Morgunblaðið - 30.07.1941, Side 4

Morgunblaðið - 30.07.1941, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MiSvikudagur 30. júlí 1941. §leindór Sjerleyfisbifreiðadeildin. Sími 1585. í d*»g Til Stokkseyrar. Kl. 10y2 f. h. og 7' síðdegis. Til Þingvalla: Kl. loy2 f'. h_. iy2 e. h. og 7 síðd. Til Sandgerðis: Kl. 1 e. h. og 7 síðd. Til Grindavíkur: Kl. 8 síðdegis. Panta þarf sæti með minst 1 tíma fyfirvara. Hús íbúðarlnis óskast til kaups, milliliðalaust. Há útborgun. Tilboð merkt „íbúðarhús“ sendist afgr. blaðsins fyrir 10. ágúst. I Daolegar hraðferðir ( Kcykfavík | — Akureyri | s Afgreiðsla í Reykjavík á §§ 1 skrifstofu Sameinaða. Símar § Í 3025 og 4025. Farmiðar seld- i 1 ir til kl. 7 síðd. daginn áður. s Í Mesti farþega flutningur 10 i §§ kg. (aukagreiðsla fyrir flutn- i Í ing þar fram yfir). Koffort 1 1 og hjólhestar ekki flutt. i er miðstö* viðskif* rt' rjefa- ■'710. o r? Gu5m. Jónsson fyrv. oddviti „Þá kemur mjer hann í hug, er jeg heyri góðs manns getið“ Jón Ogmundsson biskup. Q uðmundur Jónsson fyrv. odd- viti ljest á heimili sínu, Ein- arshúsi á Eyrarbakka, þann 27. maí s.l. eftir stutta legu. Guðmundur Jónsson var fæddur 9. sept. 1809 á Hrauni í Ölfusi og voru foreldrar hans Jón Halldórsv sön bóndi á Hrauni og kona hans Guðrún Magmísdóttir. Barn að aldri misti Guðmundur föður sinn — hann druknaði í Ölfusá með síra Guðmundi John- sen í Arnarbæli 28. febr. 1873 —, en ólst upp hjá móður sinni, Guö - rúnu á Hrauni, sem eftir lát manns síns bjó lengi á Hrauni og varð landskunn fyrir rausn og höfðingsskap — þá var Hraun í Ölfusi í þjóðbraut — og þar ól hún upp sinn stóra barnahóp, hin merku Hraunssystkini. Af þeim systkinum mun rni ekki vera á lífi nemá Kristinn vagnasmiður, Frakkastíg 12 í Reykjavík. Tlrii ætt þeirra Hraunssvstkina tel jeg ekki ástæðu til að fjölyrða, liana er að finna í ,,Bergsætt“ eft- ir Guðna Jónsson. Ungur að aldri fór Guðmundur Jónsson að sýna, hvað í honum bjó. Á uppvaxtarárum hans var útgerð í blóma í Þorlákshöfn og hægt um hönd frá Ilrauni með út gerð í Höfninni og með frændum að skifta, þar sem þá bjó í Þor- lákshöfn Jón Árnason dbrm. Guð- mundur rjeðist mjög ungur í út- gerð í Þorlákshöfn ásamt bræðr- I um sínum og gerðist formaður á I skipi sínu, og voru þeir þrír ; Hraunsbræður, sem um mörg ár voru sámtímis formenn í Þorláks- höfn, þeir Guðmundur, Magnús og Þorlákur Jónssynir, og voru þeir með fremstu formönnum í þeirri veiðistöð. Allir hin mestu prúðmenni, miklir aflamenn og góðir sjómenn, og munu aflabrögð þeirra bræðra í Þorlákshöfn hafa dregið mikla björg í hið .mann- marga rausnarheimili á Hrauni, þar sem einnig hinum mörgu gest um og vegfarendum stóð greiði búinn, en lítil borgun þegin. Hin mikla starfslöngun Guð- mundar dró hann ungan — þó uppkominn mann — frá uppvaxt- arheimili sínu, þar sem enn meira var olnbogarúmið. Hann var einn þeirra, er kom upp tóvinnuvjel- um á Reykjafossi. Um það fyrir- tæki hefði áreiðanlega öðruvísi’ farið en fór, hefði Guðmundar notið þar lengur við eða stjórnað því, en um þetta leyti, eða 1904 fluttist hann til Eyrarbakka og dvaldi þar síðan til æfiloka, eða nálega 37 ár. Eftir að Guðmundur kom til Eyrarbakka var Hf hans sífelt starf. Hann gerðist þá strax verslunaririaður við Kaupfjelagið Heklu, ýmist sem bókhaldari eða sem afgreiðslumaður, og varð á þeim árum mörgum kunnur fyr- ir háttprýði og virðuleik í allri framkomu, en þrátt fyrir verslun- arstörfin hlóðust á hann ótal störf í þarfir sveitar- og sýslufjelags. Hann var t. d. fjölda ára oddviti Eyrarbakkahrepps og sat í sýslu- nefnd og nú síðustu árin í skatta- nefnd, einnig í stjórn búnaðarfje- lags hreppsins og slysavarnafje- lags. 16 ár var hann safnaðarfull- trúi og meðhjálpari í Evrarbakka- kirkju. Auk þess alla æfi einhver allra einlægasti starfsmaður og styrktarmaður Goodtemplararegl- unnar, verið gæslumaður ung- templara og flest erfiðustu störf þess fjelagsskapar hlaðist á hann, og nú á næst síðastliðnu úri, er sjúkrasamlag Eyrarbakka var stofnað, var hann kosinn í stjóru þess, gjaldkeri. Auk þessara starfa, sem hjer eru talin, vann Guðm. að ýmsu, sem minni eftirtekt vakti, t. d. var hann mjög oft fenginn til að gera meiriháttar kaupsamninga, einnig stefnuvottur og í sátta- nefnd. Hann þótti einnig mjög handlaginn við læknisaðgerðir. Var ekki ósjaldan aðstoðarmaður læknisins hjer við svæfingar og fleira. Eins og gefur að skilja vánn Guðmundur öll sín störf nteð frá- bærri samviskusemi; hefði ekki svo verið, hefðu störfin ekki hlað- ist svona á hann, en hjer var um engan miðlungsmann að ræða, heldur fágætan vinnuvíking, sem unni sjer lítillar hvíldar. Var á- valt reiðubúinn að gera öllum þann greiða, er hann megnaði, með hollum og undirhyggjulausúm ráð- um, sem hann átti gnægð af; a£ hans fundi fóru allir glaðari en þeir komu. Guðmundur kvæntist 1901 Jón- ínu Árnadóttur frá Stokkseyri, hinni ágætustu konu. ITún andað- ist 4. júní 1915. Þau eignuðust tvo sonu, Guðmund Jónatan, for- mann í Þorlákshöfn og bifreiðar- stjóra, búsettur á Eyrarbakka, og Jón, sjómann í Reykjavík. Guðmundur var jarðsettur á Eyrarbakka 6. júní s.l. að við stöddu miklu fjölmenni. Þ. Jónsson. Otsvar færeysku verkamannanna Abæjarráðsfundi 25. þ. m. var lagt fram brjef frá fjelags- málaráðuneytinu, með eftirriti af brjefi sendiráðs Dana, varðandi útsvarsgreiðslur færeyskra verka- manna, sem hjer vinna fyrir bresku herstjórnina. Bæjarráð samþykti að taka til- boði sendiráðs Dana um, að það haldi eftir af kaupi hvers hinna færeysku verkamanna ákveðnum hundraðshluta á útsvari hans til bæjarsjóðs. Það er svo fyrir mælt í út- svarslögunum, að maður, er vinn- ur á einhverjum stað 3 mánuði eða lengur, verði þar útsvarsskyld ur, og er það samkvæmt þessu á- kvæði, að færeysku verkamenn- irnir verða hjer útsvarsskvldir. Nii sem stendur munu vera um 250 færeyskir verkamenn í vinnu hjá Bretum innan lögsagnarum- dæmis Reykjavíkur. Einkennileg framkvæmd dýrtfðarlaganna FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Þegar dýrtíðarmálin voru tfl meðferðar á Alþingi var tals- yert, bak við tjöldin, rætt um gengisbreytingu ísl. krónu, þ. e. að hækka hið skráða gengi krónunnar. Allir voru sammála um, að þetta væri eina ráðstöf- unin, er að verulegu gagni myndi koma til þess að vinna bug á dýrtíðinni, eins og málum nú er komið. En stjórnin upp- )ýsti, að gengi krónunnar væri ekki hægt að breyta, vegna við- skiftasamninganna við Breta (frá í fyrra). Nú virðist hinsvegar tímabært að taka þenna þátt málsins upp að nýju. Þegar Bandaríkin tóku að sjer hervernd íslands, ger- breyttist viðhorfið. Því var og þá þegar yfirlýst af ríkisstjórninni, að endurskoðaðir yrðu viðskifta samningar okkar við Breta. Eins og málum nú er komið, er það harla óskiljanlegt, að Bretar geti lengur haldið í óeðii- 'legar þvinganir í viðskiftamá!- unum okkur til tjóns, eins og t. jd. það, að krefjast þess, að gengl ,ísl. krónu hækki ekki frá því, sem nú er. ★. Okkur væri það áreiðanlega mjög mikið hagræði nú, a5 hækka gengi krónunnar. Eng- in ráðstöfun önnur væri stór- virkari í þá átt, að vinna bug á dýrtíðinni. Og þótt segja megi, að útflytjendur myndu bíða hnekki í bili við slíkar ráðstaf- anir, er hitt víst, að þeirra hag- ur myndi standa betur í fram- tíðinni með því að hækka geng- ið nú og geta svo síðar lækka5 það aftur, þegar erfiðleikarnír fara að kreppa að, sem vitað er að verður síðar meir. Að því er snertir bein töp bankanna við hækkun gengisins, væri eðlileg- ast að ríkið hlypi þar undir bagga. Hagur ríkissjóðs er og þannig nú, að þetta æfti að vera kleift. Ríkisstjórnin á að taka þetta mál til athugunar og skjótrar úrlausnar, ef þess er nokkur kostur. Iþrólllr Iþrótta ót i Flóa I þróttamót var haldið s.l. sunnu- * dag að Villingaholti í Villinga- holtshreppi í Flóa. Ungmennafjel. „Vaka“ stóð fyrir mótinu. Formaður fjelagsins, Reynir Þórarinsson, setti mótið, en síðan flutti forseti íþróttasambands fs- lands, Ben G. Waage, ræðu, um hina mikilsverðu þýðingu íþrótt- anna fyrir æskulýðinn. Þá hófust íþróttirnar: Fyrst var þreytt langstökk, með atrennu. Fyrstur var Guðmundur Ágústsson, hann stökk 5,78 stikur. Annar var Tng- var Ólafsson, stökk 5,58 stikur og þriðji Eiður Gíslason, stökk 5,51 stiku. , Þá var hástökk, með atrennu. Þar .var fyrstur Guðmundur Á- gústsson, stökk 1,71 stiku. Annar Bjarni Ágústsson, stökk 1,61 stiku og þriðji Guðmundur Oddsson, stökk líka 1,61 stiku. Þá var 100 stiku hlaup. Fyrstur Guðmundur Ágústsson á 12.7 sek. Annar Þórður Þorgeirsson, á 13,1 sek, og þriðji Jón Sturlaugsson, á 13,9 sek. Þá var boðhlaup kvenna, 6x80 stikur, og sigraði sveit unmenna- fjel. Vaka, á 2 mín. 31 sek.; sveit ungmennaf jel. Samhygð var 2 mín. 37. sek. Þá þreyttu sex drengir íslenska glímu, og var þar fyrstur Guð- mundur Oddsson, er lagði alla keppinauta sína að velli. Annar var Andrjes Sighvatsson, með 4 vinninga og þriðji Einar Ingvars- son með 3 vinninga. Þá var kúluvarp. Þar var fyrst ur Guðmundur Ágústsson; hann kastaði 11,56 stikur. Annar var stiknr og þriðji Bjarni Ágústsson, kastaði 10,93 stikur. Þá var þreytí. 800 stiku hlaup. Þar sigraði Þórð- ur Þorgeirsson, á 2 mín. 14 sek. Annar var ITalldór Einarsson á 2 mín. 36 sek. og þriðji Jóhannes Guðmundsson á 2 mín. 39 sek. f þrístökki sigraði Guðmundur- Ágústsson, er stökk 12,37 stikur. Annar var Ingvar Ólafsson á 11,22 stikur, og þriðji Eiður Gíslason A 11.08 stikur. Fyrstur í stangarstökki var Guðmundur Ágústsson, stökk 2,85 stikur. Annar Guðmundur Odds- son, stökk 2,75 stikur og þriðji Eiður Gíslason, stökk 2,65 stiknr. Loks var íslensk glíma fyrir full- orðna, og þar sigraði Jón Guð- laugsson, mjög glæsilega. Annar var Guðmundur Ágústsson, og þriðji Guðmundur Oddsson. Glím- an var mjög góð og skemtileg. Var glímumönnum og íþróttamönn um þakkað frammistaðan að lok- um. Ungmennafél. Vaka bar sigur úr býtum á mótinu, með 32 stig- um. Ungmennaf jel. Samhygð fjekk fjekk 22 stig. Mótið fór vel fram. Gott veður var um daginn og mótið fjölsótt. Eru þarna margir mjög efnilegir íþróttamenn, sent vonandi eiga eftir að koma hing- að á Meistaramót íþróttasambands Íslands og keppa þar. Það var stjórn Ungmennafjel. Vaka, sem sá um mótið, en hana skipa þeir; Reynir Þórarinsson, Mjósundi, formaður, Jón Konráðs- gjaldkeri, og Forsæti, son, Ilróarsholti, Sigurjón Kristjánsson IMagnús Guðlaugsson, kastaði 11,10 I ritari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.