Morgunblaðið - 15.08.1942, Side 2
o
MC3GUNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. ágúst 1942.
Bandaríkjamenn hafa náð
fótfestu á Solomonseyju
5 Það, sem kaf- S
S bátsmeAnÍrnír §
■ ■
sátt gegntim
i ■
sjónpípuna
Hertaka eyjanna gengur
samkvæmt áætlun
Bandamenn hafa yfirráð í lofti
Washington í gærkvöldi.
Skeyti til MORGUNBLAÐSINS frá Reuter.
FLOTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hjer í Washing-
ton hefir skýrt frá því, að landgöngulið amer-
íska flotans hafi náð fótfestu á Salomonseyj-
um og komið sjer upp stöðvum á eyjunum. Hernaðarað-
gerðir ganga að óskum. Þá skýrði flotamálaráðuneytið
einnig frá því, að herskip Bandaríkjaflotans fylgi birgða-
skipum, sem flytji stöðugt birgðir til ameríska hernáms-
liðsins.
í tilkynningu flotamálaráðuneytisins er sagt frá því,
að floti Bandaríkjanna ráði algjörlega yfir aðflutnings-
leiðum til eyjanna og er gert ráð fyrir, að vel gangi að
senda liðsauka til vígstöðvanna.
Á það er bent, að þegar tillit er tekið tii þeirrar bjartsýni, sem
gætt hefir í hernaðartilkynningum frá Salomonseyjum undan-
farna daga, þá megi gera ráð fyrir. að sumar eyjar í eyjaklasan-
um sjeu algerlega á valdi Bandaríkjamanna. Þetta er þó ekki
staðfest opinberlega. Hinsvegar er ekki víst, að tekist að hafi
að reka Japana af öllum eyjunum, heldur hafi þeir neyðst til að
flýja inn í frumskóga,
B kafbáts. Er þetta fyrsta myndin,. sem vel hefir tekist að taka ®
B gegnum sjónpípu kafbáts, en flestir amerískir kafbátar eru nú £
® útbúnir með ljósmyndavjelum í sambandi við sjónpípuna. J
■ Bent er á, að kafbátsmenn hafi þurft að setja sig í mikla hættu "
■ til að ná þessari mynd, þar sem þeir hafi þurft að komast mjög g
■ nærri kafbátnum til að taka hana. Orvarnar á myndinni benda n
j;apanska sjóliða, sem eru á stjórnpalli hins sökkvandi skips. ■
M H3
»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Breska skipa-
lestin á MiOjarð-
arhafi náði bðfn
Bretar til-
kynna missi
beitiskipsins
»Manchester«
Undanfarna daga hafa stað-
ið yfir miklar árásir á
stóra breska skipalest á Mið-
jarðarhafi, sem var á leið til
Malta. — Skipalestinni fylgdu
flugrvjelamóðurskip, beitiskip
og orustuskip. Bretar mistu í
árásum á skipalestina flugvjela
móðurskipið „Eagle“ og eins og
láður hefir verið tilkynt, beiti-
skipinu „Manchester“.
,,Manchester“ var 9,00 smál.
að stærð. Það var fullsmíðað
1938. Aðalvopn þess voru tólf
sex þumlunga fallbyssur. Marg-
ir menn björguðust af skipinu,
og er talið að sumir hafi náð
landi í Tunis, en það var skamt
frá ströndum Tunis. sem skip-
inu var sökt.
Bæði ítalir og Þjóðverjar
hafa undanfarna daga birt æsi-
fregnir um tjón Breta í árásum
á skipalestina, en breska flota-
málaráðuneytið tilkynti í gær,
að þessar fregnir væru allar
mjög ýktar. Segir flotamála-
ráðuneytið að fullkomnar
skýrslur um tjónið verði þirtar
undir eins og þær upplýsingar
geti ekki komið óvinum þeirra
að neinu liði.
í skýrslu, sem breska flota-
málaráðuneytið gaf út í gær,
segir að skipalestin hafi verið á
leið til Malta með liðsauka og
birgðir til eyjaskeggja. Hafi
skipalestin nú náð höfn með
birgðir sínar. Meðal þess, sem
skipin hafi flutt, hafi verið or-
ustuflugvjelar.
Skipalestin þurfti að fara mjög
nálægt stöðvum ítala. Arásin á
skipalestina var gerð með flug-
vjelum, bæði steypiflugvjelum og
tundurskeytaflugvjelum, heilum
hóp af kafbátum og tundurskeyta
vjelbátum. Einnig komu ítölsk
heitiskip á vettvang, en þau lögðu
á flótta, er breskar flugvjelar
gerðu árás á þau. Komust þau
aldrei í færi við skipalestina.
Bresku flugvjelarnar gerðu árásir
á beitiskipin og hittu tvö tund-
urskeyti þeirra í mark. í her-
stjórnartilkynningu ítala í gær er
viðurkent, að tvö herskip þeirra
hafi orðið fyrir talsverðum skemd
um.
Flugvjelamóðurskipinu „Eagle“
var sökt daginn áður en aðal-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Alt rólegt
í indlandi
Frá Indlandi bárust þær
frjettir í gær, að alt sje nú
að komast þar í samt lag aftur.
Ber minna og minna á óeirðum,
þó þær eigi sjer enn stað í smá-
um stíl á nokkrum stöðum.
Aldrei hefir ástandið verið
svo slæmt, að til mála kæmi að
setja herlög í landinu, Verið er
að opna búðir á ný og aðra
staði, sem lokað var.
Einn frjettaritarinn segir, að
rnargt bendi til, að jafnmar^ir,
eðá fleiri Indverjar hafi látið
skrá sig til herþjónustu í júlí-
mánuði heldur en í júní, en þá
voru 70,000 manns skráðir í
herinn. Svo mikil er aðsókn ný-
liða að indnverska flotanum, að
verið er að koma upp nýjum æf
ingastöðvum, þar sem hinar
gömlu rúma ekki alla nýliða, er
bjóða sig fram.
Hollenskur kaf-
báttír grandar
tveím kattpfðr-
ttm Japana
að var tilkynt í London í
gær, að hollenskur kafbát-
ur, sem rekur hernað í Austur-
Asíu með flotadeild, hafi hæft
tvö japönsk kaupför tundur-
skeytum.
Skip þessi voru í skipalest, en
hollenski kafbáturinn komst
samt í skotfæri við þau, og log-
uðu skipin stafna á milli, er frá
var horfið, og er talið, að skipin
rnuni hafa farist.
AÐFLUTNINGSLEIÐIRNAR
Sú staðreynd að flotanum
skuli enn um megn að halda að-
fiutningaleiðum til eyjanna opn
um, b endir til þess, að frjettir
Japana um herskipatjón banda
manna sje mjög ýkt og sjeu
langt frá sannleikanum eins og
reyndist vera í japönskum
fregnum frá Midway orustunni
í júní s.l.
Fregnir af loftárásum banda
manna á flugvelli Japana,
benda til þess, að þó banda-
menn sjeu ef til vill ekki ein-
ráðir í lofti, þá sjeu þeir sterk-
ari Japönum.
Það er enn ekki að fullu
kunnugt hjer hvort hin þýðing-
armikla Tulagihöfn, sem Japan
ar ætluðu að gera að flotahöfn
hefir fallið í hendur banda-
mönnum. Hinsvegar er vitað, að
aðrar hafnir, sem Japanar
kunna að hafa á valdi sínu á
eyjunum eru varla annað en
smá skipalægi.
LIÐSAUKI FRÁ JAPÖNUM
Eftir áköfum loftárásum
bandamanna á japanskar skipa
lestir við Rabaul, Timor og á
Bundahafi að dæma, eru Jap-
anar að reyna að senda liðs-
auka til stöðva sinna á Salomons
eyjum.
Hernaðarsjerfræðingar eru
að brjóta heilann um það, hvort
verið geti, að Japanar verði að
senda aðalorustuskipaflota sinn
til þess að bjarga við ástandinu
á Salomonseyjum.
En alment álíta hernaðarsjer-
íræðingar, að Japanir muni ekki
gera það, því að svó gæti farið, að
skipafloti þeirra yrði innikróaður
af herskipum Bandamanna á tvo
vegu, og auk þess er viðbúið, að
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU,
Vörn Rússa
fer enn
harðnandi
Vörn Rússa fer stöðugt harðn-
andi í Kákasus og geisa óg-
urlega harðar orustur við olíulinda
bæinn Maikop, einnig við Krasno-
dar. Þjóðverjar sækja samt enn
fram og hefir orðið nokkuð á-
gengt í Kákasus. Sækja þeir nú
meðfram járnhrautinni, sem ligg-
ur milli Rostov og Grozny-olíu-
borgarinnar.
Eru Þjóðverjar nú nm 200 kíló-
metra frá Kaspiska hafinu, en
markmið þeirra er vafalaust að
sækja yfir skagann milli Azovs-
hafs og Kásþiahafs.
Á öðrum vígstöðvum gengur
Þjóðverjum ver og hafa hvergi
getað sótt neitt fram. Eru þeir í
vörn sumstaðar, að eigin sögn.
Tala þeir um áhlaup Riissa við
Rzhev og við Ilmenvatn, en segj-
ast hvarvetna hafa hrundið árás-
um Rússa.
Rússar segja hinsvegar frá á-
rangursríkum áhlaupum við Voro-
nezh.
Þjóðverjnm hefir ekkert orðið
frekar ágengt í Donbugðunni.
I miðnæturtilkvnningu rúss-
nesku herstjórnarinnar í gær-
kvöldi var skýrt frá því, að Rúss-
um hefði veitt betur í bardögum
við Þjóðverja á vígstöðvunum við
Kletskaya, Mineralnie Vodi, Clier-
kessk, Krasnodar, Maikop og
svæðinu fyrir norðaustan Kotelni-
kovo.
Á öðrum vígstöðvum, segir í til-
kynningunni, urðn engar veruleg-
ar breytingar.
Skortur á vinnu-
afli í Sviþjóð
Lægsta atvinnuleys-
istala siðan 1920
Ibyxjun ágústmánaðar var
tala atvinnuleysingja í Sví-
þjóð komin niður 1 um 22 þús.
Er betta lægsta atvinnuleys-
ingja tala síðan 1920. Hinar
fjárhagslegu breytingar, sem
stafa af stríðinu, hafa orsakað
— sjerstaklega í byggingar-
og málmiðnaðinum, auka eft-
irspurn eftir vinnuafli, sem nú
er ekki lengur hægt að full-
nægja.
f þeim tveim iðngreinum, er
hjer voru nefndar, eru t. d.
núna 60 þús. fleiri við vinnu és
þegar stríðið braust út. Til þess
að draga úr þessum skorti, sem
er altaf að aukast, hefir verið
tekið það ráð, að dreifa þeim
mannafla, sem fyrir hendi er,
hagkvæmlegar; meðal þessara
skrefa er að útvega atvinnuleys
ingjum vinnu við framleiðslu-
störf, og að láta menn lausa ur
herþjónustunni um stundarsak-
ir, til þess að vinna við her-
gagnaiðnaðinn.
Nú eru um 70 þús. slíkar dreif
ingarstöðvar, sem sjá um 1 milj.
menn og konur. Meira og meira
af æfingastöðvum og vinnu-
stöðvum hafa verið stofnaðar
eða eru í undirbúningi.
Nýr tyrkneskur
sendiherra í Berlín
BERLÍN, í gær; — Hitler tók í
dag á móti hinum nýskipaða
tyrkneska sendiherra í Berlín,
Saffet Arikan, sem afhenti hon-
um embættisskilríki sín. Von
.Ribbentrop var viðstaddur.