Morgunblaðið - 09.11.1941, Side 7
Sunnudagur 9. nóv. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Sigurður Jónsson
hreppstjóri, Þór-
arinsstöðum
O igurður Jónsson, lireppstjóri,
frá Þórarinsstöðuni í Seyðis-
íjarðarbreppi í Norður-Múlasýslu
andaðist hjer í Reykjavík 30. októ-
t>er- s.l. Hafði hann komið liingað
fyrir rúmum hálfum mánuði til að
leita sjer lækninga.
Hann var fæddur 27. sept. 1868
að Þórarinsstöðum og ól þar allan
aldur sinn. Var hann því rúmra
73 ára er hann Ijest.
Sigurður á Þórarinsstöðum var
af gagnmerkum bændaættum aust-
anlands. Faðir hans var Jón Jóns-
son frá Firði í Seyðisfirði, bróðir
Sigurðar Jónssonar hreppstjóra í
Firði, af svonefndri Fjarðarætt, én
móðir hans Þórdís Pálsdóttir frá
, Höfn í Borgarfirði, af hinni nafn-
kunnu Hafnarætt og Njarðvíkur-
ætt hinni fornu.
Þau rúm 50 ár, sem hann bjó á
■ eignarjörð sinni, Þórarinsstöðum,
bætti hann jörðina stórlega og
breytti úr heldur rýrri jörð í tún-
stærstu og töðugæfustu jörð
hreppsins. Hýsti hann að nýju
bæði íbúöarliús og útihús öll.
Jafnframt búskapnum rak hann
umfangsmikla. útgerð öll sín bú-
skaparár, fyrst með róðrarbátum
en síðan vjelbátum.
; Sigurðvir kvæntist 1889 Þórunni
1 Sigurðardóttur, hinni mestu ágæt-
; iskonu, en misti hana eftit ná-
. lega 30 ára sambúð 1918. Börn
þeirra eru: Sveinn ritstjóri,
. Reykjavík, Þórarinn bústjóri
1 á Þórarinsstöðum, Friðrik, bú-
; settur í New York og Þórdís
Sigríður, gift Guðmundi' Jenssyni,
framkvæmdarstjóra í Reykjavík.
Auk þess ólu þau hjónin upp
nokkur fósturbÖrn.
Þótt Sigurður væri alla daga
hljedrægur maður, komst hann
ekki hjá því, að á liann liiæðust
margvísleg. opinber trúnaðarstörf.
Hann var t. d. hreppstjóri Seyðis-
fjarðarhrepps fjóra áratugi. Hann
' naut óskoraðs trausts allra, sem
; kyntust honum og bar margt tíl.
Hann var óeigingjarn maður,
hjálpfús og ráðhollur, hagsýnn
maður og atorkusamur. Hann var
prúðmenni í framkorou, svo að af
bar og snyrtimenni í allri um-
gengni, tryggur mönnum og mál-
efnum og drengskaparmaður
mesti. Hann var víðlesinn og glögg
dr á landsmál, þótt ekki tæki hann
mikinn þátt í þeim opinberlega.
Með Sigurði á Þórarinsstöðum
•er fallinn í valinn einn af merk>
ustu bændum Austurlands.
Árni Jónsson.
Dagbók
•••••••••••• OOOOOOtOMM
jXj*Helgafell 594111117—VI.—2.
L O. O.F. 3 = 12311108 = 8V2 0
Næturlæknir er í nótt María
Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17.
Sími 4384. Aðra nótt Ólafur Jó-
hánnsson, Gunnarsbraut 38. *
Helgidagslæknir er Eyþór GUnn
arsson, Laugaveg 98. Sími 2111.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Nesprestakall. Messað verður í
Skildinganesskóla í dag kl. 2% e-h-
Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.
Síra Jón Auðuns messar í frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl.
5%. Allra sálna messa.
85 ára er í dag Símon Eiríks-
son, Aðalgötu 4 í Keflavík.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Ágústa
Sigurðardóttir og Halldór Pálsson
prentari. Heimili ungu hjónanna
er á Hringbraut 188. , ..
Hjónaband. Nýlega voru gefiu
saman í hjónaband Sigríður ,Sig-
urstéinsdóttir og Hákon Björns-
son, Króki, Akranesi.
H. f. p. Fundur í dag í Alþýðu-
húsinu kl. 2 e. h.
Skrifstofa Mæðrastyrksnefndar í
Þingholtsstræti 18 er opin alla
virka daga kl. 4—6 e. li. Lögfræði-
leg aðstoð á mánudögum og
fimtudögum. Formaður nefndar-
innar, frk. Laufey Valdimarsdótt-
ir er til viðtals á mánudagskvöld-
um kl. 8%—10.
Hagfræðingafjelag íslands hjelt
aðaifund í fyrradag. Á fundinuin
flutti dr. Björn Björnsson fróðlegt
erindi um áhrif skatta og tolla á
verðlag. í stjórn fjelagsins voru
kosnir dr. Oddur Guðjónsson (for-
maður), Gunnar Viðar og Agnar
Norðfjörð.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
leikritið Á flótta kl. 3.30 í dag og
hefst sala aðgöngumiða kl. 1.
Ungbarnavernd Líknar verður
framvegis opin mánudaga, þriðju-
daga, fimtudaga og föstudaga kl.
3.15—4. — Ráðleggingarstöð fynr
barnshafandi konur verður opin
2. og 4. hvern miðvikudag í hverj-
um mánuði kl. 3.30—4. — Bólu-
setning gegn barnaveiki fer fram
þriðjudaga og föstudaga kl. 6—7.
Hrii^ja verður fyrst í síma 5967
sama dag.
Happdrætti K. F. U. M. og K.
í Hafnarfirði. 1. nóv. var dregið í
happdrætti Iv. F. H. M. og K. í
Hafnarfirði og. upp komu þessi
númer: 3365, 2630, 3893, 1414, 551,
3282, 1153, 491. 732, 32, 1567,
2388, 2634, 2295, 1302, 1071, 3540,
1520, 3848. 1115, 3993, 2697, 3542,
649, 2196. Vinninganna sje vitjað
til Jóels Ingvarssonar, Strandgötu
21, Hafnarfirði.
íslenska útvarpið frá London er
á hverjum sunnudegi kl'. 14.30 eft-
ir íslenskum tíma.
Fjelag ungra rithöfunda héldur
fund í kvöld kl. 9 á Amtmanns-
stíg 4.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
EIB u.mrn j .».1
Kin^iirp
M.b, Skaftfellingur
hleður til Vestmanneyja á
morg-un.
Vörumóttaka fyrir hádegi.
Gógó 10 kr. S. Þ. 10 kr. J. A. 5
kr. Erlendur ívarsson 10 kr.
Til Hallgrímskirkju í Reykjavík
Gjöf frá 1.17.9. kr. 43.00. Bestu
þakkir. G. J.
Útvarpið í dag:
10.00 Morguntónleikar (plötur):
Symfónía nr. 2 og Leónórufor-
leikurinn eftir Beethoven.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Messá í Fríkirkjúnni (sjera
Árni Sigurðsson). Fermingar-
messa. Sálmar: 23, 105, 573, 647.
15.30— 16.30 Miðdegistónleikar
(plötur): Spönsk tónskáld.
18.30 Barnatími (Ragnar Jóhann-
esson). . .. y'
19.25 Hljómplötur: Suite Algérí-
enne eftir Saint- Saens.
20.00 Frjettir.
20.20 Hljómplötur: Rússnesk
kirkjulög.
20.30 Gunnar Gunnarsson les úr
ritum sínum.
20.55 Einleikur á píanó (ungfrú
Margrjet Eiríksdóttir): a) :Medt
ner: Saga. b) Bowen: Romance
í Ges-dúr. c) Glazounow; Til-
’ bfigði.
21.15 Hljómsveit B.jarna Böðvars-
sónar (Siingvarar: Ouðrún S-
monardóttir og Einar B. Waage)
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög.
Útvarpið á morarun:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30— 16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 1. fl.
19.00 Þýskukensla, 2. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20,00 Frjettir.
20.30 Um daginn og veginn (Sig-
fús Halldórs frá Höfnum).
20.50 Útvarpshljómsveitin:
Döpsk alþýðulög.
Einsöngur (frú Hulda Jónsdótt
ir af Akranesi): a) Bortnian-
sky: Bæn. b) Björn Jakobsson:
1. Lýs milda ljós. 2. Drottinn
vakii-. e) Jónas Tómasson:
Barnabæn. d) Björgvin Guð-
mundsson : Kvöldbæn.
21.20 Hljómplötur: Ungverskur
lagaflokkur eftir Schubert.
21.50 Frjettir.
er flull
af Langaveg 58
i stærri og betri húsakynni
RIO-KAFFI
FYRIRLIGGJANDI.
Ólafur Glslason &’Co. h.f.
SÍMI 1370.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI----ÞÁ HVER^
AOstoDarmatsvein
vantar á togarann Tryggva gamla.
Uppl. í síma 3461.
Malvæfaráðherra
Breta
Fregnir komust á kreik í gær
um að Woolton lávarður,
matvælaráðherra Breta ætlaði að
segja af sjer. Hann flutti ræðu,
þar sem hann komst m. a. svo að
orði, ,,að líf hans sem ráðherra
gæti orðið stutt“.
,.Þegar jeg tókst á hendur nú-
verandi starf mitt (sagði ráðherr-
ann), hafði jeg litla þjálfun sem
ráðherrar eru vanir að hafa og jeg
hefi aldrei lært þá list að flytja
ræður. Það er lítill vandi fyrir
fólk að sitja í hægindastólum og
segja, að það geti gert alt miklu
betur en aðrir“.
Síðar í gær var því þó lýst yfir
opinberlega í London, að Woolton
ætlaði ekki að segja af sjer. Sú
skýring er gefin á ummælum hans,
að hann líti á sjálfan sig sem
stríðsráðherra, en að stríðinu
loknu ætli liann að hverfa aftur út
í viðskiftalífið.
AUGLÝSING er sulls ígildi.
sje hún á rjettum stað.
—
Kveðjuathöfn
SIGURÐAR JÖNSSONAR
frá Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 10. nóvember kl. 2 e. h. og hefst með húskveðju
á heimili dóttur hans, Öldugötu 16, kl. 1.15 e. h.
Kveðjuathöfninní í Dómkirkjunni verður útvarpað.
Aðstandendur.
Jarðarför konunnar minnar,
SESSEUU GUÐMUNDSDÓTTUR,
er ákveðin þriðjud. 11. þ. m. frá dómkirkjunni. Athöfnin hefst
með bæn að heimili okkar. Laugaveg 34B kl. 1. Jarðað verður
í Fossvogskirkjugarði.
SveinbjÖrn Guðmuudsson.
Innilegt þakklæti færum við öllum, er sýndu okkur samúð
við fráfall og jarðarför ástvinar míns og föður,
SIGURÐAR SIGMUNDSSONAR,
Bræðraborgarstíg 38.
Hjálmrún Hjálmarsdóttir. Gísli Jóh. Sigurðsson.