Morgunblaðið - 14.04.1943, Page 5

Morgunblaðið - 14.04.1943, Page 5
Miðvikudagur 14. aprfl 1943* Útgfef.: H.f. Árvakur, Eeykjavfk. Framkv.stj.: Sigfús Jðnsson. Rttstjúyar: Jðn Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýsingar og afgreittsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áakriftargjald: kr. 6.00 & mánuBl innanlands, kr. 8.00 utanlands C lausasölu: 40 aura elntakiB. 50 aura með Læsbðk. miiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitimiiiiimiiHiiji 1 LEIKHÚSIÐ | iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiin ORÐIГ - Eftir Kai Munk Lauso vandamála Fyrir skömmu höfðu menn allmiklar áhyggjur af því, að ekki hefði náðst samkomu- lag um verð á landbúnaðar- afurðum, ull, kjöti, gærum og görnum, ársins 1942 og líka 1941, hvað sumar vörur snerti. Var að vísu talið líklegt, að Bandaríkin mundu sýna sama velvilja og skilning á íslenskum þörfum að því er snerti verð- lag þessara vara, sem einkent hefir alla kaupsamninga þeirra við íslendinga, en þó gat þar gætt margra sjónarmiða, sem hjer skulu ekki rædd. Ofan á þetta bættist svo orð- lómur um, að Bretar hefðu í hyggju að lækka hámarksverð á fiski og var hann síðar stað- festur opinberlega. Nú hefir greiðst vel úr öllu þessu. Varðandi fiskverðið í Englandi er ekki að efa, að sendiherra okkar í London hef- ir haldið á málstað okkar með festu og rökum. Til úrslita um áhrif þess málflutnings kom þó ekki, því enskir sjómenn neit- uðu að sætta sig við verðlækk- unina og gerðu verkfall. Þetta leiddi til þess að verðlækkun- ínni er frestað til 12. júní, hvað sem þá tekur við. Varðandi samningana um sölu á gærum og kjöti er engin ■ ástæða til að fara dult með, að við höfum áreiðanlega notið góðs af velvild amerísku sendi- sveitarinnar og forstjóra Láns- og leigu-stofnunarinnar hjer á landi og samskonar hugarfari hlutaðeigandi stjórnarvalda í Washington. Án þessa hefði jafn hagfeld niðurstaða ekki ráðst. En samt sem áður er xjett að viðurkenna, að vafa- laust hefir viðskiftanefndin flutt okkar málstað vel, en það er viðskiftanefndin sem gerir alla slíka samninga fyrir hönd bæði núverandi og fyrverandi stjórna, og haf a ríkisstjórn- irnar af þeim málum lítil önn- ur afskifti en að samþykkja gerðir viðskiftanefndar. Við þessar sölur hefir við- skiftanefndin einnig notið mik- ils stuðnings sendiherra íslands í Washington. Tókst honum að útvega tilboðin bæði í gærurnar og kjötið og hefir viðskifta- nefndin enn falið honum að vinna að' sölu ullarinnar, og eru sagðar góðar horfur. Það er ánægjulegt, hversu giftusamlega hefir greiðst fram úr öllum þessum málum. Væri óskandi að ráðamenn þjóðar- innar, ríkisstjórnin og Alþingi, bæru gæfu til að semja jafn vel sín á milli um vandamálin, sem viðskiftanefnd og sendi- herrunum hefir tekist að semja við hin erlendu ríki um hags- Límuni íslands. O óknarpresturinn í Vedersö, ^ Kaj Munk, er fyrir löngu orðinn kunnur hjer af ýmsum sögusögnum, sumum með þjóð- sagnablæ, sem af honum hafa bor- ist, og það er ekki vonum fyr, að leikrit eftir hann er sýnt fcjer. Leikritið „Orðið‘£ hefir áður ver- ið flutt í útvarpinu, svo það er þegar allkunnugt, einnig munu margir kannast við leikrit Munks „En Idealist" af flutningi Poul .Reumerts hjer fyrir nokkrum ár- um, þó að færri ættu kost á að heyra það, en æskilegt hefði verið. 1 sunram leikritum sínum hefir Kaj Munk tekið mjög ákveðna afstöðu gegn einræði í stjórnmál- um, og eftir hernám Danmerkur Lárus Pálsson í hlutverki Jóhannesar Borgen og Helga Brynjólfs- dóttir í hlutverki Maren. Valur Gíslason í hlutverki Mikkels og Amdís Bjömsdóttir í hlut- verki Ingu. hefir hann orðið einn af helstu leiðtogum þjóðar sinnar, í barátt- unni fyrir andlegu frelsi. Hann er ekki myrkur í máli, hvorki á þeim vettvangi nje öðrum, og rit- snild hans hefir skipað honum meðal fremstu leikritaskálda nú- tímans. í leikritinu, sem nú er sýnt hjer, „Orðið“, tekur Munk til meðferð- ar afstöðu tveggja sjertrúar- flokka, heimatrúboðs og Grundt- vigssinna, til hinnar fölskvalausu, pg blindu, trúar, sem hann sjálíur boðar, og sneiðir svolítið í leið- inni embættisprestinn og skynsem- istrúarmanninn í gerfi læknis. Andspænis vantrú og efasemdum þessara manna heldur hann því frarn, að kraftaverk geti gerst, og muni gerast, aðeins ef trúin sje nógu einlæg og sterk. „Hreinleiki hjartans er að vilja eitt“, segir hann, og í krafti þess gerir harar hinn geðveika Johannes Borgen að fulltrúa sinnar skoðunar, en aðeins saklaust barn er nógu ó- spilt í trú sinni til þess að styðja hann til að gera kraftaverkið. Það eru sterk átök og fágætur dramatískur kraftur í þessu leik- riti, og þó að það njóti sín ekki til fulls í sýningu Leikfjelagsins, er það mikilsverð uppbót á vetr- arstarfi leikhrissins, sem annars hefir verið, jafnvel venju frem- ur, lítilfjöx'legt. Aðalpersónur leiksins eru Mikk- el Borgen eldri, sem er foringi Grundtvigssinna og stórbóndi, hinn geðveiki sonur hans, Jóhann- es, Pjetur skraddari, sem er for- ingi heimatrúboðsmanna, og Mikk- el Borgen yngri, sem er hreinlega vantrúaður. Lárus Pálsson leikur Jóhannes, og er það erfiðasta hlutverkið. Það er Kristsmynd, þrungin dul- rænni fegurð, í senn viðkvæm og sterk. Viðkvæm í fegurð og djúpri samúð með þeim, sem eiga bágt, sterk í þeim sannfæringarkrafti, sem höfundurinn leggur í kenning- ar sínar. Þetta hlutverk krefst meiri per- sónuleika en Lárus Pálsson getur lagt í það, og höfundurinn gefur það beinlínis í skyn í texta leik- ritsins, að Jóhannes sje mannvæn- legastur þeirra bræðra, ’og það þarf mikla leikni til þess að vega á móti skorti í því efni. Lárus reynir að gera þetta, í fyrri hlut- anum, með þróttmiklum texta- flutningi, en það verður ekki ann- að en sterk „reeitation“, hið fín- gerða og viðkvæma tapast. 1 þriðja þætti, eftir að Jóhannes hefir fengið vit sitt og á að fara að gera sínar fyrri kenningar að veruleika, er komið los á flutn- inginn, sem ekki er í samræmi við þá miklu dramatísku spenningu, sem er í þessu atriði. Lárus Pálsson er einnig leik- stjóri við þessa sýningu. En það, að setja svona vandasamt og merkilegt leikrit á leiksvið svo að vel fari, og leikstjórnin hefir hon- um yfirleitt farist vel, er full- komið verk fyrir einn mann. Leik- stjóri ætti aldrei að taka að sjer að leika jafnframt vandasamt hlutverk. Það er meira verk en einn maður getur annað, auk þess fi.ð hann sjer ekki sjálfan sig. Valur Gíslason leikur Mikkel Borgen eldra og hefir náð góðum. tökum á hlutverkinu. Best tekst honum í öðrum þætti, í samræð- unum við Pjetur skraddara, sem Jón Aðils leikur. Þar er talsvert af góðlátlegri kýmni, sem hann notfærir sjer vel, og átökin ekki meiri en það, að hann ræður vel við það. Þar sem sterk geðshrær- jng kemur til greina í síðari þátt- unum, ræður hann ekki eins vel við hlutverkið, og er þó lýtalaust. Pjetur skraddari, heimatrúboðs- foringinn, er þannig hlutverk, að það má engu muna, að það verði ekki skoplegt, og það er vel gert að leika það svo, að ekki sje far- ið neitt inn á þá braut. Jóni Aðils tekst þetta, og hann sýnir trú- verðuga mynd af þessum prjedik- ara, þó ef til vill mætti taka fastar í stundum. Gestur Pálsson, sem leikur Mikkel Borgen yngra, er einhver, hinn nothæfasti leikari, sem nú er völ á hjer. Hann sýnir það ennþá í þessu hlutverki, að honum þarf ekki að marka þann þrönga bás að leika aðeins laglegan elskhuga. Einkum tekst honum vel í fjórða þætti, sem líka er vandasamastur fyrir hann. Konu Mikkels yngra, Ingu, leikur Arndís Björnsdóttir. Þetta er lítið hlutverk, og gefur ekki tilefni til mikils leiks. Presturinn, Bandbull, er fyrst og fremst embættismaður, og er vantrúaður á kraftaverk. En það má ætla, að hann líti svo á, að éf þau eigi á annað borð að gera, þá sje það embættisverk. Brynjólf- ur Jóhannesson leikur þetta hlut- verk og gerir úr því meinleysis- lega rolu, sem er alveg ástæðu- laust. Hefði nafnið eitt átt að vera honum nokkur vísbending um það. Houen lækni, skynsemis- trúarmanmnn, leikur Haraldur Björnsson. Hlutverkið er ekki stórt, og Ilaraldur eykur ekki við það. Gerfi það, sem hann velur sjer, er ástæðulaust, og Haraldur er orðinn það æfður leikari, að hann ætti að vita, að óþarflega íburðarmikið gerfi er aðeins til þess að vekja óheppilega athygli. GUnnþórunn Halldórsdóttir leik- ur lítið hlutverk, Mettu Maríu, sem vitnar á vakningasamkomu Pjeturs skraddara. Ilún fer svo snildarlega með þetta lítilræði, að engum datt í hug að hlæja, þó að hlutverkið sje fullkomið tilefni til skopleiks, þeim er vildi það við hafa. Annað lítið lilutverk er einnig vert að minnast á, Maren litlu, dóttur Mikkels yngra, sem Helga Brynjólfsdóttir leikur. Það er mjög laglega gert. Jón Aðils í hlutverki Pjeturs skraddara. Lárus Ingólfsson hefir gert prýðileg leiktjöld í þessa sýningu. Nýtur leiksviðið sín sjerstaklega vel í fjórða þætti, og er í góðu samræmi við leikinn. • Þýðing leiksiits er eftir síra Sigurjón Guðjónsson. Yfirleitt vel gerð á góðu máli, en þó koma þar fyrir útlend orð, sem að skað- lausu mætti snúa á góða íslensku. Rit Brunabóta- fjelags íslands Brunabótafjelag íslands hefir í tilefni af 25 ára starfsemi fjelagsins — en það hafði starfað í 25 ár við árslok 1941 — gefið út mikið rit sem fjallar um bruna- tryggingarmál á íslandi. í ritinu er rakin saga brunamál- anna á Islandi, forsagan að stofn un fjelagsins og starfssaga þess. Þá er þar og stutt, alment yfirlit úm upphaf brunatrygginga er- lendis, yfirlit um tryggingar á Söguöldinni og .einnig nokkrir þættir um sögu annarra trygging- argreina, sem að einhverju leyti snerta forsögu eða starfssögu fje- lagsins. Arnór Sigurjónsson, bóndi að Þverá í Dalsmynni, hefir ritað söguna ög hafði samvinnu við fje- lagið um þfnisval og niðurskipun. Er hún 200 bls. í stóru broti. Auk þess fylgja myndir af starfs- mönnum og umboðsmönnum fje- ! lagslns. Nýjar iþrótta- kvikmyndir Qímufjelagið Ármann hefir nýlega fengið frá Amer- íku kenslukvikmyndir í frjáls- um íþróttum, til kenslu fyrir þá, sem þær íþróttir æfa hjá fjelaginu. Eru þetta kvikmyndir sem sýna allar greinar frjálsra íþrótta, útfærðar af mönnum, sem sjerstaklega hafa verið valdir til að sýna sem hrein- astan og rjettastan stíl í hverri íþróttagrein. Myndirnar eru bæði með venjulegum hraða og eins sýndar mjög hægt, svo nemandinn geti sem best fylgst með hverri hreyfingu líkam- ans. Glímufjelagið Ármann ætlar að sýna myndir þessar í kvöld kl. 10 e. h. í íþróttahúsinu, fyrir alla þá sem æfa hjá fje- laginu, og verða myndirnar skýrðar út jafnframt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.