Morgunblaðið - 05.09.1942, Blaðsíða 7
Laugardagur 5. sept. 1942.
MORGoNBLAÐIÐ
7
Umræður um
stjórnina
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
vísa til yfirlýsingar þeirrar, sem
ríkisstjórnin gaf, er hún tók við
völdum, þar sem húu beinlínis tók
fram, að hún væri minnihluta-
stjórn og nyti ekki stuðnings ann-
ara flokka en Sjálfstæðisflokksins.
Ennfremur minni jeg á yfirlýs-
ingu þá, er jeg gaf nýlega í efri
deild, þar sem jeg endurtók þetta
sama, að ríkisstjórnin hafi aldrei
farið fram á stuðning annara
flokka,. nje . þeir boðið hann. —
Eoks minni jeg á samskonar yf-
irlýsingú, ör jeg gef nú fyrir ör-
fáum dögum í Sþ., er formaður
Eramsóknarflokksins kom þar
fram með yfirlýsingu um, að flokk
úr hans styddi ekki ríkisstjórnina.
Það eina sem er nýtt í þessari
þingsályktunartillögu er því það,
•að Eramsóknarflokkurinn telur
ekki unt að koma á annari — a.
m. k. ekki betri — ríkisstjórn,
eins og fram kom í ræðu flutnings
manns. i *
Er forsætisráðherra hafði lokið
máli sínu talaði Jónas Jónsson
mokkur orð. Síðan tók Svembjörn
Högnason til máls. — 'Cfefst tæki-
færi síðar til að minnast á ræðu
hans. Forsætisráðherra svaraði
honum örfáum orðum. Síðan var
umræðunni lokið, en atkvæða-
greiðslu frestað.
Stjórnarskiít-
in á Spáni
¥3 áðherraskiptin á Spáni virð-
ast hafa komið Möndulveld-
unum á óvart. Þýsku blöðin segja
þó, að þau hafi vitað ástæðuna.
Frá Spáni berast þær fregnir
■eftir blaðinu Arriba, að ráðherra-
skiptin tákni enga breytingu á
stefnu stjórnarinnar, hvorki inn
á við, nje út á við.
í löndum bandamanna er álitið,
■að skiptin hafi orðið af innanlands
ástæðum.
Ráðskonu
vantar til Keflavíkur. Mætti
hafa með sjer stálpað barn.
Þyrfti helst að geta útvegað
aðstoðarstúlku. Tilboð merkt:
„Keflavík“, sendist blaðinu.
#
BúOarstúlka
óskast í verslun í nágrenni
Reykjavíkur. — Húsnæði og
fæði getur fylgt. — Umsókn
sendist blaðinu merkt:
arstúlka“.
VUGDYSINGAI\
verSa aO vera komnar fyrlr kl. 7
kvöldiS á^ur en blaiiiB kemur út.
Ekki eru teknar auglýsingar 'þar
eem afgreIBslun..i er ætlaB aB vlsa 4
augljtsanda.
TilboB og umsöknir eiga auglýs-
endur aB sækja sjálfir.
BlaBiB veitir aldrel neinar upplýs-
tngar um augiý ndur, sem vilja fá
akrlfleg svör viS auglýsingum sinum.
Ráðstefna
Bandamanna
í Cairo
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Keuter.
Italska frjettastofan í Róm
hefir það eftir sænska
blaðinu Aftonbladet, skv.
frjettum sem það fjekk frá
London, að þýðingarmikil ráð
stefna Bandamanna, er stóð
í tvo daga, hafi verið haldin
í Cairo.
Þeir sem þátt tóku í henni
voru Alexander hershöfðingi,
hinn nýi yfirmaður hers
Bandamanna í hinum nálæg-
ari Austurlöndum, yfirhers-
höfðinginn í Persíu og Irak
og nokkrir breskir og amerískir
hershöfðingjar. — Hinir síðast
töldu komu til Cairo eftir langa
loftferð yfir Mið-Afríku.
Vaxandi mótspyrna
Dana gegn Þjóð-
verjum
NEW YORK í gær.
Mótspyrna Dana gegn Þjóð
verjum fer sívaxandi.
í skeyti, sem United Press
barst frá Stokkhólmi, er skýrt
frá því, að ceelulose- og ceelop
haneverksmiðja hafi verið
sprengd í loft upp. Álitið er, að
hjer sje um skemdarver að
ræða. —
Danski forsætisráðherrann
kvað segja, að skemdarverk
sjeu orðin ískyggilega tíð og
alvarleg;
Loftárásir á Jap-
ana i Kína
CHUNGKING í gær.
Stórfendar loftárásir á stöðv
ar Japana hafa verið
gerðar af amerískum flugvjel-
um, og standa þær í sambandi
við sókn Kínverja.
Amerísk sprengjuflugvjela-
sveit varpaði sprengjum á aðal-
stöð Japanska hersins í Nan-
chang.
I miðju Kianchi-fylki eyði-
lögðu flugvjelar eimreið, er dró
herflutningalest, og skemdu
járnbrautarlínur, byrgðar-
skemmur og söktu að líkindum
7 japönskum fljótaskipum.
Frá í S. í.
Þessi fjelög hafa nýlega
gengið í í. S. I.:
Knattspyrnufjelag Hafnar-
fjarðar, fjelagatala 45. U.M.F.
Æskan, Miðdalahreppi, fjelaga
tala 40, form. Hjörtur Einars-
son. —
★
Stjórn 1. S. I. hefir skift
þannig með sjer vverkum:
Ben. G. Waage forseti,
Erlingur Pálsson varaforseti,
Kristján L. Gestsson gjaldkeri,
Þórarinn Magnússon ritari og
Frímann Helgason skjalavörð-
ur. —
Bandaríkjaher
í Kongo
Uugfing vanfar
SPAAK, forsætisráðherra
belgisku stjórnarinnar í
London hefir tilkynt, að amer-
ískt herlið sje komið til Kongó-
nýlendunnar í Afríku.
Ennfremur tilkynti hann, að
mikil áhersla yrði lögð á að
auka gúmmí-framleiðsluna í
nýlendunni.
Dagbóh
•••naaoiOöii
Messað í dófiikirkjumii á morg-
un kl. ll,,sjera Friðrik Hallgríms-
son.
Hallgrímsprestakall. Messað í
Austurbæjarskólanum kl. 2, sjera
Sigurbjöm Einarsson.
Elliheimilið Grund. Messa kl. 2.
Dómprófastur setur sjera S. Á.
Gíslasön inn í embættið.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messað
á morgun kl. 2. Sjera Árni Sig-
urðsson.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Messað
á morgun kl. 5. Sjera Jón Auð-
uns.
í kaþólsku kirkjunni í Reykja-
vík, hámessa kl. 10 og í Hafnar-
firði kl. 9.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mess-
að á morgun kl. 2. Sjera Jón
Auðuns.
Messað að Bessastöðum á morg-
un kl. 2. Sjera Garðar Þorsteins-
son.
40 ára hjúskaparafmæli eiga í
dag Hjörleifur Þórðarson frá
Hálsi og Sigríður Rafnsdóttir,
Grettisgötu 5.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af sr. Bjarna
Jónssyni, ungfrú Þorbjörg Jóns-
dóttir og Árni Guðmundsson sjó-
maður. Heimili ungu hjónanna er
á Skólavörðustíg 38.
f greininni um kveldskóla K. F.
U. M., í blaðinu í gær fjell af
vangá niður í upptalingu náms-
greina, enska og reikningur. Þær
námsgreinar eru kendar í byrjun-
ardeild auk þeirra, sem áður voru
greindar.
Glímufjelagið Ármann heldur
sína góðkunnu árlegu hlutaveltu
sína þann 13. þ. m. í í. R.-húsinu,
sem íþróttafjelag Reykjavíkur
hefir góðfúslega lánað. Söfnun
muna er nú þegar hafin og heitir
fjelagið á alla velunnara þess að
taka vel á móti sendimönnum er
þeir koma í erindagjörðum fyrir
hlutaveltuna.
Útvarpið í dag.
19.25 Hljómplötur: Þjóðlög frá
ýmsum löndum.
20.00 Frjettir.
20.30 Hljómplötur: Valsar.
20.45 Upplestur: „Maður frá Brim-
arhólmi“, sögukafli (Friðrik Ás-
mundsson Brekkan rithöf.).
21.10 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó.
21.35 Hljómplötur : Gamlir dansar
21.50 Frjettir.
4 manna
Fðl ksblll
til sölu og sýnis í dag á |
Vesturgötu 50, kl. 1—4.
til þess að bera Morgunblaðið til kaupenda
I nokkurn hluta af Kleppsholti. — Hátt kaup.
Aðalumboðsmenn á íslandi
Frlðrik Bertelsen & Go. b.f.
Vesturgötu 17. — Símar: 2872. 1858.
Maðurinn minn og faðir okkar,
MARKÚS EINARSSON, stórkaupm.
andaðist í gærmorgun.
Málfríður Ólafsdóttir, Einar Markússon, Ólafur Markússon.
ÞaJð tilkynnist vinum og vandamönnnm að
STEFÁN BJÖRNSSON,
prófaetur á Eskifirði, andaðist að heimili sinu þann 3. þ. m.
Aðjstandendur.
Sonur okkar,
BJARNI HALLDÓRSSON,
andaðist þann 31. ágúst, staddur í Fleetwood á Englandi.
Margrjet Þórðardóttir, Halldór Aúðunsson og börn.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN MARÍA ÁSCEIRSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. þ. m. og
hefst á heimili hennar, Smyrilsveg 22, kl. 1,15 e. h. — Athöfn-
inni verður útvarpað.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðbjartur Jónsson, beykir.
Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og jarðarför,
móður minnar,
GUÐRÚNAR ÍVARSDÓTTUR.
Bjarney Bjarnadóttir, Þorkell Sigurðsson og börn.
Alúðarþakkir til allra er vottuðu mjer samúð við fráfall
og jarðarför föður míns,
BRYNJÓLFS JÓNSSONAR
Guðrún Brynjólfsdóttir.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför mannsins mins, föður og tengdaföður okkar,
SVEINBJARNAR ÞORSTEINSSONAR,
Sandgerði A.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Elka Sveinbjörnsdóttir,
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir,
Laufey og Þorsteinn Sveinbjörnsson,