Morgunblaðið - 16.02.1943, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 16. febr. 1943.
MORGUNBLAÐIÐ
Tjarnarbíó:
Korsíkubræður
Gunnlaugur Pálsson.
ísiandshús i
Kaupmannahöfn
Qunnlaugur Pálsson, ungur
íslenskur arkitekt, sem ný-
lega Jhefir lokið fullnaðarprófi
frá „Kunstakademiet“ í Kaup-
mannahöfn, hefir komið fram
með hugmynd um, að reist yrði
(slandshús í Kaupmannahöfn, og
hefir hann gert uppdrátt að því.
Frá þessu er skýrt í frjetta-
brjefi. sem Ríkisútvarpig hefir
fengið frá Kaupmannahöfn.
Samkvæmt uppdrætti Gunn-
laugs verður þetta sjö hæða hús
og verður framhlið þess 44 metr-
ar. — Áætlað er, að það muni
kosta um 1 y2 til 2 miljónir króna
og gerir Gunnlaugur ráð fyrir, að
, ef íslenska ríkið greiði % miljón
af því fjé, niuni hægt að fá það
sem á vantar hjá dönskum láns-
stofnunum.
Neðri hluti framhliðar hússins
á ag leggjast hrafntinnu, en sá
efri ísl. kvartsi. Auk þess verð-
ur húsið prýtt áslenskum lista-
verkum.
Fyrirhugað er, að í húsinu
yerði skrifstofur sendiráðs ís-
lands, ísl. 'gildaskáli, íslenskt
gistihús, heimili fyrir ísl. stúd-
enta með 30 herbergjum, skrif-
stofa fyrir Eimskipafjelagið,
fyrir S. í. S., fyrir íslenskt versl-
ctnarráð, samband ísl. fiskútflytj-
enda, herbergi fyrir Dansk-Il-
lansk Forbundsfund, fyrir Dansk
Islandsk Samfund, íslendingafje-
lagið o. fl.
Húsið mun eftir að það hefir
verið reist geta orðið fjárhags-
lega sjálfstætt. En það mikil-
vægasta, er segir Gunnlaugur,
áð Islendingar reisa þarna minn-
isvarða, sem sýnir, hvers þeir
eru megnugir og hvað þeir vilja,
og ekki síst, að það yrði þess Ijós
vottur, að Islendingar vilji efla
tengslin við hin Noruðrlöndin.
Gunnlaugur Pálsson er tæplega
25 ára að aldri, sonur Páls Krist-
jánssonar húsasmíðameistara frá
tsafirði.
Hjer virðist vera góð hugmynd
á ferðinni og vel þess virði að
henni sje gaumur gefinn.
Kvikmyndahúsgestir hafa
veitt því eftirtekt, að síð-
an kvikmyndahúsin hjer fóru að
fá kvikmyndirnar beint frá Ame
ríku eru þær nýrri, en áður var,
er myndimar komu hingað frá
Danmörku. T.d. sýnir Tjarnar-
bíó nú mynd, sem er svo ný af
nálinni, að Douglas Fairbanks
yngri, sem leikur aðalhlutverkið
fjekk frí frá herþjónustu til að
ljúka við myndina. Fairbanks er
sjóliðsfor. að nafnbót og hefir
tvisvar sinum komið hingað til
lands. í fyrra skiftið átti sá, er
þetta ritar tal við Fairbanks og
mintist hann þá á þessa mynd
sína.
Douglas Fairbanks yngri hef-
ir víða farið síðan ófriðurinn
braust út og m. a. tók hann þátt
í strandhögginu hjá Dieppe í
fyrrasumar.
Korsíkubræður er gerð eftir
samnefndri skáldsögu Alexander
Dumas og segir frá tvíburabræðr
um af aðalsættum. þeir eru
fæddir samgrónir, en læknir ætt-
arinnar gerir á þeim uppskurð
skömmu eftir að þeir fæðast og
tekst uppskurðurinn vel. Bræð-
urnir alast ekki upp saman, en
annar bróðirinn veit jafnan hvað
hinum líður vegna þess, að svo
eru tengslin milli þeirra sterk, að
hann finnur sársauka, sem bróð-
ir hans verður að þola. Á Kor-
síku gengur blóðhefndin í ættir
mann fram af manni og hatur
milli aðalsættanna helst í marga
ættliði og verður ekki jafnað
fyr, en önnurhvor ættin er upp-
rætt.
Foreldrar tvíburanna eru
drepnir daginn, sem þeir fæð-
ast og það kemur í þeirra hlut að
hefna. Myndin lýsir því, hvernig
þeir framkvæma hefndina.
Korsíkubræður er fjörug og
skemtileg kvikmynd. Bardagar
og einvígi og æfintýri reka hvert
annað. Douglas Fairbanks yngri
hefir tekið við af föður sínum.
Hann er sami glæsilegi íþrótta-
maðurinn í kvikmyndunum og
faðir hans var.
Merle Oberon hældr
kvlkmyndalelk
London í gærkv.
í/' vikmyndaleikkonan Merle
Oberon, kona Sir Alex-
ander Korda, staðfesti í dag
fregnir um það, að hún ætli
ekki að leika lengur í kvik-
myndum, eftir að þær þrjár
eru fullgerðar, sem nú eru í
smíðum og hún leikur í.
—Reuter.
Æskulýðsvikaa
í Hafnarfirði
Frá frjettaritara vorum
í Hafnarfirði.
Síðastliðinn sunnudag hófust í
Hafnarfirði samkomur, er
Kristilegt stúdentafjelag ásamt
K. F. U. M. og K. í Hafnarfirði
standa fyrir.
Samkomur þessar verða á
hverju kvöldi í heila viku og
nefnist vikan Æskulýðsvikan,
því að tilgangurinn er að ná sjer
staklega til æskunnar, þó að öll-
um sje auðvitað frjáls aðgangur
að þeim. Samkomumar sem
haldnar hafa verið voru ágæt-
lega sóttar.
Jóhann Hlíðar, formaður
Kristilegs stúdentafjelags skýrði
frjettaritai-a blaðsins í Hafnar-
firði svo frá, að erlendis, þar
sem kristilega stúdentahreyfing-
in hafi fengið að móta mentaæsk
una svo mjög, eru víðast hvar
í æðri skólum kristileg fjelög
nemenda. Fjelög þessi vinna
mjög þarft verk á meðal nem-
endanna. Nú er þessu ekki enn-
þá til að dreifa hjer á landi, svo
að Kristilegt stúdentafjelag vill
reyna að bæta úr því og sinna
hinum æðri skólum að nokkru.
- Nemendum Flensborgarskól-
ans hefir verið boðin þátttaka í
æskulýðsviku þessari.
Fjölmargir stúdentar, kandí-
datar, prestar og nokkrir aðrir
hafa heitið aðstoð sinni við sam-
komuhöldin.
Daabók
Sktðamðt Akurayrar
FJtAMH. AF ÞRIÐJU SlÐU
skörpust, og hlaut hún 632.7
stig. 2. var sveit K. A. með
611.3 stig, og sveit Þórs nr. 3.
— í sveit M. A. voru: Þorsteixm
J. Halldórsson, Finnur Björasson
og Pjetur Blöndal.
í stökksýningu drengja varð
í eldri flokki hlutskarpastur Ari
Guðmundsson, en í yngri flokki
Birgir Eiríksson.
Mótið var í alla staði hið á-
nægjulegasta og voru áhorfend-
ur fjölmargir, eða um 800.
Ffárlögin
ntAMH. AF ÞRIÐJU »IÐC
Þótti fjái-málaráðh. þingið
fara ógætilega í fjármálum. Það
hefði felt burtu heimildina, að
lækka mætti fjárlagaútgjöld um
35%, ef tekjur brigðust. Sam-
tímis hefði það hækkað stór
lega tekjuáætlunina, en síðan
afgreitt fjárlög með raunveru
legum tekjuhalla. -— En þingið
hefði fjárveitingavaldið og það
bæri ábyrgð á fjárlögunum.
Ráðherrann kvaðst taka við
fjárlögunum og framkvæma þau
eftir því sem tekjur hrykkju ti
— en lengra færi hann ekki.
Framk væmdars<tóra$taða
Iaus hjá heildsölufyrii'tæki í fullum gangi. Mögu-
ieikl að viðkomandi geti orðið meðeigandi. Þag-
mælsku heitið. Umsækjendur sendi umsókn ásamt
meðmælum og öðrum upplýsingum á afgreiðslu
blaðsins, merkt „Framtíð 111“.
Úr framfaræsjóði B. H. Bjarna
sonar kaupmanns var veitt 14
þ. m.: 1. Guðrúnu Jónsdóttur
frá Prestsbakka til páms í mál
leysingjakenslu 600 kr. 2. Gunn
ari M. Theodórssyhi til náms
húsgagnabólstrun 600 kr.
Ilannesi Kr. Davíðssyni til náms
í húsbyggingarlist við listahá-
■skólann í Khöfn 600 kr.
□ Edda 59432167 — 1. Atkv.
□ Edda 5943226 — Systra-
kvöld. Listi í □ og hjá S.\ M.*.
til 17. febr.
I.O.O.F. = Ob. 1. P. = 1242168'I*
- H.r. st.
Unglinga vantar til að bera
Morgunblaðið til kaupenda víðs-
vegar í Austurbænum.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, Eiríksgötu 31. Sími 3951
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Næturakstur næstu nótt ann-
ast Aðalstöðin. Sími 1383.
Trúlofun. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú
Kristín Pjetursdóttir og Gunnar
Pálsson frá Vík.
Sjötugur er í dag Pjetur Ólafs
son, fyrrum bóndi í Þormóðs-
dal. Dvelur hann nú hjá syni sín-
um Valdimar að Hraunsholti við
Hafnarfjörð. * '
Innanfjelagshappdrætti Knatt-
spyrnufjelagsins „Fram“. 1 gær
var dregið um hin tvö fallegu
málverk, sem Arreboe Clausen
og Eiríkur Jónssoh gáfu fjelag-
inu í tilefni af 35 ára afmæli
xess. Þessi númer komu upp:
Vlálverk A. Clausehs nr. 107 og
málverk Eiríks Jónssonar nr.
362. Vinninganna sje vitjað í
Lúllabúð, Hverfisgötu 59, sem
fyrst.
Próf. Ágúst H. Bjarnason hef-
ir verið kjörinn fræðafjelagi í:
The British Psychological Socie-
ty.
Eins og auglýst er ætlar hr.
R. Biering Prip að flytja fjögur
erindi í Fríkirkjunni á ensku kl.
7 og á dönsku kl. 8.30 dagana
16., 19., 23. og 26. þ. m. Hr.
Biering Prip hefir prjedikað síð-
ustu 20 árin í ýmsum löndum og
kom hingað frá Bandaríkjunum
Erindin eru: „Heimurinn. Krist-
indómurinn------þú“, „Veikleik-
inn hjá guði er mönnum sterk-
ari“, „Gjöf Guðs“, „Ilann gaf
sjálfan sig, til þess . . . .“. —
Allir eru velkomnir á fyrirlestra
þessa. ,
Málfundafjelagið „Magni“ í
Hafnarfirði hjelt nýlega aðal-
fund sinn. í stjóm fjelagsins
voru kosnir: Kristinn Jóel
Magnússon, formaður, Sigurður
Magnússon, ritari, Stefán Sig-
urðsson, gjaldkeri. Varastjóm:;
Ingólfur Flygenring, Hallsteinn
Hinriksson og B. M. Sæbergb
Garðráð Hellisgerðis var einnig
kosið, og skipa það: Ingvar
Gunnarsson og Guðmundur Einr
arsson.
Hallgrímsikirkja í Saurbæ: Á-
heit frá Hallfríði Guðmundsdótt-
ur afh. af J. L. kr. 15.00. Kær-
ar þakkir. Ásm. Gestsson,
Útvarpið í dag:
15,30—16,0Ó Miðdegisútvarp.
20,30 Erindi: Dýrin og land-
ið, H (Árni Friðriksðon mag-
ister).
20,55 Tónleikar Tónlistarskól-
ans (Björn Ólafsson og dr„
Urbantschitsch) .
21,20 Hljómplötur: Kirkju-
tónlist.
Gandhi líð-
ur ekki vel
Newdehli í gærkveldi,,
Tilkynning var gefin út af
stjórn Bombayfylkis í
dag um líðan Qandhi. Ségir
þar, að honum hafi liðið frem-
ur ilía í gær, og hafi átt erf-
itt um mál. Síðar fengu kona.
hans og sónur að heimsækja
hann. Reuter.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Miðdalskoti í Laugardal andaíHst að heimili sonar síns,
Bergstöðum við Kaplaskjólsveg Í4. þ. m.
Böm hinnar látnu.
Það tilkynnist mjer með, áð móðir mín og tengdamóðir
JÓHANNA GUÐLAUGSDÓTTIR
andaðist að heimili okkar Austurgötu 46, Hafnarfirði, laug-
ardaginn 13. þ. mán.
Fyrir hönd vandamaima
Laufey Sigfinnsdóttir. Kristján Guðmundsson.
Hjer með tilkynnist, að faðir okkar
KRISTJÁN SIGVALDASON,
fyrrum bóndi á Kvíárholti í Holtahreppi andaðist mánudag-
inn 15. febrúar.
Fyrir hönd ættingja og vina
Katrín Kristjánsdóttir. Guðm. Kristjánsson.
Helgi Kristjánsson. Kristjón Kristjánsson.
Kristinn Kristjánsson.
Jarðarför sonar okkar
GÍSLA,
sem andaðist 1. f. m. í New York, fer fram frá dómkirkj-
unni miðvikudaginn 17. þ. m. og hefst með bæn á heimili
okkar, Bárugötu 16, kl. 1% e. h.
Kristín Gísladóttir. Bjarni Sighvatsson.