Morgunblaðið - 23.07.1942, Page 2
Fimtudagur 23. júlí
MORGUNBLAÐIÐ
i
AUCHINLECK BYRJAR SÓKN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiuiiimn
|Skoðana-(
írelsið 1
imiimmmmiiiimi
iiiiiiiiiiiimimtmii
VIÐ ÍSLENDINGAR höfum í lang-
an tíma getað notið rjettinda, er
sjálfsögð þykja, alls staðar þar
sem frelsi og sjálfstæði landanna
er í heiðri höfð. Við höfum getað
talað, ritað og hugsað, eins og
okkur býr í brjósti, að vísu innan
vissra takmarka, en þó þannig, að
engar hömlur eru lagðar á skoð-
anafrelsi okkar. Mannrjettindin
hafa verið virt, en það hefir fram
að þessu greint menningarríki frá
ríkjum, þar sem kúgun og andlegt
ófrelsi hafa þótt sjálfsagðir hlutir.
★
MEÐ FRÖNSKU stjórnarbylting-
unni 1789 hefst nýtt tímabil í sögu
mannkynsins, sem kunnugt er.
Mönnunum lærðist að skilja, að
við erum eiginlega öll í sama báti
og að hver á að hafa sama rjett í
lífinu sem annar. Alt í einu varþað
viðurkent, sem seinni kynslóðir
bygðu á, að best fari á því, að
mennirnir búi við frelsi og jafn-
rjetti og vinni saman að bættari
aðbúnaði okkar allra. Þetta er
mannúðarstefna, sem viðurkend
er af öllum frjálsbornum mönn-
um, öllum mönnum sem hata kúg-
un og ófrelsi í hverju formi sem
þau birtast, öllum þeim, er trúa
á rjett smáþjóðanna til þess að
lifa í friði fyrir ofstopa þeirra,
sem trúa á mátt hins sterkari.
Atburðirnir sem gerðust árið
1789 eru nú aðeins sögulegar
staðreyndir, og margt hefir breyst
síðan þá. En megin hugsjónin er
ennþá við líði, og hún er nú í al-
varlegri hættu í þeim átökum, er
stórveldi heimsins eiga í og ör-
lög ekkar og fjölda annara þjóða
eru komin undir.
Það hefir verið reynt og er ver-
ið að reyna að slökkva ljós írelsis
og mannúðar, undir því yfirskyni
að það sje úrelt hugsjón, er hæfi
ekki nýskipaninni. Það, sem áð-
ur voru okkur óskoruð rjettindi,
eru nú fótumtroðin, ónothæf.
★
HJER Á ÍSLANDI höfum við rjett-
aröryggi. Við höfum löggjöf, er
tryggir það, að mönnum verði
ekki varpað í fangelsi eða refsað
á annan hátt án úrskurðar. Hjer
þekkjast ekki ýmis þau ráð. sem
einræðisríkin þykjast þurfa á að
halda til þess að fá menn líl að
játa sekt sína, ef nokkur er.
Við skulum fagna því, sem bú-
um í þessu landi, að svo er. Við
getum glaðst yfir því, að við get-
um sagt það sem okkur býr í
brjósti, eða látið það á preni. Það
eru sjálfsögð rjettindi okkai, er
við megum ekki missa, hvað sem
í húfi er.
★
ISLENDINGAR geta og hafa getað
sagt, hvað þeir álíta um stjórn-
málaleiðtoga okkar, og þeir hafa
sagt, oft og einatt með óþvegnum
orðum, hvað þeir álíti um Ólaf
Thors, Jónas Jónsson, Stefán Jóh.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
TEL EL EISA
Á VALDI BRETA
Sókn á allri
TÍdlíiiuniii
^
Herstjórn Breta í Kairo tilkynti í gærkveldi, að
Bandamenn hefðu byrjað sókn á allri víg-
línunni í Egyptalandi.
Sóknin hófst með árás á miðhluta vígstöðvanna í
fyrrakvöld, strax og rökkva tók.
Var teflt fram skriðdrekum, fótgöngu- og, stórskota-
liði, en sprengjuflugvjelar gerðu harða hríð að and-
stæðingunum. Bandamenn náðu brátt Tel E1 Eisa á sitt
vald og hjeldu þeim stað, þrátt fyrir hörð gagnáhlaup
möndulhersveita, sem veita harðvítugt viðnám hvarvetna.
HRIKALEGAR ORUSTUR
I fr«gnum frá Kairo seint í gærkvöldi segir, að miklir bar-
dagar hafi geisað á allri víglínunni i Egyptalandi í allan gær-
dag, en bandamenn eiga hvarvetiia frumkvæðið. Eru nú háðar
einhverjar hrikalegustu orustur, sem enn hafa átt sjer stað á
N orður-Af ríkuvígstögvunum.
Sóknin hófst með því, að Auchinleck tefldi fram nýsjálensk-
um og indverskum hersveitum á miðvígstöðvunum. Að sunnan
sóttu fram fótgönguliðssveitir frá Bretlandi, en vestur af E1 Al^-
mein Ástralíu- og Suður-Afríkuhermenn.
Möndulhersveitir hófu þegar
mikla skothríð á Nýsjálendinga
og Indv., en tókst ekki að sföðva
sókn þeirra og náðu þeir brátt
Tel E1 Eisa. Voru gerð mörg
snögg gagnáhlaup af hálfu
möndulherjanna, en þau mis-
tókust öll.
Frjettaritarar segja, að reykj
armekkir grúfi yfir vígstöðvun-
um, vegna hinnar gífurlegu stór
skótahríðar og loftárása, en þó
sje ljóst, að bandamenn eigi
frumkvæðið í orustunum á allri
víglínunni.
Á miðvígstöðvunum tefldu
báðir aðilar franrmiklum fjölda
skriðdreka, en ekki hefir enn
frjettst um úrslit í þeirri viður-
eign.
GÓÐUR
UNDIRBONINGUR
Frjettaritarar á þessum víg-
stöðvum segja, að ekki sje víst,
að hjer sje um upphaf allsherj-
ar sóknar að ræka af hálfu Auc
hinlecks, en hinsvegar telja þeir
að þessi leiftursókn hans sje
vandlega undirbúin og liður í
víðtækari hernaðaráætlun.
Hagg setur n}tt met
STOKKHÓLMI í gær: — Sænski
hlanparinn Iiágg hefir sett nýtt
heimsmet í 2000 metra hlaupi, á
5 mín., 16.4 sek.
Gamla metið var 5 mín., 16,S
se., sett af Bandáríkjamanninum
Archibald San Romani árið 1937
Þetta er fjórða metið, sem Hágg
setur á 3 vikum.
Vaxandi erfið-
leikar Þjóðverja
í Noregi
Samkvæmt fregnum, sem borist
hafa frá Noregi, er talið, að
um 25.000 manns, verði kallaðir
í skylduvinnu í þessum mánuði.
Munu þeir vinna við víggirðingar
Þjóðverja í Suður- og Vestur-
Noregi.
Upplýst er, að svo að segja allir
starfsmenn í sumum vefnáðarvöru-
verslunum, helmingur hankastarfs
manna og allir karlmenn yngri
en 45 ára, sem vinna í kaffi- og
gistihúsum, verði nú að vinna
þvingunarvinnu, en kvenfólk mnn
annast störf þeirra.
Rússneskif fangar taka nú við
af norskum konum í fiskflökunar-
stöðvunum, en karlmenn hafa
verið sendir til vinnu við víg-
girðingar Þjóðverja.
Verkamenn við verksmiðjuna í
Bodö hafa verið 'endir til vinnu
við víggirðingar í Finnmörk. Þjóð
verjar leyna því ekki, að fleiri
verði kallaðir til vinnu, og í Nor-
egi er talið, að enn verði 45.000
manns skráðir þegar líður á sum-
arið.
NokkUr ágreiningur ríkir með
Þjóðverjum, hvar vdnnnafl þetta
verði best notað. Stjórnarvöldin
í Þýskalandi álíta, að þörfin sje
mest þar heima fyrir, en hin þýsku
yfirvöld í Noregi, sjerstaklega her
stjórnin, telur, að alt vinnnafl í
Noregi verði að nota við víggirð-
ingarnar, svo fljótt sem unt er.
Þvingunarvinnan vekur mikla
gremju í Noregi, en ekki örvænt-
ingu.
I Rússar í kreppu |
1 við Rostov |
iliiiiniiiiifmiiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiii .ttiminmuiiimiimmmuimMii
Allar fregnir frá austurvígstöðvunum benda til
þess, að Rostov sje nú í yfirvofandi hættu,
og að Þjóðverjar sæki fram jafnt og þjett á
suðurhluta vígstöðvanna.
Hins vegar eru Þjóðverjar í hættu staddir hjá Voronezh, þar
sem Rússar halda áfram að kreppa að hersveitum þeirra. í Moskva-
fregnum segir, að Þjóðverjar hörfi undan hæði norður og snður af
borginni.
Þjóðverjar segja frá því, að
Rostov standi nú í báli og sæki
þeir að borginni úr þrem áttum.
Þá hafa Þjóðverjar gert skæðar
loftárásir á birgðastöðvar og skot-
færaskemmur skamt frá borginni
og valdið miklu tjóni. Um bar-
dagann við Voronezh segja Þjóð-
verjar, að áhlaupum Rússa þar
hafi verið hrundið, og hafi ung-
verskar hersveitir verið þar til
varnar.
í herstjórnartilkynningu Rússa,
sem birt var á miðnætti í nótt,
segir, að harist sje við borgina
Novocherkassk, sem er um 30 km.
frá Rostov,
Hðrð Icftárás
á Duisburg
fyrrinótt var gerð hörð árás
á iðnaðarstöðvar í Ruhr-
hjeraði. Aðalárásinni var beint
gegn Duisburg.
Um 300 sprengjuflugvjelar
Breta tóku þátt í árásinni, sem
var hin fimtugastá í röðinni á
þá borg. Fjölmörgum sprengj-
um var varpað niður, þar á með-
al 50 tv.eggja smálesta sprengj-
um. Ókunnugt er enn um tjón af
árásinni.
Árásir voru einnig gerðar á
flugvelli í Hollandi og Belgíu.
Þrettán flugvjelar Breta eru
ókomnar úr leiðangrum þess-
um.
Norðmenn strjúka af
þýskum skipum
Stokkholm í gær.
ænsk blöð birta nú daglega
tilkynningar um það, að
norskir sjómenn strjúki af þýsk
um skipum og sldpum, sem eru
undir eftirliti Þjóðverja. Sænsk
blöð birtu í gær, með tveggja
dálka fyrirsögn, frétt frá Gauta
borg um flótta 5 ungra Norð-
manna af norsku skipi, sem var
undir eftirliti Þjóðverja. Þeir
flýðu, er skipið var úti fyrir
vesturs*trönd Svíþjóðar. — Þeir
hlupu allir 5 fyrir borð og syntu
í áttina til strandarimjar. Þeir
urðu að synda í 2^4 klukku-
stund, og voru oft að því komn-
ir að gefast upp. Einn þeirra var
svo aðframkominn, að hinir
hinir urðu að hjálpa honum.
miiiiiiiiiittiiiiiiittmiiiiiiiimuMMiiiiiiiimiiHiuiimiiiuiiiii
I Þeir stjórna j
vörn Rússa I
sjenko marskálkur (til vinstri), og
Gregory Zhnkoff marskálkur.
Timasjenko stjórnar herjum Rússa
á suðurvígstöðvunum, en Zhukoff
við Moskvu.
Ófriðaraðilar
skiftast á þegnum
Drjú hafskip ern komin til
hafnarborgarinnar Lour-
enzo Marques í Mozabique, ný-
lendu Portúgala í Austur-Af-
ríku. Skip þessi eiga þarna að
skiptast á starfsmönnum sendi-
sveita Bandaríkjamanna og
möndulveldanna, einkum Jap-
ana.
Skipin eru: Gripsholm,
sænskt, sem kemur frá Banda-
ríkjunum með japanska starfs-
menn, Asama Maru, japanskt,
cg Conte Verde, ítalskt, sem
koma frá Austurlöndum, með
ameríska sendisveitarstarfs-
menn.
Meðal farþega á Gripsholm
eru þeir Nomura og Kurusu,er
voru að semja við Bandaríkja-
stjórn, þegar árásin á Pearl
Harbour var gerð.
Búið er að semja um skifti
á 1800 þegnum Japána og jafn
mörgum Bandaríkjaþegnum og
fara þau fram bráðlega.
Áttatíu ára afmasli á í dag
frú Margrjet Jónsdóttir frá Grund
á Kjalarnesi. Nú til lieimilis á
Frakkastíg 15, Reykjavík.