Morgunblaðið - 18.10.1942, Blaðsíða 2
2
MORGUNBjLAÐIÐ
Sunnudaffur 18. okt. 1942.
Kjósið D-listann
Kjósin snemma fi dag
Kosningin hefst kl. 10
árdegis í Miðbæjarskól-
anum og Iðnskólanum
Kosningaskrilstofa Sjálístæðisflokksins
D-listans
er fi Varðarhúsinu
Símar eru þessir:
Bflaafgreiðslan 1125 (6iiouij
Upplýsingaskrifstofan 1400 (3 iinuc)
SJÁLFBQÐALIÐAR.
Sjálfboðaliðar við kosningarnar eru beðnir að mæta stund-
víslega á tilsettum tíma, hver á sínum stað.
BÍLAR.
Þeir Sjálfstæðismenn, sem ætia að lána bíla við kosn-
ingarnar, eru beðnir að koma með þá að Varðarhúsinu
(suðurdjff) til skrásetningar kl. 8/2 árdegis í dag.
FULLTRÚAR SJÁLFSTÆÐISFJELAGANNA.
Fulltrúar Sjálfstæðisfjelaganna og aðstoðarmenn þeirra,
eíu beðnir að mæta í Oddfellowhúsinu kl. 8l/2 árd. í dag.
LEI5ÖBEININGAR FYRIR KJQSENDUR:
Kosningaathöfn Sjálfstæðismanna er í raun og veru inni-
falin í því einu að setja kross framan við bókstafinn D
á kjörseðlinum.
Rússar missa meira
af Stalingrad
Hörfuðu úr einu hverfi
borgarinnar í gær
FREGNIR frá Moskva hermdu í gærkveldi, að
Rússar hefðu orðið að hörfa til nýrra varn-
arstöðva í Stalingrad í gær. Beittu Þjóð-
verjar sem fyrr, stórskotaliði, flugliði, skriðdrekum og
fótgönguliði í sókn sinni, og leiddu áhlaupin til undan-
halds Rússa úr einu hverfi borgarinnar.
Þýska herstjórnin sagði í gær, að Þjóðverjum hefði
tekist að færa út yfirráðasvæði sitt í verksmiðjuhverfum
Stalingrad, og hefðu þeir meðal annars tekið þar mikla
skotvopnaverksmiðju, sem nefndist „Rauða götuvígið“.
Þá segir herstjórnin frá því, að Þjóðverjum hafi tekist að
umkringja nokkurt rússneskt lið fyrir norðvestan borgina,
og ennfremur, að rúmenskum hersveitum hafi heppnast
að ná á sitt vald nokkrum hæðum nálægt Tuapse.
Rússar segjast hafa stöðvað sókn Þjóðverja við
Mozdok og tala þar að auki um harða bardaga við Tuapse.
Frá öðrum vígstöðvum Rússlands er ekkert tíðinda.
Englr bardagar
við Bakar
Haft er eftir opinberum
heimildum í Vichy, að
orðrómur um viðureignir ná-
lægt eða í Dakar, hafi ekki við
nein rök að styðjast, og hafi
flugmaður sá, sem tilkynt var
að farist hefði s.I. sunnudag,
beðið, bana er hann var á könn
unarflugi fyrir sunnan Dakar.
I London er Iitið svo á, að
fregnir um bardaga þarna sjeu
frá þýskum rótum runnar.
Dönsku sfálfboða-
liðarnír farnlr (il
Rússlands aflur
Kjósandi má EKKI strika við eða gera nein merki á þá
lista, sem hann ætlar ekki að kjósa. Ef hann gerir það,
verður kjörseðillinn ógildur.
Ef kjósandi treystir sjer ekki til að greiða atkvæði sjálfur,
sakir sjóndepru eða óstyrkleika, getur hann valið einhvern
úr kjörstjóminni sjer til aðstoðar.
- - w—.n-K- -C* +***>. K 1- -v ^ J
Munið: D-Sistann
snemma
StOðugar lotl-
árásir á Malta
T oftsókn möndulveldanna
*-* gegn eynni Malta heldur
enn áfram, og komu flugvjelar
þeirra til árása allan daginn
í gær.
Loftsóknin hefir nú staðið í
sex daga, og hafa möndulveld-
in samkvæmt tilkynningum
Breta, á þeim tíma mist 106
flugvjelar, þar af 50 sprengju-
ílugvjelar. Sjálfir segjast Bret-
ar hafa mist 31 Spitfireflugvjel
ar á þessum tíma. Skemdir
segja Bretar hafa orðið fremur
/itlar í þessum árásum.
t tilkynningum möndulveid-
anna um þetta, kveður nokkuð
við annan tón. Segir þar, að
skemdir hafi orðið ógurlegar á
eynni, og flugvjelatjón Breta
segja þeir meira en sitt eigið.
B erlinarfregnir í gærkveldi
hermdu, að dönsku sjálf
bóðaliðarnir, sem komu heim
til Danmerkur í orlofi á dög-
junum, hafi nú aftur verið send
ir til austurvígstöðvanna. Eins
og getið hefir verið í fregnum,
varð allmikill uppsteytur vegna
^heimkomu þessara manna til
Danmerkur.
Hjónaband. í gær vóru gefin
saman í hjónaband uttgfrú Stein-
]jóra Þorbjörg (luðlaugsdóttir og
Jóhann Lárusson starfsmaður hjá
Olgerðinni Egill Skallagrímsson/
Heimili þeirra er á Hamarsbraut
<), Hafnarfiréi.
Bandarlkjamenn
hopa hvergl á
Guadalcanar
ótt mikið sje barist á Gua-
*• dalcanar, hefir enn ekki
komið til allsherjar átaka milli
landherjanna. Mikið er aftur á
móti barist í lofti og enn halda
japönsk herskip uppi skothríð
á stöðvar Bandaríkjamanna af
sjó. Fullyrt er, að lið það, sem
Japanar komu á land á eynni,
sje allmikið.
Opinber tilkynning frá flota-
málaráðuneytinu í Washmgtcm
seint í gærkveldi, sagði, að
tjón Bandaríkjamanna í þess-
um viðureignum væri lítið enn
sem komið er, en mætti búast
við að það ykist. Tilkynningin
segir líka, að Bandaríkjaheir-i
menn á Guadacanar verjist nú
hættulegum áhlaupum Japana,
Tilkynningin tók einnig fram
að japanskt beitiskip hefði orð-
ið fyrir tundurskeyti í gær, og
einnig hefði flutningaskip Jap-
ana verið laskað.
Annars eru fregnir allar af
þessum viðureignum mjög óljós
ar, en flotamálaráðuneytið í
Washington tók það fram í til-
kynningunni, að ljósari fregnir
yrðu gefnar eins fljótt og hægt
væri.
D-LISTnöir er listi Sjálf-
stæðismanna.
Hjónaefm.. Nýlega liaía opinber
að trúlofun sína, ungfrú Sigríður
Gunnarsdóttir, Hafnarfirði og
Wr. J. Cepanec, ,U. S. Military
Police.
Miniiiinn»»i*n*iniiiiiimimuiimiuii!ii»niinniiiimiHiniiniiiiini«i»niiiiiiinii«i**i»*i«»i»n»miniiiimiiiii»iiiiiiiMH«Hnni»»»wn*»
Fregnmlði frá Alþýðublaðinu:
| Samkvæml lieimild >
| Jóns Eyþórssonar!!! j
ALÞÝÐUBLAÐIÐ gaf út fregnmiða í gærkvöldi. |
Efni hans var, að við Pálmi Hannesson rektor |
hefðum samþykkt að banna útvarpserindi Jó- |
í hanns Sæmundssonar. Blaðinu þótti svo mikill fengur að fregn |
í þessari, að meira þótti við þurfa að koma henni út, en þá er |
| mestu heimstíðindi gerast. Og þó er heimildarmaður Vrjettar- §
1 innar sá maður, sem blaðið hefir borið þyngstum sökum og |
1 talið ómerkilegastan meðal* andstæðinga sinna undanfama f
I daga, formaður útvarpsráðs, Jón Eyþórsson.
Hjer þarf ekki að fjölyrða um frjettaflutning þenna, |
1 sem ber með sjer að hann er ósannur. Því jafnvel hinir fljót- |
1 færnu Alþýðublaðsútgefendur hljóta að skilja, að Jón Ey- §
i þórsson hefði ekki sólarhringum saman þagað yfir þessari |
i fregn ef sönn væri |
Og sama máli gegnir um yfirlýsingu þá, er útvarpsráðs- f
| formaðurinn birti í gærkveldi. Hann hefði komið þeirri yfir- |
I lýsingu á framfærí fyrr ef hann hefði talið sjer henta. 1
Frjettaburður Jóns Eyþórssonar í Alþýðublaðið og út- |
I varpið eru rangfærslur og ósannindi. Skal að öðru leyti vísað f
1 til greinar um formann útvarpsráðs á öðrum stað hjer í blað- |
m
Valtýr Stefánsson.