Morgunblaðið - 16.02.1943, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. febr. 1943.
jjiniiiifnmimmmiiiiimimimmmMmiiiimmmiiimimimiiiiimimiimiimimiiu.
S (j \ f' . /7 Z7
./’ aayte^a tírit
*4ziýar:
Hnu
Iiimiiiimmmmmmmmii
Hálkan á götunum.
Þ AÐ hefir mörgum orðið
‘J hált á þvi að ganga um
götur bæjarins þessa
dagana. .Jeg orða þetta svona til
þess að gefa sem allra minstar
upplýsingar um veðurfarið á
prenti. Sennilega yrði bæjarstjóm-
ánni kent um ,ef einhver dytti og
alasaði sig. Okkur er svo gjarnt
að kenna yfirvöldunum um alt,
sem miður fer. En hvemig væri
hú að hver maður gerði hreint fyr
ir sínum dyrum? Sumir húseig-
endur gera það og enginn þarf að
úttast að falla fyrir framan þau
hús, en það eru því miður lang-
flestir, sem ekki hugsa um að
gera hreint fyrir sínum dyrum og
af því stafar það, að mörgum verð-
ur hált á götunum um þessar
mundir.
Víða erlendis er húseigendum
gert að skyldu að hreinsa götuna
fyrir framan hús sín og liggja
við sektir ef útaf er brugðið. —
Svipuð ákvæði þyrfti að setja
hjer.
Hinsvegar þurfa þeír, sem eftirV
iit eiga að hafa með götunum fyr-
ir bæinn, að vera vel á verðí fyrir
því, sem betur raá fara um þrifn-
að og öryggi borgarana. — Bera
þarf sand á gangstjettimar, eink-
um í brekkum. Og það er ekki
nóg að gera það á aðalgötunum.
I>að fara lika fótgangándi menn
um úthverfin,
Úm skóhlífar og
yörslu þeirra.
ENNILEGA er mönnum
um fátt eins sárt um
þessar mundir eins og
sköhlífamar sínar. Það er af þeirri
eðlilegu ástæðu, að lítið fæst af
þeirri vöru í bænum, ef hún er
ekki með öllu ófáanleg. — Það
hefir viljað brenna við, að eigna-
rjettur manna á skóhlífum hefir
ekki verið virtur sem skyldi. Það
hefir verið eins og með eldspítur.
Engum finst hann vera að stela
neinu þó hann stingi á sig, eld-
spítnastokk I ógáti. Én nú ér
mönnum alt í eíriu orðið sárar um
akóhlífamar sínar en áður var
«g reyna að gæta þeirra eins og
dýrrnætustu eigna sinna.
Það er því ekki nema eðlilegt,
#8 mönnum sárni, þegar ljettúðug-
lega er farið með svo dýrmæta
gripi, sem skóhlífamar em nú.
Á Hótel Borg var það siður, að
í fatageymslunni voru tvö númer
s
II..IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMI
við hvem snaga. Annað númerið
fjekk maður nm leið og fötin voru
afhent, en hitt púmerið var haft
til þess að setja í skóhlífar, ef
með fylgdu. Nú hefir orðið breyt-
ing til hins verra á veitingahúsi
þessu. Númer eru ekki lengur lát-
irs í skóhlífarnar, svo alt lendir í
ruglingi þegar komið er til að
vitja yfirhafnanna og skóhlífanna.
Maður, sem tapaði skóhlífunum sín
um vegna þessa nýja óskipulags
sagði við mig í gær: „Það virðist
vera svo, að gestirnir geti bara
valið um skóhlífar á meðan nokkr-
ar eru til. Hvað myndu menn segja
ef t. d. væri farið eins að með
frakkana og hattana?"
„Eigið þjer þennan hatt? Viljið
þjer ekki velja 'úr þessum frökk-
um?“
Jeg gat ekki gefið hinum ó-
gæfusama skóhlífarlausa manni
neitt ráð. Hótel Borg hefir aug-
lýsingu, sem allir geta sjeð, sem
inn koma, þess efnis að ekki sje
tekin nein ábyrgð á fötum veit-
ingahúsgesta. Það er sennilega
eina ráðið, að fara þess á leit við
veitingahússtjórann, að hann láti
taka aftur upp hina góðú reglu
að setja númer í skóhlífamar.
Kurteisi í kvik-
myndahúsum.
ÞAÐ er ein tegund kvik-
myndahúsgesta, — sem
ekki kann mannasiði,
kærir sig að minsta kosti ekki um
að beita þeim. Á jeg hjer við fólk
það, sem er síblaðrandi meðan á
myndinni stendur. Venjulegast er
þetta fólk, að segja kunningjum
sínum, sem með því er, frá efni
myndarinnar. Það þarf að láta
ljós sitt skína, sýna að það kunni
útlenskuna. Stundum kann þetta
að vera af þörf vegna þess að sá
er fræðsluna á að hljóta hefir
ekki gagn af myndinni nema með
skýringum.
En þessi upplýsingastarfsemi í
kvikmyndahúsunum kemur ákaf-
lega óþægilega við þá, sem vilja
sitja í friði og njóta myndarinn-
ar. Það kemur ekki ósjaldan fyrir,
að meira heyrist í éinhverjum
manni eða konu fyrir aftan mann
heldur en í leikendunum á leik-
sviðinu. Minsta krafa, sem kvik-
myndahúsgestir geta gert til
þessa fólks er að það tali í hálf-
um hljóðum, ef það þarf endilega
að blaðra rjett á meðan á mynd-
inni stendur.
Ameifkupistlar
FRAMH AF FTMTTJ 8ÍÐU
fram til þess að hjálpa þeim
að vinna friðinn.
Margir hafa trú á æðra
mætti, hvort sem þeir eru kristn
ir, Gyðingar, Múhameðstrúar-
menn eða Hindúar. Þessi hug-<
mynd um æðri mátt er í hug-
um vorum tengd við siðgæði,
rjettlæti og fullkomnari breytni
en oss tekst venjulega að fram
kvæma. Þessi trú á æðri mátt
nær út yfir þjóðarlandamæri
og er það, sem vjer höfum
sameiginlegt með öðrum þjóð-1
um. Þetta andlega samband
og viðleitni eftir hinu æðra,
mun gefa oss kraft til að yf-
irvinna hið illa, og að koma
á fót bjartara og hamingju-<
samara lífi, bæði hjá sjálfum
oss og í öðrum löndum, til
varanlegrar ánægju fyrir alla.
(Meira).
Tunis
FRAMH AF ANNARI SfÐU
er á þriggja vikna tíma. Verk-
'■ fræðingar áttunda hersins eru
j nú að reyna að finna ráð gegn
þessum sprengjum.
ÞÝSKUR HERSHÖFÐ-
ING! FELLUR.
Tilkynt var í Berlín í kvold,
að þýski hershöfðinginn Fis1-
cher sem stjórnaði skriðdreka-
herfylki í Tunis, og sem hafði
verið sæmdur járnkrossinum
með eikarlaufum, hefði fallið
þar í bardaga.
Rl'i§sland
Sfra Halldðr Kolbeins limtryur
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
þess að umkringja fleiri þýsk-i
ar hersveitir. fyrst á Volgu-
en síðar á Don- og nú á Oskol-
svæðinu hafa að mestu leyti
mishepnast. Aðalatriðið fyrir
oss er að valda óvinunum sem
mestu tjóni á mönnum, her-
gögnum og siðferðisþrótti. —
Viðureignin í Rússlandi, er nú
er á þýðingarmesta stigi er
mikilsverður atburður í þessu
stríði. Hún hefir ekki aðeins
fært oss heim allmikið af
brostnum vonum, heldur einn-
ig byrjun að nýjum átökum,
og í þau leggjum vjer ekki
vonsviknir, heldur auðugri af
reynslu en áður“.
Hinn mikli áhugamaður og
góðklerkur, sr. Halldór
Kolbeins á Mælifelli er fimtugur
í dag. Halldór Kristján heitir
hann fullu nafni og ber nafn
frænda síns, Halldórs Kristjáns
Friðrikssonar yfirkennara, er
var einn vorra bestu manna í
skóla og á þingi síðari hluta 19.
aldar.
Síra Halldór er fæddur 16.
febr. 1893 á Staðarbakka í Mið-
firði. Voru foreldrar hans sr.
Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson,
prestur þar, og kona hans Þór-
ey Bjamadóttir stórbónda á
Reykhólum Þórðarsonar.
Síra Eyjólfur Kolbeins og
kona hans áttu 10 börn og var
sr. Halldór elstur þeirra. Dó sr.
Eyjólfur 46 ára gamall frá hin-
um mikla barnahóp (1. mars
1912). Fluttist þá fjölskyldan
suður á Seltjarnames, og sýndi
frú Þórey frábæran dugnað að
koma börnum sínum til manns,
og naut þar til góðrar aðstoðar
sinna elstu bama. Sr. Halldór
var kominn í skóla, þegar faðir
hans andaðist. Stúdent varð
hann 1915, sigldi síðan til Kaup-
mannahafnar og lauk þar heim-
spekiprófí vorið 1916. En guð-
fræðinám stundaði hann hjer
heima í Háskólanum og lauk
prófi 1920 og kennaraprófi sama
ár. Hann var vígður til Flateyj-
árþinga á Breiðaíirði 23. júní
1921 og fjekk veitingu fyrir
brauðinu frá fardögum s. á.
Gerðist hann brátt mikill klerk-
ur og ástsæll af söfnuðum sín-
um. Þar vestra kvæntist hann
26. júlí 1924 Láru Ágústu Ólafs-
dóttur bónda í Hvallátrum á
Breiðafirði, ágætri konu, bæði
um gáfur, bústjórn og alla mann
kosti. Eiga þau 6 mannvænleg
börn og tvö fósturböra. Staðar-
þingum í Súgandafirði fjekk sr.
Halldór veitingu fyrir 7. nóv.
1925. Var hann þar prestur í
15 ár, uns hann fjekk veitingu
fyrir Mælifelli í Skagafirði frá
1. júní 1941. Prófastur var hann
í Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi,
nýskipaður, er hann fluttist
norður.
Sr. Halldór hefir jafnan þótt
ágætur ræðumaður og barnafræð
ari. Marga pilta hefir hann.tekið
til læringar, eins og gerðu hinir
gömlu og góðu lærdómsklerkar.
Bindindismálið hefir ætíð verið
hjartfölgið sr. Halldóri. Hann
var einn af stofnendum st. Min-
ervu í Rvík, en þar var margt
ungra mentamanna, en enginn
þeirra tók Halldóri fram um á-
huga. Hann var ,rf,brennandi I
andanum“ og það er hann enn S
dag. Margskonar trúnaðarstörf-
um hefir hann gegnt í G. T.-
reglunni, og regluboði stórstúk-
unnar var hann 1920 á Norður-
og Austurlandi.
Halldór hefir víða farið í þágu
reglunnar, og er happ fyrir
Skagfirðinga að hafa fengið
hann. Heill og blessun fylgi
þeim fáu mönnum í landi voru,
sem altaf eru brennandi í and-
anum, B.
Bí II
Vil kaupa góðan 5 manna
bíl. 4 manna gæti komið til
□ greina. Tilgreinið tegund, a
0 númer, hve mikið keyrður, @
og lægsta verð gegn stað-
greiðslu. — Tilboð merkt
„Th. A.“ sendist Morgun-
blaðinu.
0E
]Q!=]ÐE
3(3E
saaessæ* >m*í mvt&m mmm&k
■ Fólksbifreið
1 i góðu ásigkomulagi til sölu.
Uppl. hjá Pjetri Bergssyni
c/o Páll Stefánsson, Sími
1539 heima
Raímagns-1
bensindælal
í bíl óskast keypt.
Uppl. í síma 2070.
Mlkki
MAs
Eftir
Walt Disney.
Mikki: „Hefir áður kviknað í á svona leyndardómsfullan hátt?"
Bóndi: „Jeg er nú hræddur um það, Mikki. Það er ekki nóg með að
kveikt sje í, heldur eru vjelar eyðilagðar. vatnsveitur sprengdar og
fleira og fleira
Mikki: „Hamingjan góða. Hvað hefir verið gert í þessu?"
Bóndi: „Yfirvöldin hafa tekið málið í sínar hendur. En það hefir ekki
borið neinn árangur". — Mikki hugsar: „Og jeg sem hjelt að það
væri leiðinlegt í sveitinni“.