Morgunblaðið - 09.11.1941, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐID
Sunnudagur 9. nóv. 1941.
„Mikilvægasta flotabækistöð
Bandaríkjanna
f | i j'; i >-- ----
Tilkynning Knox
flotaraáiaráðherra
FRANK ' KNOX, flotamálaráðherra Bandaríkj*
anna tilkynti í gær að Bandaríkin væru að
koma sjer upp flotabækistöð á íslandi. Hefir
Kaúffmann aðmiráll verið skipaður yfirmaður flotastöðv-
arínnar.
Frjettaritari Reuters í Washington símaði í gærkvöldi
að ákvörðunin um að koma á fót amerískri flotabækistöð
á Islandi hafi þegar vakið þann grun, að Bandaríkin sjeu
um það bil að færa út svæðið, sem herskip þeirra vaká yf-
ír í Atlabtshafi, alla leið til Englands, og að amerísk her-
þkip verði látín fylgja kaupskipum, er þeim verður leyft
að sigla til Englands, alla leið til breskra hafna.
, Skipun Kauffmanns aðmíráls, sem er 54 ára gamall, og tók
þátt í bardögum við þýska kafbáta í heimsstyrjöldiimi, héfir
vakið ýmsar getgátur í sambandi við hina nýju flotabækistöð.
Engar iiáriari upplýsingar hefir verið hægt að fá af hálf u þess
opinbéra, en talið er, að í hinni nýju bækistöð, verði viðgerðar-
stöðvar fýrir skiþ og flugvjelar, sem Bretar og Bandaríkjamenn
geta nótað jofnum höndum, ennfremur olíugeymar. skotfæra-
birgðir, sjúkrahús o. s. frv.
Jafnvel þótt amerískar flotabækistöðvar kunni að verða
Settar úpp í Bretlandseyjum, en það er talið af mörgum ekki ó-
sénnilegt, þá er þó talið líklegt, að Island eigi að verða mikilvæg-
asta flótabækistöðin í austanverðu Atlantshafi.
Kauffmann var sæmdur flota-krossinum, er hann var skip-
herra á tundurspillinum .,Jenkins“ í heimssyrjöldinni.
44
á Islandi
Bretar missa 50
flugvjelar í mestu
loftárásum
stríðsins
BRETAR tilkyntu í gær, að þeir hefðu mist 52
flugvjelar í loftárásum yfir Þýskalandi og
hernumdu löndunum síðasta sólarhringinn.
Þeir mistu 37 sprengjuflugvjelar í loftárásum, sem ein-
hver öflugasti flugflotinn, sem þeir hafa nokkru sinni sent
cil Þýskalands, gerðu á Berlín, Köln og Mannheim í fyrri-
nótt. . .
Engar tölur hafa verið birtar sem gefa til kynna, hve stór-
þessi flugfloti var, en í London er vakin athygli á því, að í
stærstu loftárásum áður, hafi tekið þátt 300 flugvjelar.
1 birtu í gær mistu Bretar 15 orustuflugvjelar. Einnig þá
voru um eitt skeið á lofti yfir Norður-Frakklandi 300 orustu-
flugvjelar, að því er breska flugmðlaráðuneytið skýrir frá. —
Meðal þessara flugvjela vorti nýjjr^r Híurricane-sprengjuflu^-
vjelar.
Amerísk skip
* til hafna
ófriðarþjóða
Stjórriin í Waöhington hefir
nú’ ákveðið að hraða því, að
atkvæðagreiðslá fari* fram í
fulítrúadeildinni um breyting-
artiílögu öldungardeildarinnar
við hlutleysislögin. Tillagari, er
hjÓr um ræðir, er sú, er
beimilar Bandaríkjaskipum að
sigla til hafna ófriðarþjóða.
Er þess vænst að atkvæða-
greiðslan geti farið fram ekki
síðar en á fimtudaginn.
Verkföll
bönnuð
WASHINGTON í gær —: Hátt-
settir embættismenn í landvörn-
nm Bandaríkjanna eru álitnir hafa
ljeð þegjandi samþykki við til-
lögu um að banna verkföll í her-
. gagnaiðnaðinum, nema að meirí-
hluti verkamannanna hafi áður
samþykt verkfaliið í leynilegri at-
kvæðagreiðslu.
Bridges öldungadeildarmaður,
stuðningsmaður Roosevelts upp-
lýsti í gær, að hann hefði samið
frumvarp, sem lagt myndi verða
fram í öldungadeildinni á mánu-
daginn, og sem í felst ofangreint
bann. — (Reuter.)
Saga NorOmannaona,
sem Kflátnir voru
T fregn frá London í nótt var
* sögð saga Norðmannanna sex,
sem skotnir voru í Tromsö á mánu
daginn. Norðmenn þessjr, alt ungir
menn frá Spitzbergen, höfðu af-
ráðið að ganga í uorska herinn,
annaðhvort á íslandi eða á Eng-
iandi. Þeir gátu komist yfir vopn,
og földu sig síðau i íiprsk.u skipi,
sem Þjóðverjar rjeðu yfir. Þegar
skipið var komið á haf út, gerðu
Norðmennirnir vart við sig, tóku
stjórnina á skipinu í sínar hendip-
og ætluðu til íslands, 'En veður
var óhagstætt, og þýskur varðbát
ur 'stöðvaði þá. Þeir voru síðari
í höndum Gestapo í marga mán-
uði, eða þar til þeir voru dæmdii1
til lífláts, og teknir af lífi á mánu
daginn.
Churchill
um Stalin
!■■ j j /t'(\ . j• i\i ■
hurchill flutti ræðu í Shef-
^ field í dag, þar sem hann
mintist á ,,hinn mikla stríðs-
mann Stalin og hina hugprúðu
hermenn hans“.
Beaverbrook lávarður flutti
einnig ræðu í gær, og talaði um
hinn mikla mann, Stalin. Hanr.
sagðist bera fullkomið traust til
íorustuhæfileika Stalins.
„Engin þýsk
sókn i Moskva-
vfgstöðvunum“
C1 ngar breytingar virðast
hafa gerst á austurvíg-
stöðvunum. Þýska herstjórnin
skýrði frá því í gær að þýski
herinn hefði brotist 10 km. inn
í varnarlínu Rússa hjá Kerch.
Rússneska herstjómin til-
kynti á miðnætti í nótt, að bar-
ist hefði verið á allri víglínunni
í gær, en ákafast hefði þó ver-
ið barist á Krímskaga.
Fulltrúi þýsku herstjórninn7
ar lýsti yfir því, við blaðamenn
í Berlín í gær, ao ,,sóknin“, sem
Loszovsky, fulltrúi Rússa hefði
skýrt frá að Þjóðverjar hefðú
byrjað á Moskvavígstöðvunum,
þ. 4. nóv. væri uppspuni einn.
Veður væri þannig á Moskva-
vígstöðvunum að skilyrði væru
ekki fyrir hendi til stórrar sókn-
ar.
Loszovsky hafi hinsvegar log-
ið þessu, til þess að geta sagt
síðar, að sóknin hefði verið
stöðvuð.
Moskvaútvarpið lýsti því i
gær, er Timoschenko hjelt her-
sýningu í borginni Voronezh (í
austur frá Kursk) þ. 7. nóv., á
afmæli byltingarinnar. — Hann
ávarpaði samkomu hundrað
þúsund manna.
,,Hermennirair, sem gengu
fram hjá honum voru vopnaðir
byssum af nýjustu gerð“, sagði
útvarpið.
1 fregn frá London segir, að
sovjet-herirnir sje komnir í
sóknar-aðstöðu á norðurhluta
Leningrad t vígstöðvanna. —
„Flfúgandl
orustusklpM
BALTIMORE í gær —:
„Maryland“, stærstu flugvjel
héimsins var hleypt af stokk-
úrium hjér í gær. Vjelin vegur
140 þúsund pund, og getur
flogið frá Bandaríkjunum til
Evrópu og heim aftur viðstöðu-
laust.
Vænghaf flugvjelarinnar er
181 fet.
Vjelin er kölluð fljúgandi or-
ustuskip. „Flugbátur þessi og
aðrir svipaðir munu verða til
eflingar hinum vaxandi flota
okkar“, sagði aðstoðar-flota-
málaráðh. Bandaríkjanna, Gates,
í gær. „Við eigum uppdrætti að
flugvjei, sem kostar miljón
dollara og getur borið 40 smál.
til Evrópu, eða 20 smálestir
tvisvar sinnum sömu vega-
lengd og getur farið 300 mílur
á klukkustund.“
Hítíer
flytiír ræðu
í Mtínchen
HI T L E R ávarpaði gamla
flokksmenn sína í Miin-
chen í gær.
Kom hann til Múnchen frá
austurvígstöðvimum tíl þess að
taka þátt í hátíðahöldunum, er
fara frarii árléga þ. 8. nóvem-
ber, en þann dag árið 1923
gerðu nasistar byltingartilraun,
sem mistókst.
Hitler rakti tilraunSr sínar
til að varðveita friðinn, en þess-
ar tilraunir báru ekki árangur
vegna þess, að óvinir Þýska-
lands og Naiiionaljsocialista
vildu stríð.
Stríðinu lýsti hann sem sig-
urgöngu þýska hersins. Ilitler
bætti við: „Nú hefir,öll Evrópa
risið upp til að syara bolsjeviíí-
um, sem hafa stöðugt ógnað
menningi nni“.
Hann deildi á „kaffihúsa-
heraaðarfræði“ Breta, er tefldu
fram asnalegum fyllyrðingum
gegn staðreyndum sigranna, er
þýsku hern^ennirnir og hinir
hugrökku bandamenn þeirra
hefðu unnið.
Áður en Hitler hóf ræðu sína
ávarpaði Adolf Wagner hann
og þakkaði honum fyrir hönd
riínna gömlu flokksmanna fyr-
ir það, að hafa lofað því, í sío-
ustu ræðu sinni, að öll stefnu-
skrá nasistaflokksins yrði fram-
kvæmd eftir stríðið.
„Flokksfjelagar yðar munu
verða trúir yður þar tSl yfir
lýkur“, sagði Wagner.
Árásir voru gerðar á verk-
smiðjur hjá Saint Pol og hjá
Lens.
Þegar bresku flugvjelarnar
voru yfir Lens, sló í loftbárdaga
milli þeirra og þýskra flúg-
vjela.
Fjórar þýskar flugvjelar voru
eyðilagðar.
Aðalástæðan til hins
mikla flugvjelatjóns í
fyrrinótt var slæmt veður,
að því er segir í fregn frá
London.
Veðurútlitið var gott, þegar
sprengjuflugvjelarnar lögðu af
stað frá Englandi, en versnaði
óðúm, og er talið að margar
Hugvjelanna hafi orðið að
j aucftenda sökum veðurs. — Er
’itað um að tvær sprerigjuflug-
v elar nauðlentu í Noregi, og
eiii fjogra-hreyfla vjél, méð 1 8
ntanna áhöfn nauðlenti í SVí-
þjóð. Áhöfnin kveikti í vjelinni,
er hún var lent.
Þeir flugmenn, sem komu
heim aftur úr árásarleiðangrun-
um skýra frá því, að hörð árás
háfi verfð gerð á Berlín. “'
í tilkynningu þýsku herstjóra
arinnar í gær, var skýrt frá því,
að lítiísháttar tjón hafi orðið á
Ibúðarhúsum og' að nokkrir
borgarar hafi særst eða farist.
Þjóðverjar segjast hafa skot-
ið niður 27 breskar flugvjelar.
ROOSEYELT SKRIFAR
KALININ.
Washington —: Roosevelt
forseti ljet svo um mælt í brjefi,
sem hann skrifaði Kalinin, for-
seta rússnesku ráðstjórnarríkj-
anna, að varnir Sovjetríkjanna
variru jafn þýðingarmiklar og
varnir Bandaríkjanna.