Morgunblaðið - 23.07.1942, Page 6
MORGoNBLAÐIÐ
Fimtudagur 23. júlí 1942»
0
OR daqleqa
LlFINU
Ástríður í Möðrudál.
Sigurgr. Jónsson, Holti við
Stokkseyri skrifar útaf grein Guð-
mundar Friðjónssonar í Lesbók um
Ástríði í Möðrudal,
Þorkell Vemharðsson faðir Jóns
Þorkelssonar frá Víðikeri (og sr.
Jóhanns fyrv. dómkirkjuprests) var
albróðir Ástríðar í Möðrudal. Þau
voru böra Vernharðs Þorkelssonar
prests að Grenjaðarstað, Skinna-
stað og síðast að Reykholti.
Jón Þorkelsson frá Víðirkeri hjelt
uppi kunningsskap við frændfólk
sitt í Möðrudal, fór í árlega heim-
sókn þangað á sínum yngri árum
beint yfir öræfin.
Jóhanna, síðari kona Jpns, dvelur
nú hjá syni sínum Sturlu í Fljóts-
hólurri, greind kona og fróð, og
wiinnug á viðbupði samtíðar sinnar.
★ 5
Bruninn að Litla Jlrauni.
Gísli Jónsson fangavörður að
Litla-Hrauni skrifar blaðinu að mis
sögn hafi verið í frjett þeirri, er
hjer bii'tist frá hlöðubrunanum, er
þar varð á dögunum. Hann segir:
j Þegar við urðum brunans varir,
hringdi jeg til slökkviliðsins á Eyr-
arbakka. Kóm það eftir nálega 12
mínútur, þrátt fyrir það að allir
slökkviliðsmenn væru í vinnu, og
um það bil að fara til miðdegisverð-
ar. Svo eftir hjerumbil klukkustund
feom slökkvilið breska setuliðsins,
en þá var Eyrarbakkaliðið ásamt
mjög mörgum öðrum utanaðkom-
andi mönnum, búið’að vinna dyggi-
legt starf við að slökkva þetta mikla
eldhaf. Vildi jeg að Eyrarbakkalið-
ið fengi sitt orð af þessu starfi, sem
það á með rjettu, engu síður en hið
breska.
Safnarar á sorphaugum.
Miklar sögur hafa mjer borist til
eyrna um það, hve arosöm atvinna
það hafi reynst ýmsum að ganga
um sorphauga bæjarins og hirða
það sem þar er nýtiIegt.Ekki hef jeg
getað sannprófað sagnir þessar, og
má vera að þær sjeu eitthvað ýktar.
Ein sagan segir, að þar hafi mað-
ur fundið sjer vel nothæfan kolaofn
Bpeð tilheyrandi reykpípum, annar
hafi fundið þar brúklegt ferðatjald,
enn annar fullan kaSsa af hurðar-
Skrám og tínt upp talsvert af verð-
mætum kopar. Skófatnað á einn að
hafa fundið sjer í kyrfilegum um-
búðum. En alt þetta bendir til þess
að nýtni manna sje ekki á háu stigi.
Og svo er sagt að alt sje hægt að
selja í þessum bæ fyrir peninga,
hverju nafni sem nefnist.
★
Svör.
1. Skjömpóttar eru Skepnur kall-
aðar, sem eru ljósar á lit með dökka
díla hjer og þar um skfokkinn, eink-
um í vöngunum.
2. Talið er að síðasti geirfugl hafi
verið drepinn árið 1844.
3. Orustan við Waterloo stóð 18.
júní 1815.
4. Rio de Janeiro er höfuðborg
Brasilíu.
5. Þjóðhetja Svisslendinga Wil-
helm Tell var neyddur til að skjóta
epli á höfði sonar síns.
Fimtug er í dag Rósa Sigurðar-
dóttir, Bergþórugötu 43.
Fimtugur: Páll
Sigurðsson læknir
EHmtugur er í dag einn besti
og vinsælasti læknir þessa
bæjar, Páll Sigurðsson.
Læknisprófi lauk hann árið
1923 og var hann skömmu síðar
settur læknir í Stykkishólmi og
síðar á Flateyri. Árið 1926 fekk
hann veitingu fyrir Hofsóshjer-
aði og gegni því embætti til árs-
íns 1934, er hann fekk lausn
vegna veíkinda.
Framúrskarandi samvisku-
semi í starfi, drenglyndi og hlýtt
viðmót hafa einkent starfsferil
Páls læknis, enda er hann vín-
sæll með afbrigðum og ýel lát-
inn af þeim, sem honum hafa
kynst.
Hjeraðslæknisstörf sín rækti
hann frábærlega vel, og er
þeim, sem þessar línur ritar, vel
kunnugt um, hversu hjeraðsbú-
ar í Hofsóshjeraði söknuðu hins
ósjerhlífna og góða læknis, er
hann hvarf þaðan.
Frá því 1934 hefir Páll stund-
að lækningar hjer í Reykjavík
og unnið sjer traust og vinsæld-
ir sjúklinga sinna og annara, er
honum hafa kynst. (
Á síðasta aðalfundi Lækna-
f jelags Islands var hann kjörinn
í stjórn fjelagsins. Síðustu árin
gegnir Páll ennfremur aðstoðar
læknisstörfum hjá hjeraðslækn-
inum hjer í bæ.
Páll er kvæntur ágætri konu,
Maríu Kjartansdóttur Rósin-
kranssonar frá Flateyri.
Við vinir Páls árnum honum
allra heilla á ókomnum árum.
Medicus.
Hreppsneíndarkosn-
Ingar á VestfjörðmDj
( , , m iM*
Nýlega er lokið hreppsnefnd
arkosningum á Vestfjörð-
um. Á Þingeyri unnu Sjálfstæð-
ismenn kosninguna, fengu 119
atkvæði ög 3 menn. Framsókn
fekk 87 atkvæði og 2 menn. Al-
þýðuflokkur 35 atkv. og engan
mann kjörinn.
í; Eyrarhreppi í Norður-ísa-
fjarðarsýslu fór kosningin þann
ig, að listi Sjálfstæðismanna
hlaut 42 atkvæði og 2 menn
kjörna. Listi Skutulsfirðinga 35
atkvæði og 2 menn kjörna og
listi Alþýðuflokks og Framsókn
ar 68 atkvæði og 3 menn. — 1
hreppsnefnd Eyrarhrepps eru
nú 4 Sjálfstæðismen nog þrír
rauðliðar.
Ferðafjelagið
FRAMH. AF ÞRIÐJU Sfi)U.
húsið munu ekki hafa komið
margir gestir á þessu sumri og
þangað liggur ekki bílvegur alla
leið.
Verið er að reisa sæluhús
skamt frá Hagavatni, stendur
það austan við Einifell og verð-
ur það fullgert áður en þessi
mánuður er liðinn. Brýr hafa
verið bygðar yfir Farið og er
því hægt að komast gangandi í
kringum vatnið. Það er skemti-
legt að fara gönguferðir á Haga
fell og á Jarlshetturnar. — Bíl-
vegur er nú kominn alla leið að
sæluhúsinu. Er farinn vegurinn
upp með Gullfossi, norður yfir
Sandá, en beygir þá til vesturs
og haldið áfram upp með Sand
á alla leið austur yfir Einifell.
í sæluhúsinu í Hvítárnesi er
nú húsvörður, sem hefir eftirlit
með sæluhúsinu, innheimtir lágt
gjald fyrir næturgreiða og af-
hendir bensín. í hinum sælu-
húsunum eru ekki húsverðir, en
þangað er öllum heimilt að vera
um nætursakir á meðan rúm
leyfir, en það er áskilið frá fje-
lagsins hendi að umgengni sje
góð og húsunum skilað hfeinum
og þrifalegum til þeirra, er næst
koma. Ætlast er til, að ferða-
menn, sem eru um nætursakir
í húsinu, leggi hæfilegt gjald í
peningahirslu hússins.
ÁRBÆKURNAR
Árbækur Ferðafjelagsins virð-
ast vera mjög vinsælar og eru
nú margir eldri árgangar upp-
seldir, en það, sem til er, er hjá
fjelaginu og kosta bækurnar 10
kr. hver, en Fuglabókin 15. kr.
Árbókin í ár fjallar um
Kerlingarfjöllin og er mjög til
hennair vandað. Verður hún
prýdd ágætum myndum og rit-
uð af rithæfustu mönnum. —
Kerlingarfjöllin eru ein hin sjer
kennilegustu og hrikalegustu
fjöll á landinu. Margbreytnin
er óendanleg. Af þeim er talið
víðast og tignarlegast útsýni á
landi hjer, því í björtu veðri
sjest þvert yfir Island.
3960 FJELAGAR
Á seinastjt aðalfundi fjelags-
ins er haldinn var í apríl mán-
uði, síðastl. voru fjelagsmenn
3680 að tölu, en síðan hafa ver-
ið innheimt fjelagsgjöld frá
fyrra ári, hjá 130 fjelögum og
150 nýir fjelagsmenn hafa bæst
við, svo að nú telur fjelagið
3960 fjelagsmenn.
Ferðafjel. íslands var stofn-
að 27. nóv. 1927, það verður því
15 ára á næsta hausti, en þá
verður líka fjelagatalan komin
yfir 4000, svo það er á góðri leið
að verða „fjelag allra lands-
manna“.
Hátíðaritið, sem gefið verður
út í tilefrai af sjötugsafmæli Há-
konar Noregslconungs, 3. ág. n.
k., verður stærsta útgafa, sem
gefin hefir verið út á norsku
síðan ófriðurinn hófst. Fyrir utan
fjórar ritgerðir sögulegs efnis,
verða 250 myndir í hátíðarritinu.
Ritið á að heita „Alt for Norge“,
en það var kjörorð TTákonar kon-
ungs, sem hann valdi sjer er hann
varð konungur í Noregi 1905.
Skðlaskipið Danmark I amerískrl pjónustu
Skólaskipið Danmark.
Danír kenna ameríska
píltam sjómenska
Amerískur blaðamaður skrif
ar eftirfarandi grein um
danska skólaskipið „Dan-
mark“, sem nú er í þjónustu
Bandaríkjastjórnar.
kip, sem ekki komst heim til
lands síns, hefir fengið heim-
ili og verk að vinna hjá „Sam
frænda“.
Það er „Danmark“, hið fræga
danska skólaskip, litli „full-
riggarinn“, þrímastraða seglskipið.
Það er nú í New London í ríkinu
Conneeticut og er fljótandi skóli
fyrir hundruð ungra manna, sem
læra sjómensku á vegum Strand-
varnaliðsháskóla Bandaríkjanna.
Síðar verða þessir ungu menn,
sem þarna fá mentun sína, sjó-
liðsforingjar í Bandaríkjaflotan-
um.
Þegar Þjóðverjar æddu yfir
liina gróðursælu Danmörku vorið
1940, var „Danmark“ við Yestur-
Indíur. Skipið hjelt til næstu
hlutlausrar hafnar, sem var Jack-
sönville í Florida.
I næstum tvö ár lá skipið að-
gerðalaust, táknrænt dæmi um yf-
irgangssemi Þjóðverja, í amerískri
höfn. 120 stýrimannaefni, sem voru
á skipinu er það ljet í haf frá
Kaupmannahöfn í ágúst 1939, til
að fara í ferð kringum hnöttinn,
voru strandaðir. En það stóð ekki
lengi. Flestir þeirra fengu atvinnu
á amerískum verslunarskipum.
Nokkrir gerðust sjálfboðaliðar í
breska hernum eða gengu í lið
með frjálsum Frökkum. Það leit.
helst út fyrir að hið fríða skip
myndi grotna niður við Florida-
strönd.
Svo var það 'hinn 7. desember
1941, að skipstjórinn á „Danmark“
Knud L. Ilansen, skrifaði brjef
til Washington. Hann sagði að
sig langaði til að sýna smá þakk-
lætisvott fyrir gestrisni þá, sem
hann og skipshöfn hans hefði not-
ið í amerískum höfnum.
Hanson skipstjóri bauð Banda-
ríkjastjórn þjónustu sína og skips
síns. Skömmu síðar var straumur
ungra manna, sem vildu ganga í
sjóliðið -svo stór, að bæta varð
v.ið skólum og skólaskipum til að
ltenna hinum ungu mönnum, sem
vildu fá að berjast fyrir föðurland
sitt.
Tilboð Hansons skipstjóra var
tekið. Skipstjórinn og sex yfir-
menn skipsins, og 18 aðrir menn,
sem gætt hafa skipsins síðan því
var lagt upp, vinna nú að því að
kenna ungum amerískum piltum
að „stíga ölduna“.
Handknatt-
leiksmótið
Utihandknattleikur karla
hófst hjer á íþróttavellin-
um í gærkveldi með leik milli
Vals og Víkings. Vann Valur
leikinn með 6:4. Leikurinn var
bráðskemtilegur og vel leikinn af
hvorum tveggja. Valsmenn skor-
uðu 4 mörk gegn engu í fyrri!
hálfleik, en Víkingar sóttu sig í
þeim síðari og skoruðu þá 4 gegn
2. Lið Vals vann á nákvæmari
og hraðari samleik.
Að þessum leik loknum keptu
Ármann og í. R. Sigraði Ármann
þar með 13:5. Fyrri hálfleikurinn
var jafnari og lauk honum með'
4:2 fyrir Ármann. í seinni hálf-
leik sótti Ármann sig mjög og
skoraði þá 9 mörk gegn 3.
Ýmsir frægir knattspyrnumenn
vcrru í liðum Vals og Víkings, og
skeði sú nýlunda, að Grímar skor-
aði mörk! Aftur á móti voru
engir hissa, þótt Isebarn gerði
slíkt!
í. R.-ingar virtust ekki jafn vel
æfðir og hin liðin, enda nokkuð
ta.ugaóstyrkir fyrst, og óvissir að
grípa knöttinn.
Næstu leikir munu fara fram á
sunnudagskvöld og keppa þá
Valur og f. R. og Víkingur og
Ármann.
J. Bn.