Morgunblaðið - 29.06.1943, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ
10
Fjelagslíf
BOÐHLAUP
Ármanns urrfhverf.
.hverfis Reykjavík
fer fram í kvöld
og hefst á íþróttavellinum
klukkan 8,30. Keppendur
og starfsmenn eru beðnir
að mæta klukkan 8 á vell-
inum.
Stjórn Ármanns,
Tilkynning
SUMARSTARF
K.F.U.K.
hefir að þessu sinni ákveð-
ið að hafa starf sitt að
Skálafelli við Akrafjall. —
Flokkur fyrir telpur á
aldrinum 10—13 ára verð
ur dagana 12,—16. júlí( ef
næg þátttaka fæst, Flokk-
ur fyrir stúlkur 14 ára og
eldri verður frá 16.—23.
júlí, Nánari upplýsingar
veittar í kvöld og næstu'
kvöld eftir klukkan 8 í
húsi fjelagsins, Sími 3437.
Kaup-Sala
SUMARKJÓLAEFNI
Fram, Klapparstíg,
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina selur
Hjörtur Hjartarson, Bræðra
borgarstíg 1. Sími 4256.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. —
Sótt heim. Staðgreiðsla. —
Sími 5691. Fornverslunin
Grettisgötu 45.
Bón með þessu vörumerki
er þekt fyrir gæði og lágt
verð. Fyrirliggjandi í 1/4,
1/2 og 1 lbs. dósum. Leður-
verslun Magnúsar Víglunds
sonar. Garðastræti 37. Sími
5668.
TRICOTINE
blússur (margar stærðir).
,Verð kr. 32,00. Saumastof-
an Uppsölum, Sími 2744.
KAUPI NOTUÐ
karlmannaföt næstu daga
frá kl. 2—4 í Lækjargötu
8, uppi. Sími 5683.
K-:->
Tapað
SJÁLFBLEKUNGUR
merktur „Karl Jónsson“,
tapaðist síðastliðinn fimtu
dag. Skilist til Karls Jóns-
sonar læknis.
LOK AF BENSÍN-
tank hefir tapast í Hafn-
arfirði, ásamt lyklakippu.
Vinsamlega skilist í versl-
un Jóns Mathiesen, Hafn_
arfirði.
GULL-ARMBANDSÚR
tapaðist frá Tjarnarbrú að
Bergstaðastræti 48 A. Skil-
ist til Þórdísar Ijósnrfíður.
Vantar lækni,
prest oy kennara
Frjettaritari vor á
Djúpavík skrifar:
MISLINGAR og inflú-
ensa ganga hjer í sveit og
leggjast rrjislingar allþungt
á fólk. Dæmi eru til þess}
að alt heimilsfólkið hafi
tekið mislingana í einu.
Þurfi menn á lækni að
halda verður að sækja
hann í annað hjerað og
kostar það viðkomanda
venjulega 6—800 krónur.
Nú er svo komið í þessu
hjeraði, að hjer er hvorki
læknir, prestur eða kenn-
ari. Ágætur læknisbústað-
ur og góður heimavistar-
skóli standa auðir, en
pressetrið Árnes, höfuðból
og með mestu hlunninda-
jröðum hjer á landi, hefir
verið selt á leigu fyrver-
andi vinnunjanni á sama
stað.
Fjölmennur fundur
haldinn í Árnesi síðastlið-
inn laugardag sendi land_
lækni og biskupi mótmæli
vegna aðgerða þeirra í
málum fyrverandi læknis
og prests.
Fjelag ísl. iðnrekenda held-
ur almennan fjelagsfund í
dag kl. 3 í Oddfellowhúsinu
og verður þar rætt um kaup-
og kjarasamninga við Iðju,
f.jelag verksmiðjufólks.
I.O.G.T.
ST. VERÐANDI NR. 9.
Fundur í kvöld klukkan
8}30. Venjuleg fundarstörf.
Frjettir frá Stórstúkuþingi.
Upplestur (G. G.) fram-
haldssagan. Einleikur á pí-
anó: Skúli Halldórsson.
Allir embættismtenn eru
beðnir að vera mættir kl. 8
Vinna
BARNGÓÐ TELPA
11—13 ára óskast til að
passa dreng á öðru ári. ■—
Upplýsingar á Reynimel 34
uppi.
FORMIÐDAGSSTÚLKA
óskast. Sjerberbergi. Upp-
lýsingar í Þorsteinsbúð.
HREINGERNINGAR
Fljótt og vel. Jónatan}
sín)i 5395.
STÚLKA
óskast í vist um tíma allan
daginn eða hálfan daginn,
eftir samkomulagi. Mána-
götu 24.
HRENGERNINGAR
Sími 5474
ATVINNU og HÚSNÆÐI
fá þeir} er ráðast til kaupa
vinnu hjá bændum í sum-
ar. Ur miklu er að velja.
Komið, skoðið og veljið. —
Ráðningarstofa landbún-
aðarins. Lækjargötu 14 B.
Sími 2151. Opin daglega
kl. 9—12 og 1—7.
Frami Vesf-
ur-íslend-
ings
WINNIPEG: — Hjálmar
A. Bergmann var nýlega kos-
inn forseti lögfræðingafje-
lags Manitopa. Bergmann
fædrdist í Norður-Dakota árið
1881. Foreldrar hans voru
þau Eiríkur Hjálmarsson
Bergmann frá Stakk á Köldu
kinn og Ingibjörg Pjeturs-
dóttir Thorlacius frá Hrafna-
gili í Eyjafirði.
Bergman eldri var á moðal
forystumanna íslensku land-
nemanna í Dakota, og var
hann meðlimur stjórnar-
nefndar Dakota áður en Ða-
kota varð eitt af ríkjum
Bandaríkjanna.
Bergman yngri tók próf í
lögum við háskólann í Mani-
toba árið 1906. Hann gekk
að eiga Emelíu Sigurbjörgu
dóttur Jóns Jónssonar Bar-
dal frá Mjóadal í Bárðardal
og Guðbjargar Guðmunds-
dóttur frá Smiðsgerði í Kol-
dal, Skagafirði. Bergmann
hefir löngum verið forystu-
maður í málefnum Islend-
inga hjer, og hefir hann alt-
af kappkostað að kynna börn-
um sínum þrem sem best ís-
lenska menningu.
180. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 4.15.
Síðdegisflæði kl. 16.38.
Næturlæknir er' í Lækna-
varðstöðinni í Austurbæjar-
skólanum. Sími 5030.
Næturvörður er í Reykja-
víkur Apóteki.
Sjúklingar á Vífilsstöðum
hafa beðið blaðið að færa
Glímufjelaginu Ármanni kær-
ar þakkir fyrir skemtun, sem
það hjelt í Oddfellowhúsinu
2. júní til ágóða fyrir bóka-
safnssjóð sjúklinga á Vífils-
stöðum. Sömuleiðis Agli
Benediktsyni, sem ljet hús-
næðið í tje án endurgjalds.
Hjónaband. í dag verða
gefin saman í hjónaband af
síra Bjarna Jónssyni ungfrú
Jóhanna Svava Kolbeinsdótt-
ir, Ilöfðaborg 10 og Ingvald
Föreland.
Afhending skömtunarseðl-
anna hófst í Góðtemplarahiis-
inu í gær. Um 10 þús. manns
sóttu seðla sína í gær. Af-
hendingin heldur áfram í
dag og á morgun. Menn eru
beðnir að sækja seðla sína
sem fyrst.
Ægir, 5. tbl., 36. árg., hef-
ir borist blaðinu. Eftisyfir-
lit: Erlendir neytendur og ís-
lenskar framleiðsluvörur. —
Sölusamband ísL fiskframleið
enda (tíu ára starf). — Átt-
ræður: Árni G. Þóroddsson.
— Togarinn Garðar sekkur.
— Skip og vjelar. — Vetrar-
vertíðin í Sunnlendingafjórð-
ungi 1943. Yfirlit yfir sjó-
sókn og aflabrögð í maí 1943.
Útvarpið í dag:
12.10—13.00 Iládegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp
19.25 Hljómplötur: Lög úr
óperettum og tónfilmum.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Indversk trúar-
brögð, II (sjera Sigurbjörn
Einarsson).
20.55 Hljómplötur: Kirkju-
tónlist.
Þriðjudagur 29, júní 1943.
Skrifstofa mín
verður lokuð í dag
vegna jarðarfarar
Oddur Helgason
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að
SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Giljum í Mýrdal, andaðist að heimili sínu laugardag-
inn 26. þ. mán.
Markús Jónsson.
Elsku litla dóttir ókkar
ERNA
andaðist 26. þ. mán.
Kristín Stein^dóttir. Sverrir Svendsen.
Jarðarför móður okkar
HELGU JÓNSDÓTTUR
fer fram frá fríkirkjunni miðvikudaginn 30. júní og
hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu, Njáls-
götu 22, kl. 4 e. h.
Minerva Hafliðadóttir. Helgi Hafliðason.
Móðir mín
ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR
verður jarðsungin frá dómkirkjunni miðvikudaginn
30. þ. mán.Athöfnin hefst á heimili hinnar látnu Hall-
veigarstíg 8 A kl. 4 síðd.
Guðrún Jóhannsdóttir.
Jarðarför
OLA KR. OLSEN
fer fram miðvikudaginn 30. júní og hefst með hús-
kveðju á heimili hans Laugaveg 11 kl. 1 e. h. Jarðað
verður frá Dómkirkjunni.
Ólafía Sigurðardóttir. Jarðþrúður Olsen.
Harry Olsen.
Jarðarför mannsins míns
HERMANNS JÓNSSONAR
fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 1. júlí og
hefst með bæn á heimili hans Mjölnisholti 8 kl. 3
e. hád.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda
Kristín Bjamadóttjr.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem auðsýndu
okkur samúð við fráfall og jarðarför föður og tengda-
föður okkar
GUNNARS BENEDIKTSSONAR
og á einn eða annan hátt heiðruðu minningu hans.
Fyrir hönd aðstandenda
Björg Gunnarsdóttir. Hólmfríður Gunnarsdóttir.
Kristján Ámason.
Best ú auylýsa í Moryunblaðinu