Morgunblaðið - 02.03.1943, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.03.1943, Qupperneq 2
2 MOKGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. mars 1943. Bardagar minka I Norður-Tunis Bandamenn hafa tekið Ferriana Tilkjmt hefir verið frá aðal- bækistöðvum bandamanna í Norður-Afríku, að áhlaup möndulherjanna í Norður-Tún- ís hafi verið haldið áfram all- an daginn í dag, en hafi ekki verið eins hörð og áður, nema við Sidi Nsir, þar sem þeim tókst að sækja fram um 7 km. frá þeim bæ, en voru síðan stoðvaðir. Sunnar í Tunis hjeldu banda- menn áfram sókn sinni, pg hafa tekið þar bæinn Ferriana, sem Rommel náði á dögunum. Sækja bandamenn enn fram á þessum slóðum. Frá áttunda hernum berast iitlar frjettir. Gengur enn á skæruhernaði í námd við Mar- eth-línuna, en engir meiri háttar bardagar hafa orðið þar. Það voru bresjcar hersveitir, sem stöðvuðu áhlaup von Arn- ing í Norður-Tunis, en á nokkr um stöðum voru þó Frakkar fyrir pg, börðust þeir mjög djarflega, að því er segir í tijkynfiingum. Þeir berjast með al annars á Ouseltia-svæðinu, og hafa hrundið þar áhlaup-1 um. LOFTHERINN. í lofti hafa bandamenn verið mikilvirkir bæði, yfir vígstöðv* unum og einnig hafa fljúgandi virki, varin Lightning-orustu- flugvjelum, gert árás í björtu á Cágligiari á Sardiníu. Komu sprengjur þar nærri skipum og á : hafnarmannvirki. Andstaða af hálfu Itala var mikil. Banda- menn misstu alls 12 flugvjel- ar yfir bardagasvæðinU í Tunis og 1 árásinni á Caglígiari í gær. 1000 smálesttim af spengjum varpíð á St. Nazaire Breska flugmálaráðuneytið tilkynti í gær, að megin- árás breska flughersins í fyrri- nótt, hefði verið gerð á St. Naz-i aire í Frakklandi, en þar hafa Þjóðverjar kafbátastöð. Var 1000 smálestum af sprengjum varpað á bæinn, sem er fremur lítill, og komu upp miklir eldar. Árásin stóð í þrjá stundarfjórðunga. Fimm flug- vjelar komu ekki aftur úr þess-j ari árás, og öðrum, sem gerðar voru á Vestur-Þýskaiand. Yfir Bretlandsströndum voru tvær þýskar flugvjelar skotnar niður í gær, önnur af hinum nýju 'Týphoon-orustuflugvjel- um. „Leikfjelag Reykjavíkur“ sýn- ir skopleikinn Fagurt er á fjöll- um. kl. 8 í kvöld. Timoshenko byrjar sókn við llmenvatn ÞjóDvarjar vinna i við Donetzlljót j oo hafa tllkynt töku Barvenkavo Ákafir bardagar fyrir vest- an Kursk og Karkov London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. RÚSSAR gáfu út aukatilkynningu í gærkveldi, þar sem skýrt er frá því, að rússneskur her, undir stjórn Timoshenko marskálks, hafi ný- Iega hafið sókn á norðurvígstöðvunum, fyrir suðaustan Ilmenvatn. Er sagt í tilkynningu þessari, að Rússar hafi þarna tekið 32 bygð svæði, þar á meðal bæ, sem nefndur er Zemlianskaya og barist er við Demiansk. í Donetsbugnum hafa Rússar orðið að láta undan síga fyrir hörðum áhlaupum Þjóðverja, sem segjast hafa hrund- ið herjum Rússa yfir um Donetzfljótið á einum stað. Poul Winterton gegir, að áhlaup Þjóðverja hafi verið mjög hörð á þessum slóðum, og muni nú vera barist umhverfis, eða í Kramatorskaya, en Þjóðverjar tilkyntu töku þess bæjar í gær. Segir Winterton, að Þjóðverjar hafi teflt þarna fram geysí öflugu liði. 1 kvöld seint tilkyntu Þjóðverjar svo töku Barvenkovo, sem er á þessum slóðum. Á vígstöðvunum fyrir vestan Kursk og Karkov hafa , Rússar sótt lítið eitt fram, og eru gagnáhlaup Þjóðverja einnig þar mjög hörð, en syðst á vígstöðvunum eru enn miklar hlákur og óhægt úm hemað. ; LT nnras i Ást.raliu? Nýjar fregnir um undirbúning Japana C' ORD, hermálaráðherra Ástralíu, ljet svo um mælt í gær, að því er skýrt er frá í Lundúnarfregnum, að liðsstyrkur Japana væri sífelt að aukast á eyjunum fyrir norð an Ástralíu, og yrðu Ástralíu- menn að vera vel á verði, því Japanar væru vanir að greiða höggin, þar sem þeirra væri minst von. Frjettaritarar í Ástralíu láta svo um mælt, að Japanar hafi nú ástæður til að hefja mikinn hernað á þessu svæði, en segja hinsvegar, að ekki sje vitað með vissu, hvort þeir ætli sjer að nota lið það, sem þeir hafa dregið saman þarna, til árása, eða í varnarskyni, Þá segja frjettaritararnir, að vitað sje, að á eyjunum fyrir norðan Ástralíu og við þær, hafi Jap- gnar bæði mikið af landher, flugher og allskonar skipum. Rússar segjast hafa felt mik-, ið af mönnum fyrir Þjóðverj-' um í hinni nýju sókn sinni, og: einnig tekið um 3000 fanga og talsvert af hergögnum. Fylgir það þessum fregnum, að 16. þýski herinn sje þama til vatnar, en það er sami herinn, sem í fyrravetur var innikró- aður í Staraya Russa. Stórorustan í Donetzvíg- stöðVunum minkár ekki, og segjast Þjóðvérjar sækja fram á Iziurnsvæðinu, en sá bær er rjett við Donetzfljótið. Ekfei er getið um mikla bar- daga við Orel, og virðist þeim hafa slotað í bili. Suður á Kubansvæðinu er getið um staðbundnar viðureignir, og vilrðist svo, sem Rússar reyni enn við og við, að koma liði á land við Novorossisk. NÝJA SÓKNIN. I skýringum við aukatilkynn- ingu sína, segja Rússar, að hið nýja sóknarsvséði sje um 80 km. fyrir suðaustan Ilmenvatn, og mun vera sótt þar fram á 30—40 km. breiðu svæði. Enn-* fremur er sagt, að Þjóðverjum hafi í september s. 1. tekist að brjótast í gegnum stöðvar Rússa á þessum slóðum, og var það sextándi herinn þýski, sem þetta gerði, og hjelt síðan þess- um stöðvum með mestu þrá- kelkni, auk þess sem hann gerði þar miklar víggirðingar. Um þessar mundir voru þarna oft og tíðum miklar orustur. En nú nýlega undirbjó Timo- FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU Bardagaruir við Donetz Eftir Poul Winterton. Einkaskeyti til Mbl. ftá REUTER. Poul Wintei'ton símar eftir-» farandi .frá Moskya í gær kveldi: ,,Víða á hinum 640 km. löngu suðurvígstöðvum Rúss- lands hefir sóknarhraði Rússa minkað töluvert. Enginn hjer heldur samt, að þetta þýði það, að sókninni sje lokið. Rússar hafa nú sótt á með miklum krafti í hálfan fjórða mánuð, og til þess að halda slíkri sókn áfram, hefir óhemju mikið verið lagt á flutninga- leiðir og varabirgðir Rússa. Yf- iyleitt er jeg þeirrar skoðunar, að Rússar hafi ákveðið að draga úr sóknarhraðanum, og hvíla sig undir næstu sókir Þjóðverjar gera nú mikil gagnáhlaup á Kramatorsksvæð inu, og hafa þar unnið tals- verða sigra, sem eru að vísu staðbundnir. Voru þar háðir ógurlegir bardagar dögum sam an, og var tjón beggja mikið. Voru Rússar ekki færir um að halda sókn Þjóðverja í skefj-> um. Þegar Þjóðverjar ákveða að tefla fram veruleg asterku liði á mjórri víglínu, þá vinna þeir auðvitað landsvæði. Þeir eru enn að senda óþreytt vara- lið fram til atlögu á þessum stöðvum. „Finnar semja engan írið“ — RyM Lundúnafregnir hermdu í gær, að Ryti Finnlands- forseti, hafi haldið ræðu, er finnska þingið kom saman, og sagt að allar fregnir úrn að Finnar hefðu í hyggju að semja sjerfrið, væru uppspuni einn. Hann sagði, að þjóðin óskaði að vísu eftir friði, en eins og sakir stæðu, yrði hún að berjast fyrir öryggi sínu og framtíð. Ribbentrop fer til Italiu Tilkynt hefir verið í Berlín, að von Ribbentrop, utan- ríkisráðherra Þjóðverja, sje ný- kominn úr fjögurra daga ferð til Italíu. Voru hermálasjer- fræðingar í för með honum. Sagt er að förin hafi verið gerð til þess að ræða ýms vandamál við Mussolini. . Áður en Ribbentrop sneri heim aftur, ræddi hann við Ciano greifa, en hann er nú sendiherra ítala hjá Páfa. Dag- inn eftir gekk Ciano á Páfa- fund. Sagt er að fullt samkomulag hafi verið í öllum málum, sem rædd voru við þetta tækifæri. 17 Norðmenn Iftlátnir P regnir frá norska blaðafull- * trúanum skýra frá því, að Þjóðverjar hafi dæmt 17 Norð- menn til dauða, og þeir hafi verið teknir af lífi. Var þetta tilkynt í Oslo fyrir skemstu. Menn þessir voru dæmdir fyrir afbrot gegn þýska hern- um í Noregi, svo sem skemd- arverk, fyrir að stofna komm- únistiskar flokksdeildir, og fyr- ir undirróður sem gerður var fyrir ríki fjandsamlegt Þjóð- verjum. Mennirnir voru þessir: Bjarne Balland, fæddur 1906 í Bergen. Hann vakti eftirtekt á sínum tíma fyrir það, að hann fór til Spánar og tók þátt í stríðinu þar, sem sjálfboðaliði með spönsku stjórninni. Var tekirtn til fanga, og fenginn laus með aðgerðum stjórnarvaldanna norsku. Theodor Danielsen. Fæddur í Voss, Harald Slotte- lie, fæddur 1895, Ingolf Kleppe sted, fæddur 1901, ættaður frá Bergen, Arthur Bege, fæddur 1890, frá Þrándheimi, Thor Espelie, fæddur 1918 í Odda í Hardanger, Olav Prestegaard, fæddur 1912, frá Odda, Knut Beka, fæddur 1892, frá VosS, Leif Kindem, fæddur 1906, frá Bergen Ottar Lie, fæddur 1896, Ole Kjeld Karlsen, fædd- ur 1908, frá Tune' í östfold- fylki, Olav Kvernmoe, fæddur 1896, úr Néraatser; Þrændalög- um, Lars Norbö, fæddur Í9Öð, frá Stafangri, Sigúrd Sivertseií, fæddur 1905, ættaður frá Nedre Eike við Drammen, Arne Steensrud, fæddur 1913, ‘ frá ' Gjövik, Gustav Adolf Neraase, fæddur 1895, frá Bili á Tuten, Reidar Svendsen, fæddur 1896, frá Oslo. Upplýst hefir verið, að Ter- boven landsstjóri hafi ekki notað rjett sinn til þess að breyta dauðadómunum í æfi- langt fangelsi. Ráðsteína bandamanna verður í Ameríku London í gærkveldi. Summner Welles, aðstoðar- ráðherra í Bandaríkiun- um, hefir tilkynt, að Banda- ríkjamenn munu bráðlega bjóða fulltrúum annarra hinna sameinuðu þjóða til ráðstefnu vestra, þar sem rætt verður um friðarmarkmið banda- manna. Blöðin í London segja í kvöld, að til þessa sje tími kom inn, og ennfremur að Atlants- hafssáttmálinn geri ráð fyrir mjög breyttum heimi að stríð- inu loknu. Blaðið bætir því við, að breska stjórnni eigi strax að taka þessu tilboði um ráðstefn- una, því hún muni reynast upp haf að sameinuðum átökum bandamanna, REUTER.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.