Morgunblaðið - 06.06.1944, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.06.1944, Blaðsíða 10
]0 KOEGUNBLADIÐ Þriðjudagnr 6. júní 1944, 1Á/ S>om.eríet auqluim. LARKY DERFORD í leit að lífshamingju — 10. dagur — ■MW$Í Hann horfði á hana með bros í augunum, og hún brosti á móti. „Heldur þú ekki, að þú ættir að segja mjer, hvað þú hefir verið að gera allan þann tíma, sem þú hefic dvalið í París?“ „Jeg hefi lesið mikið. Átta til tíu stundir á dag. Jeg hefi hlýtt á fyrirlestra í Sorbonne. Jeg hygg. að jeg hafi nú lesið alt það mikilvægasta í frönskum bókmentum, og jeg get lesið latínu, a. m. k. óbundið mál, jafn auðveldlega og frönsku. Grískan er auðvitað erfiðari. En jeg hefi mjög góðan kenn- ara. Áðu’r en þú komst, var jeg vanur að fara til hans þrjú kvöld í viku“. ,',Og hvað græðir þú á því?“ „Meiri þekkingu", sagði hann og brosti. „Hvenær kemurðu aftur til Chicago?“ „Chicago? Jeg veit það ekki. Jeg liefi ekkert hugsað um það“. „Þú sagðir, að ef þú hefðir ekki fundið það, sem þú leitað- ir að, eftir tvö ár, þá hættirðu við alt sarnan og kæmir heim“. „Jeg get ekki snúið við núna. Jeg er kominn á sporið. Jeg eygi nú víðáttumikil lönd and- ans fyrir framan mig, sem jeg er ákveðinn í að ferðast um“. „Hvað býstu við að finna þar?“ „Svörin við spurningum mín- þegar út í lífið kom, og þeir urðu að vinna fyrir daglegu brauði sínu“. „Jeg lái þeim það ekki. En nú hefi jeg svo góða aðstöðu, að jeg á nóg til þess að lifa af. Ef jeg ætti það ekki, yrði jeg að vinna fyrir mjer, eins og hver annar“. „Er þjer þá alveg sama um peninga?“ „Já“, svaraði hann og glotti. „Hvað heldurðu, að þetta taki langan tíma?“ „Jeg veit það ekki. Fimm ár Tíu ár“. „Og síðan? Hvað ætlarðu svo að gera við allan vísdóminn?“ „Ef jeg get nokkru sinni afl- að mjer vísdóms, verð jeg sennilega orðinn nógu spakur tií þess að vita, hvað jeg á að gera við hann“. Isabel þrýsti saman höndun- um í ákafa og beygði sig áfram í stólnum. ' „Larry, þetta er rangt hjá þjer. Þú ert Ameríkumaður. Þinn staður er ekki hjer. Hann er í Ameríku“. „Jeg kem heim, þegar jeg er reiðubúinn“. „En hvað um mig? Er þjer alveg sama um mig?“ „Nei. Jeg vil giftast þjer“. „Hvenær? Eftir tíu ár?“ „Nei. Núna. Eins fljótt og mögulegt er“. „Og á hverju eigum við að lifa? Mamma hefir ekki ráð á um“. Hann horfði nær því glað , lega á hana, svo að ef hún hefði !að lata miS ía neitt‘ Auk Þess ekki þekt hann svona vel, hefði ivlldl hun Það' ekkl- Þott hun hún getað haldið, að hann væri Sæti- Henni fyndlst ran& að að gera að gamni sínu. „Jeg vil hjalP.a ^er> ^ar Þu ekki gerð' vita, hvort guð er til, eða ekki. ir neh<- • Jeg vil komast að því, hvers vegna hið illa er til. Jeg vil vita, hvort sál mín er ódauð- leg, eða hvort öllu lýkur, þeg- ar jeg dey“. „Já, en Larry“, hún brosti, „um aldraraðir hafa menn brot- ið heilann um spurningar þess- ar. Ef hægt væri að svara þeim, væri áreiðanlega búið að því fyrir Iöngu“. Larry hló. „Hlæðu ekki, eins og jeg hafi sagt eitthvað heimskulegt“, sagði hún reiðilega. „Nei, þvert á móti var þetta skynsamlega sagt. En hafi mennirnir brotið heilann um spurningar þessar um aldarað- ir, sannar það aðeins, að þeir hafa ekki getað annað og verða að halda því áfram. Auk þess er ekki satt, að enginn hafi fundið svör við þeim. Svörin eru fleiri en spurningarnar, og „Jeg tæki ekki við neinu frá móður þinni“, sagði Larry. „Jeg hefi 3000 á ári. Það er mikið í París. Við gætum haft litla íbúð. Við hefðum það dá- samlegt, Isabel“. „Það er ekki hægt að lifa af þrem þúsundum á ári, Larry“. „Auðvitað er það hægt. Margir hafa minna, og lifa þó ' vel“. „En jeg vil ekki lifa af þrem þúsundum á ári. Það er engin ástæða til þess“. „Jeg hefi lifað af miklu minna“. „En hvernig?" Hún leit í kringum sig í skuggalegu herberginu, og það fór^ hálfgerður hrollur um hana. „Þú veist ekki, hváð þú ert að biðja mig um. Jeg er ung. Jeg vil skemta mjer. Jeg vil fara í samkvæmi og á dans- hest. Jeg vil ekki ferðast um í strætisvögnum og leigubif- reiðum. Jeg vil eiga minn eigin margir hafa fundið svör, sem leiki. Jeg vil spila golf og eiga eru fullnægjandi fyrir þá. Ruysbroek gamli, til dæmis“. „Hver er það?“ „Það er náungi, sem jeg þekti bíl“. Hún varð sjer alt i einu ekki, þegar jeg var í menta- meðvitandi um, að augu hans skólanum", svaraði Larry glað- hvíldu á henni. Þau voru bíið- lega. | leg, eins og altaf, þegar hann Isabel vissi ekki, hvað hann horfði á hana, en dálítið gletn- átti við, en hjelt áfram: isleg. „Þjer finst jeg vera „Mjer finst alt þetta svo full- heimsk, er það ekki? Smá- orðinslegt. Þetta eru hlutir, munaleg og eigingjörn?“ sem nokkrír strákanna í menta j „Nei, þetta er mjög eðlilegt“. skólanum voru vanir að brjóta Hann stóð og sneri bakinu í heilann um, en gleymdu síðan,! arininn. Hún stóð á fætur og gekk til hans, svo að þau stóðu augliti til auglitis. „Larry, ef þú ættir ekki eyr- is virði, og fengir atvinnu, sem gæfi af sjer 3000 á ári, myndi jeg ekki hika við að giftast þjer. Jeg myndi sjóða fyrir þig matinn og búa um rúmin. Mjer væri sama, hverju jeg klædd- ist. Jeg myndi neita mjer um alt. Mjer væri ánægja að því, þar eð jeg vissi, að það væri að- eins um stundarsakir, meðan þú værir að komast áfram. En með þessu háttalagi verð jeg vinnuþræll alt mitt líf. Og til hvers? Til þéss að þú getir not- að tímann til þess að finna svör við spurningum, sem þú hefir sjálfur sagt, að væru óleysan- legar“. „Þú hefir dregið upp mjög dökka mynd af lífinu í París, með litlum tekjum. En þannig er það alls ekki. Það er hægt að klæða sig fallega, án þess að fara til Channel. Það býr ekki alt skemtilegasta fólkið í ná- grenni Sigurbogans eða Foch- götu. Yfirleitt býr þar lítið af skemtilegu* fólki, því að skemti legt fólk á oftast litla peninga. Jeg þekki margt fólk hjer, listmálara, rithöfunda, stú- denta, franska, enska og amer- íska, sem jeg er viss um, að þjer finst miklu skemtilegra en langnefjaðar greifafrúr og visnir markgreifar Elliotts frænda þíns“. Isabel ypti öxlum. „Það getur vel verið. En jeg er ekki vön að umgangast þannig menn. Jeg á enga sam- leið með þeim“. „Og hvar erum við þá stödd?“ „Nákvæmlega þar sem við byrjuðum. Jeg hefi átt heima í Chicago síðan jeg fyrst man eftir mjer. Allir vinir mínir eru þar. Öll mín áhugamál eru þar. Þar á jeg heima. Og þú líka. — Mamma er veik, geng- ur með ólæknandi sjúkdóm. Jeg gæti ekki farið frá henni, þótt jeg vildi“. „Þú vilt þá ekki giftast mjer, nema jeg komi með þjer til Chicago?“ Isabel hikaði. Hún elskaði Larry. Hún vildi giftast hon- um. Hún vissi, að hann þráði hana. Hann hlaut að láta und- an, þegar til kastanna kom. Hún efaðist þó — en varð að hætta á það. „Nei, Larry“. Hann kveikti í pípu sinni. Síðan gekk hann framhjá henni, út að öðrum glugganum. Hjarta hennar barðist ótt og títt. Loks sneri hann sjer við. „Jeg vildi, að jeg gæti sýnt þjer fram á, hve mörgum sinn- um fullkomnara líf það er, sem jeg býð þjer, en nokkuð annað, sem þú hefir áður þekt. Jeg vildi, að jeg gæti leitt þjer fyr- ir sjónir, hve æsandi og auð- ugt líf andans er“. T óbaks-str ákur inn Æfintýri eftir P. Chr. Asbjörnsen. 2. Þegar frúin sá þetta, reiddist hún afskaplega. „Hvernig vogar svona leppalúði að kyssa dóttur okkar, við sem er- um af bestu ættum í borginni“, sagði hún við mann sinn. Hann reyndi að sefa hana, sem best hann gat, og sagði að enginn vissi, hvað úr unglingunum yrði, og enginn neitt um framtíð sinna eigin barna, þetta væri ágætis piltur og greindur vel, og oft væji mjór mikils vísir, sagði hann. — Nei, nei, það var sama, bæði hvað hann væri og hvað úr honum yrði, „þegar fátæklingar og lítilsiglt fólk lendir með stórmennum, þá blæs það sig út og hreykir sjer hátt, og sá sem einu sinni er skildingur, verður aldrei ríkis- dalur, þótt hann glói eins og gullpeningur“, sagði frúin borgarstjórans, þar fengi hann ekki að vera lengur, hún vildi losna við hann af sínu heimili. Og úr því borgar- stjórinn rjeði ekki við konuna sína, þá var ekki um annað að gera, en að koma piltinum í burtu, og svo sendi borg- arstjórinn hann burt á skipi með kaupmanni einum, sem í staðnum var í verslunarsiglingum, og átti hann að vera káetuþjónn á skipinu. Við konu sína sagði borgatstjórinn, að hann hefði selt piltinn fyrir tóbak. En áður en piltur ljet í haf, braut borgarstjórinn gull- hringinn sinn í tvennt og fjekk honum annan helminginn, svo þeir skyldu geta þekkst, ef þeir hittust aftur. — Svo sigldi skipið af stað og kom næst að landi í hafnarborg einni lengst úti í löndum. Þangað til borgarinnar var ný- lega kominn prestur, sem var óhemju mikill ræðuskör- ungur, svo mikill, að allir sem vettlingi gátu valdið, fóru alltaf til kirkju að hlusta á hann, og er messað var, fór líka öll skipshöfnin til kirkju, en piltur var einn eftir á skip- inu. Þegar hann var að búa til matinn, heyrði hann, að hrópað var hástöfum nærri skipinu. Hann gekk upp á þilj- ur og sá að það var gömul kerling, sem stóð þar við sund nokkurt og hrópaði: „Nú er jeg búin að standa hjerna við ?undið í hundrað ár og hrópa, og vona að einhver myndi llytja mig yfir sundið, en enginn hefir heyrt til mín, en nú hefir þú heyrt, og jeg skal líka launa þjer vel, ef þú kemur mjer yfir“. Piltur skaut báti og reri kerlingu yfir, en þá bað hún hann endilega að koma með sjer til systur hennar, sem átti heima í bergi einu þar nærri. Þar átti hann að biðja um gamlan dúk, sem lá uppi á eldhúshyllu. Þegar þau Angun jeg hvíli með gleraugum f r á Týli hí Dómarinn: — Þjer eruð sak- aðir um að hafa tekið járn- stengur frá Páli járnsmið. Þjófurinn: — Já, læknirinn sagði, að jeg væri blóðlaus og vrði að taka járn. ★ „Læknirinn minn sagði mjer, að jeg geti ekki lifað lengi með þann sjúkdóm, sem þjáir mig.“ „Þá ættirðú að reyna minn lækni. Hann hefir sjerstakt lag á því að draga alla sjúkdóma á langinn. ★ Nýr leigjandi: — Er engin bjalla í þessu herbergi? Gestgjafafrú: — Nei, en þjer þurfið ekki annað en að stappa í gólfið og þá kærir leigjandinn neðan undir fyrir mjer, og þá kem jeg. ★ — Áttu sígarettu? — Hvað er þetta, jeg hjelt áð þú værir hættur að reykja. — Nei, til að byrja með er jeg aðeins hættur að kaupa tóbak. ★ Lögregluþjónn: — Jæja, lagsi, svo þú ætlar að stinga af, þeg- ar þú ert búinn að brjóta rúð- una. Strákur: — Nei, jeg ætlaði bara að hlaupa heim eftir pen- ingum til þess að borga rúðuna með. ★ Kaupmaðurinn: — Sem merki um þakklæti mitt fyrir vel unnið starf í 25 ár, leyfi jeg mjer að færa þjer mynd af mjer að gjöf. Verslunarmaðurinn: — En hvað það var líkt yður. ★ Kennarinn: „Hvernig stend- ur á því, að þú leggur altaf vit- laust saman? Er enginn heima, sem hjálpar þjer?“ Drengurinn: „Jú, pabbi“. Kennarinn: „Hvað er hann?“ Drengurinn: „Hann er þjónn í véitingahúsi“. ★ — Hvernig gengur það með veika fótinn? — Nú, það gengur vel, þegar jeg sit, en þegar jeg geng, geng ur það illa. BÓNAÐIR OG SMURÐIR BÍLAR H.f. STILLIR, Laueaveg 168. — Sími 5347.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.