Morgunblaðið - 29.10.1941, Page 6
I
r
i
6
Siguröur Gunnlaugs-
son, seglagerðamaður
sjötugur
¥ dag er 70 ára mætur og
*- merkur maður, Sigurður
Gunnlaugsson skipstjóri, nú um
síðustu 25 ár reiða- og segla-
gerðarmaður í Reykjavík, Rán-
argötu 30 A. Hann er ættaður
ur Grímsnesi, en um fermingar-
aldur rjeðist Sigurður til hins
nafntogaða útvegsbónda á Sel-
tjarnarnesi, Ólafs í Mýrarhús-
um, þar sem hann síðan var til
heimilis fram yfir þrítugs aldur.
Á þeim árum gengu tveir frá
því heimili á Stýrimannaskólann
í Reykjavík, þeir Björn ólafs
skipstjóri og Sigurður Gunn-
iaugsson og luku báðir prófi
með hárri einkunn. Var Sig-
urður í .mörg ár stýrimaður og
skipstjóri á seglskipaöldinni og
híaut með rjettu þann góða orð-
stý: dugnaðar skipstójri og
góður sjómaður. I síðustu 25 ár
hefir Sigurður rekið hjer segla-
verkstæði með fjelaga sínum
méð mikilli prýði; er Sigurður
sennilega reyndasti og besti
seglagerðamaður á íslandi. Er
hann einn af stofnendum Reiða-
og seglameistarafjelags Reykja-
víkur. Hefir honum verið mikið
' áhugamál að gera seglaútbúnað
og önnur öryggisáhöld vel úr
garði á þeim skipum er'leitað
hafa til hans. Er skemst að
minnast m.b. Kristjáns, sem
lenti í hrakningunum. Þar hafði
Sígurður gert við mjög gömul
segl svo þau hjeldu í ofsaveðr-
um en þá list leika ekki nema
virkilegir fagmenn, — en allir
vita, að seglin fluttu bátsverja
lifandi heim. Þegar Sigurður
kvæntist reisti hann bú í Reykja
vík og hefir búið hjer æ síðan.
Hafa þau hjón Ragnhildur og
Sigurður eignast tvær myndar-
legar dætur.
Sigurður er þrekinn og karl-
rnannlegur á velli og sterkur vel.
Hann er einbeittur mjög, hrein-
skilinn og tryggur í lund, með
miklum áhuga fyrir landsmál-
um og hefir mikið starf unnið
íyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann
rr sjerstaklega prúður og kurt-
ei% maður í allri framkomu,
hjartagóður, hjálpfús, ráðholl-
ur og örlátur við alla þá er hann
veitt getur lið — það vitum við
best ungu mennirnir, sem notið
hafa tilsagnar hans.
Nú árna honum ástvinirnir,
og allir „mörgu vinir hans
allra heilla á 70 ára afmælinu,
með von um enn mörg gleðirík
starfsár. Á. J.
IORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. okt. 1941.
Roo§evelts
MARKMIÐIÐ. Vjer höfum alt tilbúið á þilfari og
kloti okkar stækkar nú meir en dæmi 1 erum reiöubúnir vi8 byssurnar.
eru til áður. Hinn nýi her okkar er að | Er Roosevelt hafði flutt ræðuna,
stækka og hermenn okkar þurfa ekki kvað við dynjandi fagnaðaróp og síð-
Dýrtíðarmálin
rRAMH. AP ÞRIÐJO SÍÐb
hópi Sjálfstæðismanna báru fram
sterkar óskir til þingflokksins að
sú leið yrði a. m. k. þrautreynd,
áðnr en annað yrði aðhafst.
★
I umræðunum á Alþingi í gær
upplýsti atvinnumálaráðherra, að
ekki aðeins Sjálfstæðisflokkurinn,
heldur og Alþýðuflokkurinn hefði
verið viðmælandi um lögfesting-
una. Til sönnunar þessu, hvað
Alþfl. áhrærði, upplýsti ráðherr-
ann, að Stefán Jóhann hefði stung
ið upp á því innan ríkisstjórnar
innar, er lögfestingin var rædd,
að ef að dýrtíðin hækkaði um
einhverja vissa stigatölu, þá skyldi
kaupgjaldið hækka líka. Uppruna
lega hafi verið talað um 10 vísi-
tölu stig, en dag eftir dag hefði
verið rætt um, hvort stigin skyldu
vera 5 eða 10. Af þessu sæist, að
Alþfl. hefði a. m. k. verið við-
mælandi um þetta, því „ef að aldrei
átti að fara í flíkina, til hvers
var þá verið að tala um að bæta
hana“ — ef lögfesting var úti-
lokuð, hvaða þýðingu hafði þá að
deila um, hvort hemillinn væri 5
eða 10 vísitölu stig.
★
Yarðandi afstöðu Framsóknar-
flokksins til frjálsu leiðarinnar,
upplýsti atvinnumálaráðherra
þetta: Laugard. 18. okt. áttu ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins viðtal um
þessa leið milli kl. 4—5 síðdegis.
Kl. 6 kom ríkisstjórnin saman öll
á fund og þá var ráðh. Sjálf-
stæðisflokksins falið að rannsaka
hvort viss stór verklýðsfjel. myndu
hyggja á uppsögn samninga, og
ráðherra Alþfl. falið að rannsaka,
hvort Alþýðusambandið teldi lík-
legt, að önnur fjelög myndu segja
upp samningum. Mánud. 20. þ. m.
átti svo ríkisstj. aftur fund með
sjer ld. 11 árdegis og var þar
upplýst, að engar verulegar líkur
væru fyrir uppsögn samninga og
ræddi þá ríkisstjórnin með sjer
hvaða leiðir ætti að fara í dýr-
tíðarmálunum. Þessum fundi lauk
kl. 12%, en kl. 2 síðd. þann sama
dag tilkyntu bæði ráðherrar Sjálf
stæðisflokksins og Alþýðuflokks-
ins flokkum sínum, að náðst hefði
samkomulag innan stjórnarinnar,
um hina frjálsu leið. Daginn eftir
hjelt stjórnin enn fund kl. 11 ár-
degis og þá fyrst kom í Ijós, að
Framsóknarflokkurinn vildi ekki
fara hina frjálsu leið og taldi
nauðsynlegt að stjórnin segði af
sjer.
Þessar staðreyndir, þessi saga
af rás viðburðanna í þessum efn-
um, sem atvinnumálaráðherra sagði
í ræðu sinni, var ekki vefengd í
umræðunum í gær. Verður nú hver
að álykta fyrir sig hvort líklegt
sje að þeir allir þrír, Ólafur Thors,
Jakob Möller og Stefán Jóhann
hafi gersamlega misskilið ummæb
Framsóknarmanna, eða hvort hitt
hafi gerst, að Framsóknarmenn
hafi breytt um afstöðu frá mánu-
degi til þriðjudags.
„Það er undarlegt, þegar slík
æfintýri gerast með þjóð vorri“.
★
Margt þingmanna, auk atvinnu-
málaráðherra, tóku til máls og
stóðu umræður fram á kveld. —
Atkvæðagreiðslu var frestað.
Eæða
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Hitlers, en ekkert mun af henni verða“
ífagnaðarlæti).
Fyrirætlan Hitlers nær auðvitað ekki
aðeins til SuSur-Ámeríku, heldur einn-
ig til Bandaríkjanna.
Jeg hefi í höndum annað leynisbjal,
sem þýska stjórnin hefir látið gera.
Auðvitað ætlaðist þýska stjórnin ekki
il þess að skjal þetta yrði birt, fyr en
eftir stríðið, þegar hægt væri að knýja
fram ráðstafanrinar sem þar nm ræðir
í þrælkuðu löndunum.
Samkvæmt þessu skjali er það fyr-
irætlan Þjóðverja, að afnema ö]] trú-
arbrögð. Þeir ætla að leggja allar
Idrkjueignir um allan heim 'undir ríkið.
Það á að nota sömu aðferðina. sem við
þegar þekkjum hjá hemuihdu þjóðun-
um, sem eru píndar vegna þess, að þær
taka guð fram yfir Hitler.
I staðinn á að stofna alþjóða naz-
istakirkju, þar sem ræðumenn eiga að
tí'la úr prjedikunarstól og Ieggja út af
,.Mein Kampf“ Hitlers, í stað heilagrar
iftningar.
Jeg geri auðvitað ráð fyrir, að þýska
sjórnin muni neita þéssu nú og í fram-
tíðinni. Nokkrir Ameríkumenn, en ekki
raargir, munu halda því fram, að við
þurfum engan kvíðboga að bera fyrir
fyrirætlunum Hitlers. Þeirra skoðun er,
að við þurfum ekki að láta okkur stríðið
skifta, fyr en hleypt er af riffilskoti við
strendur okkar eigin lands.
UM TVENT AÐ VELJA.
Yið Ameríkumenn eigum nú um það
oð velja, hvort við viljurn búa við þaii
skilyrði í heiminum, sem við eigum ao
venjast,; eða hvort við eigum að leyfa
Hitler og bófum hans að fara sínu fram.
Það er hægt að stöðva framsókn Hitl-
ers, og hún mun verða stöðvuð. Þetta
er mjög einfalt og blátt áfram, við höf-
um lofað að aðfitoða við að eyðileggja
IJitlerismann, og þegar þar að kemur,
nmnum við leggja lið við uppbygg-
ing nýs friðar.
Hvem dag sem líður. eykst vopna-
framleiðsla okkar. Þetta er fyrsta meg-
iuatriðið. En vopn þessi má ekki loka
inni í höfnum okkar eða á hafsbotni,
við verðum að afgreiða vörurnar. Skip-
um okkar er sökt, sjómenn okkar em
orepnir. Við ætlum ekki að taka því
með þögninni. Yið höfum sýnt það með
íýrirskipuninni, sem við höfum gefið
flota okkar um að skjóta, þegar er þau
sjá óvinaskip.
Af reynslu þeirri, sem jeg hefi hlotið
við jsjórnarstörf, þá veit jeg. að amer-
íska þjóðin hefir aldrei verið í vafa um
að vörurnar myndu verða afhentar.
Þessi ákvörðnn verður og skal tala sínu
máli í öllum verksmiðjum, já, í öllum
kolanámunum (mikil fagnaðarlæti).
Það verður að margfalda framleiðslu
okkar og litlum minnihluta brotum má
ekki líðast að tef'ja fyrir henni. Stór-
ran iðjurekendum má ekki líðast að
tefja hana í hagnaðarvon. Og litlnm
hættulegum klíkum verklýðsleiðtoga
má ekki leyfast þetta heldur (fagn-
aðarlæti). Þeir eru hættulegir bæði mál-
eínum verkalýðsins og málefnum þjóð-
arinnar.
nTrV^ i -l^
M.s. Esfa
vestur um land í hraðferö til
Akureyrar um næstu helgi. Við-
komustaðir; Patreksfjörður, ísa-
fjörður, Siglufjörður í háðum
leiðum. Vörumóttaka á morgun
(fimtudag).
nein lofsyrði frá mjer. Við verðum að
eignast her, sem er betri en nokkur ann-
ar her.
Ef nm það er spurt, hvert >sjc mark-
miðið með vígbúnaði okkar, þá er því
til að svara, að það er að stöðva Hitler
og neyða hann til þess að taka upp
vamaraðstöðu. Þá er ekki langt í land,
þar til hann hefir verið gjörsigraður,
því að hann þolir "ekki að bíða ósigur.
Rússar berjast af mikilli hetjudáð
fyrir sínu eigin landi, sínum eigin heim-
ilum. Við verðum að senda þeim öll þau
vopn sem þeir þarfnast. Mikið er lagt
á framleiðslu okkar. Auk okkar eigin i
vígbúnaðar, verðum við að aðstoða!
P-reta, Rúspa og Kínverja. Við verðum ;
að miða lífsvenjur okkar við þetta við-
horf.
Eins og forfeður vorir, munum við
gera skyldu okkar.
ar. var leikinn ameríski þjóðsöngurinn.
Japanska pin....
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
innar sje gerðnr í þeim tilgangx
að leiða hug almennings frá ó-
fremdarástandinu innanlands. Al-
staðar sje sama spurningin efst í
hugum fólks. Hvers vegna þurfi
að halda stríðinu áfram“.
Skorturinn í Japan þarf ekki að
þýða að hrun eða hungursneyð
sje yfirvofandi. En hann boðar
greinilega innanlands öngþveiti
og hefir áhrif á skoðanir almenn-
ings gagnvart ófriðnum.
Framtfðaratvinna fyrir unga stúlku.
Ein af þektari sjerverslunum bæjarins óskar
eftir stúlku til að innheimta reikninga og til að-
stoðar við afgreiðslu.
Lysthafendur sendi nöfn sín og nauðsynlegar
upplýsingar í pósthólf 216.
#
Húsgögn óskast
Betristofu-húsgögn, Svefnherbergishúsgögn, Otto-
man og Stólar óskast keypt. — Tilboð merkt
„Útgerðarmaður“ sendist ^Morgunblaðinu.
0
<>
0
0
0
>ooc>ooooooooooooooooooooooooooooooooo
SIGLINGAR
milli Bretlands og íslands halda áfram.
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Culliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
/
é