Morgunblaðið - 17.10.1942, Síða 2

Morgunblaðið - 17.10.1942, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 17. okt. 1942. Rússar yfirsefa hluta af Sfalinsrad Alvarlegar horf ur á Guadalcanar Japanar skjóta á fltig- völl eyjarínnar Barist í lofti, á landi og sjó Washington í gærkv. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TILKYN'NING flotamálaráðuneytisins í Was- hington í kvöld er á þá leið, að Japanar hafi nú komið miklu liði á land á Guadalcanar. Hefir lið þetta fallbyssur meðferðis, og heldur uppi skot- hríð á stöðvar Bandaríkjamanna. Sagt er f tilkynningunni, að .Japanar bíði mikið t.jón manna ,og hergagna, en gera ákveðnar tilrannir til þess að ná þessari þýðingar mikiu stöð á sit.t vald. Amerískir hermenn, sjóliðar og landgöngu- liðar berjast uú af alefli til þess .að stöðva framsókn Japana. Og í iofti, á Iáði og legi. st.endur nú þarna liin grimmasta viðureign. Bardag- ar hefj- ast yfir Dakar LOIíBON í gærkveldi. ýska frjettastofan hef ir J»að eftir fregnum frá Vichy. að „hernaðar- aðgerðir hafi byrjað yfir Dakar“. — Þýska útvarp- Sð gaf engar frekari skýr- ingar á þessari stuttorðu fregn. Varla getur verið um annað að ræða hjer, ef fregnin hefir við rök að styðjast, en að Bandamenn hafi hafið hemaðaraðgerð ir í þeim til gangi að ná Dakar á sitt vald. Fregnir frá London á miðnætti hermdu, að ekk- ert vaeri vitað þar um þess- ar hemaðaraðgerðir, ann- að en það, að Vichy-stjóm in tilkynnti, að franskur flugmaður hefði fallið í loftbardaga yfir Dakar s.l. sunnudag. Orrustan um Malta 1 tilkynningu bresku her- -*■ stjómarinnar í Cairo segir í gær, að flugherir möndulveld- anna haldi stöðugt uppi hörðum árásum á eyna Malta, og hafi í dag tekið upp þá nýbreytni, að nota * orustuflugvjelar með sprengjur til árása. Kom mik- ill fjöldi Messerschmitt-orustu- flugvjela til árása í gær, og voru tvær þeirra skotnar niður. Síðar gerðu JunkersHsprengjuflugvjel- ar aðra árás, varðar ítölskum or- ustuflugvjelum. Spitfire-orstu- flugvjelar skutu þá niður tvær á- rásarflugvjelar, en ein Spitfire vjel var eyðilögð. Flestar voru flugvjelarnar neyddar til þess að sleppa sprengjum sínum í sjóinn, segir í tilkynningunni, og varð ekkert tjón á hernaðarstöðvum á eynni. Þýskar frjettir herma aft ur á móti, að tjón hafi orðið mik- ið, og að 8 breskar orustuflug- vjelar hafi verið skotnar niður. D-LISTINN er listi Sjálf- stæðismanna. Fridtjoí Nansen Ijelng stofnað í London Aafmælisdégi Fridthiofs Nan- sen var í London stofnað- nr fjelagsskápiir, sem hefir það markmið að haldá lifandi minn- ingunni um Nánsen sem laudkönn uð, vísindamann og þjóðabanda- lagsfrömuð, og að viiina að þeim mannúðarhugsjónum, sem Nansen harðist fyrir, og hinni alþjóðlegu friðarhugsjóu, sem hann ól í brjósti. - Var prófessor Jakob S. Worm-Múller kosinn formaður fjelágsskapai- þessa, en varafor- maður Noel Baker. aðsl oðarráð- herra. Nætnrvörðnr er í Reykjavíkur Apóteki. Tuttugu og sjii sprengjuflug- 'vjeiár Japana háfa j á síðasta söl- arhi'ing ráðist á flugvöllinn á Guadaleanár, ög ank þess, haldá japönsk lierskip uppi skothríð á hann við og við. Amerískar flug- vjelar berjast einnig sem þær mega, og brennandi skipsflök áf jaþönskum skipnm 'eru á reki um- hverfis e.vna, eða liggja í fjöru- borðinu. Skothríð japanskra herskipa, sem eru fyrir norðan eyna, er mjög hörð. Tundnrskeytabátar Bandaríkjamanna rjeðust á þessi skip, og hittu eitt. st.órt, beitiskip með tuudurskeyti. Þá kefir sjest til japanskra flotadeílda víðsveg- ar milli eyjanna, einkuin að snð- austan. Nokkrar skemdir hafa orðið á stöðvnm Bandaríkjamanna af árásum Japana, og ein orr- ustuflugvjel amerísk fórst í loft- orrustu. Steypiflugvjelar Banda- ríkjamanna gerðu loftárásir á skip Japana, er nálguðust eyna. Mikið tjðn I of- viðri á Ojúpavlk Frá frjettaritara vorum í Djúpuvík. I síðastliðinni viku gerðí hjer * afspyrnurok af norðaustan og snjókomu, og stóð það veður látlaust í tvo daga. Mikið tjón varð af völdum ó veðursins. Fje fennti víða,. Þak fauk af hlöðn í Naustavík. Á Kúvíkum brotnaði bryggja hjá Carl Jensén kaupmanni. Vjelbótinn Þórólf rak upp á svonefndnm Hekluklettum. og brotnaði haun þar í spón. Eigandi bátsins var Sigurður Pjetursson. Á Káldrananesi rak vjelbátinn Sægamm upp, og brotnaði hann mikið. Uogir Siáifstæðismenn! Það er okkar að | móta framtíðina á morgun u ngir Sjálfstæðismenn í Reykjavík! i Á morgun fáum við tækifæri til þess að sýna í verki | vilja okkar og áhrif til þess að auka þeírri stefnu, sem | við höfum helgað fjelagssamtök okkar, brautargengi í | höfuðstað landsins. | Fjelag okkar, Heimdaliur, hefir nú í rösk 15 ár haldið 1 á lofti hugsjónum Sjálfstæðisstefnunnar meðal unga fólka 1 ins í Reykjavík. § Markmið Heimdallar hefir verið og er: 1 „að berjast fyrir þjóðlegri og víðsýnni framfarastefnu | í landsmálum, með hagsmuni allra stjetta og öfluga | sameiningu þjóðarinnar fyrir augum. | Grundvöllur stefnu fjelagsins er frelsi og sjálfstæði | þjóðar og einstaklings, sjereignarskipulag og jafnrjetti | allra þjóðfjelagsþegna“. Við berjumst fyrir þessum hugsjónum á morgun! Heimdellingar! | Látið ekki þurfa að spyrja eftir ykkur á morgun! Hvar sem þörfin er , þar er ungur Sjálfstæðismaður! | Sýnið kommúnistunum, sem nú ætla að skáka í skjóli | óvanalegra aðstæðna og óskapast í nafni ánauðar og I niðurrifsstefnu sinnar, að Sjálfstæðisæskan er sú djarf- | huga baráttusveit, sem hrindir af sjer hverri tilraun | óþjóðlegrar byltingarstefnu til þess að grafa undan fram | tíðar öryggi þjóðfjelagsins. Sýnið villuráfandi Þjóðveldismönnum, sem boða „frjó- | magn nýrrar tíðar“ í gerfi gamalla Framsóknarmanna, § að þið hafið skömm á slíkum loddaraskap. Ungir Sjálfstæðismenn! Á morgun verður hvergi opið skarð í okkar sveit! Vinnum málefnum okkar og stefnu eftir mætti! STJÓRN HEIMDALLAR. JlllllflllllllHIIUIIIMItimillllliUlltlllllllMUlliillllllllUIUIItlllllllÍllllllllltUMimilOlllltlllHUIIIIItllllllUMtlllllHlltimtlHflHllimillll Þjóðverjar hóhi ógurleg áhla up í gær Sókn Timoshenko bar ekki árangur 0LLUM fregnum ber saman um, að úrslita- átökin i orrustunni um Stalingrad sjeu nú hafin. Þjóðverjar hafa með miklum loft- árásum og skriðdrekaáhlaupum, brotið sjer leið að Volgu á breiðu svæði, og hafa, auk fraktoraverksmiðjanna miklu, einnig tekið hinar geysistóru skriðdrekaverksmiðjur „Rauði október“. Rússneski herinn verst hvarvetna af megni, en hefir þó orðið áð láta undan síga. Þá herma fregnir, að gagnsókn Timoshenkos mar- skálks, fyrir norðvestan borgina, hafi enn ekki boriY þann árangur, að hún geti Ijett undir með verjendum borgar- innar. Lundúnaíregnir hermdu í gær, að Stalin hefði kallað helstu ráðgjafa sína á sinn fund, til þess að ræða ástandið. Pregnir frá Moskva herma, að Þjóðverjar hafi byrjað sókn sína með ógurlegri stórskotahríð. Síðan gerðu 1500 sprengjuflugvjelar árás, sem stóð í hálfa aðra klukku- stund. Síðan gerðu Þjóðverjar áhlaup með 100 skriðdrek- um, og fylgdi fótgönguliðið, sem Moskvafregnirnar herma, að hafi verið 25000 manns, á eftir þeim. Fyrir sunnan Novorossisk, nálægt Tiíapse, segjast Þjóðverjar hafa umkriagt rússneskt lið. Bússar segjast hrinda öllum áþlaupum Þjóðverja á Mozdoksvæðinu. Þá segjast Iiússar hafa tekið virki = Þjóðverja á Briansksvæðinu. TJm bardaga á öðrum hlutum austur- | vígstöðvanna er ekki getið. | ★ Fregnir á miðnætti í nótt hermdu, að Rússar hefðu | yfirgefið hluta af Stalingrad.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.