Morgunblaðið - 13.08.1943, Side 1
Vikublað: ísafold.
30. ár., 180. tbl. — Föstudagur 13. ágúst 1943.
Isafoldarprentsmiðja hf.
ÞJÓÐVERJAR BYRJA BROTT-
FLUTNING FRÁ SIKILEY
Verjast þó enn af
hörku við Randazzo
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá Reuter.
FRJETTARITARAR Isíma í kvöld, að glögt megi sjá
þess merki, að Þjóðverjar hafi byrjað brottflutning að
minsta kosti birgða frá Sikiley, og sjeu nú smáskip og
bátar stöðugt á ferð yfir Messinasundi, mjög hlaðnir, en
en áköf loftvarnaskothríð sje stöðugt yfir sundinu, bæði
úr byssum skipanna og eins úr fjölmörgum stórum loft-
varnabyssum beggja megin sundsins. Ekki hefir þesst
brottflutnings enn verið getið í herstjórnaAskynningum
bandamanna.
Willkie
hygst sigra
í kosningum
Rushwille, lndiana í gærkv.
WENDELL WILLKIE sagði
hjer í dag, er hann var að
íæða kosningahorfur við aðra
leiðtoga Republikanaflokks-
íhs, að flokkurinn ætti' að
sýna raunhæfa utanríkispóli-
tík, og sýna vilja sinn til þess
á alla lund. Sagði Willkie, að
flokkurinn gæti og skyldi
vinna næstu forseta- og þing-
kosningar, jafnvel þótt enn
yæri stríð, er þær færu fram.
Flugvirki
ráðast á
Bonn
London í gærkveldi.
TILIvYNT var í bækistöðv-
um ameríska flughersins í
Rretlandi, að amerísk flug-
vírki hefðu í björtu í dag
gert árásir á þrjár borgir í
Þýskalandi, og var aðalárás-
in gerð á Bonn, en einnig var
ráðist á Gelsenkirchen.
Mótspyrna þýskra orustu-
flugvjela var öflug alla leið-
ina, enda komu 25 af virkj-
unum fljúgandi ekki aftur.
Um 20 þýskar orustuflugvjel-
ar voru skotnar niður. Einnig
var loftvarnaskothríð hörð.
Breskar og amerískar or-
ustuflugvjelar fóru til móts
við virkin, er þau komu aftur,
og vörðu þait á síðasta kafla
heimleiðarinnar. Þær lentu
einnig í bardögum við þýsk-
ar orustuflugvjelar.
Aðallega er framleitt bensín
úr kolum á stöðum þeirn, er
ráðist var á. — Reuter.
Gibson ætl-
ar að kenna
Quebes í gærkveldi.
•GIBSON flugforingi, sá er
stjórnaði árásinni á Eider- og
Möhne-stíflugarðana í Þýska
landi, og sem kom hingað yest
ur með Churchill, sagði við
blnðamenn, að hann ætlaði að
lá'ta flUgmenn í Kanada og
Bandaríkjunum njóta góðs af
reynslu sinni í lofthernaði, en
hann hefir farið 174 flugferð-
ir yfir óvinaland. Eftir dvöl
sína í Kanada mun Gibson
ferðast um Bandaríkin í mán-
aðartíma. — Reuter.
MANNTJÓN í
BRETLANDI.
Skýrsla hefir verið gefin út
um manntjón í júlímánuði af
völdum þýskra loftárása, og
hafa samkvæmt henni 167
menn fafist í Bretlandi, en
210 særst svo, að þurft hafi að
flytja þá í sjúkrahús.
Stúlka slasast
í óbygðum
ÞAÐ SLYS vildi t il á
Landmannaafrjetti, að
stúlka, sem var þar á ferð
ásamt öðru fólki, skarst svo
mikið á fæti, að hún gat
ekki gengið.
Samferðafólk hennar
hafði engin tök á því að
koma henni til bygða, svo
að lögreglunni í Reykjavík
var gert aðvart. — í gær
lögðu svo læknar og lög-
regluþjónar ásamt fleirum,
af stað til þess að sækja
stúlkuna.
IMæturfrost
spilla
görðum
SVO KALT hefir verið
hjer undanfarnar nætur að
næturfrost hafa stórlega
spilt kartöflugrasi. Einkum
hefir kartöflugras farið illa,
sem náð hefir minstum
vexti er þetta áfall kom. —
Má búast við að í sumum
görðum verði kartöfluupp-
skera sáralítil.
Þar sem grasið stóð vel,
áður en þessi frost komu,
stendur það mikið af því, að
enn getur ræst úr uppsker-1
unni, ef vel viðrar hjer á
eftir til haustsins.
Eftir veðurfregnum að
dæma af Norðurlandi, má
búast við, að kartöfluupp-
skera bregðist alveg í mörg-
um sveitum.
Breskt vopn
gegn innrás
London í gærkv.
TILKYNT var hjer í dag,
að breski herinn hafi í fór-
um sínum ágæta fallbyssu,
sem ekki er þó eins fræg
og „sexpundarinn", sem
þektastur er orðinn úr Af-
ríkustyrjöldinni. Þessi bvssa
hefir sömu hlaupvídd, og
hefir nú í nokkur ár verið
til taks, ef Þjóðverjar
skyldu reyna innrás í Bret-
land, en þetta er strand-
Framh. á bls. 12.
STJÓRNAR INNRÁS
Þetta er Patton hershöfð-
ingi sem stýrir 7. her Banda
ríkjanna á Sikiley.
Finnar fá auk-
inn brauðskamt
Stokkhólmi í gærkveldi.
TILKYNT hefir verið í
Ilelsinki, að vegna góðrar
uppskeru í sumar, bæði í Finn
landi og öðrum Evrópulönd-
um, verði brauðskamturinn í
landinu hækkaður um 50% (
mjög bráðlega. — Reuter.
Japanar hörfa á
I\lýju-Georgiu
Washington í gærkveldi.
-♦JAPANAR halda enn und-
an á Nýju Georgíu, og eru nú
Bandaríkjamenn eigi allfjarri
Vaurukoo-höfn, en umhverfis
hana hafa Japanar ramgerv-
ar stöðvar. Er álitið, að vorn
þeirra muni haröna, eftir því
sem nær dregur meginstöðv-
unum. Japanar hafa verið að
draga birgðir til varnarliðs
síns þarna, og hefir tekist að
sökkva nokkrum innrásarbát
um, sem voru í slíkum ferðum
— Reuter.
MORÐINGI
HANDTEKINN.
Frjettaritari svissneska
blaðsins „Neiie Ziiricher Zeit-
iuig“ segir í skeyti frá Milano
að Dumini, einn af þeim, er
forðum myrti Matteotti, hafi
verið tekinn fastur á Italíu,
eftir að hafa farið lengi huldu
höfði.
Churchill í
Bandaríkjunum
Ottawa í gærkveldi.
CIIURCHILL forsætisráð-
herra fór frá Quebec í morg-
un í einkalest ásamt frú sinni
j'g dóttur. Ilann fór yfir
landamæri Bandaríkjanna
við Niagara Falls og skoðaði
Niagarafossana. Síðan hjelt
hann áfram inn í Bandaríkin,
‘og var hermt, að hann myndi
hitta Roosevelt, en énginn
staður var nefndur í þessu
sambandi. Síðar m-un svo
Chiircþills snúa aftur til Que-
bes til viðræðnanna við
Roosevelt, og er ekki útilok-
að, að þeir verði samferða
þangað. Ekkei’t hefir verið
látið uppi um það, hvenær
viðræðurnar byrja. — Reuter.
Ráðist á
Kuril-eyjar
London í gærkveldi.
JAPANSKÁR fregnir segja
frá því, að amerískar Libera-
tor sprengjuflugvjelar hafi
ráðist á ýmsa staði á Kuril-
eyjum, en það er eyjaklasi,
sem liggur milli Kamts-
chakta-skaga og Japan. Einu
sinni áður hefir verið ráðist
á bækistöðvar Japana á eyj-
um þessum, og voru þá éinn-
'ig Liberator-flugvjelar að
verki. — Reuter.
3 skipum sökt.
ÞÝSKA frjettastofan til-
kynti í dag, að þýskar flug-
vjelar hefðu í gær sökt 3 skip
um bandamanna við Sikiley,
samtals 12.000 smálestum, en
laskað eitt skip. — Reuter.
Við Randazzo er enn bar
ist af mestu hörku og hafa
bandamenn nú nálgast bæ-
inn svo, að þeir geta skotið
á hann af fallbyssum. Ekk-
ert dregur úr vörn Þjóð-
verja þar, nje heldur á víg-
slóðum áttunda hersins, er
hefir átt í hörðum bardög-
um í dag, en tekist að sækja
nokkuð fram, meðal annars
var tekið þorp eitt 2000 m.
uppi í hlíðum Etnu.
NÝ LANDGANGA
Bandaríkjamenn hafa enn
sett lið á land að baki víg-
línu Þjóðverja á norður-
ströndinni, eigi allfjarri Or-
landohöfða. Voru Þjóðverj-
ar þarna viðbúnir og sló í
hina hörðustu orustu. —
Bandaríkjaherskip, bæði
beitis'kip og tundurspillar
studdu landgönguliðið með
fallbyssum sínum. Bardag-
ar munu standa þarna enn,
en sumt af landgöngusveit-
unum virðist hafa komist í
samband við meginher
Bandaríkjamanna á þess-
um slóðum. — Þjóðverjar
segja frá annari landgöngu-
tilraun, sem hafi verið ger-
samlega hrundið.
Arásir
Á ÍTALÍU
Fljúgandi virki rjeðust í
gær á borg eina á Mið-ítal-
íu, mikla flutningamiðstöð,
og vörpuðu sprengjum á
járnbrautarstöðvar þar. —
Sagt er, að mikið tjón hafi
orðið. ítalir segjast hafa
skotið niður 12 flugvjel-
anna. Ennfremur var ráðist
á Reggio di Calabria, og
fleiri staði á suðurenda ít-
alíuskagans.
MANNTJÓN
ÍTALA
ítalska frjettastofan gaf
Framh. á 2. síðu.