Morgunblaðið - 17.06.1943, Page 1

Morgunblaðið - 17.06.1943, Page 1
Vikublað: ísafold. 30. árg., 133. tbl. — Fimtudagur 17. júní 1943. Isafoldarprentsmiðja h.f. - - - Rússar undirbúa sumarsúkn hjá Orel London í gærkv. ÞÝSKA frjettastofan skýr- ir frá því í kvöld, að Rúss- ar flytji nú mikið lið og birgðir í hjeraðið mjlli Or- el og Kharkov. — Segir frjettastofan að þetta bendi til að Rússar hafi í hyggju að hefja sumarsókn sína á þessum slóðum á næstunni. 1 frjettum Þjóðverja segir ennfremur: „Rússar hafa gert tilraunir til þess að brjótast í gegn um varn arlínur Þjóðverja við Orel. Sendu Rússar fram úrvals- hersveitir, en Þjóðverjum tókst að hrinda þessum á- rásum“. Frjettir frá Moskva gefa í skyn, að bardagarnir, sem nú eiga sjer stað hjá Orel muni geta orðið byrjunin áð miklum bardögum. Rússar segjast hafa sótt fram hjá Mtensk og hafa hrundið öllum gagnárásum Þjóðverja. —Reuter Guðmunéur Valur Guðmunds son, 17 ára, særðist hættulega Rúmenar leita fyrirsjer um frið New York í gærlcvöldi—: Rúmenar hafa leitað fyrjir fejer um friðarskilmála hjá bandamönnum, ef þeir dragi sig út úr ófriðnum, eftir því sem stjórnmálamenn í An- kara í Tyrklandi halda fram. Það fylgir sögunniý að stjórn- málafulltrúi hlutlauss ríkis sje milligöngumaður. Loftsóknin gegn Sikiley hafin London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morg unblaðsins frá Reuter. SÓKNIN gegn Sikiley, er margir telja að verði næsta manna, er hafin, eftir hið innrásarmarkmiið banda- stutta hlje, sem orðið hefir á bardögum í Miðjarðar- hafi í nokkra daga. I fyrradag gerðu flug- vjelar bandamanna miklar loftárásir á flugvelli á Sik- iley. Þjóðverjar sendu flug vjelar á móti árásarflug- vjelunum og voru 11 þeirra skotnar niður. Auk þess voru fimm flugvjelar skotnar niður fyrir möndul veldunum. er þær reyndu að gera loftárás á stað einn í Norður Afríku. Á einum sólarhring voru skotnar nið ur 16 flugvjelar fyrir mönd ulveldunum við Miðjarðar- haf, en bandamenn mistu 7 flugvjelar. Það kemur' víða fram í frjettum, að búist er við að innrásin geti hafist hvaða dag, sem er úr þessu. Brot á skömtunar- loggjotinm SAKADÓMIARI hefir ný- lega kveðið upp dóma yfir fjórum deildarstjórum í KRON og verslunarstjóran- um í Liverpool fyrir brot á skömtunarlöggjöfinni. í fjórum deildum KRON hafa skömtunarvörur verið seldar án þess að hægt hafi verið að standa skil á skömtunarseðlum fyrir þær vörur áð öllu leyti. — Er þetta brot á skömtunarlög- gjöfinni og deildarstjórar umræddra deilda dæmdir í samtals 4200 króna sekt. Einnig hefir verslunar- stjórinn í Liverpool verið dæmdur í 1000 króna sekt > fyrir samskonar brot. Tveir skipverjar dóu af sórum Ólafur Sverrir Ólafsson, 18 ára, særðist hættulega. Japanar nota eitur- gas Chungking í gærkv. JAPANSKIR flugmenn hafa varpað eiturgas- sprengjum á kínverska her menn í Paotow í Suiyang- hjeraði, að því er talömað- ur kínversku herstjórnarinn ar í Chungking skýrði frá á herforingjaráðsfundi í dag„ Japanskt stórskotalið hefir^- einnig skotið gas- sprengikúlum 1 bardögun- um við Matoursan í suður hluta Shansifylkis. Þessi talsmaður herstjornarinnar skýrði einnig frá því, að japanskt skip hefði varpað akkerum við Woosung út af Shangsi með 120 gas- geyma innanborðs ásamt 50 smálestum af gassprengi- kúlum. —Reuter. Skipið bjargaðist með íiaumindum ÞÝSK FJÓRHREYFLA sprengjuflugvjel gerði árás á strandferðaskipið Súðina kl. iy2 í gær, er skipið var á siglingu fyrir Norðurlandi. Bjart var veður, en skipverjar urðu ekki varir við flug- vjeiina fyr en þeirri svipan að hún lækkaði flugið og rendi sjer niður að skipinu. Vörpuðu flugmenn tveim sprengjum að skipinu, en hvorug þeirra hitti það. En þær Sprungu svo nálægt skips- hliðinni, að skipið laskaðist svo, að strax kom að því leki. Um leið og flugmenn lækkuðu flugið til þess að reyna að hæfa skipið með sprengjunum, geröu þeir vjelbyssuskothríð á skipverja, er voru ofan þilja. Særðust fjórir þeirra alvarlega í skothríðinni, m. a. hásetinn, sem var við stýrið. Flugmönnum tókst að koma skipverjum algerlega að óvörum með þeim hætti, að þeir flugu að skipinu undatl sól. Sprengjurnar tvær komu í sjóinn bakborðsmegin við skipið, en báðar svo nálægt því, að þær löskuðu það, önn- ur að aftanverðu, en hin framarlega. Sjór kom strax í lestarum skipsins eftir sprengingarnar, og mátti því búast við, að skipið sykki þá og þegar. Tveir erlendir togarar voru að veiðum nálægt Súðinni, þegar árásin var gerð. Skips- höfn Súðarinnar fór nú í bát- ana og reri áleiðis til togar- anna. Togárarnir komu til móts við þá. Hinir særðu menn voru settir um borð í annan tog- arann, og sigldi hann áleiðis til Húsavíkur. Á leiðinni til Húsavíkur dóu tveir hinna særðu manna, hásetarnir Hermann Jónsson, til heimilis að Mjölnisveg 8 hjer í bænum, og Guðjón Kristinsson frá ísafirði. Fjórir aðrir voru sárir, en ekki nema tveir þeirra hættu- lega, þeir Guðmundur S. Guð- muridsson þjónn, til heimilis á Laugaveg 141 og Ólafur S. Ólafsson kyndari, á Smyrils- veg 29. Hinir særðu voru fluttir í sjúkraQúsið á Húsa- vík. Samkv. viðtali við hjer- aðslæknirinn í gærkvöldi, eru sár þessara manna alvarleg, einkum Guðmundar. Þangað var og fluttur son- ur skipstjórans, Björn Ivjar an. Ilann er drengur uni ferm ingu. Hann var farþegi með skipinu. Hann er lítið meidd- ur, en hafði * fengið tauga- áfall. Árásin var . gerð í svo skjótri svipan, að skipverjar, er tíðindamaður blaðsins á Húsavík hafði tal "af í gær- kvöldi, höfðri átt erfitt með að gera sjer grein fyrir öllu því, er gerðist í því vetfangi. Þeir sáu flugvjelina sveima Framh. á bls. 2. Sænskum nasistaíor- ingja fleygt út af Skansen Stokkhólmi í gærkvöldL SVEN OLAV LINDHOLM, foringja stærsta nasista- flokks Svíþjóðar, — Svensk Socialist Samling — og nokkrum fjelögum hans, var kastað út af .skemti- staðnum Skansen í Stokk- hólmi í dag. Fólk, sem, var að skemta sjer í Skansen, reiddist við þá fjelaga, er þeir heilsuðu sænska fánanum með nas- istakveðju, er verið var að draga fánann af stöng, í kvöld, og rjeðist mann- fjöldi á þá nasistafjelaga og kastaði þeim út. Sænska blaðið „Alle-i handa“ segir í þessu sam- bandi, „að svona eigi að fara með alla nasista“. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.