Morgunblaðið - 05.12.1942, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.12.1942, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. des. 1942. ti JflotgtmMaMd Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Rltstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 6.00 á mánuði innanlands, kr. 8.00 utanlands í lausasölu: 40 aura eintakið. 50 aura með Lesbók. Sigríður Ófeigsdóttir á Skagnesi - Minning Góð ALLIR virðast sammála um, að margskonar erfiðleikar og þrengingar muni steðja að þjóð vorri, þegar stríðsvíman er runnin af henni og blákaldur veruleikinn blasir ,við. Spurn- ingin er því sú, hvernig þjóðin verður undir það búin að mæta hinu breytta viðhorfi. Óneitanlega horfir ekki vel í því efni enn sem komið er. Dýr- tíðarmálin, sem allt veltur í rauninni á eru óleyst ennþá. En það er víst, að fái þau mál ekki farsæla lausn nú alveg á næst- unni, þá verður ekkert mótstöðu afl til hjá þjóðinni, til þess að mæta örðugleikunum. En sorg- legt væri til þess að vita, ef svo skyldi fara, að mestu uppgripa ár, sem yfir landið hafa. kom'ið,' yrði að lokum fjötur um háls þjóðarinnar. Væri þá illa á mál um haldið. Vonandi hendir ekki slík ógæfa þjóðina. ★ Tvö nytjamál hafa komist á dagskrá síðustu dagana, sem bæði miða að því að búa í hag- inn fyrir framtíðina. Annað er frumvarp Sigurðar Kristjáns- sonar. um efling Fiskveiðasjóðs. Hitt er hugmynd Ásgeirs Þor- steinssonar verkfræðings, um stofnun og rekstur áburðarverk smiðju. Með frumvarpi S. Kr. er stefnt að því, að gera útvegnum Meift að endurnýja fiskiskipa- flotann eins fljótt og ástæður leyfa. Þetta er hið mesta nauð- synjamál og mjög aðkallandi. títvegurinn þarf að fá ný og hetri skip, ef hann á að geta orðið samkepnishæfur að stríð- inu loknu. ★ Allir eru sammála um, að nýtt stórfelt landnám eigi að ■ hefjast í sveitum landsins straxi - að stríðinu loknu. Erfiðleika- og i þrengingaárin, sem þjóðin átti við að etja fyrir stríðið, sýndi mönnum og sannaði, að besta úrræðið til bjargar í slíku ár- ferði, er einmitt nýtt landnám í ■ sveitunum. Stórvirkasti þáttur- inn í slíku landnámi er áreið- anlega áburðarverksmiðja í landinu sjálfu, þar sem bænd- um er trygður áburður við því verði, sem búrekstur þeirra þolir. Enginn getur gert sjer . grein fyrir því nú, hve stórfeld byltingin yrði í ræktun sveit- anna, ef altaf væri til í landinu nægur áburður með hagfeldu verði. Og það mundi skapa nýtt landnám. Það myndi fjölga stór lega býlum í sveitum landsins. Þetta eni framtíðarinnar mál, sem leggja á grundvöllinn að nú þegar, svo að hægt sje að hefjast handa um framkvæmd-i iir strax og ástæður leyfa. Hinn 29. oktbr. 1942, andaSist á heimili sínu, Skagnesi í Mýrdal, ekkjan Sigríður Ófeigs- dóttir. Hún var fædd 14. mars 1871 á Skagnesi og ólr þar allan sinn aldur, rirm 71 ár. Tvítug að aldri giftist hiin Jóni Jónssyni Tómassonar í Skammadal, hinum dnglegasta manni og góðum dreng. Settust þau þá að hjá Magnúsi hónda Runólfssyni, sem þá var orðinn aldurhniginn og bjó í Vesturbænum á Skaganesi. Hafði Sigríður alist þar upp, og tóku þau 'svo við jörðinni þar og búi af Magnúsi. Þau Sigríður og Jón eignuðust 12 börn, og eru 8 þeirra á lífi og uppkomin, sem eru þessi: Jórunn, dvelur vestan- larids (,á Birkibóli). Eyjólfur, sem stóð fyrir biíi á Skaganesi, og ér þar enn. Jóhanna Hólmfríður á heima í Reykjavík. Jón gifturi Guðrúnu Markúsdóttur, á heima við Hafnarfjörð. Steinþór Elías; giftur Láru Guðbrandsdóttur, búa þau á Skagnesi. Ólöf Arnbjörg til heimilis í Reykjavík. Aðalsteipn og Ólöf Aðalheiður bæði á S'kag- nesi. Þessi systkini eru öll hin prúð- mannlegustu, dugleg og 'myndar- leg. Sjerlega bókhneigð og vél að sjer. Meðal látinna^ barna Skagnes- h.jóna, var Sigurgísli sem drukkn- aði af ,,Apríl“ 1930, hinn hraúst- asti sjómaður og góður drengur. Ljet hann eftir sig ekkju og 4 börn. — 1936 andaðist og Maguús, skáldmæltur og góðum gáfum gæddur. Ljóðabók hans kom út 1937, sem mörgum fanst myndi verða álitlegur vísir til annars meira. En kallið kom þá snögg- lega. ★ Hjónabaud þeirra Sigríðar og Jóns, var ástúðlegt, en árið 1929 andaðist Jón eftir langvinna van- heilsu. Lá því heimilisstjórn öll þau erfiðu ár á Sigríði og börnum hennar, svo fljótt sem þau fengu Sigríður Ófeigsdóttir. þroska til. Árið 1929 kaupir hún ábýlisjörð sína, senx var þjóðjörð, og hefir síðan hver endurbótin annari nxeiri og prýðilegri, verið, gjörð á þeirri jörð. Heimilið var samstilt elskunnar og starfseminn- arfjelag, þar sem móðirin var alt í öllu, en þó svo þrúðmannlega að fult tillit var gefið sjei’skoðana systkinanixa, senx í eðli síiíu vora öll sjálfstæð og ákveðin i skoð- unum. Og kapps var kostað til nxenntunar þeirra og mánndóms, svo srniðir urðu þeir drengirnir og byggðu, að hennar í’áðum alt xxpp á Skagnesi, svo til fyrirmynd ar er. Sömuleiðis voru handbrögð dætrauna — að til verðlauna vann tóviním jieiri'a. Þessi ný látna kona, Sigi'íður, var og sjálf, þannig gerð, að hana má telja með fremstu g'áfxxkonum þessa lands. Hógvær og föst í skoðunum, djörf og óhykandi í sókn og vörn, um málstað sinn og fríð og ljúf í umgengni. Hún var vel hagmælt og bar heita ættjarðarást í brjósti. — Á bókmenntasviði aldeilis frábær — af þeirri kopu til, sem bóklestur varð áð iðka í frístundum, og stjórna umfangsmiklum fram- kvæmdum, með lítið verðmagn í höndum. Það var hennar yndi að ræða um ritverk, bæði forn og’ný, og þar stóð hún við sínar skoðanir með djúphugsuðum rök- semdum og djarfleik. Þetta lað- aði ýmsa hugsandi menn að heim- ili hennar, svo oft var þar glatt í hóp með gestum, senx ásamt börnum lxennar, börnum (sem líka höf'ðix hvert sína sjerskoðanir) sóttu fram með sínar meiningar — á bókmenntalegum grundvelli Hún var mikil trxxkona og leitaðist við að- innræta börnum sínunx og heimilismönnum, þá vissu, að trú- ■lyndi byggðist á guðstrúnni og eilífðarvissunni. í glöðum viixahóp kvað lxún: „Það er gott, að gleðjast hjá góðum hópi vina — og hafa jafnan himnum á hjartans umgengnina“. — ★ Það var almennt sagt í Mýrdal, að Sigríður væri dóttir Magnúsar1 Iiunólfssonar bónda á Skagnesi og Magnús ól hana upp. Þá vildi hann og síðar kamxast við fað- ernið, þegar Sigríður var orðin hans ellistoð. En Sigríður vildi ekki breyta um það, sem móðirj hennar hafði orðið að gera. En móðir Sigríðar var umkomulítilj vinnukona, Sigríður að nafni og ættuð xxi’ Austur-Skaftafellssýslu, j Jónsdóttir Jakobssonar Sigurðssönj ar Bjarnasonar sýslumanns á Ytri. Sólheiixxum o. s. fi*v. Er því móður j ætt Sigríðar Ófeigsdóttur, hin hraustasta og kraftbesta, að fornu — enxla föður ættin, ef rjett er rakin einnig merkileg, — því Magnxxs á Skagnesi var sonur Run- ólfs skálds Sigurðásonar, Ög- mundssonar _ Högnasonar (presta Ávarp fiá Sambandi Isl. berklasjúklinga I fjögur ár höfum vjer heitið * á íslensku þjóðina til full- tingis á fjársöfnunardegi sam- taka voi*ra. Hún hefir brugðist i vel við eins og svo oft áður þeg- J ! ar til hennar hefir verið leitað ! um liðveislu til stórra átaka í ; heilbrigðismálum vorum. Vífil-i i 1 staðahælið er reist með átaki alþjóðax*, Kristneshælið með sam eiginlegu átaki Norðlendinga fyrst og fremst. Landspítalinn !er bygður upp af fórnfýsi og djarfmannlegu átaki íslenskra kvenna og Kópavogshælið fyrir atbeina eins einasta kvenfje- lags. / Eitt stórvirkið í þessari átaka keð.ju er nú fyrir hendi. Fje- lagssamtök vor beita sjer fyrir því. Til þessa heíir þjóðin bi’Ugð ist vel við áheitum vorum og sýnt, að ennþá er hún búin at- hafna á sviði heilbrigðismál- anna. Það sýna hinir gildu sjóð ir, sem samttök vor eiga yfir að ráða, þótt þeir nægi ekki til framkvæmda enn.* Ennþá eru margir, sem ekki hafa lagt hönd á plóginn. Á þá heitum vjer nú, æðri sem lægri, fjáða og snauða. Allir verða að leggja eitthvað af mörkum, stórar upphæðir eða smáar, eftir því sem efni standa til. Þeir eru margir, sém eiga um sárt að binda, margir, sem gold- ið hafa afhroð fyrir vágestinum „hvíta dauða“, þar er þungur harmur kveðinn að mörgum. — „Eigi skal gráta Björn bónda“, mælti hin stórláta kona eftir fall manns síns, „heldur safna liði og hefna“. Islenskar konur og íslenskir menn, svo best heiðrið þjer minningu ástvina yðar, að þjer ráðið niðurlögum þ-ess fjanda, sem hefir orðið þeim að aldurtila. Hefnið harma ykkar með þvví, að leggja fje í Vinnu- heimilissjóð S.Í.B.S. Gefið minn ingargjafir um vini yðar í sjóð- inn og hvetjið aðra til þess að gera hið sama. En þjer, sem hafið sloppið við ástvinamissi og annað böl, sem berklaveikin veldur í næsta knérunn, verið þess minnugir, að enginn veit hvar berklarnir bera næst nið- ur. Leggið yðar skerf af mörk- um til þess af afstýra þeirri vá sem stendur fyrir dyrum. Flestar þjóðir heims láta nú af höndum meginhluta tekna sinna og geymdan auð liðinna kynslóða í baráttu fyrir frelsi sínu og hugsjónum. I mann- fórnum hefir þjóð vor lagt fram mikinn skerf. En hún hefir feng ið meira fje milli handa en dæmi eru til, þegar aðrar þjóð- ir sjá á eftir dýrustu verðmæt- um sinum í hít manndrápa og eyðileggingar. En hjer er einnig verk að vinna. Leggið fram yð- ar skerf, yðar herkostnað, en PRAMH A SJOTTU SÍÐL Ilögna) og benti margt til þess í skapgerð Sigríðar sál, að hún væri box’in af íslensknxn aðals- mönnum, sterkbyggðum, föstum'S skapi og frjálshyggjandi. — Einn hinna merkustu nágramia Sigríðar sál kvað, er hann frjetti andlát liennar, þessa stöku: „Gáfaða glaðlynda nxóðir, geðbrigðaríka — uni þig ljefe alxxðai'geisli, einbeittrar sálar — því heiðríkt er hverju sem viðn- ar í hugsjóna landi — En aðdimt er oi’ðið á Nesi, við andlátsfregn þína“ — ★ Það er merkilegur æfiferill, slíkra kvenná, sem Sigríðar. Það má segja að samtíðin bjóði henui nýfæddri áðeins aðra hendi sína og hún sje einungis vel þegin af móðirinni, sem í fátækt og uih- komuleysi, gat naumast klætt barnið sitt. Og síðan er hún tebin með valdi af móðiriimi, er hún revndi að koniast með Imna t.il frændfólks síns í aimar sýslu. ITinn rjetti faðir. sem )xó ekki liafði kjark til að garigast við henni, elur hana upp. Ilixn verðxxr augasteinninn hans óg eftirlæti, og ellistoð hans upp komin. Hún gerir ganxla manninum hið ömur- lega ellistiúð, ljett og hugðnæmt. Og hún tekur fátæklega býlið haxxs og sest í það með ágætxxm eigin- manni. Annast fóstru síua Þóreyjn Einarsdóttir, sem alla tíð hafði reynst henni eins og góð móðir. Þá eru lengi á heimilinu 3 ganxlaa- konur, sem húri ól önn fyi’ir, hjúkr aði og leiddi, þær voru aftw oi’ðnar böru, og fengu að loknu sínu erfiða lífsstarfi, að kvecjja síðast í höndum þessarar móður- legu konu, og blessa bana. Þá tóku þau hjónin á sitt tieimiH gamla konu, heilsulitla og ná- skilda Elínu Ingvarsdóttur, og festi húu svo tryggð við biísmóð- ur sína og fjölskylduna. að til mikillar ánægju var og heimilki- prýði. Auk hiima mörgu banxa og uppeldis þeirra, voru margar skyld ur við gamla fólkið, sem Sigríðxzr sál eins og óx við að inna af hendi. Eftir lát eigiiímannsins, stóð aðallega fyrir bxxi með lxenni Eyj- ólfur sonur þeiri’a, eu öll voxm börnin samhuga mn, að styrkja hina góðu nxóður til Jxess ið gera ábúðarjörðina Iiina ixrýðiiegustu. Ber og jörðin sjálf þess vitni- Þar blasir fyrirmyndar byggipg við þjóðbraut, raflýst og ræktun prýðileg. Sigríður sál. var faguraneig og aðlaðandi. Ráðholl þeim er hiiu leiðbeindi, hlý þeim er lxi'm (iknaðt og umkomulausir voru. Hinsvegar skörp og djxxpsett gegn xnótblæstri, svo andstæðingar niár •. allr.i skauta gæta. Ljóð hennar im fög- ur og aflið í þeinx trúarvissan á Guð og mátt hins fagra og þrót.t- mikla í mannlífinu. Sess hennaT, er nú auður. Vandfyllt er skarðið. iGuð blessi minningu hennar. Nágraimi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.