Morgunblaðið - 19.12.1942, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 19. des. 1942.
•lllllllllllllMlllllUlllIIIIIUIIIIIIIIIIIlllllllllUllllllllililllimUIHB
I Grein
i R*y-
j mond
fClapper:
Samgðngubæt-
ur og frtðurinn
iuiHiiiiuuuiunuii
• Hltllllllllllllllllltllt
Dásamlegt fyrirbrigði átti sjer stað
hjer í síðastliðinni viku. Roose-
velt forseti skrifaði Chiáng Kai Shek
hershöfðingja og einni klukkstund síð-
ar v^tr kínverska leiðtoganum í Chung
king afhent nákvæm eftirprentun af
brjefinu.
Útvarpssamband sem jjetta auðveld-
ar sannarlega samband þjóða inilli.
En í raun og veru er það alls ekki
inerkilegra eða mikilvægara en aðferð-
ii þær, seui nú eru nota'ðar til þess
að auka samband milli annara ríkis-
stjóma.
Símtöl milli Hvita iiússins og Down
ing Street 10 í London og Kremlin í
Moskva, era að veröa eins einföld og
símtöl innan Reykjavíkur. Flugvjelin
er einnig að gera samband manna á
milli auðveldara. Churchill hefir tvisv-
ar farið til Washingtou og einu sinni
til Moskva síðastliðið ár- Utanríkis-
ráðherra Rússlands, Molotov, hefir
farið til London og Washington. Flota
foringjar og herforingjar herstjóm-
anna hafa ííðum í’arið á milli landa
Bandamanna.
Þetta stnð er að sjáifsögðu á marg-
an hátt ólíkt hinu fyma og jeg held
að það muni einnig verða margir erf-
iðleikar við samningu friðarins. Að
einu mikilvægu levti verður þetta stríð
ólíkt hinu fyrra, en það er hversu
auðveldlega leiðtogar Bandamanna
geta haft samband sín á milli. Menn-
ímir, sem stjóma þessu stríði, geta
hittst og talað saman og þess á milli
talað saman símleiðis.
Friðurinn í þetta sinu verður ekki
aðeins skjal, sem skrifað verður í em-
hverrí höll bandatnanna og síðan fast
skorðað með undirskriftum. Friðurínn
verðnr að þessu sinni líðandi og sí-
breytilegt ástand, sem mun þarínast
sífeldra umræðna og endurbóta af ‘
Stjómmálamönnum hinna ýmsu þjóða.
Það er ómögulegt að gerður verði fasfc
skorðaður friður eins og sá, sem iór
svo vesældarlega út um þúfur síðast-
liðinn aldarfjórðung.
Jmgar Wendell Willkie og fjelagar
hans komu úr hættuferð sinni, var einn
þeirra svo hrifinn a£ hinum auðveldu
samgöngum, að hann sagði, að það
mundi auðveit fyrir þá Roosvelt for-
seta, Stalin og Chiang Kai Shek, að
halda með sjer fund í Alaska. Enginn
þeirra mundi þnrfa að eyða meira en
einum degi í ferðalög utan síns eigin
lanðs til þess að sækja slíkan fund.
Samvinna sú, sem Bandamenn hafa
náð sín á milli, er að miklu leyti að
þakka því, hversu samgönguleiðir hafa
verið styttar með flugsamgöngum- Nú
er varla meir en þriggja daga ferð
frá Washington til nokkurrar mikil -
vægrar bækistöðvar bandamanna. Við
gernm okkur öll grein fyrir |>ví hverja
þýðingu þetta hefir í stríðinu. En jeg
hygg, að við getum varla ímyndað okk-
ur enn, hversu mikla þýðingu það mun
hafa fyrir friðinn.
Bommcl llýr enn Testur á béglnn
Þýska þjóðin fær
að vita um ósig-
urinn.
HERSTJÓRNARTILKYNNINGIN frá Kairo
í gær skýrði frá því, að hersveitir Rommels
— eða það, sem eftir er af þeim, — væru
enn á hröðum flótta vestur Tripolitaniu, en Bretar fylgdu
fast á eftir og veittu hinum flýjandi hersveitum marga
skráveifuna.
Þá var og skýrt frá því í gær í Kairo, að ekki væri enn
vitað hve márgir þýskir hermenn væru innikróaðir á svæðinu
fyrir vestan E1 Ágheila, sem skýrt yar frá í fyrradag, en unnið
væri a'ð því að úppræta þessar sveitir.
Þýska þjóðin fekk loks í gær
kvöldi að vita um ósigur Rom-
mels í Tripolitaniu. Var viður-
kent að Bretum hefði tekist að
koma liði til strandar fyrir aft-
an víglínu Þjóðverja.
MIKIÐ MANNTJÓN
BRETA
I þýsku frjettunum er sagt,
að mikið manntjón hafi orðið
í liði Breta undánfarna daga og
að þeir hafi misst 42 skriðdreka
á 48 klukkustundum.
Þá segja Þjóðverjar, að Mont
gomery hershöfðingi hafi
neyðst til að hafa hlje á sókn
sinni síðastliðinn miðvikudag á
meðan hann var að endurskipu
leggja lið sitt. Sagði þýska út-
varpið, að það hafi ekki verið
fyrr en á fimtudag, sem Mont-
gomery hafi tekist að hefja
sóknaraðgerðir á ný.
Þá lýsa Þjóðverjar því hvern-
ig þeir hafi hrundið mörgum
áhlaupum Breta er þeir hafi
gert, til að komast að baki her-
sveitum Itala og Þjóðverja.
YFIRRÁÐ BRETA
í LOFTI
í breskum fregnum er þess
getið, að .flugherinn veiti land-
hernum mikinn stuðning og að
Bretar hafi alger yfirráð í lofti.
Segja Bretar að Þjóðverjum
hafi hvergi tekist að gera loft-
árásir svo neinu nemi.
Síðostu frjettlr:
Frakkar vinna
sigar i Tunis
Pað var opinberlega til-
kynt í herstöðvum Gir-
auds hershöfðingja í Norð-
ur Afríku í gærkvöldi, að
Frakkar hefðu náð á sitt
vald þýðingarmiklum stað
skammt frá Pont du Fahs.
—Reuter.
(Pont du Fahs er fyrir
sunnan Tunisborg og get-
ur þessi frjett þýtt, að
Frakkar sjeu að brjótast í
gegn til strandar milli
Tunisborgar og Gabes).
Vaka, I’jelag lýðræðissinnaðra
stúdenta heldur darisleik í Odd-
fellowhúsinu í kvöld.
Báðir aðiljar
fá liðsauka
til Tunis
Enn mest barist
í lofti
<-—■*..
C* rjettaritari Reuters — Dav-
*- vid Brown — sem er með
her bandamanna í Tunis segir,
að svo að seg/a á hverri klukku
stund verði árekstrar milli fram
varðasveita í Tunis í ,,aleyð-
unni“ milli aðalherjanna. Bresk
ar njósnasveitir hafa sótt fram
allt að 25 km aftur f.yrir víg-
línu óvinanna og komið aftur
með mikilvægar upplýsingar.
Þegar kunnugt varð um f lótta
Rommels fóru Þjóðverjar að
leggja jarðsprengjur á stóru
svæði á víglínu sinni. Það má
segja að nú sjé mjög líkt á víg-
stöðvunum í Tunis og var í Eg-<
yptalandi skömmu áður en
Montgomery hóf sókn sína hjá
E1 Alamein.
Anderson hershöfðingi hefir
notað sjer vel að vegir hafa>
þornað og streyma,nú til hans
birgðir og hergögri.
Þjóðverjum hefir einnig tek-
ist að flytja til sín herliðsauka
og hergögn. Fljúgandi virki, er
nýlega eru komin á vettvang í
stórum stíl í Afríku hafa vald-
ið Þjóðverjum miklu tjóni.
I herstjórnartilkýnningu Eis-
enhówers í gærkvöldi er nær
eingöngu talað um lofthernað-
araðgerðir. Þar er skýrt frá
loftárásum, sem Fljúgandi virki
gerðu á hafnarmannvirki í Biz-<
erta og Tunis og frá árásum á
flugvelli. Tvær þýskar sprengju
flugvjelar voru skotnar niður,
en bandamenn mistu enga flug
vjel í þessum loftárásum öllum.
I gærkvöldi var óvina-
sprengjuflugvjel skotin niður
og komið hefir í ljós, að þann
15. desember voru 8 orustuflug
vjelar möndulveldanna skotnar
niður. — Reuter.
Snorri Hjartarson var af bæj-
arstjórn kosinn bókavörður Al-
þýðubókasafnsins á síðasta bæjar-
stjórnarfundi. Hann hefir verið
starfsmaður við safnið undanfar-
in ár. Allmargir úmsækjendur
vorn um stöðuna.
MtimilllfltlllllllUllllllllllllllllllinillllllllllllllll IIIII lllllltllllll 11111111111IIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII IIIIIIIIIUItllilllttlllllllMiUlK
—
| Þýskur hershöfðingi - fangi Breta |
ffitter von Thoma, þýski liershöfSmginn, sem Bretar tókw til §
| fanga er þeir brutust í gegnum rarnart'mur Ttommels vio El Alamein■
| von Thoma var nœstceðsti herforingi hersins í Afríku og hafSi stjórn
| á hendi í fjarteru Rommels■ Hann er nú í fangabúðum í Englandi-
^tllHIIIIIIIMllllHIHtlllllfMlllllMllÍ IIIII ifll.llllM Mll II Itll IIIIIIIHIIIIMIMMIIIIMIMIM1111111111111IIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIMIM1111 ItltllMMir
Hringurinn þreng
ist um Þjóðverja
við Stalingrad
Mikið manntjón í liði Þjóðverja
Eftir Paul Winterton. Moskva í gær.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
R ÚSSAR eru enn að uppræta umkringdar ein-
stakar hersveitir á öllu Stalingradsvæðinu,
sem urðu eftir í hinni miklu sókn fyrir nokkr-
um dögum. Eyðing þessara hersveita er oft erfiðleikum
bundin og að henni tímatöf, en þessar „eftirleitir“ géfa
oft góðan árangur.
Rússay halda frá einni herstöð til annarar. Þjóðver.iar berj-
ast vel, en eru jafnan ofurliði bornir. Það getur ekki haft nein
veruleg áhrif á framsókn Rússa, þótt Þjóðverjar verjist þanníg
á einstaka stað, einangraðir og illa húnir, einkum að matvælum.
Það munaði minstu að Þjóð-
verjum tækist að brjótast út úr
hringnum fyrir suðvestan Stal-
ingrad og er tilraunin mishepn-
aðist var það þess meiri ósigur
fyrir Þjóðverja. Rússar sækja
stöðugt innar í hringinn, sem er
utan um hinar þýsku hersveitir
sem virðast ekki eiga sjer und-
ankomu auðið.
í herstjórnartilkyningu Rússa
í gærkvöldi er ságt frá því, að
skotnar hafi verið niður 19
þýskar flugvjelar og að 8 her-
flutningaflugvjelar hafi verið
skotnar niður í Stalingradhjer-
aði.
HUNDRUÐ
ÞJÓÐVERJA FALLA
I viðbótartilkynningu rúss-
nesku herstjórnarinnar í nótt,
er frá því skýrt, að Rússar hafi
felt hundruð Þjóðverja í gær, í
bardögum í Stalingrad. — I 2
daga bardögum við Rzhev, seg-
ir í sömu tilkynningu, fjellu 500
Þjóðverjar og 6 skriðdrekar
voru eyðilagðir fyrir Þjóðverj-
um.
HJÁ VELIKI LUKI
Hjá Veliki Luki unnu Rússar
nokkuð á og felldu 300 ÞjóifS-
verja. Á öðrum stað voru 26
óvinaflugvjelar skotnar niður.
Þjóðverjar gerðu gagnáhlaup
hjá Mozdok, en þeim var öllum
hrundið.
Konur og börn graíio
liíandi í loftárás
London í gær.
í/1 ONUR og BÖRN, sem voru
að gera jólainnkaup sín í
horg einni á suðurströndinni í
dag, voru grafin lifandi undir
húsarústum, er þýskar flugvjel-
ar vörpuðu sprengjum á versl-
unarhverfi borgarinnar.
Nokkrum hefir þegar verið
bjargað, en unnið er af mesta
kappi við að grafa í rústunum
eftir fólki, sem talið er að sje
undir rústunum, sumt lifandi.
Þýsk sprengjuflugvjel var
skotin niður yfir Sussex-strönd.
Þýskar flugvjelar gerðu aðra
árás á borg eina á suðurströnd-
inni. — Reuter.