Morgunblaðið - 07.06.1942, Side 5

Morgunblaðið - 07.06.1942, Side 5
■5JT5? SSuimiidagur 7. júní 1942 Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgTJarna.). Auglýsingar: Árni óla. Ritstjórn. auglýsingar og afgreitSsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. innanlands, kr. 4,50 utanlands. í lausasölu: 25 aura eintakib, 30 aura meö L/esbók. Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánutSi Sjómannadagurinn ':W. dag halda sjómenn árshátíð sína. Nú, sem á undanförmim ;árum, leggja þeir áherslu á, að þau hátíðahöld verði f jölbreytt og myndarleg. Yfir hátíðahöldum sjó manna hvílir ávalt sjerstakur blær. Menn taka eftir því er þeir horfa á hópgöngur þeirra á göt- unum. Með öllum sjómönnum er sterkur fjelagsandi, andi samúðar og bræðralags. Mennirnir sem ár- um saman hafa átt í baráttu við Ægi, mótast að ýmsu leyti á sama hátt, þeir verða einbeittari, djarf- ari, yfir þeim er meira jafnvægi og festa en alment gerist meðal . annara. Þessi skapeinkenni koma greinilega í ljós, er menn sjá marga sjómenn í fylkingu, ekki síst á hátíðisdegi þeirra. ★ Margoft er það endurtekið um þessar mundir, í frásögnum frá styrjöldinni, að hernumdu þjóð- irnar háldi áfram baráttu sinni fyrir frelsi, þó fjötraðar sjeu og lamaðar, heima fyrir. Því um hÖfin sigli skip þeirra, sjómanna stjett þeirra sje þátttakandi í styrjöldinni gegn ofbeldi og kúg- nn. Styrjöldiln hefir líka komið við íslenska sjómannastjett. í dag mun þeirra íslendinga sjerstak- lega minst, sem fallið hafa í val- inn á þessum vettvangi. Þegar talað er um baráttu ná- grannaþjóða og frændþjóða vorra á hafinu, um sjómenn þeirra, sem berjast nú hinni helgu baráttu fyrir frelsi þjóða sinna, þá er eðlilegt að menn renni huganum til sjómanna okkar og geri hjer samanburð. Baráttu þeirra og fórnum er nolrkuð á annan veg háttað. Þeirra starf er fvr, að afla lífsnauðsynja fyrir þjóð sína, og koma þeim á erlendan markað, en flytja yfir langt haf* það, sem hingað þarf að flytja, þrátt fyrir íillar aðsteðjandi hættur fjær og nær. Pyrir þau störf stendur þjóð- ín í ómælanlegri þakkarskuld við sjómennina. En þegar talað er um frelsis- ' baráttu í sambandi við sjósóknlr, þá nær starf íslensku sjómann- anna lengra en til yfirstandandi styrjaldar. Efnalegt. sjálfstæði okkar fs- ' lendinga byggist á sjávaraflanmn. Menn gera sjer það ljóst. Þar fæst sá efnalegi grundvöllur, sem frelsi okkar og sjálfstæði er nauðsynlegur, bæði nú og um alla framtíð. Með þessa staðreynd fyrir aug- um lítur þjóðin öll með virðing til sjómannastjettarinnar og tek- ur þátt í hátíðahöldum hennar, og væntir þess að eigi verði þess langt að bíða að upp rísi vegleg- nr sjómannaskóli f.yrir æskuna og hvíldarheimilið fyrir aldraða sjó- menn. ____ B> Reykiauíkurbrief 6. júní Framboð Sjálf- stæðisflokksins. ramboð Sjálfstæðisflokksins til Alþingiskosninganna eru nú kunn orðin. Oft hefir það viljað við brenna, að Sjálfstæðis- menn yrðu síðbúnari en aðrir flokkar með framboð sín. En svo varð ekki ,að þessu sinni. Sjerstaka athygli vekur það, að flokkurinn hefir færri Reykvík- inga meðal frambjóðenda sinna en verið hefir við undanfarnar kosningar. í Rangárvallasýslunni eru tveir innanhjeraðsmenn í kjöri, Ingólf- ur Jónsson kaupfjelagsstjóri og Sigurjón Sigurðsson bóndi í Raft- holti. Ingólfur er hinn traustasti forvígismaður lijeraðsins á sviði viðskiftamála, sem kunnugt er. Hefir kaupfjelag það, sem hann veitir forstöðu, dafnað með hverju ári. En samstarfsmaður hans, Sig- urjón í Raftholti, er myndarbóndi hinn mesti. Hafði Jón heitinn Ólafsson bankastjóri mikinn hug á því fyrir mörgum árum, að Sigurjón fengist í framboð í sýsl- unni. Nýr frambjóðandi flokksins í Árnessýslu með Eiríki Einarssyni, Sigurður Ólafsson, kaupmaður á Selfossi, er mjög vinsæll maður í hjeraði, sanngjarn maður og gætinn og mjög líklegur til að efla fylgi flokksins, enda hefir hann lengi staðið framarlega í flokksstarfsemi Sjálfstæðismanna í Árnessýslu. Nýir frambjóðendur á Vestf jörðum. eðal nýrra frafnbjóðenda Sjálfstæðisflokksins ern þrír á Vestfjörðum, Pjetur Guð- mundsson, bóndi í Ófeigsfirði, er býður sig fram á móti Hermanni Jónassyni, og lögfræðingar tveir ungir, Sigurður Bjarnason frá Vigur í N.-ísaf jarðarsýslu og Bárður Jakobsson í V.-ísafjarð- arsýslu. Báðir þessir ungu menn liafa látið mikið til sín taka í stjórnmálum á námsárum þeirra, og verið í fremstu röð meðal stúd- enta, er fylkja sjer undir merki Sjálfstæðisflokksins. Má vænta sjer hins besta af þeim báðum. Pramsókn kannar nú lið sitt í N.-ísafjarðarsýslu við þessar kosn ingar. En á undanförnum árum hafa Pramsóknarmenn í því hjer- aði kosið frambjóðendur Alþýðu- flokksins. Mikil ánægja er meðal Sjálf- stæðismanná í Strandasýslu yfir því að Pjetur Guðmundsson ‘í Ófeigsfirði skuli vera þar í kjöri Hann hefir óskorað traust hjer- aðsmanna fyrir dugnað, hyggindi og ráðdeild, og mun fyrr eða síðar losa kjördæmið við að senda Framsóknarmann á þing. í Skagafirði. [ Skagafirði hafa oft verið einna harðast barist í kosningum á undanförnum árum. Er sem það liggi þar í landi mikill bardaga- hugur, sem fyrr á tímum. Þar stendur nú svo á, að „bræður munu berjast", þó engin ættu úr því að verða Ragnarök. Pjetur Hannesson sparisjóðsfor- maður á Sauðárkróki er tvímæla- laust meðal þeirra Skagfirðinga, er nýtur almennastra vinsælda og trausts allra hjeraðsbúa. Jóhann Hafstein lögfræðingur, sem þar býður sig og fram í fyrsta sinni, hefir nú um skeið haft á hendi framkvæmdastjórn Sjálfstæðis- flokksins. Hann er víðsýnn áhuga maður og duglegur stjórnmála- maður, enda mun hann eiga mikla framtíð á sviði stjórnmálanna. í Austur-Skaftafellssýslu býður Helgi II. Eiríksson sig fram fyr- ir Sjálfstæðismenn. Helgi hefir setið hjer í bæjarstjórn í 4 ár og er ötull og traustur flokksmaður. og líklegur til að vinna sjer fylgi þar eystra, sem hjer í bænum. Meðal frambjóðenda flokksins eru einir 15, sem ekki hafa verið áður í kjöri fyrir' flokkinn. Er þar margt hinna efnilegtistu og ágætustu manna. Enda er það almenn skoðun, að frambjóðenda- fylking Sjálfstæðisflokksins liafi ahlrei verið betur skipuð en nú. Bændaflokksmenn. rír menn eru nú í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er voru frambjóðendur Bændaflokks ins við síðustu kosningar, Stefán Stefánsson í Pagraskógi, Sveinn á Egilsstöðum og Benedikt Gísla- son í Hofteigi. Bendir þetta ótví- rætt til þess, að þeir menn, sem fvlgt hafa Bændaflokknum að málum, sveigist nú, sem eðlilegt er, til eindregins fylgis við Sjálf- stæðisflokkinn. Stefán í Pagrskógi hefir reynst ágætur þingmaður, skörulegur ræðumaður. Er hann í alla staði, til þess líklegur að eiga lengi sæti á Alþingi. En Sveinn á Eg- ilsstoðum, er, sem kunnugf er, at- kvæðamaður mikill í hjeraði og hinn duglegasti við hvert það starf, er hann tekur sjer fyrir hendur. Með Sveini er Gísli Helga son í Skógargerði, ágætur maður, son í Skógargerði, ágætur Sjálf- stæðismaður, vinsæll og drengur hinn besti. Benedikt. Gíslason í Hofteígi hefir getíð sjer góðan orðstír í fyrra framboði, er ötull og á- hugasamur um stjórnmál. Breytingar. rni Jónsson frá Múla, er hef- ir verið í kjöri í N.-Múla- sýslu, býður sig nii fram í S,- Múlasýslu, og Júlíus Havsteen sýslumaður, er eitt sinn var í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í N.-Þingeyjarsýslu, er nú í kjöri í S.-Þingeyjarsýslu. Dr. Björn Björnsson hagfræðingur var fram bjóðandi flokksins í Yestur-Húna- vatnssýslu 1934, en býður sig nú fram á ísafirði. Og Gunnar Thor- oddsen prófessor vjek úr V.-ísa- fjarðarsýslu suður á Snæfellsnes. Þar er honum vel fagnað sem eftirmanni Thor Thors. Einhverj- ir lítilf jörlegir pólitískir reim- leikar eru sagðir á ferðinni kring- um Próðá, sem stefna á gegn Gunnari. Eu enginn býst við að þau nýju „Fróðárundur“ hafi nokkur áhrif á úrslit kosningarn- ar þar vestra. v Skothríðin í Skerjafirði. Hurð skall nærri hælum nú í vikunni, að slys yrði alvar- legt af skotliríð amerískra varð- manna í Skerjafirði, er þeir skutn á bát, sem var að koma úr róðri. En mennirnir sluppu ómeiddir, og var talin tilviljun. Ákaflega er það bæði óheppi- legt og hörmulegt að þeir atburð- ir endurtaki sig, er varpa skugga á sambúðina milli Islendinga ann- arsvegar og hins ameríska setu- liðs. Er þetta ennþá hrapallegra vegna þess að vitað er, að sam- komulagið milli sendiherra Banda ríkjanna hjer og yfirhershöfð- ingjans annarsvegar og íslenskra stjórnarvalda hinsvegar er einstk- lega gott í alla staði, enda ekki annað sjeð, en bæði sendiherrann, Mr. Mae Veagh og ekki síður hinn alúðlegi yfirhershöfðingi Ch. H. Bonesteel láti sjer einkar ant um að svo sje og verði. Við íslendingar getum því al- gerlega treyst því, að þeir tveir menn og samstarfsmenn þeirra í herstjórn og sendisveit láta einskis ófreistað til þess að koma í veg fyrir, að slíkir atburðir endurtaki sig. Yfirlýsing.. t af Skerjafjarðar-skotunum' birtist í blöðunum yfirlýs- ing frá sendisveitinni amerísku. Er lesendunum hún í fersku minni. Þar er rjettilega bent á, hve mikill vandi þeirra manna er, sem hafa hervernd landsins með höndum, enda verða þeir menn, sem þá varðstöðu hafa, daglega ao hætta, lífi sínu. Pyrir okkur ís- lendinga, sem er ókunnugt xrm allan hernað, er þetta torskilið í fljótu bragði. En við nánari at- hugun verður það ekki vjefengt. Að til þess að varðherinn sje við- búinn árás á hvaða augnabliki sem er, dags og nætur, þarf hann t. d. sífelt að vera með alvæpni. Sendiherrann þakkaði blöðim- um fyrir það, hve gagnrýni sú var að hans dómi sanngjörn, er blöðin beindu til ameríska hei*s- ins út af hvítasunnu atburðinum. Alt bendir sem sagt til þess, að það sje hinn einlægasti vilji og staðfastur ásetningur .yfirmanna hers og sendisveitarinnar amer- ísku, að stuðla að því, að sam vinna megi takast sem best við íslensk stjórnarvöld og allan al- menning í landinu. Ljeleg aflakló. t? ramsóknarmenn virðist hafa * hrokkið illa við, er frjettist um hina merkilegu uppljóstrun Egils í Sigtúnum, er hann las upp á fundinum að Stórólfshvöli um fyrri helgi. En þar skýrði Eg- ill frá því, að takmark Pramsókn- arflokksins væri fullkomið flokks- einræði. Gera flokksmenn Egils nú hverja tilraunina af annari til þess að draga úr þessum frægu ummælum hans og blæfalsa hana, en fundarmenn svo margir til vitnis um hvað þar fór fram, að Agli er engrar undankomu auðið. Þegar falsanir Framsóknar- manna reynast þýðingarlausar, og Egill stendur eins og aflijúpaður biblíukjarni Pramsóknarflokks- ins$ eða ný útgáfa af Tímadálk í mannsmvnd, þá grípa þeir Tíma- menn til þess örþrifaráðs að lýsa Agli eins og einhverjum afburða- manni á sviði viðskiftamála. Seg- ir í Tímanum í gær, að jafnvel aflaklær höfuðstaðarins muni ekki láta sjer detta í hug að neita því að Egill sje duglegur kaupmaður. Þetta má til sanns vegar færa. Bæði „fjáraflaklær“ og aðrir vita sem er, að Egill Thorarensen kaup fjelagsstjóri er fjáður maður vel. Bændur austanfjalls geta líka borið saman híbýli sín og dag- legt viðurværi, og lífsvenjur og aðbxið Egils kaupfjelagsstjóra, bændabýlin og skrauthöll kaup- fjelagsstjórans með leikfimisher- bergi, hixusbílum og öðru tilheyr- andi. Bændur austanf jalls, sem aðrir vita líka sem er, að það þarf enga fjáraflaspekinga til þess að geta rekið verslun eins og þeir hafa gert Egill Sigtúna og Vilhjálmur Þór, er þeir á tímum innflutnings- hafta og vöruþurðar fengu flutt inn það sem þeim sýndist, en kepp endur þeirra fengu ekkert að heitið gat. Egill Thorarensen hefir grætt fje í stórum stíl og látið bændur feyggja yfir sig í stórum stál. Hann má lieita „aflakló", þó afla sinn hafi hann tekið á þurru landi. En hvort hann reynist „pólitísk aflakló“ fyrir Pramsókn- arflokkinn, það draga menn í efa, ekki síst eftir hinn síðasta Stór- ólfshvolsfund. Haydertch T Daily Telegíarph var í gær * grein með fyrirsögninhi ,,Slátrarinn“. Þar segir á þesaa leið: Með dauða Reinhards Heyde- rich hefir meginlandið losnað við einn miskunarlausasta og alræmdasta blóðhund, sem uppi hefir verið á vorum dögum og er þá mikið sagt. Ef takmark Nazista er að skapa sjer fordæmingu allra manna á stjórnarfari þeirra yrði þeim aldrei eins ágengt og er því var lýst yfir í þýska út- varpinu \ fyrradag, að hann Væri einn af þeirra ,,sláandi persónuleikum" sem ógleyman- legir verða. Að því leyti rata'ð- ist útvarpinu satt á munn. Hvenær sem átti að fram- kvæma eitthvert óþokkaverk, var Heyderich valinn, því að hann varð snemma orðlagður sem einstaklega ötull og h.arð- svíraður starfsmaður. En lárvjð- arsveig sinn vjann hann í blóð- baðinu í júní 1934. Sem handbendi Himmlers vann hann að framkvæmd hins nýja skipulags og Holland, Belgía, Nore&ur og Frakkland fengu ríflegt tækifæri til að kynnast hans „sláandi persónu- leika“. Þó var það ekki í þeim löndum, sem ógnarstj,arna hans skein sem skærast, heldur S Tjekkóslóvakíu, þar sem hann var alls ráðandi síðustu 9 mán- uðina. Heyderich fer með í gröf- ina óslökkvandi hatur og heift, ekki aðeins Tjekka, heldur og jafnvel sinna eigin samlanda. Aðeins eitt gremst þeim, og það er, að hlann fekk of mildan dauð daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.