Morgunblaðið - 22.05.1942, Side 6
morgunblaðið
Föstudagur 22. maí 1942.
Sfötugar
Jóhannes Jónsson
óhannes Jónsson, trjesmiður
J Njálsgötu 58, á sjötugsaf-
mæli í dag. Hann er, eins og
allir vita, sem til hans þekkja,
einn af hinum yfirlætislausu
eljumönnum, er aldrei lætur
sjer falla ve'rk úr hendi, en vinn
ur hvert verk, er hann tekur að
sjer með þeirri kostgæfnj og
trúmensku, sem frekast verður
á kosið.
Jóhannes er Borgfirðingur að
ætt. Framan af æfinni var hann
í Borgarfirði og á Akranesi og
vann ýmist við sjó eða til sveita,
uns hann fluttist hingað til
Reykjavíkur árið 1904. Árið
1907 var hann við smíðar á húsi
Thor Jensen við Fríkirkjuveg,
og hefir ekki haft vistaskifti
síðan, en verið starfsmaður
Kveldúlfs síðan það fjelag var
stofnað, unnið við aðgerðir
skipa, hús og annað sem lagfær-
ingar hefir þurft við og smíða-
hendur hefir þurft, í þeim mikla
rekstri.
Þegar spánska veikin gekk,
misti Jóhannes konu sína frá
mörgum börnum, er þá voru
ung. Hann á 7 börn fullorðin og
er Þorbjörn kaupmaður, er rek-
ur kjötbúðina Borg, einn sona
hans. En tvo syni á hann með
núlifandi konu sinni, Kristínu
Jónsdóttur.
Jóhannes hefir aldrei efna-
maður verið, en með stakri
reglusemi og árvekni getað
framfleytt fjölskyldu sinni, er
var fjölmenn á þeim árum, er
kjör iðnaðarmanna hjer í bæ
voru harla þröng. En í trú-
mensku sinni og trygglyndi á
hann sjóð, er eigi verður metinn
til fjár. Þegar vinir hans og
kunningjar heimsækja hann á
sjötugsafmælinu, hitta þeir ekki
verklúinn mann, því Jóhannes
hefir haldið fullu lífsfjöri og
starfsþrótti óskertum.. Bjart-
sýnrt maður, sáttur við alla
menn og tilveruna. Þannig kom
hann mjer fyrir sjónir, er jeg
hitti hann á dögunum í litla
húsinu hans við Njálsgötu. —
Þannig mætir hann ellinni ein-
hverntíma seinna eftir langan
vinnudag.
V. St.
Hjónaband. S.I. mánudag voru
gefin saman í hjónaband af sr.
Árna Sigurðssyni og J. Kruse
ungfrú Elín Olafsdóttir, Laugav.
43 og Hennirig Johansen í norska
flughernum.
Qutenbergs-
málið
tftAMH. AF ÞRIÐJU »ÍÐU
skuli ekki sæta verri kjörum hjá
leigutökum sínum en það á kost
á hjá öðrum prentsmiðjum. Hins-
vegár er engin skylda lögð á
prentsmiðjuna, að prenta einn
staf fyrir ríkið.
Þannig sá H. J. fyrir því at-
riðinu, sem hanh sjálfur telúr að
hafi verið aðaltilgangurinn með
ríkisrekstri prentsmiðjunnar. Með
leigumálanum á ríkið það alger-
lega undir náð leigutaka, hvort
þeir prenti fyrir það eða ekki.
Þeir hafa þar engar skyldur!
★
Þá eyðir Hermann Jónasson
löngu máli í að afsaka aðgerðir
hans, að ráða sjálfan sig til inn-
heimtu- og lögfræðisstarfa fyrir
Búnaðarhankann og Skipaútgerð
ríkisins.
En H. J. gleymir að geta þess,
að Búnaðarbankinn var alls ekki
hjer á flæðiskeri staddur. Hann
hafði ungan og efnilegan lögfræð-
ing til þessara starfa. ITonum
þurfti því fyrst að koma frá ogj
Hermann fann ráð til þess. Hanni
skipaði hinn unga lögfræðing íj
embætti, sem alls ekki var til, að-
eins ráðgert í lögum, sem nýlega
voru samþykt á Alþingi, en lög-;
in voru alls ekki staðfest, er skip-
unin fór fram. Var skipunin því
markleysa ein.
Svo mjög vár H. J. mál á að
komast í stöðu híns unga lögfræð-
ings, að hann. flæmdi lögfræðing-
inn frá með því að „skipa“ hann
í embætti, sem alls ekki var til! !j
★
Prentarar í Gutenberg, sem]
fengu leigutilboðið frá fyrv. for-1
sætisráðherra, hafa lýst yfir því,
að þeir muni gera kröfu til, að
gerður verði leigumáli' í samræmi
við tilboðið. Mun eiga að skilja
þetta þannig, að prentarar ætli
að leita rjettar síns hjá dómstól-
unum.
Óhugsandi er með öllu, að
prentarar fái með dómi ríkið
skyldað til þess að gera leigu-
mála. Það brýtur gegn skýlausn
ákvæði stjórnarskrárinnar, sem
bannar að ráðstafa eignum ríkis-
ins á þann hátt, sem hjer var
gert.
Það eina, sem um gæti verið að
ræða, er, að prentarar hefðn með
leigutilboðinu öðlast rjett. til
skaðabóta af hálfu ríkisins. TJm
beint tjón þeirra getur ekki verið
að ræða, á þessu stigi málsins.
Hvorttveggja er, að prentarar
voru ekki búnir að ganga frá fje-
lagsskap sínum, þegar leigutilboð-
ið var afturkallað, og því engar
ráðstafanir gerðar, er bökuðú
þeim tjón, og- sVo er hitt, að
yinna prentara í prentsmiðjunrii
er óskert, eftir sem áður. Það éf
því aðeins vonin í meiri hagnaði
við leiguna, sem skaðabótakrafan
yrði að byggjast á. Sú krafa yrði
að vera rökstudd með því einu,
að Hermann hafi stórlega, samið
af ríkinu, og er sá kostur eng-
an veginn góður, eins og málið
er í pottinn búið.
Áburðarsala vegna leigugarða-
leigjenda er opin í dag og á morg-
un kl. -9—10 e. h.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
og gengur bærinn að sjálfsögðu
inn í þá leigu.
Ráðgert er að í sumar verði
túnin boðin út til slægna , og
gangi bæjarbúar fyrir um þá
leigu. En að því leyti, sem slægj-
ur ganga ekki út verður bærinn
að heyja þar og selja síðan hey-
ið.
Stefán Pálmason búfræðing-
ur, er verið hefir ráðsmaður á
Korpúlfsstöðum í mörg ár, hef-
ir verið ráðinn til þess að hafa
umsjón með eigninni og rekstri
þeim, sem þar verður fyrir bæ-
inn. Er það til mikils hagræðis
að fá hinn kunnugusta mann til
þess starfs, enda er Stefán orð-
lagður dugnafðarmaður.
Ef bærinn hefir ekki heyskap
á jörðunum, þarf ekki að vera
þar nema fátt verkamanna, en
við heyskap þarf um 25 manns.
Ekki þótti fært að bærinn
tæki á þessu vori hin miklu garð
lönd til afnota. En ekkert er því
til fyrirstöðu, að bæjarmenn
fengju þau leigð við vægu verði,
ef einhverjir vildu notfæra sjer
þau.
Að lokum sagði borgarstjóri:
Eins og jeg tók fram í upphafi,
er jarðakaup þessi komu hjer til
umræðu, tél jeg mjög ólíklegt,
að eignir þessar beri arð fyrstu
árin. Aðalatriði fyrir bæinn er,
að þarna fæst ákaflega mikið
landrými í næsta nágrenni bæj-
arins. LÖndin eru svo stór, sem
þarna eru keypt, að þau eru
álíka stór og hálft lögsagnár-
umdæmi Reykjavíkur. Kæmi
mjer það ekþj á óvart, að lond
þessi hækkuðu verulega í verði
í framtíðinni, enda tel jeg hik-
laust, að bærinn hafi gert hjer
happakaup. Enda er það mín
skoðun, að þau hefðu ekki tek-
ist, ef eigandinn Thor Jensen,
hefði ekki kosið. að 'eignin
hjeldist óskift, yrði í framtíð-
ínni rekin á sama hátt og hann
sjálfur hafði hugsað sjer. Korp-
úlfsstaðabúið, sem stærsta bú
landsins, yrði í framtíðinni
minnisvarði yfir hans mikla
framkvæmdadug. Vona jeg, að
bærinn yrði þess megnugur að
láta þá ,ósk hans rætast.
Knattspyrnnkensla
Avegum íþróttasambands Is-
lands hefir Axel Aj^dújes-
son knattspyrnukennari haldið
2 knattspyrnunámskeið í Þing-
eyjarsýslu, hið fyrra í Mývatns-
sveit frá 21. apríl til 3. maí, en
hið siðara var haldið í Húsavík
og hófst 4. maí, og lauk á mánu
daginn. Þátttakendur þar voru
frá íþróttafjel. Völsungar.
Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem knattspyma er kend í Þing-
eyjarsýslu og var árangur kensl
unnar ágætur miðað við þann
stutta tíma, sem kennarinn
dvaldi á hverjum stað. Hjá Völs
ungum var yngri flokkunum
aðallega kent og vonast þeir
eftir því, að á næsta ári geti
þeir fengið kennarann aftur og
þá lengri tíma.
Idag eiga þau beiðurshjónin
María Jónsdóttir og Sigurgeir
Gíslason sparisjóðsgjaldkeri í
Hafnarfirði gullbrúðkaup.
María er fædd 1. maí 1865 að
Unnarholti í Ytrihepp í Arnes
sýslu. Fluttist með foreldrum síri-
um suður í G'arðahverfi 17 ára!
giirnul, en til Hafnarfjarðar 1888..
Sigurgeir er fæddur 9. nóv. 1868
að Kálfholti í Holtum. Fluttist
á öðru ári suður í Garðahverfi
og ólst þar upp. Fluttist hann
líka til Hafnarfjarðar 1888. Þau
eru því með elstu íbúum bæjar-;
ins og hafa mörgum öðrum fremur
sett svip á bæinn. Sigurgeir er
ar og vegalagningar yfir hraun
og vegleysur. Hjer í bænum er
hann líka þektur að rnargþættu
starfi, utan og innan bæjarstjórn-
ar, Hafnarfjarðbæ til heilla, og
sívakandi áhuga fyrir öllu því,
sem landi og þjóð má að gagni
koma. En bæjárbúar vita það
líka, að hinir mörgu og góðu eig-
inleikar Sigurgeirs hefðu aldrei
notið sín eins vel og raun er á,
ef hann hefði ekki verið kvæntur
hinni ágætu konu sirini. Þess
vegna óskum við þessum mætu
lijónum aJIra heilla á þessum
heiðursdegi þeirra og þökkun)
þeim innilega fyrir alt hið marg
þektijr uui alt land fyrir störf þætta'starf þeirra í þágu bæjaf-
sín í þarfir Góðtemplarareglutm- búa og alþjóðar. Vinur.
Pakkhúspláss
til leigu. Upplýsingar hjá
Magntisí Ehiarssyní
Dósaverksmiðjunni.
HÖFUM FENGIÐ NOKKRAR
FYRSTA FLOKKS
Laxa- oo slluoga veiðistengur
frá Milward, Englandi.
Versl. Hans Petersen
Bankastr. 4.
Skrifstofustúlka
Okkur vantar sem fyrst skrifstofustúlku, sem kann
vjelritun og enska hraðritun.
H.f. „Shell“ á íslandi.
BEST AÐ AUGLÝSA 1 MORGUNBLADINU.