Morgunblaðið - 19.06.1941, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.06.1941, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Fimtudagur 19. júní 1941. Aðsetur ríkisstjóra verður að Bessa- stöðum Móttökusalur og skrif- stofur í Alþingishúsinu (fyrst um sinn) Bessastaðir. jgjjgg 'Fj ESSASTAÐIR verða bústaður ríkisstjórans. I Forsætisráðherra skýrði blaðinu svo frá, að gv! ■—<“ byrjað væri að lagfæra húsið og yrði því verki haldið áfram af krafti, þar til að fullu væri lokið. Ekki væri þó hægt á þessu stigi að segja hvenær ríkisstjór- inn œyndi geta flutt inn í húsið. Auk ýmislegs, sem þarf að gera í húsinu sjálfu, þarf að byggja sjerstakt hús fyrir starfsfólkið. Þetta tekur alt sinn tíma. 13 þúsund auka- sykurseðlum útbiutaO i gær þúsund auka-sykurseðlum (2 kg. á mann) Var úthlutað í gær. Úthlutunin fer fram í Góð templarahúsinu og heldur áfram í dag og á morgun. Um leið er út- hlutað seðlum fyrir auka-korn- vöruskamt (4 kg. á mann). Úthlutun fer fram kl. 9—12 og 1—5. Þeir, sem hafa glatað stofnum af skömtunarseðlum sínum, fá ekki aukasykurskíimt nje korn- vöruskamt. Það er því nauðsyn- legt að fólk, sem ætlar að fá sykurskamtinn, komi með stofn- ana með sjer, ef það vill ekki fara erindisleysu. Koattspyrnaii: Úrslitaleikur I I. fl. I kvöld Urslitaleikir I. fl. mótsins fara fram í kvöld og hefjast kl. 8. Fyrst keppa Fram og Vík- ingur og síðan K. R. og Valur. Þorsteinn Einarsson dæmir fyrri leikinn og Ólafur Jónsson þann seinni. Mótið stendur þannig nú, að Valur hefir 4 stig, K. R. 3 stig, Fram 1 og Víkingur 0 stig. íslandsmótið. Næsti leikur Islandsmótsins verður n.k. mánudag og keppa þá Knattspyrnufjelag Akureyrar og Fram. ★ Vegna þess að form. dómara- fjelagsins, Gunnar Akselson er að fara úr bænum, eru þeir, sem þurfa að fá vitnekju um dómara- starf, beðnir að snúa sjer til vara- form. dómarafjelagsins, Ólafs K. Þorvarðssonar sundhallarforstjóra, sími 4059 og 5226. „öryggissvæðið'* í Danmörku stækkað O** ryggissvæðið í Danmörku hefir verið stækkað og næ,r það nú einnig yfir Mið-Jótland. Þýsku hernaðaryfirvöldin í Danmörku lýstu eins og kunn- ugt er Vestur- og Norður-Jót- land sjerstakt öryggissvæði í fyrra. Voru settar þarna hömlur á alla umferð á 20 mílna svæði upp frá ströndinni Samskonar hömlur hafa nú verið settar í Mið-Jótiandi. En þótt aðalaðsetur ríkis- stjórans verði á Bessastöðum, þarf hann að sjálfsögðu að hafa skrifstofur og móttökusal hjer í bænum. Til bráðabirgða verð- ur þessu komið fyrir í Alþingis- húsinu. Efri deild verður mót- tökusalur, en hliðarherbergin skrifstofur. Er nú unnið að und- irbúningi þessum og er því verki senn lokið. Á morgun, föstudagirfn 20. júní veitir ríkisstjórinn móttöku æðstu embættismcnnum lands- ins í aðsetri sínu í þinghúsinu, og tekur einnig þar á móti árn- aðaróskum. Ekki muff ráðið ennþá, hve- nær verður haldinn fyrst; ríkis- ráðsfundurinn, undir forsæti ríkisstjórans. Sennilega verður það ekki fyr en eftir helgi. Þingvallaferð Heimdallar Ungir Sjálfstæðismenn í Rvík minnast Þingvallaferðar Heimdallar í júnímánuði í fyrra — og munu margir hafa beðið þess með eftirvæntingu, að Heim- dallur efndi til svipaðrar ferðar í ár. Nú er í ráði, að úr því verði, og er stjórn fjelagisins um þess- ar mundir að undirbíia förina. Ráðgert er, að farið verði um helgina 28.—29. júní. Fyrirkomu- lag ferðarinnar verður á ýmsan hátt með öðru móti en í fyrra og mun reynast vinsælt að skapa þá nýbreytni, sem verða má. Samníngtír mílíí „Dags brúnar og settílíðsíns 17 erkamannaf jelagið „Dags- " brún“ og breska setuliðið hafa nýlega gert með sjer samninga um kaup og kjör verkamanna í Reykjavík, og ná- grenni, sem vinna fyrir setulið- ið. Slíkir samningar hafa ekki verið gerðir fyr. Samning'arnir eru í fernu lagi; Samningur um almenna vinnu, vaktaskiftasamningur, um vinnu í flugvellinum og grjótvinnu og loks samningur um flutning verkamann til og frá vinnustað og áðbúnað þeirra. Samningarnir voru undirrit- aðir af formanni Dagsbrúnar, Hjeðni Valdimarssyni og ráðs- manni fjelagsins, Alfreð Guð- mundssyni f. h. stjórnar Dags- brúnar og af fulltrúa bresku herst j órnarinnar. Aðalatriði samninganna fara hjer á eftir: Vinnutími í flugvellinum: „Vinnutími í alm. vöktum skal vera: fyrra hluta dags frá kl. 5 að morgni til kl. F/2 e. h., eða 8 stunda raunveruleg vinna, seinni hluta dags kl. 1% til kl. 10 e. h., eða :st. raunveruleg vinna. FRAMH. Á SJÖTTU SlÐU 36 stúdentar útskrifaðir úr Akureyrarskóla Akureyri í gær. entaskólanum á Akureyri var slitið þriðjudaginn 17. júní í hátíðasal skólans. Sigurður Guðmundsson skólameistari af- henti hinum brottskráðu stúdent- um prófskírteini þeirra, og að því loknu flutti hann langa og mjög ítarlega ræðu, er hann beindi til stúdentanna. Úr stærðfræðideild útskrifuðust 15, þar af 1 utanskóla. Máladeild 19, þar af 1 utanskóla. Síðar um kvöldið hafði skóla- meistari boð fyrir stúdenta, kenn- ara og ýmsra aðra. Voru þar flutt ar margar ræður og allmikið sungið. I gærmorgun fóru stúdentar, kennarar o. fl. skemtiför til Mý- vátnssveitar. Iljer fara á eftir nöfn stúdent- anna er útskrifuðust og einkunn- argjafir þeirra: Máladeild: Aðalsteinn Sigurðsson (A.) I. eink. 7.36. Alma Thorarensen (Ak) I. eink. 6.78. Björn Bessason (Skag.) I. eink. 6.40. Brynjólfur Ingólfsson (Seyðisf.) I. eink. 6.89. Guðm. Ingi Sigurðsson (Ak.) I. eink. 7.09. Hafþór Guðmundsson (Skag.) I. eink. 6.33. Halldór Þor- steinsson (Ak.) I. eink. 6.30. Ing- ólfur Pálmason (Eyjaf.) I. eink. 6.59. Jóhann Hlíðar (Ak.) II. eink. 5.76. Jón Sigtryggsson (Dalas.) II. eink. 5.87. Kjartan Árnason (N.- Múl.) I. eink. 6.48. Kristján Ei- ríksson (Ak.) II. eink. 5.59. Leó Júlíusson (S.-Þing.) I. eink. 6.94> Magmts Árnason (Ef.) I. eink. 6.77. Ottó Jónsson (Ef.) I. eink. 7.18. Páll Friðriksson (Ak.) I. eink. 6.11. Sigríður Jónsdóttir (Ak.) I. eink. 6.58. Valgarður Kristjánsson (Ef.) I. eink. 6.59. Utanskóla: Þórður Gunnarsson (S.-Þing.) TI. eink. 5.20. * Stærðfræðideild: Ari Kristinsson (S.-Þing.) I. eink. 6.64. Bjartmar Kristjánsson (Ef.) II. eink. 4.93. Eggert Krist- jánsson (Ef.) I. eink. 6.46. Helgi Árnason (Barð.) I. eink. 6.75. Hjalti Þórarinsson (Húnv.) I. eink. 7.35. Inga Björnsdóttir (Seyðisf.) I. eink. 6.40. Jóhann Jakobsson (Húnv.) I. eink. 6.29. Jóhannes Elíasson (Ef.) I. eink. 6.10. Jónas Jakobsson (S.-Þing.) I. eink. 7.16. Sigurbj. Bjarnason (Ak.) III. eink. 4.28. Sigurjóa Sveinsson (Sigluf.) III. eink. 4.25. Skarphjeðinn Njálsson (N.-Þing.) II. eink. 4.51. Snæbjörn Jónasson (Ak.) I. eink. 6.42. .Vigfús Jakobs - son (N.-Múl.) II. eink. 4.72. Utanskóla: Sigurður Hannesson (Rvík) II. eink. 4.51. Þess ber að geta, að notað er kamla einkanakerfið, þar sem hæst er gefið 8 og mínusar eru gefnir. H. Vald. Vísítalan hækk ar tim 2 stíg Er nú 155 \T ísitala Kauplagsnefndar fyrir * júnímánuð er 155 stig. Hjer er því um hækkun að ræða, sem nemur tveimur stigum. Síðasta vísitala var þrem stig- um hærri en vísitalan fyrir næsta mánuð á undan, en þá hafði hún staðið í stað í tvo mánuði. 40 Reykvískir íþrótta- menn tara til Akureyrar í dag I/' lukkan 7 árd. í dag fara rúmlega 40 Reykvíkingar, íþróttamenn í frjálsum íþrótt- um og sundmenn frá Armanni, K. R. og í. R. áleiðis til Akur- eyrar, til að keppa við Norð- lendinga og Austfirðinga í í- þróttum. íþróttamennirnir hjeðan keppa allir í einum flokki sem Reykjayíkurflokkur á móti sam einuðum íþróttamönnum úr Norður- og Austfirðingafjórð- ungi. Kepnin hefst n.k. laugardag og heldur áfram sunnudag og mánudag. Kepninni verður þannig hagað að gefin verða stig fyrir 6 menn. Þetta er fyrsta íþróttamótið, sem haldið er í svona stórum stíl úti á landi, þar sem hesilir landsfjórðungar senda menn til kepni og mun marka tímamót í sögu frjálsra íþrótta hjer á landi. Norðlendingar sýna hinn mesta rausnarskap með því að gangst fyrir þessu móti og að sjálfsögðu munu Reykvíkingar endurgjalda heimsóknina. Þessir reykvískir íþróttamenn fara hjeðan úr bænum á mótið: Flokkur Ármanns í frjálsum íþróttum: 1— Jóhann Jóhannesson, fararstjóri. Halldór Sigurðsson. Ámi Kjartansson, Hörður Hafliðason. Guðm. Sigurjóns- son. Sigurj. Hallbjómsson. Oliver Steinn. Steingr. Pálsson. Sveinn Stef- ánþson. Haraldur Þórðnrson. Jensj Magnússon. Evért Magnússon. Skarp hjeðinn Loftsson. Brandur Brynjólfs- son. Frá f. R.: Ólafur Guðmundsson. Jóel Sigurðs- son. Keppendur K. R.: Anton Bjömsson. Gunnar Huseby. Indriði Jónsson. Jóhann Bemhard. Óskar A. Sigurð^son. Sig. Finnsson, Skúli Guðmundsson. Sveinn Ingvars- son. Þorsteinn Magnússon og auk þcsa Sig. S. Ólafsson og Benedikt Jakobs- son fararstjóri. Sundflokkur Ármanns: Þorsteinn Hjálniarsson, feundstjórí og sundkennari Ármanns. Ögmundur Guðmundsson. Guðm. Guðjónsson. Gísli Jónsson. Stefán Jónsson. Sigur- jón Guðjónsson. Magnús Kristjánsson. Lárus Þórarinsson. Guðm. Þórarinsson, Gunnar Eggertsson. Einar Davíðssonj Guðm. Arason. Haukur Guðjónsson. Óskar Jensen. Flokkurinn mun bæði sýna sundíþróttir og keppa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.