Morgunblaðið - 08.08.1942, Blaðsíða 4
4
MORGUfiBLAÐlÐ
Laugardagur 8. ágúst 1942.
Bardagar við Ei Alamein
UndanfariS hefir verið hlje á bardögum á landi í Egyptalandi. En Bretar segja að fluglið þeirra
hafi haft sig allmjög í frammi. — Á myndinni sjást breskir hermenn, sem sækja fram með skrið-
drekum hjá E1 Alamein í Egyptalandi.
Matvælaskor turinn
í herteknu iöndunum
Síðastliðinn vetur var harðasti
vetur, sem komið hefir 1
Uýskalandi í 150 ár. Hagfræðing-
:ar þar í landi skýrðu frá því, að
frostið hefði náð 115 cm. niður í
jörðina. Vetrarsáðkornið mátti
heita eyðilagt og því var spáð,
að framleiðslan á niðursoðnum á-
vöxtum myndi verða 90% minni
næsta vetur en ráð hafði verið
fyrir gert.
Er fæðuskortur var kominn í
Þýskalandi ákváðu Þjóðverjar að
pína vistir út úr herteknu þjóðun--
um. En þar var ekki gott til
fanga.
Þjóðverjar bjuggust við því, að
mppskeran á Balkanskaga myndi
~verða með meira móti, en þeir
'komust að raun um, að hörm-
ungar styrjaldarinnar höfðu gert
það að verkum, að framleiðslan
var 1/3 minni en hún var venju-
lega. Hungursneyð varð í Grikk-
landi og þar kom upp taugaveiki.
'Skólabörn í Frakklandi sultu og
það leið yfir þau inni í skólastof-
nnum. Pólskir bændur liðu hung-
ur og þar í landi dóu menn í
hrönnum. Akuryrkjan í Frakk-
landi var í öngþveiti, vegna
skorts á áburði, verkfærum og
vinnukrafti, því að enn voru
1.500.000 franskir hermenn kyrr
settir í Þýskalandi. Hveitiupp-
skeran í Ukrainu var lítil vegna
frostanna og einnig vegna skorts
á landbiinaðarvjelum..
En heima í Þýskalandi gengu
konurnar út á akrana. í för með
þeim voru börn þeirra, afar og
ömmur. Frá Frakklandi komu
verkamenn hópum saman að und-
irlagi Pierre Laval. — Nýlega
bauðst hann til að útvega Þjóð-
verjum marga tugi þúsunda
franskra verkamanna fyrir hverja
5.000 franska hermenn kyrrsetta í
Þýskalandi, sem fengju að fara
heim.
En í löndum utan Þýskalands
voru Þjóðverjar ekki eins slótt-
ugir. Þeir fóru að reyna að telja
Hollendingum og Belgum trú urn
það, að Eystrasaltslöndin æftu að
verða yfirráðasvæði þeira í fram-
tíðrnni. Það greip þá slíkt heimsku
æði, sem fór svo í taugarnar a
mönnum, að siðprúðir menn eins
og Danir fóru að hrinda þeirn
niður í skurði í Kaupmannahöfn.
Svo kröftug var mótstaðan í
Póllandi, að þótt Pólverjar væru
myrtir hópum sarnan, í hverri
viku, þá varð stjórn þýska her-
liðsins í Póllandi að reyna að
koma á fót pólskri leppstjórn til
þess að halda Pólverjum í skefj-
um. En þar sem engir Pólverjar
fengust í þá leppstjórn, þá gengu
manndráp og önnur hermdarverk
úr hófi.
Þýska setuliðið í Noregi sölsaði
undir sig 80% af síldarafla Norð-
manna. Þeir lifðu að mestu lðyti
á síld og útsæðiskartöflum, svo
að Vidkun Quisling lýsti því yfir
við Norðmenn, að næsta vetur
yrðu þeir eingöngu að lifa á
brauði úr fínu sagi og „mó“korni.
Af þessum frjettum er það ber-
sýnilegt, að í vetur ætla Þjóð-
verjar sjer að jeta, hvort sem aðr-
ar þjóðir í Evrópu gera það eða
ekki. En einkennileg var skipun-
in, sem Þjóðverjar gáfu í Hol-
landi. Allir hundar, sem eru 2 fet
eða lengri, verður að afhenda
stjórn setuliðsins.
(Samkv. Time).
Fim!og§dfmœli
Amánudag, 10. þ. m., á átt-
ræðisafmæli Sigurður Ingi-
mundarson fyrverandi óðalsbóndi
á Máfahlíð á Snæfellsnesi.
Hann er fædur að Eyjum í Kjós
10. ágúst 1862, Ilann er af góðu
bændafólki kominn; f oreldrar
voru Ingimundur Bjarnason og
Birgitta Sigurðardóttir.
Foreldrar Sigurðar voru fátæk,
því að börnin voru mörgi, svo að
hann varð snemma að vinna fyrir
sjer. Á sumrum vann hann að hey-
vinnu, en á haustin að jarðabót-
um, en flestar vetrar- og vorver-
tíðir stundaði hann sjó á opnum
skipum frá Seltjarnarnesi.
Árið 1891 gpkk hann að eiga
Steinvöru Einarsdóttur frá Skraut
hólum á Kjalarnesi, og það ár
byrjuðu þau búskap á Sjávarhól-
um í sömu sveit.
Vorið 1903 fluttu þau vestur á
Snæfellsnes að Máfahlíð, og
bjuggu þar um 20 ára skeið, enda
er hann ávalt kendur við þá jörð
síðan.
Þeim varð 9 barna auðrð, 8 kom-
ust til fullorðins ára, og er það
mikið starf að koma upp svo stór-
um barnahóp hjálparlaust.
Ábúðarjörð sína bætti hann mik
ið; þótt ávalt stundaði hann sjó
jafnhliða búskapnum, löngum for-
maður er ætíð farnaðist vel, enda
veðurglöggur og athugull og snar-r
ráður, þá fljót handtök þurfti við.
Hann gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína, enda
fylgdist hann vel með og gerir
enn.
Hann er mikið fesinn og stál-
minnugur, enda er bann fræðinn
og skemtilegur og'kann frá mörgu
að segja.
Hann hefir verið alla tíð mjög
ákveðinn Sjálfstæðismaður og fylg
ist af áhuga -með öllu er gerist á
sjórnmálasviðinu. j
Hann dvelur'nú á heimili dótt-
ur sinnar og tengdasonar í Ólafs-
vík. * -
Tilkynning.
Til leiðbeiningar fyrir borgarana um hin ýmsu lands-
svæði sem setulið Bandaríkjanna notar fyrir skotæfingar
með fótgönguliðs- og stórskotaliðsvopnum verða hjer upp
talin æfingarsvæðin:
í stöðugri notkun:
Sandskeið og Mosfellsheiði
Svæðið fyrir norðaustan Brautar-
holt
Austanvert við Kollafjörð
Æsustaðafjall
Grafarheiði
Svæðið vestur af Reykjaborg
í Borgardal
Svæðið suður af Borgardal
Svæðið fyrir vestan og sunnan
Vatnsendahvarf
Hvaleyri
Svæði í Hvaleyrarhrauni
Svæði austur af Kaldaðarnesi við
Ölfusá
Eftirfarandi svæði eru notuð við og við:
Tegund vopna:
Fallbyssur, rifflar og
vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Svæðið fyrir norðaustan
Kleifarvatn
Svæðið suður af Pálshúsum
í Garðahverfi
Malargryfjan við Hálogaland
Malargryfjan við Ártún
Svæðið fyrir norðan Lágafells-
hamra
Svæðið norður af Helgafelli ná-
lægt herspítalanum
Svæðið í gljúfrinu nálægt herbúð-
unum við Saurbæ
Svæði í suðvesturhlíð Akrafjalls
Svæði við Langá nálægt veginum
milli Borgarness og Stykkis-
hólms
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjeibyssur
Rifflar og skamm-
byssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Rifflar og vjelbyssur
Fallbyssur og minni
byssur
Rifflar og vjelbyssur
Fallbyssur
Önnur landssvæði eru notuð við og við, ef þurfa þykir.
Alltaf þegar landssvæði er tekið til skotæfinga eru verðir
settir við vegi sem liggja að svæðinu. Merki eru sett upp
til að vara fólk við hættusvæðinu og rauð flögg eða dulur,
til þess að gefa til kynna hvaðan skotið er. Stundum er
skotið á fljótandi skotmörk og verða slíkar skotæfingar
ávalt auglýstar fyrirfram.
Gott íbúðarhus
afgreiðslu- og geymsluhús fyrir bíla og tveir yfirbygðir
langferðabílar til sölu. Þeir, sem vildu sinna þessu, sendi
tilboð merkt: „Framtíðaratvinna“, til afgreiðslu Morg'
unblaðsins fyrir 16. þ. m.
Mótorbátur j
#
#
12 til 15 tonna mótorbátur óskast til kaups. Tilboð •
leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir mánu ;
dagskvöld 10. þ. m. Merkt „Mótorbátur“. •
•••••••••••••••••• f
BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐiNU*