Morgunblaðið - 09.12.1941, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.12.1941, Qupperneq 7
Þriðjudagur 9. des. 1941, MORGUNBLAÐIÐ 7 Mjólkurverðið hækkar FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU iiækkunar á síldarmjöli (úr 32 kr. í 43 kr.) og öSrum fóðurbæti, þá væri biireikningavísitala bænda nál. 197 á móti 180 í sept. Þetta myndi gera 8—9 aura hækkun á mjólkurverðið. En með tilliti tii þess, að margir bændur taka ekki aðke.ypt vinnuafl, þótti ekki rjett að taka þessa hækkun að fullu. — Var þessi nýja verðhækkun borin undir landbúnaðarráðherra eða ríkisstjórnina ? — Nei, mjóllcurverðlagsnefnd vinnur algerlega sjálfstætt. — Hvað fá bændur mikið nu í sinn hlut, af mjólkurverðinu? — Jeg hygg, að bændur hjer vestan Hellisheiðar hafi fengið út- borgaða 50 aura í október. Hve mikið þeir fá í nóvember, veit jeg ekki. Austan f jalls munu þeir hafa fengið 37—38 aura. — Vitið þjer hve mikið fje Sam- salan á nú í sjóði? —• Nei, en það hlýtur að vera stór fúlga. iITIÐ UM ÖXL. í sambandi við ummæli for- AUGAÐ hvílist T V I I h með gleraugum frá I I L I f Það er ljett og fljótlegt að gera skófatnaðinn spegilgljáandi með skóáburðinum í þessum umbúðum. Biðjið ávalt um FJALLKONU skóáburð frá H.f. Efnagerð Reykjavíkur. EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI-----ÞÁ HVER? Sendið vinum yðar „Norræn jól“. Það er góð jólagjöf. niMISINS manns mjólkurverðlagsnefndar um vísitöiuna, er ástæða til að benda á eftirfarandi atriði: Seinasta verðhækkunin á mjólk og mjólkurvörur var ákveðin 5. sept. s. I. Þá var hækkunin mjög stórfeld. Ilún hafði og mjög mikil áhrif á næstrr vísitölu (fyrir októ- ber). Þá hækkaði vísitalan um 6 stig (úr 166 í 172) og var aðal- ástæðan hækkun mjólkurinnar. Vísitalan í nóvember sýndi 3 stiga hækkun (úr 172 í 175). Ástæðan fy'rir þeirri hækkun var verðhækkun á hangikjöti. nauta- kjöti, tólg, eggjum o. fl. Með öðrum orðum: Þessi mikla hækkun vísitölunnar síðan í sept-_ ember (úr 166 upp í 175 stig) stafar aðallega frá hækkun mjólk- ur og mjólkuryara í september og einnig frá hækkun aUnara land- búnaðarvara í október. Og nú í byrjun desember kemur ný verðhækkun á mjólk og mjólk- urvörum og samkv. skýringu fór- manns mjólkurverðlagsnefndar stafa 4I/2 eyrir af hækkun vísi- tölunnar, sem þessar sömu vörur hafa hækkað. Þessi nýja verðhækkun kemur niðnr á janúar-vísitölunni og! hækkar hana sennilega um 6—8 st.ig, Þá kemur P. Zóph. aftur og hækkar verðið á uý, vegna hinnar nýju vísitölu. Og Tíminn hrópkr: Hjer sjáið þið hina frjálsu leið í dýrtíðarmálunum í framkvæmd! Þetta var nú sú hlið málsins, sem fremúr er til þess fallin að henda gaman að en taka alvarlega.' LÖGFESTINGIN En svo er hin liiiðin, sú, sem snýr að bændum og Tiigfestingar- fruinvarpi Eysteíns. Hvernig hefði orðið hlutur bænda nú, ef lög- festingin hefði náð fram að ganga? Meirihluti verðlagsnefndar rök- styður hækkunina nú aðallega með stórfeldri kauphækkun hjá fólki sem vinnur við framleiðslustörfin heima á býlunum. Þeir segja t. d. að vetrarmanui sjeu nú greiddar 2—300 kr. á mánuði, en í fyrrá 100 kr. Og annað sje eftir þessu. Hvar hefðn bændur staðið nú, ef frumvarp Eyst.eins hefði verið samjiykt ? Þeir hefðu haft óbreytt mjólkuryerð, en 100—200% hækk- nn á kaupgjaldinu! Hvernig ætla þeir herrar, P. Zóph. og aðrir þingmenn Fram- sóknarflokksins að verja lögfest- inguna, eftir að þeir liafa lagi þessi gögn á borðið? Bardagarnir á Malakkaskaga FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Sprengjuflugvjelar úr konung- lega breska flughcrnum gerðu árás á skipin í tunglskini og í dagsbirtu og að m!ir(sta kosti tvö óvinaherskip urðu fyrir sprengjtim. I dagrenningu hjeldu nokkr- ar sprengju- og tundurskeyta- flugvjelar árásum áfram, en um árangúr er ekki kunnugt ennþá. Þrjár af flugvjelum okkar hafa hingað til ekki komið til taka. Kl. 8 um morguninn leit svo út, sem öll óvinaskipin, sem eft- ir voru hjeldu í norðurátt, en skildu eftir báta og hermenn á ströndinni, sem hersveitir vor- ar voru að elta uppi. „Beufort“- sprengjuflugvjel sem var á eft- irlitsflugi komst að því, að ver- ið var að setja hermenn á land í Patani og Singorahjeruðum í Suður-Thailandi. Sex óvinaflug vjelar rjeðust á þessa sprengju- flugvjel, en hún komst til bæki- stöðvar sinnar. Japánskar flugvjelar gerðu loftárásir á eftirtalda staði: Klukkan 0415 í Singapore-hjer- aði, en ekkert tjón varð á hern- aðarstöðvum. Nokkurt tjón varð á eignum og manntjón í árás á Singa- poreborg“. Singapore, miðstöð Breta í Austur-Asíu, og höfuðmark Japana á suðurvígstöðvunum er eyja, sem aðskilin er frá Mal- akkaskaganupi af kílómeters- breiðu 'sundi. Eyjan er aðeins um 40 km. á lengd ög 20 km. á breidd. Hún er um 220 ferkílómetrar að meðtöldum aðliggjandi eýj- im. íbúarnir eru tæpar 700 þús. Dregið var í happdrætti Sálar- rapnsóknafjelagi Islands á sunnu- dagskvöld og koniu upp þessi núm er: 779 málverk, 408 værðarvoð, 23 rafmagnsofn, 945 borðdúkur, 1105 sófapúði, 26 veggmynd. Vinu inganna má vitja til frú Soffíu IlaraldsdóttuV, Sjafnarg. 36. Fundur verður í Skagfirðinga- fjelaginu í Oddfellowhúsinu uppi n. k. miðvikudagskvöld'. Verður þar sýnd kvikmynd. Upplestur o. fl. verður til skemtunar. Að lok- um verður dansað. Sððln vestur um land til Akureyrar eftir miðja þessa viku. Komið verður við á Húnaflóahöfnum aðeins í bakaleið. Vörumóttaka á alla venjulega viðkomustaði í dag og til hádegis á morgun. Pantaðir farseðlar óskast sóttir á miðviku- dag. „Bjorn Austræni“ hleður í dag til Bolungarvíkur, Súgandafjarðar 0g ísafjarðar. — Vörumóttaka til hádegis. PUDLO vatDsþ)elt efni I stein- steypu og múrhúðun fyrlrligg|andi. §ÖGIN H.F. Einholt 2 — Sími 5652 Dagbóh □ Edda 59411297 — 1. I. O. O. F. Rb. st. 1 Bþ. 901298y2 E. S.—E. K. » Næturlæknir er í nótt Þórarinu Sveinssou, Ásvallagötu 5. Sími 2714. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. 25 ára hjúskaparafmæli eiga í dag hjónin Stefanía Tómasdóttir og Þorvaldúr Klemensson, Þóru- gerðarstöðum, 'Grindavík. Jafn- framt á Þorvaldur þá fimtugs af- mæli. Silfurbrúðkaup eiga í dag hjón- in Marsibil Eyleifsdóttir og Buð- mundur Guðlaugsson, vjelstjóri. Bjuggu þau lengi í Hafnarfirði, en eru nú til heimilis Bakkastíg I hjer í bænum. Hjúskapur. Síðastliðinn laugar- dag voru gefin saman af sjera Bjarná Jónssyni, ungfrú Hulda Ragna Einarsdóttir frá Bergi, Njarðvíkum og Huðmundur Jóns- son, sjómaður, Reykjavík. Heimili ungu lijónanna verður á Þórs- götu 28. Hjónaband. Á föstndag voru gef in Saman í hjónaband, ungfrú Ólafía Einarsdóttir, Mánagötu II og Hans Kristjánsson, forstjóri í Sjóklæðagerðinni. Heimili ]>eirra er á Víðimel 37. Hjúskapur. Gefin voru saman í hjónaband s. 1. laugardag, af s)\ Jóni Auðuns, Helga Kristjánsdótt- ir og Karl Ó. Runólfsson, tón- skáld. Hjónaefni. Nýlega hafa opinber- að trúlofun síua ungfrú Anna Albertsdóttir, Óðinsgötu 28 og Harry Frantzen frá Horten í Nor egi. Mjög gott skíðafæra var á HeR- isheiði á sunnudaginn og voru um 100 manns á skíðum við. Skíða skálann í k Flegingarbrekku og Gýghól. Skíðafólk var einnig ann- arsstaðar hjer í nágrenninu, þar sem snjó var að fá. Landsmálafjelagið Fram í Hafn- arfirði heldur aðalfund sinn í G. T.-húsinu kl. 8y> í kvöld. Verður þar m. a. rætt um bæjarstjórnar- kosningarnar. Operettan Nitouche verður sýnd annað kvöld og hefst sala að- göngumiða kl. 4 í dag. Útvarpið í dag: 12.15 Hádegisútvárp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Lög úr óper- ettum og tónmyndum. 20.30 Erindi: Siðaskiftamenn og trúarstyrjaldir, I: Forspjall (Sverrir Kristjánsson sagnfr.). 21.00 Tóuleikar Tónlistarskólans (Björn Ólafsson og Árni Krist- jánsson): Sónata í F-dúr fyrir fiðlu og píanó, eftir Mozart. 21.30 Hljómplötur: Tónverk eftir j Dvorák: a) Kvartett. í F-dúr. h) Slavnesk rapsódía. 21.50 Frjettir. §ífrónur 25 og 40 aura. >wzlunuv B. S. I. Símar 1540, þrjár línor. Góðir bílar. Fljót afgreiðsla. o Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum að ekkjan ÞÓRLAUG ÞORVARÐARDÓTTIR andaðist laugardaginn 6. desember á heimili okkar, Shellveg 10. Krístín Bjarnadóttir. Eyvindur Eyvindsson. Fóstursystir mín HÓLMFRÍÐUR ZAKARÍASDÓTTIR, sem andaðist á Hafnarfjarðarspítala 30. f. m., verður jarð- sungin frá dómkirkjunni föstudaginn 12. desember kl. 1. Margrjet Skúladóttir. Hjartans þökk fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa JÓNS ÁRNA GÍSLASONAR. Júlíana Jónsdóttir. Karl Eiríksson. Halldóra Jónsdóttir og börn. Innilegt þakklæti til vina minna fyrir auðsýnda hjálp og hluttekningu í,veikindum og við útför móður minnar, JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR. Guðmundur Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.