Morgunblaðið - 16.05.1942, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.05.1942, Blaðsíða 5
Xaugarda^ur 16. maí 1942. —ÁVARP— vegna fjársöfnunar lil Norðmanna DAGLEGA berast nú hörmuleg tíðindi af frændþjóð vorri Norðmönnum. Vér íslendingar erum fámennir og lítils- megandi, stöndum álengdar og getum lítt að gert annað en sýnt samúð vora á einn eða annan hátt. Á sama tíma esm Norðmenn hafa beðið ómetanlegt tjón, höf- um vér íslendingár auðgast af veraldlegum auð meira en dæmi eru til á jafnskömmum tíma. Oss væri því ekki vansalaust að sitja hjer með digra f jársjóði, sem meðal annars hafa til orðið vegna þeirra hörmunga, sem dynja nú yfir þjóðirnar, án þess að láta eyri af hendi rakna til hjálpar nauðstaddri bræðraþjóð. Þess vegna teíjum vjer, sem undir þetta ávarp ritum, að vjer getum á engan hátt betur, svo sem högum vorum er háttað, sýnt samhug vorn með þessari frændþjóð, en með því að safna nú álitlegri f járupp- hæð, sem varið verði henni til hjálpar að stríðinu loknu, eða þeg- ar hún hefir endurheimt land sitt og frelsi. — Með slíkri fjár- söfnun styðjum vér ekki aðeins nauðstadda þjóð, heldur björgunt vjer jafnframt, á þessu sviði, heiðri vorum sem frjálsborin þjóð. Sameinumst því allir íslendingar urn að sýna Norðmönnum óskipta samúð og veitum þeim þá hjálp, er vjer megum. Sendið gjafir yðar til Norræna fjelagsins, Ásvallagötu 58, Kauða Kross íslands, Hafnarstræti 5, Norska f jelagsins s. st., eða annara stofnana á landinu, er auglýst verðUr að taki á móti gjöf- um til Noregssöfnunarinnar. Reykjavík, 16. maí 1942. Stefán Jóh. Stefánsson, | JPlargtmMafóft Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrg-?Sarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánutSi innanlands, kr. 4,50 utanlands. f lausasölu: 25 aura eintakiö, 30 aura metS Lesbók. Stjórnarskifti Stjórnarskifti munu fara fram í dag. Ráðuneyti Her- mann Jónassonar fer, en við tekur ráðuneyti, sem Sjálfstæð- isflokkurinn einn tilnefnir, und- Ir forustu Ólafs Thors, núver- andi utanríkismálaráðherra. Þessi stjórnarskifti koma niönnum ekki á óvart. Það var fyrir nokkru kunnugt, að Fram- sóknarflokkurinn myndi draga ráðherra sína út úr stjórninni strax og úr því yrði skorið á Al- 3>ingl, að stjórnarskrármálið myndi ná fram að ganga. Það er kjördæmamálið, eða öreytingarnar á kosningafyrir- komulaginu, sem hefir knúð Framsóknarflokkinn til sam- vinnuslita að þessu sinni. — Er flokknum þar nokkur vorkunn, því að breytingarnar hafa þær verkanir, að flokkurinn missir liin miklu sjerrjettindi, sem liann hefir haft í skjóli núvey- andi kosningafyrirkomulags — sjerrjettindi, sem hafa trygt flokknum óslitna valdaaðstöðu nndanfarin 15 ár, enda þótt ihann hafi aðeins tæpan fjórð- ung atkvæða að baki sjer. Ekki er minsti vafi á því, að mikill meirihluti kjósenda á landínu er fylgjandi þeim breyt- Ingum á kosningafyrirkomulag- Inu, sem nú hefir orðið samkomu lag um. Þar er öllu mjög í hóf stillt, ekki tekinn rjettur af neinu kjördæmi, en stóru sveita- kjördæmin, sem mest hafa verið fyrir barði hins rangláta kosn- íngafyrirkomulags fá nú fulla lejðrjetting sinna mála. — And- staða Framsóknarflokksins gegn Wutfallskosningum í tvímenn- 'Ingskjördæmunum er blátt á- fram hlægileg, þar sem það var 'þessi sami flokkur, sem barðist fyrir því, að fá hlutfallskosning- ar til Búnaðarþings, en þar eru flest tvímenningskjördæmi. — Um Siglufjörð er og upplýst, að Framsókn hefir þegar í árslok 1930 boðið Kommúniskim 'að gera hann sjerstakt kjördæmi. Eánnig upplýsti Sveinbjörn Högnason við 2. umræðu stjórn- sarskrármálsins í Nd., að Fram- sókn hefði 1933 viljað láta Tteykjavik fá 7 þingmenn. Hjer eru því teknar upp gamlar till- ligur Framsóknarmanna. Hin nýja stjórn Sjálfstæðis- flokksíns, sem nú tekur við völd- um, hefir það aðalhlutverk að vinna, að koma stjórnarskrár- málinu í farsæla höfn. Fram- sókn hefir hug á, að bregða Tæti fyrir stjórnina, en það mun •ekki takast. Kjósendur landsins fá nú að •greiða atkvæði um rjettlætis- málið. Margar snörur verða lagðar fyrir þá, en þeir munu «ekki bregðast lýðræðinu. HðtfðabOld Norræna fjel- agslns 17. mal orræna f jelagið efnir til há- ^ ^ tíðahalda hjer í bænum og á Akureyri, Siglufirði og Isafirði á morgun — 17. maí — og þann dag hefst Noregsfjársöfnun fje- lagsins. Seld verða merki á götunum og tekið við samskotafje. Dagskrá hjer í bæ er sem hjer segir: Kl. 9: Merkjasalan hefst. Merkin afhent í Iðnskólanum og þar verður einnig tekið á móti gjöfum. Kl. 12,30: Ávarp söfnunarnefnd- ar lesið í útvarpið. Árni Pálsson próf. flytur ávarp. Kl. 13,15: Lúðrasveit Reykjavík- ur leikur norsk lög á Austur- velli (útvarpað). Kl. 13,30: Sigurgeir Sigurðsson biskup flytur ávarp af svöl- um Alþingishússins (útvarp- að). Skrúðganga norskra barna staðnæmist fyrir fram an Alþingishúsið. Kl. 15,15: Skemtisamkoma Nor- ræna fjelagsins í Iðnó: Ávarp (Stefán Jóh. Stefáns- son). Söngur (Einar Mark- an með undirleik Páls ísólfs- sonar). Kvikmyndasýning. — Skemtunin aðeins fyrir norska hermenn og sjómenn (allir boðnir). Kl. 16,00: Kvartett Kjartans Sig- urjónssonar syngur nokkur lög. Litlar stúlkur í norskum þjóðbúningum safna fje. Handiðaskólinn verður Handíða og myndlistaskóli Handíðaskólanum, sem til þessa hefir verið eiknaeign Lúðvígs Guðmundssonar skóla- stjóra, hefir frá 9. þ. m. verið breytt í sjálfseignarstofnun, og heitir hann framvegis Handíða- og myndlistaskólinn. Eignir stofiiunarjnnar eru: hús- eignin á Grundarstíg 2 A hjer í bænum, og húsbúnaður og kenslu- tæki þau, er áður voru í Handíða- skólanum. Stjórn hinnar nýju stofnunar er þannig skipuð: formaður er Ingimar Jónsson skólastjóri, rit- ari Sigurður Thorlacius skóla- stjóri og g'jaldkeri Halldór Kjart- ansson forstjóri. Uppliaflega var Handíðaskólinn stofnaður haustið 1939 og í gær lauk þriðja starfsári hans. Nem- endur skólans voru í vetur 238, en kennarar 14. Lúðvíg Guðmundsson er ráðinn forstöðumaður skólans, en Kurt Zier listmálani fyrsti kennari. í dag opnar Handíðaskólinn vor sýningu í húsakynnum Miðbæjar- skólans. Við opnunina flytur Jakob Kristinsson fræðslumála- stjóri ávarp. form. Norrænafjelagsins. Árni Pálsson, þrófessor. Jónas Jónsson, alþingism. Sigurður Thorlacius, form. Samb. ísl. barnakennara. Helgi H. Eiríksson, fonn. LandsSambands iðnaðarm. Kjartan Thors, form. Fjel. ísl. botnvöruskipa- eigenda. Pálmi Hannesson, rektor Mentaskólans í Rvík. Sigurgeir Sigurðsson, biskup. Ásmundur Guðmundsson, form. Prestaf jelags íslands. Baníel Ágústínusson, ritari Ungnlennafjelags Islands. Ben G. Waage, kaupm., forseti í. S. í. Kristján Guðlaugsson, ritstj. Vísis. Skúli Skúlason, ritstj. Fálkans. Harald Faaberg, form. Nordmannslaget. Sigurjón Á. Ólafsson, forseti Alþýðusambands íslands Bóndi nokkur roskinn úr nágrenni Reykjavíkur, er ekki vill láta nafn síns getið að svo komnu, kom til mín fyrir skemstu og afhenti mjer tvö þúsund krónur í peningum með þeim ummælum, að fje þetta skuli vera stofn að sjerstökum sjóði, er heiti Líknarsjóður Hallgrímskirkju. Tilgangur sjóðsins skal vera sá, eins og nafnið bendir til, að styrkja bág- statt fólk i Hallgrímssöfnuði í Reykja Gefandinn lætur fje þetta til minn- ingar um konu sina látna. Hún hjet Sigurbjört Halldórsdóttir og skal sjóð- urinn varðveita nafn hennar. Hefir minningu þeirrar konu verið reistur minnisvarði með þessu móti, sem trauðlega getur fegurri 'nje varan- legri. Trú min er sú, að margir eigi eftir að blessa nafn hennar og svo mann hennar, gefandann. Er þetta Guðl. Rósinkranz, ritari' Norrænafjelagsins. Sigurður Sigurðsson, form. Rauða kross Islands. Alexander Jóhannesson, rektor Háskóla íslands. Hallgrímur Benediktsson, form. Verslunarráðs Islands. Árni G. Eylands, form Norræna búfræðifjelagsins N. j. F. Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar. Ragnhildur Pjetursdóttir, form. KvenfjelagsSambands Isl. Kristinn Stefánsson, stórtemplar. Valtýr Stefánsson, ritstjóri. Jón Eyþórsson, form. útvarpsráðs. Stefán Pjetursson, ritstj. Alþýðubláðsins. Jón H. 'Guðmundsson, ritstj. Vikunnar. Jón Magnússon, frj ettastj. Utvarpsíns. Einar Árnason, form. S. í. S. Bjarni Ásgeirsson, foi*m. Búnaðarfjel. Islands. drengilega gefið og drengilega fyrir mælt um það, hvernig gjöfinni skuli I varið. Það ljét gefandinn í Ijós, að j hjer hefði hann tvöfaldar skuldir að minnast, annai*svegar skuldarinnar við lífsförunaut sinri, hinsvegar við Hallgrím Pjetursson, en hans orð og boðskapur hefði best dugað þeim hjónum í baráttu áranna. Um leið og jeg þakka þessa góðu gjöf og ágætu hugmynd, vil jeg vekja athygli manna á þessari sjóðstofnun. Líknarsjóði Hallgrimskirkju þarf sem fyrst að vaxa sá fiskur um hrygg, að hann geti farið að verða ávaxtasam- ur til styrktar bágstöddum, samkvæmt tilgangi sínum. Jeg hugsa að skáldið, sem eitt sinn reyndi þá þraut, að vera þurfamaður, myndi gleðjast yfir því. Og sú er trú gefandans. Sigurbjörn Einarsson. 5 1 Dvalarhelmlli sjómanna Jeg leyfi mjer hjer rneð acS birta. eftirfarandi brjef, er mjer hefjr borist; „Vjer undirrituð, börn og tengdadætur hjónanna Ólafs Jóns- sonar og Ásgerðar Si gurðardóttur höfuin ákveðið að þeim Játnum að gefa mínningargjöf hinu vænt- anlega hvíldarheimili sjómanna í Reykjavík, að upphæð kr. 1500.00 — fimtán hundruð krónur. Ólafur var fæddur að Vestur- Leirárgörðum í Leirársveit, í Borg arfjarðarsýslu 26. juní 1848. Ás- gerður var fædd að Stóru-Fells- öxl í Skilmannahreppi í Borgar: fjarðarsýsln 1. nóvember 1853. Þessi mætu hjón bjuggu í mörg ár að Stóru-Fellsöxl og voru oft kend við þann bæ. Þau eignuð- ust 11 börn og komust 10 þeirra til fidlorðins ára, en nú eru að- eins fimm þeirra á lífi. Árið 1900 flnttu þau til Reykjavíkur og bjuggu í húsinu nr. 18 við Lind- argötu, það sem eftir var æfinn- ai. Ólafur ljest 18. febrúar 1936, en Ásgerður Ijest 1. desember sama ár, bæði þrotin að kröftum, eftir langan og strangan æfidag. Það var upphaflega ætlun vor, að fjárhæð sú, er vjer nú færum hinu væntanlega hvíldarheimili sjómanna að gjöf, væri varið í legstein j*fir þessi hjón, en við nánari athngun sjáum vjer, að með því að gefa þessa litlu upp- hæð sem minningargjöf einhverju þörfu mannúðarfyrirtæki, þá gerð- um við lítijsháttar gagn með því. Og vjer erum öll þeirrar skoðun- ar, að sjómenn vorir sjeu alls góðs maklegir og þessvegna varð liið fyrirhugaða hvíldarheimili fyrir valinu. Virðingarfylst Sigurjón Ólafsson. Guðlaug Sig- urðardóttir. Júlíns Ólafsson. Elín- borg Kristjánsdóttir. Einar Ólafs- son. Þorstína Gunnarsdóttir. Sig- urður Óíafsson. Halldóra Jóns- dóttir. Sigurdís Ólafsdóttir. Krist- ín Eýjólfsdóttir. Jeg þakka gefendunum af aí- hug þann skilning, er þeir sýna sjómönnum með gjöf þessari, og þá hlýju til sjómanna, er felst í orðalagi brjefsins. Björa Ólafs. ★ Styrktarsjóður. Eftirfarandi brjef barst mjer frá Guðmundi Andrjessyni gull- smið. Laugavegi 50: „Hjer með leyfi jeg mjer að senda fjársöfnunarnefndinni kr. 1000.00 — eitt þúsund krónur — með þeim fyrirmælum, að þær verði upphaf að styrktarsjóði fyr- ir vistmenn á væntanlegu sjó- mannaheimili“. Um Ieið og jeg votta gefand- anum þakkir mínar fyrir ransn hans, vil jeg láta þess getið, að Sjómannadagsráðið mun semja skipulagsskrá fyrir sjóðinn, og verða gjafir til hans vel þegnar. Björn Ólafs. Hjónaband. Á morgun verða gefin saman í hjónaband af sr. Bjarna Jónssyni, frk. Helga Hobhs og Ævar R. Kvaran, lögfr. Lfknarsjóflur Hallgrlmsklik|u

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.