígðiseftir-
lit í barnaskólum. eriiidi Hutt af
Ólafi Helgasyni lækni, Frá Norð-
urlöndum, þýdd gýein, eftir S. E,
Ársskýrsla Fjelags ísl, hjúkrun-
arkvenna, frá formanni fjelags-
ins, frú Sigríði Eiríksdóttur, Reglu
gerð um starfstíma og laun heim-
ilishjúkrnnarkvenna, ýmsar frjett-
ir o. fl.
Ráffningarstofa Búnaðarfjelagsins
Um 100 nmnns hafa gafið sig
fram til vlnnu hjá bændum
HVERNIG gengur að ráða fólk í sveitina?
spurði Morgunblaðið Pálma Einarsson ráðu-
naut í gær, en hann veitir forstöðu Ráðning-
arstofu Búnaðarfjelags íslands.
Pálmi Einarsson svarar: — Bvinaðarf jelag ísland sendi í vetur
fyrirspurn til formanna búnaðarfjelaga breppanna og búnaðarsam
baiula, um fólksþörfina, og fekk þá svar úr 50 hreppum.