Morgunblaðið - 29.03.1945, Qupperneq 1
0
32. úrgangiir.
74. tbl. — Fimtudagur 29. mars 1945.
ísafoldarprentsmiðja b.í.
BARIST I DUISBURG, WIESBADEN,
FRANKFURT, MANNHEIM, GIESEN.
0
Allir herir banda-
manna sækja
hratt fram
Sjöundi her-
inn samein-
ast Þriðja
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
írá Reuter.
Snemma í morgun gerði 7.
herinn allsherjar útrás úr
forvígi því, sem hann hafði
unnið austan Rínar og hefir
sótt stöðugt fram í allan dag
og er nú kominn um 50 km.
austurfyrir Rín á svæðinu
gagnvart Worms, sem er í
höndum bandamanna. Talið
er að framsveitir sjöunda
hersins sjeu nú komnar að
ánni Main, norðaustur af
háskólabænum fræga, Heid
elberg.
Ekki hafa vamir Þjóð-
verja verið öflugri á þessum
slóðum en annarsstaðar, og
halda þeir hratt undan hvar
vetna. Þýskar fregnir herma
að sveitir úr sjöunda hem-
um sjeu nú fyrir suðaustan
Ashaffenburg og má telja
það óhemju hraða sókn.
Sameinast Patton.
Þá hefir það verið staðfest,
að sjöundi herinn hafi samein-
ast þriðja hernum. Ekki er enn
með vissu vitað, hvar það hefir
verið, þar sem vígstaðan öll er
ákaflega óljós og hvergi um
samfelda víglínu að ræða aust-
an Rínar, nema allra nyrst. —
Herfræðingar telja, að vart geti
hjá því farið, að allmargt Þjóð-
verja verði króað inni í hinum
ýmsu borgum.
Aðsfoðarflugmála-
ráðherra Breia
talinn af
London í gærkveldi.
Aðstoðarflugmálaráðh. Breta
Bradner flugforingi, er talinn
af ásamt nokkrum samverka-
mönnum sínum, sem voru á leið
vestur um haf í flugvjel. Var
þetta tilkynr# í breska þinginu
í dag. Voru menn þessir í
Liberatorflugvjel, sem flogið
var af þaulæfðri áhöfn, og sagði
Churchill forsætisráðherra, að
hann sjálfur og Eden hefðii oft
notað flugvjel þessa 1 langferð-
um. — Bradner ráðherra var
þingmaður. Hann var 33 ára að
aldri og frægur flugmaður.
— Reuter.
Suðausfurvígstöðvarnar
Á kortinu hjer að ofan sjest svæði það á Suðaustur-vígstöðv-
unum, þar sem Rússar sækja fram. Hafa þeir náð aftur borginni
Shekesfeherwar; nálgast Gyor og Bratislava.
Rússar við landa-
mæri Austurríkis
Gdynia er iallin
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl
frá Reuter.
RÚSSNESKAR hersveitir eiga nú ekki eftir ófama nema
fáeina km. til landamæra Austurríkis og hafa þeir í dag tekið
tvær stórar borgir í Vestur-Ungverjalandi. Gyor og Komaron.
Þá hafa Rússar nú unnið bug á mótspyrnu Þjóðverja í hafnar-
borginni pólsku, Gdynia. Var borgin tekin með áhlaupi í dag
af herjum Rokossowskys. -
London 1 gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
í KVÖLD GEISA stórorustur í mörgum miklum þýsk-
um borgum austan Rínar, þar sem herir bandamanna
sækja hratt fram og ryðjast inn í hverja borgina af ann-
ari. Taldir frá norðri til suðurs, eru þetta bæir þeir, sem
annaðhvort hafa verið teknir, eða barist í: Emmerich,
Boccholt, Duisburg, Diezen, Frankfurt. Wiesbaden og
Giesen. Margar af þessum borgum eru stórar og þýðing-
armiklar. Þá eru borgirnar Aschaffenburg og Hanau al-
gjörlega á valdi bandamanna, og talið að skriðdrekasveit-
ir sjeu komnar allmikið lengra austur og norðaustur á
bóginn. Hersveitir Montgomerys sækja nú mjög bratt
fram á öllu svæðinu, og er talið að flótti sje brostinn þar
í lið Þjóðverja, en annars er vörnin víðasthvar á ringul-
reið.
____________________________ Vígsvæði Montgomerys.
Annar breski herinn braust
í morgun gegnum vamir Þjóð-
verja, og hefir síðan sótt ákaf-
lega hratt fram. Eru skriðdreka
sveitir hans nú í Emmerich og
Bocholt. Norðar eru varnir Þjóð
verja enn æði hárðar, en sumar
sveilir hersins sækja einnig
suður á bóginn. Sjötti fallhlífa-
herinn breski hefir sótt. fram
um fulla 20 km. og tekið ýmsa
bæi. Hefir hann ruðst inn í
hina miklu stáliðnaðarborg
Duisburg og náð nokkrum hluta
hennar á sitt vald. Þar eru
verksmiðjur Theissens, og er
borg þessi mjög þýðingarmikil.
Sigri hrósað of
snemma
London í gærkveldi.
Fagnað hefir verið sigri og
vopnahljei of snemma á fleiri
en einum stað í Bandaríkjun-
um. I sakamáladómnum í Chiga
go tilkynnti dómsforsetinn í
gær: „Stríðið í Evrópu er bú-
ið“, og frestaði síðan rjettar-
höldum, en setti hann aftur tutt
ugu mínútum síðar, er sannleik
urinn kom í ljós.
Borgarráðið í Los Angeles
hjelt uppgjöf Þjóðverja hátíð-
lega með veislu og’ var misskiln
ingur í síma orsök þeirra há-
tíðahalda, og þegar Eisenhower
sagði nokkru síðar að þýsku
herirnir á Rínarbökkum væru
sigraðir, neituðu margir þar að
trúa öðru en að stríðið væri
búið. — Reuter.
í dagskipan frá Stalín var
skýrt frá töku borganna Kom-
arnon og Gyor, en umhverfis
þær hafa að undanförnu staðið
ákaflega miklir bardagar. Hafa
herir Malinowskys sótl fram
með miklu skriðdrekaliði, en
mótspyrna verið hörð-
I Gdynia.
Barist hefir verið iengi í
hafnarborginhi Gdynia við
Eystrasalt, en nú er þeirri bar-
áttu lokið, svo sem áður er frá
skýrl. Voru harðir götubardag-
ar háðir í borginni í þrjá daga,
áður setulið Þjóðverja varð yf-
irbugað. Talið er að níu þúsund
fangar hafi verið teknir.
Nýtísku hafnarborg.
Gdynia var í iok síðuslu
heimsstyrjaldar lítið fiski-
mannaþorp með nokkur hundr-
uð íbúa. Þegar þessi slyrjöld
byrjaði, voru íbúarnir 125 þús.
Þjóðverjar höfðu herskip sín
þar á undanförnum mánuðuni,
en munu nú fyrir nokkru hafa
flutt þau þaðan, sumir segja iil
Noregs og Danmerkur.
Þrjár ioifárásir
á Japan
London í gærkveldi:
| Undanfarinn sólarhring hafa
þrjár loftárásir verið gerðar á
heimaland Japana, aðallega á
eyna Kiushu. Fyrstu tvær árás
irnar voru gerðar af risaflug-
virkjum, en hin síðasta af flug
vjelum frá flugvjelaskipum. —
Eftir því að dæma eru flotar
Bandaríkjamanna stöðugt á
sveimi við við Japansstrend-ur.
Arásunum á Ryukiueyjar held
ur stöðugt áfram. — Reuter.
Fyrsti og þriðji herinn.
Frjettabann er nú að nokkru
á skriðdrekasveitum Hodges.
þar sem þær sækja fram á víg-
svæði fyrsta hersins. Vitað er,
að þær eru komnar mjög langt
austur á bóginn, Þjóðverjar
segja þær í borginni Giessen,
sem er svo að segja beint norð-
uraf Frankíurt og þýðingarmik
il samgöngumiðstöð, og má
vera að þær hafi tekið bæinn
Wetzlar. Giessen er mjög göm-
ul borg, og stendur hún 104 km.
austan Rínar. Sumar sveitir
Hodges stefna nú suður á bóg-
inn. — Þriðji herinn berst enn
í Frankfurt og einnig hefir hann
ruðst in í borgina Mannheim,
sunnar og vestar.
Sókn til Niirnberg.
Oljost er ástandið suðaustur
af Aschaffenburg, þar sem
flugufregnir herma, að skrið-
drekasveitir Pattons sjeu komn
ar inn í borgina Wúrtzburg. sem
er um miðja vegu milli Frank-
furt og Núrnberg.