Morgunblaðið - 29.10.1941, Síða 8

Morgunblaðið - 29.10.1941, Síða 8
8 Miðvikudagur 29. okt. 1941L GAMLA BÍÓ Abraham Lincoln. (Abe Lincoln in Illinois) Amerísk stórmynd, gerð eftir leikriti ROBERT SHERWOODS Aðalhlutverkið leikur Raymond Massey. Sýnd kl. 7 og 9. Áframhaldssýning kL 3>/2—6*4- Bulldog Drummond. Börn fá ekki aðgang. ('undur miðvikudagiun 29. þ. m. kl. 8Y-> í húsi fjelagsins. Erindi, t] dr. Oddur Guðjónsson: Yerð- bólgari og orsakir Iiennar. — Umræður á eftir. WUi ■ ■■ it [ij er miðstöð verðbrjefa- ij viðskiftanna. Sími 1710. «5 0 r 0 ■ -ini==i« A U 6 A Ð hvílist sneð gleraugum frá THIELE AUGDÝSINGAÍ^ elga aC jafnaSl aS vera komnar fyrlr kl. 7 kvöldinu áður en blaðiB kem- ur út. Kkki eru teknar auglýsingar þar sem afgreiðslunni er ætlaö að visa á u uglj'sanda. Tilboð og umsóknír eiga auglýs- -tiilur að sækja sjálfir. BlaBiö veitir aldrei neinar upplýs- ingar um auglýsendur, sem vílja fá skrifleg svör við auglýsingum stnum. CORRIE MAY h f / Skáídsaga frá Suðtírríkjtim Ameríku EFTIR GWEN BRISTOW 85. dagur Nú fóru batnandi tímar í hönd, svo að margir höfðu efni á því að láta þvo þvottinn fyrir sig úti í bæ og Corrie May fjekk von bráðar loforð um svo mikla vinnu, að , hún gat greitt fyrir fæði og hiísnæði. Hún varð að leggja all hart að sjer og hafði líka ærið nóg að starfa við það að sinna Fred litla. Það var erfitt að burðast með hann á handleggn um, þegar hún þurfti líka að bera þvottinn. En henni fjell þetta furðu Ijett, vegna barnsins. Hún hafði altaf haldið, að sjer þættú börn hvimleið. En hún hafði mikið yndi af drengnum, þegar hann var heilbrigður, og Fred var oftast nær við ágæta heilsu, efnilegt og tápmikið harn. Það var auðsjeð á honum, strax og hann fór að ganga, að hann var fæddur til þess að verða mikill maður. ★ Corrie May hugsaði svo mikið um Fred litla og að láta honum líða vel, að hún gaf sjer varla tíma til þess að láta sjer verða gramt í geði, er henni varð það ljóst, að heldra fólkið á plant- ekrunum var að komast til efna á ný. Það var farið at5 rækta bómnll í stærri stíl, og siglingar úm fljótið fóru vaxandi. Endrum og eins sá Corrie Mav Anri Larne hregða fyrir í nýjum vagni. Drengurinn, sonur hennar, var þá með henni, prúðbúinn, í dökkum fötum og röndóttum sokk um. i hvert skifti og þær hittust hugleiddi Corrie Mav það. hvort Ann myndi ]iekkja sig. En það var víst fráleitt, og hún ljet sjer á sama standa. Hún liafði enga löngun til þess að tala við Ann. Enginn gat sagt henni að svelta í hel. Hún þurfti sannarlega ekki að svelta! Og það var í raun og veru sigur fvrir hana. 'Auk þess átti hún líka Fred, sem átti að verða mentaður og vel metinn maður. Hún hafði oft orð á því við liann, er hún hafði hann með sjer, Ieiddi hann með annari hendi og bar þvottinn í hinni, að nú væri að komast ró og spekt á í Iandinu, og hver og einn karlmaður gæti orð- ið það sem hann vildi. — Getur hann líka eignast hest og vagn eins og heldra fólkið? spurði Fred. — Já, áreiðanlega! svaraði Cor- rie May í sannfærandi róm. ★ Fred mældi oft hæð sína við ofninn. Hann sagðist ætla að fara að vinna og verða ríkur, þegar hann næði upp að arinhillunni, og þá átti mamma hans að eignast fallegan vagn og aka um í skemti- garðinum eins og hefðarfrúrnar. Hann gat þegar farið í smá sendi- ferðir • fyrir hana og borið litla þvottaböggla. En þegar hann var átta ára gamall, sagði Corrie Mav, að nú væri tími til kominn, að hann færi að læra að lesa. Li'tltt húsi niður við skipasmíðastöðina hafði verið breytt í skóla, og þar var börnum veitt ókeypis fræðsla. Það þurfti ekkert að borga, nema bækurnar. Fred maldaði í móinn. — Maður er lokaður inni í skólanum allan dagiiui, sagði hann. — En það er gaman að ganga í skóla, svaraði Corrie May ákveð- in. — Þii kemst aldrei áfram í heiminnm, ef þú kant ekki að lesa. — Þú hefir sjálf sagt mjer, að þú kynnir ekki að lesa, tautaði Frecl sjer til varnar. — Já, og þú sjerð, hvernig fór fyrir mjer! Jeg verð að ganga á milli fólks og þvo þvott, þó að jeg sje hvít kona! — En þú átt enga peninga fyrir bókum handa mjer. — Jú, jeg fæ einn dollar og þrjátíu cent fyrir þvott á laugar- claginn. Það hlýtur að nægja fyrir einni bók og spjaldi. TJm haustið byrjaði Fred að ganga í skóla. Corrie ,May fór á fætnr fyrir allar aldir á morgn- ana og eldaði vænan skamt af graut handa honum, svo að honum vxi afl og væri duglegri að drekka í _ sig lærdóminn í skólanum. Það leið heldur ekki á löngu, áður en Frecl þekti alla stafina og einn claginn kom liann heim með spjald ið sitt og skrifaði nafnið sitt, „Fred Upjohn“, á það og sýndi henni. Þá var Corrie May fram xir hófi stolt af syni sínum, hann, sem var ekki' nema lítill drengsnáði ennþá! ★ En clag einn um veturinn sat Fred grátandi úti í horni, þegar hún kom heim með þvott, sem hún ætlaði aðf þvo. Hann þurkaði sjer um augun með erminni sinni, þeg- ar hann sá hana, en hún hljóp felmtruð til hans og spurði, hvað amaði að honum. Var hann veik- nr? Nei, það amaði ekkert að hoimm, sagði Fred og fjekst ekki til þess að segja henni, hvers vegna hann hefði verið að gráta. En þegai' hún lagði fast að honum, sagði hann henni upp alla söguna. Ilún hafði saumað handa honmn skyrtur úr hveitipokum, og í clag hafði hann verið í nýrri skyrtu, svo að hveitimerkið var óþvegið úr. Það sást greinilega og fjelagar hans höfðu skopast að honum og lilegið, þegar þeir sáu stafina á baki hans. Frecl harðneitaði að fara framar í skólaun. Corrie Mav reyndi að tala um fyrir honum með hlíðu og góðum atlotum, en haun var orðinn of stór til þess að sætta sig við það. Ilún Ijet hanu því borða kvöld- verðinn sinn og síðan fara að hátta. En þegar hann var sofnað- ur, skreið hún upp í rúm, fól and- litið í koddanum við hlið hans og' grjet af meðaumkvnn með honnm. Morguniim eftir neitaði Fred enn ákveðið að fara í skólann með hveitimerkið á bakinu. Corrie May mundi alt í eittu eft- ir því, að ein frúin, sem hún þvoði fyrir, frú Price að nafni, skuldaði henni tvo dollara. Það stóð oft á borgun hjá konunum, ef þeim kom betur að sjá ekki af peningunúm í svip, og þeim fanst það sumum mikið góðverk að lofa Corrie May að vinna fvrir sig. Corrie May var farin að venjast og sætta sig við þessa góðgerðasemi, en þenna dag tók hún á sig rögg, fór til frú Priee og bað hana að borga sjer það, sem hún ætti inni, því að hún þyrfti nauðsynlega á pening- unum að halda. Frú Price sagðist fyrst ekki geta mist peningana þessa viku. En svo fór að lokum, að hún greiddi Corrie May helminginti, með þeim iimmælum, að hún mætti þakka fyrir að hún — syndarinn- ar barn — fengi að vinna fyrir heiðarlegt fólk. Corrie May hlust- aði á hana með mestu þolinmæði, eii hljóp síðan heim með clollar- ann sinn. ★ — Ef þú verður góður drengur og ferð í skólann í fyrramálið, máttu eiga þenna dollar, sagði hún við Fred litla, þegar hún kom heim. — Þú getur keypt þjer efni í tvær skyrtur fyrir hann, á heim- leiðinni úr skólanum. Þegar jeg er búin að sattma þær, getur þú not- að þær til skiftis — verið í annari, meðan jeg þvæ hina. Fred var himinlifandi. Hann hafði aldrei átt svona mikla pen- inga á æfi sinni. Jú, það Amr til- vinnandi að vera með hveitimerk- ið á bakinu einn dag, fyrst hann átti að fá tvær nýjar og góðar skyrtur að launum! Aðra ætlaði hann að liafa hvíta, en hina bláa: | "IFjelag&líf ■ |f n AÐALFUNDUR K.R. K n verður í kvöld kl. 8 i/ó i Kaupþingssalnum. Dag- skrá samkvæmt lögum fjelags- ins. Fjelagar fjölmennið! Stjórn K.R. NtJA BÍÓ Læbnirinn velur sjer konu. (The Doctor takes a Wife). Amerísk skemtimynd. Aðalhlutverkin leika: Loretta Young og Ray Milland. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Lækkað verð kl. 5.. SÍÐASTA SINN„ Hln vandláta húsmóðir nofcar- BLITS í stórþvottinn. . . „i ... .....i BLANKO fæglr alt. — Sjálfsagt á hverfc heimili. GÓLFTEPPI til sölu, Skothúsveg 15 (norður— húsið). Upplýsingar eftir kl. 6. KVENSKÁTAR. Fundur í kvöld kl. 8 á Vega- mótastíg. Áríðandi að allar mæti. IÞRÓTTAFJELAG KVENNA Fimleikaæfingar fjelagsins byrja í næstu viku. Nánar augj lýst síðar. I. O. G. T. ST. MINERVA. Fundur í kvöld kl. 81/). Kosn- ing embættismanna. Hagnefnd: Kristinn Stefánsson, stórtempl- ar. ST. EININGIN. Fundur í kvöld kl. 8y2. 1. Inn- taka nýrra félaga. 2. Rætt um hlutaveltuna. 3. Embættis- mannakosning. 4. Síðasti sölu- dagur í happdrætti stúkunnar. Híignefnt1,aratrið i: Síra Sigur- björn Einarsson talar. v> REYKHÚS Harðfisksölunnar, Þverholt 11, tekur lax, kjöt, fisk og aðrar vörur til reykingar. ATHUGIÐ! Tveir námsmenn óska eftir org- eli á leigu, til æfinga, má vera gamalt og slitið. Einnig getur píanó komið til greina. Tilboð merkt: ,,Áreiðanlegir“ sendist blaðinu fyrir n. k. laugardag. BOLLAPÖR, Sósuskálar. Mjólkurkönnur, Te— katlar, Borðhnífar, Skeíðar,. Gafflar, Vasahnífar,. fæst £ Þingholtsstræti 15.. BLÝÁNTAR, Blýantsyddarar, Pennar, Stíla— bækur, Reikningsbæknr, Strok- leður, Glósubækur, Pappirs- klemmur og fleiri ritföng £ Þingholtsstræti 15 . SÍTRÓNUR á 30 aura í Þingholtsstræti 15v. TIL SÖLU Vermireitagluggar 112' fer— metrar. Olgeir Eggertsson, Suc£- urgötu 51, Hafnarfirði. GÓLFTEPPI til sölu. Uppl. í síma 2478. bónið fína er bæjarins besta bón. MEÐALAGLÖS og FLÖSKURJ keypt daglega. Sparið millilið- ína og komið til okkar, þar senr þjer fáið hæst verð. Hringið 1 síma 1616. Við sækjum. Lauga- vegs Apótek. TILBÚNIR KJÓLAR ávalt fyrirliggjandi. Til sölu á saumastofunni Vesturgötu 3, — Versl. GULLFOSS. — KAUPI GULL, 20 kr. á 90 kr. og annað sam- svarandi. Guðm. Andrjesson, Laugaveg 50, sími 3769. KÁPUBÚDIN Laugaveg 35. — Kápur fyrir- liggjandi. AUGLÝSING er gulls íffildi,.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.