Morgunblaðið - 09.01.1945, Side 1
STÓRHRÍÐ Á VESTURVÍGSTÚÐVUIMUM
Handaríkjamenn
biíast við
hefndarskothríð
hráðlega
London í gærkveldi:
' BANDARÍKJAMENN búast
við því, að Þjóðverjar muni
ef-tir svo sem einn til tvo mán-
uði, byrja áð skjöta hefndar-
vopnum á borgir og staði á
austurströnd Norður-Ameríku,
sagði Ingram flotaforingi, yfir-
maður Atlantshafsflota Banda-
ríkjanna í dag við frjettamenn.
Hann kvað flotánn gera allar
hugsanlegar ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir þetta, og
sagði, að álilið væri, að Þjóð-
vérjar myndu senda skeytin
annað hvoi't af skipum, úr flug
vjelum, eða kafbátum. Sagði
hánn, að enn hefðu Þjóðverjar
um 300 kafbáta á Atlantshaf-
inu, en Bandaríkjamenn væru
ákveðnir í að reyna að hindra
þá í að komast í skotfæri við
strendur landsins, eða að minsta
kósti að sjá um að þeir sendu
ekki frá sjer margar svifsprengj
ur. ■—Reuter.
Bretar elta
Elasmenn
London í gærkveldi:
BRESKAR hersveitir halda
áfram að elta Elasmenn, sem
flýja til norðausturs og suð-
austurs, og hafa bresku her-
sveitirnar hreinsað til auk þess
á mest öllum Attikuskaga, víð-
ast hvar gegn mjög lítilli mót-
spyrnu. í norðausturátt eru
framsevtir Breta komnar um
35 km frá Aþenu, en bæði í
höfuðborginni og Piræus er alt
rólegt í dag.
Ýmsir fregnritarar telja, að
Elasmenn muni ætla að setja
á laggir sjerstaka stjórn í Salo
niki, eða einhverri annari borg
í norðurhluta landsins, þar sem
enginn vafi geti talist á því, að
Elas eigi miklu fylgi að fagna
víðast hvar í Norður-Grikk-
landi.
Scobie hershöfðingi hefir
hrósað mönnum sínum mjög
fyrir hreystilega baráttu þeirra
í Aþenu. \
Sagði sig úr nefnd.
London: Nýlega hefir fulltrúi
Bandaríkjanna sagt sig úr
nefnd þeirri, sem fjallar um mál
stríðsglæpamanna. — Talið er
að hnnar verði skipaður.
Þýsk þrýstiloftsflugvjel
V . » iHIWHH'l, ÆLflW
Hjer birtist fyrsta myndin af einni hinna nýju þrýstilots-
knúðu orustuflugvjcla, sem Þjóðverjar eru farnir að nota. Eru
Messerschmitt 262, en þær hafa tvp þrýstiloftslircyfla undir
þær óhemju hráðfleygar. Þessi vjel er talin vera af tegundinni
vængjunum. Myndin var tekin af amerískum orustuflugmanni.
Rússar
inni
í Budanest
Þjóðverjar né aftur
borg í 32 km. fjarlægð
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RUSSAR tilkvntu í herstjórnarfregnum sínum í kvöld, að her-
sveitum þeirra hefði enn orðið talsvert ágengt í sókn sinni í
Budapest og tekið þar hina miklu og fÖgru þinghöll. All’s ségjast
þeir hafa náð 103 húsasamstæðum í borginni. Þjóðverjar hafa
tekið aftur borgina Esztergom i sókn sinni seluliðinu í Buda-
pest til hjálpar og gera stöðugt ákafa'r aráSir gegn Rússum um
30 km frá Budapest.
Rúsar segja, að Þjóðverjar
beiti feikna mörgum stórum
skriðdrekum og flugvjelum í
gagnsókn sinni og skeyti lítt
um tjón. Bardagar eru mann-
skæðir. .— Þjóðverjar sækja
þarna suður með Dóná að vest-
an, en Rússar norður með henni
að vestan. í Budapest verjast
Þjóðverjar og Ungv. af ákaf-
legri hörku og ofstæki, enda
eygir nú varnarliðið vonir um
að því verði komið til hjálpar.
Annars staðar á Austurvíg-
stöðvunum urðu engar merki-
legar breytingar að sögn Rússa.
Þjóðverjar hafa nú rofið þögn-
ina um gagnsókn sína í nánd
við Budapest og segjast í henni
hafa eyðilagt 159 skriðdeka fyr
ir Rússum.
Framsókn í Burma.
London í gærkveldi.
FRAMSÓKN bresku herj-
anna í Burma er enn allhröð
og er henni stefnt í þrem fylk
ingum í áttina til Mandalay.
Hefir einn herinn tekið bæinn
Swebaw, sem er þýðingarmik-
il samgöngumiðstöð. — Önnur
fylking sækir að Mandalay úr
norðvestri meðfram járnbraut
einni, og er sú fylking nú rúma
hundrað kilómetra frá borg-
inni. Japanar hafa ekki mikl-
ar varnir á þessum slóðum, en
eftirförin er Bretum erfið,
vegna þess, hve land er ilt yf-
irferðar. — Reuter.
Bandamenn hafa unnið
á og hrakið Þjóðverja
austur yfir IViaas aftur
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
A XORÐANVERÐUM Vesturvígstöðvunum er nú stór-
hríð, og ímjög erfitt um hardaga, en þó liefir verið baristi
ákaflega mikið í dag, en breytingar hafa orðið heldur litlar.
Þó hafa bandamenn unnið talsvert á norðan á Ardennafleygn-
um og getað þaf rofið annan aðalaðflutningaveg Þjóðverja
til vígstöðvanna. Að sunnan hafa hermenn Pattons hnmdið
áhlaupum Þjóðverja og unnið nokkuð á.. Á bökkum Rínar
fyrir svmnan ög nórðan Strasburg segjast Þjóðverjar ver.a;
byrjaðir sókn að Strasburg. Annarstaðar í Elsas er sókril
Þjöðverja að mestú leyti stöðvuð. Þar sem Þjóðverjar komust
vesturfyrir Maas í Ilollandi, hafa þeir verið reknir yfir aftur.
Iaarós ó
Luzoney
New York í gærkveldi.
JAPANAR segja í útvarpi
sínu í kvöld, að Bandaríkja-
menn hafi gert innrás á Luzon-
ey, hina helstu Filipseyja. —
Heyrðist hjer, að sagt var í
japönsku útvarpi, að talið væri
að Bandaríkjamenn hefðu þeg-
ar sett á land um eitt herfylki
við Lingayen-flóa, en þar rjeð-
ust Japanar á land á Luzon, er
þeir lögðu undir sig eyjarnar.
Þessi fregn Japana hefir ekki
verið staðfest enn af banda-
manna hálfu. — Reuter.
• •
Ongþveiti
i Póliands-
málunum
London í gærkveldi:
MESTA öngþveiti ríkir nú í
Póllandsmálunum, og mun
fæsta furða á því, þótt svo sje,
er þeir hafa lesið eftirfarandi
skýringu sjórnmálafregnritara
vors, sem segir svo: — Eins og
stendyr er helmingur Póllands
á valdi Rússa, helmingur á
valdi Þjóðverjá. Pólsk stjérn,
sem Bretar og Bandaríkjamenn
og yfirleitt allir bandamenn
viðurkenna, silur í London, en
í Lublin er einnig stjórn, sem
Rússar einir viðurkenna. Bret-
ar eru algerlega á öðru máli
um þessa hluti, en Rússar.
En nú vill svo einkennilega
til, að Bretar, Rússar og Lublin
nefndin virðast vera nokkurn-
veginn á einu máli um landa-
mæri Póllands eftir stríðið, þ.
e. Curzonlínuna, en pólska
stjórnin í London vill ekki
heyra þetla nefnt. (
— Reuter^
Illviðri og óvissa.
Marshall Yarrow frjettarit-
ari vor á Vesturvígstöðvunum,
símar í kvöld, að veður hafi
aldrei verið jafnilt þar, síðan
bardagar byrjuðu. Segir hann,
að bandamenn hafi tekið 5 þorp
á norðurhluta Ardennafleygs-
ins. I Elsass segir hann að bet-
ur líti út, en hitt sje ekki þar
með sagt, að baráttan um Ar-
dennaskóginn sje unnin, og
hættan við Strasburg er enn ekki
liðin hjá, þar sem Þjóðverjar
auká árásir bæði að sunnan og
norðan.
Montgomery hrósar
Rundstedt.
Montgomery marskálkur hef
ir rætt við blaðamenn, eins og
vjer höfum fyrr getið um. Sagði
hann, að Rundstedt. væri tví-
mælalaust snjallasti hershöfð-
ingi Þjóðverja, en sókn hans
hefði lítið ógagn gert banda-
mönnum. — Jeg hlustaði sjálf-
ur á Montgomery, segir Yarr-
ow, og hann var mjög rólegur
að vanda. Eins gengur öll sókn
hans rólega.
Hraktir yfir Maas.
Sint í kvöld berast fregnir
um það, að Bretum hafi tekist
að hrekja þýsku framsveitirn-
ar, sem komust yfir Maasfljót-
ið nærri Venlo, aftur yfirum
ána. Var barist af miklum móði
í ofsaroki og skafhríð þarna við
ána. — Þjóðverjar eru mjög á
ferli norðan Maasfljótsins.
Ráðist á skæruliða.
London: — Franska frjetta-
stofan tilkynnir, að nýlega hafi
sprengjum verið varpað og
skotið af vjelbyssum á herbúð-
ir frönsku heimahersveitanna
(F. F. I.) í Marseilles. Tjón
hlaust af, en tilræðismenn
sluppu. Þá var einnig ráðist á
aðrar stöðvar nærri Marseilles,
sem F.F.I.-menn voru í.
L