Morgunblaðið - 18.02.1942, Qupperneq 5
Miðvikudagur 18. febr. 1942.
5
jPflofgttttMgfóft
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
% Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Auglýsingar: Árni Óla.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánutSi
innanlands, kr. 4,50 utanlands.
í lausasölu: 25 aura eintakið,
30 aura með Lesbók.
Sjóðurinn
Iboðskapi sínum til þing-
manna við setningu Alþing-
js gat ríkisstjóri þess, að aðal-
verkefni þingsins að þessu sinni
; j7rði, auk afgreiðslu fjárlaga og
dýrtíðarmála, að gera ýmsar
ráðstafanir til öryggis fyrir
framtíðina. Drap ríkisstjóri í
því sambandi á söfnun fjár í
sjóð, er yrði til taks til þess að
mæta atvinnuleysi og öðrum
erfiðleikum eftir stríðið.
Þetta, sem hjer er drepið á,
er einn þáttur í dýrtíðarráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar og sá
þátturinn, sem mun hafa meiri
þýðingu fyrir framtíðaafkomu
fólksins í landinu en flesta
grunar.
Það er eins ljóst og nótt fylg-
ír degi, að eftir stríðið koma yf-
ir okkar þjóð miklir þrenginga-
og erfiðleikatímar. Ef ríkissjóð-
ur hefir þá ehgu úr að spila,
umfram hinna daglegu þarfa og
• e. t. v. ekki nægilegt fje til þess
að standast hinn dýra rekstur,
sem þá er orðinn, þá er of seint
að leita til skattþegnanna um
: aukið f járframlagr Þá verður
ekki lengur um að ræða gróða
hjá atvinnuvegunum. Töpin
blasa við; þau stækka með
hverju árinu og atvinnuvegirnir
neyðast til að draga saman
seglin. Atvinnuleysið hefir inn-
reið sína, með öllum þeim hörm-
ungum, sem því fylgja.
Þess vegna er sjóðssöfnun nú
sjálfsögð öryggisráðstöfun. Sá
sjóður verður að vera stór og
hann á að vera óviðkomandi
• daglegum rekstri ríkissjóðs.
Hann á að geymast og verður
kornhlaða, þegaír erfdðleikaár-
in koma.
En hvar á að fá fjeð í þenna
sjóð? Það er stríðsgróðinn, fyrst
«g fremst, sem á að mynda
þenna varasjóð. Stríðsgróðinn
hef ir vissulega átt sinn þátt í að
skapa verðbólgu í landinu og
þar með vaxandi dýrtíð. Það er
þessvegna einnig bein dýrtíðar-
ráðstöfun, að stríðsgróðinn sje
dreginn ,,úr umferð“, auk þess
kem framtíð landsmanna verð-
nr trygð með því að safna stríðs-
gróðanum í sjóð, sem ríkið hef-
ir til ráðstöfunar eftir stríðið.
Vegna ástandsins, sem ríkir
hjer á landi verða fjölmargar
Iramkvæmdir ríkisins að bíða.
Varasjóðurinn á að tryggia, að
íje verði fyrir hendi síðar, til
þeirra.
Þegar þjóðin sjer, að ætlun
stjórnar og þings er, að taka
þannig alhliða á dýrtíðarmál-
wium, mun andúðin gegn þeim
ráðstöfunum, sem gerðar hafa
verið hverfa með öllu. Og þá
verða þéir ekki öfundsverðir,
flokkarnir, sem skorist hafa úr
"Icík. Fvfirlithingin bíður þeirra
- og þeir værðskulda hana.
MfKILSVERÐUR GRUNDV0LLUR
UNDIR HAGFRÆÐI REYKJAVÍKUR
Arbækur Reykjavikurbæjar 1940
eftir dr. Björn Björnsson
Um áramótin kom út hag-
fræðirit mikið eftir dr.
Björn Björnsson hagfræðing, „Ár-
bók Reykjavíkur 1940“.
Eftir titlinum gæti maður álit-
ið, að ritið hefði inni að halda
fróðleik, sem aðallega snerti næst-
liðið ár. En því fer fjarri. Þarna
eru ýms atriði rakin í liagsögu
bæjarins frá fyrstu byrjun, eða
svo langt sem skýrslur eru fyrir
hendi.
í þessari árbók er svo mikili
fróðleikur saman tekinn, að bókin
er nauðsynleg handbók fyrir alla
þá, sem láta sjer hag bæjarfje-
iagsins nokkru skifta.
Tíðindamaður blaðsins hefir
komið að máli við dr. Björn, og
rætt við hann um bók þessa og
hvernig hún er til orðin.
Tilgangurinn með bók þessari,
sagði hann, er í fám orðum sá,
að fá sem glegst yfirlit yfir þróun
bæjarfjelagsins á sem flestum svið
um, ekki einasta yfir fjárhag bæj-
arins, heldur ýmsa starfrækslu í
bænum, og hag almennings. Eru
hjer gerðar skýrslur um ýmislegt,
sem engar yfirlitsskýrslur hafa
ATerið til um áður.
Fyrst er fólksfjöldinn í bæn-
um, hvernig hann hefir aukist.
Þá koma ýms atriði er almenning
varða, mentamál, lýðmál ýms, svo
sem um atvinnuleysi, styrkþega,
framfæri, slysa- og sjúkratrygg-
ing. TJm atvinnuvegi, útgerð og
afla, tölu og* stærð skipa og* hlut-
deild útgerðarinnar hjeðan í út
gerð landsins.
Þá eru skýrslur um samgöngur.
vöi’u flutninga um Reykjavíkur-
höfn, tala bifreiða, o. s. fi*AT.
Þá er verslun, tala verslana, og
hlutdeild Rvíkur í verslun lands-
ins, skýrslur frá pósti og síma,
símaviðskifti, t. d. alt frá 1906,
afgreiðsla póstsins, sjerstaklega á
ábyrgðapósti.
Þá er löggæslan rakin yfir nokk
urt tímabil, tala lögregluþjóna,
hve margir þeir hafa verið sbr.
við fólksfjölda, ýmsar upplýsing-
ar frá lögreglunni síðasta áratug-
inn, tala umferðaslysa o. fl. Starf-
semi slökkviliðs, frá því varðlið
var sett, á stofn 1912, brunatrygg
ingar frá upphafi (1874), tala
kvaðninga, upptök elsvoða o. fl.
Þá eru mentamál, barnafræðsl-
an og allir skólar, sem starfað
hafa, með aðaldráttum í sögu
þeirra, hvenær þeir voru stofn-
■ aðir, hver hafi rekið þá o.s. frv.
Nokkrar skýrslur eru þarna við-
víkjandi skemtanalífi bæjarbúa,
síðan skemtanaskattur var lög-
leiddur, svo sem skýrslur yfir að-
sóknina að kvikmynd ahúsunum og
aðsókn a-ð leiksýningum.
Þá er allmikill kafli í bókinni
um fjármál bæjarins, er bvrja á
eignum bæjarsjóðs og fyrirtækja
lians. Byrjar það yfirlit árið 1921.
Þar er sundurliðun á öllum sltuld
um bæjarins, öll föst lán bæjarins
rakin, og til hvers þau hafa verið
notuð, svo og allar útistandandi
skuldir eða lán til annara. Á sama
hátt eru sundurliðaðar eignir og
skuldir fyrirtækja bæjarins, frá
því árið 1921, en þá byrjaði raf-
veitan, en höfnin var þá tiltölu-
lega ný.
Stofnkostnaður hvers bæjarfvr-
irtækis er tilgreindur, hvernig
hann hefir aukist, fyrirtækin
stækkað, livernig stofnkostnaður-
inn hefir verið afskrifaður og
hver rekstursárangur hefir verið
á hverju ári.
Sundurliðað yfirlit er yfir tekj-
ur og gjöld bæjarins frá 1915,
þar sem tekjurnar og gjöldin eru
dregin saman í málefnaflokka
sem sjeu sambærilegir frá byrjun,
en færsla reikninganna hefir stór
um breyst á þessu tímabili. Sams-
konar sundurliðað yfirlit er um
fyrirtæki bæjarins.
/ ★
Dr. Björn hefir unnið að þess-
ari bók í nokkur undanfarin ár.
Prentunin ein tók l1/) ár og* var
bókin ekki nálægt því samin, þeg
ar prentunin hófst. Torveldaði
Nafnabreytingar á tyllidögum þjóð-
afinnar eru ekki vinsælar. T. d. að
kalla mánudaginn í föstuinngang
, bolludag“. Hjer á árum áður var
hánn stundum kalaður flengingardag-
ur, og var það kannske skárra.
En verra er þegar t. d. menn hjer í
bæ eru að gleyma því að nefna sum-
ardaginn fyrsta rjettu nafni, og kalla
hann ,,barnadag“, vegna þess að
barnavinaf jelagið Sumargjöf heldur
sma árlegu barnahátíð þann dag.
Barnavinafjelagið valdi rjettan
dng til þessarar vinsælu starfsemi
sinnar. En fjelagið ætti ekki að gefa
tiiefni til þess að menn gleymdu
hinu rjetta nafni dagsins. Sumardag-
urinn fyrsti er þjóðlegasti hátiðisdag-
ur Islendinga, og vinsæll með þvi
r.afni.
★
Úthlutur. vegabr j ef anna gengur
fiemur seint. Fólk hefir ekki fengið
afdráttarlausa skýringu á því, hvers-
vegna allir milli 12 og 60 ára eru
skyldaðir til þess að bera á sjer vega-
brjef. Blaðið hefir ekki getað ,aflað
sjer fullkomlegra upplýsinga um
þetta mál. Lögin um vegabrjefin eru
gefin út vegna þess, að það þykir sýnt
að nauðsyn bei’i til þess, að menn geti
fært sönnur á, hver sem er, og hvenær
sem er, hverjir þeir eru. Er þetta m.
a. í sambandi við lögin um eftirlit
með unglingum innan 16 ára aldúrs,
þegar unglingar 12—16 ára hafa
vegabrjef, þá geta eftirlitsmenn og
lögregla gengið úr skugga um, hvort
þeir, sem um er að ræða í hvert sinn,
eru á þessu aldui-sskeiði eða ekki. En
eí vegabréfin væru aðeins gefin út,
vegna þessara laga, þá þyrftu ekki
aðrir að hafa vegabrjef, en þeir, sem
vafi getur leikið á um, hvort sjeu
innanvið t. d. 16 ára eða ekki.
þetta samning bókarinnar. En ali-
ur frágangur á henni hefir tekist
mæta vel og er bókin hin vand-
aðasta.
Dr. Björn hefir starfað hjá
bænum síðan haustið 1933. Hefir
hann unnið að margskonar hag-
skýrslum fvrir bæinn, sem of
langt væri upp að telja. Eitt af
merkustu hagfræðiverkum hans
eru skýrslur um brunatryggingar
og slökkviliðið, en á miklu viti
ihans um það mál, sem óprentað
er, bvgði hann yfirlitsskýrslu
sína um brunamálin, sem saman
var á ensku og sendi til trygg-
ingafjelaga um árið, þegar til-
boða var leitað síðast í bruna-
tryggingar. Þótti það rit mjög
skilmerkilegt og mun hafa haft
áhrif á að greiða fyrir hagkvæm-
um tilboðum í tryggingarnar.
Er Björn hafði í fám orðum
rakið efni bókar sinnar, sagði
hann m. a., að hann hefði mikinn
hiig á, að gera yfirlit yfir það,
p
En þar sem hernaðarástand er,
eins og- hjer á sjer stað, er það al-
gengt, ef ekki ófrávíkjanleg regla, að
ellir hafi vegabrjef til þess að þeir
geti sannað, hverjir þeir eru, og þá
um leið afsannað allan grun um, að
þeir kynnu að vera aðrir, en þeir
segjast vera. Mun þessi varúðarráð-
stöfun einkum talin nauðsynleg, ef
plundroði kæmist á,, vegna árása og
hernaðaraðgerða og heimili kynnu að
leysast upp skyndilega í einhverju of-
boði.
Vegabrjefin eru gefin út, og lögin
um þau sett, vegna þess að þannig
er litið á, að svo geti farið, á hvaða
stund sem er, að þeir sjeu betur sett-
ir, sem vegabrjefin hafa, heldur en
hinir/ sem eru án þeirra.
★
Svörin við spurningunum í gær:
1. Hóladómkirkja er bygð úr rauð-
um sandsteini úr fjallinu Hólabyrðu.
2. Þær íslenskar plöntur, sem að
nokkru leyti lifa á dýrafæðu eru Sól-
dögg, Lyfjagras og Blöðrujurt.
3. Grímsstaðaholt bygðist fyrir 100
árum, segir í Annál Reykjavíkur eft-
iv dr. Jón Helgason. Árið 1842 bygði
þar Grímur Egilsson nýbýli er nefnt
var Grímsstaðir.
4. Synir Nóa: Sem, Kam og Jafet.
5. Venus er skærasta stjarnan.
Spurningar:
1. Hvar og hvenær fórst Titanic?
2. Hvað heitir sirkill, sem hefir ó-
endanlega langan radíus?
3. Hvort er stærra fílsegg eða grá-
tittlingsegg.
4. Eftir hvaða barón er Barónsstíg-
ur nefndur?
5. Hvaða merkismaður mannkyns-
sögunnar var um skeiS kallaður Fjólu-
pabbi ?
hvernig tekjur marnia skiftust eft
ir atvinnugreimim. Því ef hægt
væri að vinna á þann hátt úr
skattskýrslum, þá væri hægt aö
sjá með vissu hver þróun væri í
atvinnulífinu.
Hann kvaðst nú vinna að því
að rannsaka verðlagsbreytingar,
m, a. hve óskaplegur munur það
liefir verið hjer á undanförnunj
áratugum á verðlagsbreytingum
hjer innanlands og á heimsmark-
aðinum. T. d. þegar verðlagið á
iitflutningsvöru okkar og inn-
flutningi var komið niður í sama
verð og það var 1914, )>á var
vísitala framfærslukostnaðar í
landinu 230—250, horið saman við
100 árið 1914. Eu þar sem engia
sundurliðun er til á tekjum
manna eftir atvimmstjettum, er
ekki hægt að gera sjer grein fyrir
því, hvort neytenduruir eru nokk-
uð betur settir en t. d. 1914, þó
vísitala kaupgjalds sje um 400
borið saman við kaupgjaldið fyrir
fyrri styrjöldina. Því tekjurnar
fara ekki eftir hæð kaupgjalds-
ins á krepputímum, heldur eftir
möguleikunum á því að fá atvinnu
Það er spurning. sem leysa þarf
úr, hvernig stendur á þessari mis
munaiidi þróun verðlagsins, hvers-
A’egna verðlag hjer helst hátt, þeg
ar verðlag á heimsmarkaðinnm
lækkar.
Um þetta efni talar dr. Björn
í útvarpið bráðlega.
Að lokum barst talað að hag-
skýrslum alment, .og hvílík nauð-
syn það er fyrir alla, sem afskifti
hafa af almennum málum, að hafa
sem glegsta hagskýrslu, til að
byggja álit sitt á. og rannsóknir.
Benti Björn í því sambandi á
ummæli Jóns Sigurðssonar í inn-
gangi að Landshagskýrslum frá
1858, þar sem hann segir-.
,,Sá bóndi mundi harla ófróður
'þykja nm sinn hag, og lítill bú-
maður, sem ekki vissi tölu hjúa
sinna eða heimilisfólks eða kynni
tölu á liversu margt hann ætti
gangandi fjár. En svo má og hver
sá þykja harla ófróður um lands-
ins liag, sem ekki þekkir nákvæm
lega fólkstolu á landinu, eða skift
ing liennar, eða tölu gangandi fjár
eða sjerhverja grein í atvinnu
landsmanna. í fám orðum að
segja, sá sem ekki þekkir ásig-
komulag landsins, eða sem vjer
köllum hagfræði þess, í öllnm
greinum sem glöggvast og ná-
kvæmlegast, hann getur ekki með
neinni greind talað nm landsins
gagn og nanðsynjar; hann veit
ekkert, nema af ágisltun, hvort
landinu fer fram eða aftur; hann
getur ekki dæmt um neinar uppá-
stungur annara í hinum merki-
legustu málnm, nje stungið sjálfnr
upp á neinu, nema eftir ágiskun;
hann getnr ekki dæmt nm neinar
FBAMH. Á BJÖTTU BÍÐU.
UR
DAGLEGA LÍFÍNU