Morgunblaðið - 04.05.1945, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.05.1945, Blaðsíða 1
32. árgangur. 99. tbl — Föstudagur 4. maí 1945 ísafoldarprentsmiðja h.f. VÖRN AÐ LJIJKA í IMORÐIiR- ÞV8KALANDI BRE8KLR HER 8TEFIMIR TIL DANMERKIjR Hröð sókn í Suð- ur-Þýskalandi London í gærkvöldi. ÞRIÐJI OG SJÖUNDI Banda ríkjaherinn haldá áfram sókn 'suður til Salzbui'g- og Bercht- esgaden, og gengur hún' hratt :og mótspyrnúlitið. Her Patlons er nú við fljótið Inn á 160 kin löngu svæði, hefir tekið borg- ina Passau. og er kominn yfir fljótið á 6 stöðum. Sjöundi her- inn nálgast Linz. Ekki er búist við mikilli vörn þarna suður í fjaílvirkinu. í Bæheimi hafa Rússar sótt nokkuð fram óg tekið borgina Teschen á landamærum Pól- lands og Tjekkóslóvakíu. Her- 'fræðingar segja, að Bæheimur sje öílugasta virki Þjóðverja, sem eftir er, en Prag hefir ver- ið lýstur „sjúkrahúsbær“ af Dönitz. Óljóst er, hvað með þessu er meint. Frank, lands- stjóri í Bæheimi hefir lýst yfir lrúnaði við Dönitz. —Reuter. Rústir í Hamborg Bretar komnir til Rangoon London í gærkveldi. E.PTIR þrjú ár og tvo mán- uði. eru mi aftur breskar her- sveitir í hafnarborginni miklu Jíangoon í Burma. Þær fóru inn í borgina í dag, eftir að bafa farið 480 km. leið á tæp- um mánuði. Ekki ér vitað hvort öll borgin er á þeirra valdi, n.je hvernig vörnum Jap ana er háttað, en hitt er víst, áð þangað er breskui’ her nú komiiin. Talið er, að það hafi m.fög fiýtt fyi'ir framsókn þessa liers að lið var sett á land fyrii’ nokkru um 30 km. fyrir sunn- an þorgina, og eins hitt, að flugmenn hafa varpað miklu af liirgðum tir flugvjelum sín- um til hersins, sem sót.ti fram, og þ'ar með gei’t. sóknina greið ari. Rangoon, sem er ein mesta liafnarliorg í Asíu, cr og mið Btöð mikilla landsamgangna. Þaðan liggja tvær járnbraut- ii’ um P»urma. Báðar eru nú að fullti-á valdi Breta. Myndin er tckin í Hamboig, eftir að loftárásir byrjuðu á borg- ina. Má glöggt sjá hrundar og hálfhrundar byggingar. 14 ferkm. s\ æði af borginni er algerlega í rústum. „Örlöy Þjóðverja eru ekki lenyur í höndum þjóðarinnar” Segir þýski ráðherrann Speer London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun blaðsins frá Reuter. SPEER, framleiðslumálaráðherra þýsku stjórnarinnar, flutti langa ræðu í útvarpið í Kaupmannahöfn í kvöld, og ljet svo um mælt þar, að örlög þýsku þjóðarinnar væru ekki lengur í hennar hendi. „Þýskaland er sigrað“, sagði Speer ennfremur. „Aldrei fyrr hefir nokkurt land verið lagt eins í auðn í ofsa styrjaldarinnar“. Speer sagði að kjarkur allra væri nú að þverra. „í slað trausts læðist nú örvæntingin inn í hugi yðar. Þjer verðið þreyttir og vonlausir. En þannig má það ekki vera". 8000 flugvjelar. London: — Bretar hafa allí mist 8000 sprengjuflugvjelar frá stríðsbyrjun, en alls hafa flugvjelar þeirra varpað niður 950.000 smálestum sprengja frá styrjaldarbyrjun. Speer sagði, að ekki væri hægt að líkja þessari styrjöld saman við neina aðra, nema ein ungis þrjátíu ára stríðið. Hann lagði áherslu á það, að ekki rnætti láta neyð og hungur ná eins miklum tökum á fólkinu nú eins og þá. Það og það eitt er ástæðan til þess, að hinn nýi foringi, Dönilz aðmíráll hefir ákveðið að leggja ekki niður vopnin, til þess að bjarga frá dauða flýjandi þýsku fólki. — Það er okkar síðasta skylda, og hana verður þýska þjóðin að takast á hendur. Það er á valdi óvina vorra, hvort þeir vilja veila þjóðinni nokkra mögu- leika, en hún hefir barist'hetju- legri baráttu". jrjettir: Þjóðverjar lýsa Kiel óvarða borg I Klukkan 1 í nótt sem leið, bárust þær frjbttir, að Þjóð- verjar hefðu lýst Kiel og Flens- borg óvarðar borgir. — Hafa breskar hersveitir fax-ið yfir Kielai’skurðinn, og eiga skamt ófarið til dönsku landamær- anna. Þá hafa Þjóðverjar lýst Flensborg óvarða. VTar svo sagt í þýsku herstjórnartilkynning- unni, sem út var gefin á mið- 'i naetti. að livorug hinna fyr\-- nefdu borga yrði varin. Hamborg gafst upp fyrir Bretum í gær Lohdon í gær — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. BRESKAR hersveitir sækia nú norður á bóginn í áttina til dönsku landamæranna, og mæta að sögn lítilli sem engri mótspyrnu. Stokkhólmsfregn, sem. barst seint í kvöld, hermdi, að þær væru komnar yfir dönsku landa- mærin. Þessi fregn er ekki staðfest, enn sem komið er. Vamir Þjóðverja í Norður-Þýskalandi eru nú að mestu úr sögunni. Hamborg gafst upp bardagalaust í dag, og er nú á valdi Breta. Mikið af borginni, þriðju mestu hafnar- borg heimsins, er nú í rústum eftir loftárásir bandamanna. Rússar hafa sameinast Bretum og Bandaríkjamönnum fyrir austan Elbe, en Þjcðverjar hafa þar gefist upp tug- þúsundum saman fyrir herjum vesturveldanna. — Engin berstjórnartilkynning birtist í útvarpi í dag frá Þjóðverj- um. — Verður starfstíma skól- anna breytt? . Barnaskólarnir starfa til maíloka r r \ ar Á SAMEIGINLEGUM fundi skólanefnda barnaskólanna, er haldinn var fyrir nokkru, var samþykt að barnaskólarnir störfuðu aðeins til maíloka í ár. I stað þess, að áður hafa þeir starfað til 15. júní, er styrjald- arástæður hafa eigi hamlað því. Jafnframt Var rætt um, að laka til athugunar hvort eigi væri tiltækilegt, slrax og hin nýju skólahús, sem nú eru í smíðum, væru tekin að fullu til notkunar, að yngri börnin byrjuðu skólanámið 1. septem- ber ár hvert, en þau eldri 1. okt. og stunduðu öll börnin nám fram um miðjan maímán- uð. Þá væru sameiginleg próf, fyrir vngri sem eldri börn og yrðu skólaslit síðasl í maí. Af þessu mundi leiða að 7 ára börn yrðu ekki skólaskyld 1. maí, sem hingað til hefir tíðk- asl, h^ldur 1. sept. Þella fyrirkomulag mun tal- ið heppilegra, en hið eldra, sem í rauninni orsakaðist af húsna-ðisvandræðum. Bandamenn dæma London: — Herdómstóll ' Bandamanna í Köln hefir dæmt fimtugan Þjóðverja, Lorenz Schaeffer að nafni, í fimm ára þrælkunarvinnu fyrir það að hafa ólöglega í fórum sínum tvo riffia. Var þetta fyrsti dómur herrjettarins. Reyna sumir að komast undan. Breskir könnunarflugmenn hafa orðið varir við miklar bif- reiðalestlr, sem slefndu norður á bóginn til Danmerkur í dag. Einnig hafa mörg skip sjest á ferð til norðurs. Árásir hafa verið gerðar á flutr.inga þessa. Einnig hefir orðið vart við all- miklar skipaferðir frá höfnum í norðvestur-Þýskalandi, en þar eru ýmsir hafnarbæir enn á valdi Þjóðverja. Stefndu skip þessi til Danmerkur. Ekkert er vitað, hvar Dönitz heldur sig sem stendur, en síðast var talið að hann væri í Danmörku, ásamt utanríkisráðherranum. A Schwerin-svæðinu. Mikið var um að vera í dag á svæðinu austan Elbe, þar sem herir Breta og Rokossov- skys mættust í dag, en sunnar hittust amerískir herir og sveit ir Zukovs- Gáfust þar upp heil- ar þýskar herdeildir, og er nú ekki haldið uppi neinum telj- andi vömum á þessu svæði. — Þýsku hersveitirnar sóttust eftir því, að gefast upp fyrir sveitum Vesturveldanna. Talið er að alls hafi verið tekin um hálf miljón þyskra hermanna höndum á Norður-Þýskalands- vígstöðvunum í dag. Ekkert að frjetta frá Danmörku Þjóðverjar hafa aftur hert á frjettabanni frá Danmörku og var ekkert símasamband þaðan við Svíþjóð í dag. Er því alll óljóst um ástandið í landinu, en óstaðfestar fregnir herma, að til einhverra óeirða hefði kom- ið í Kaupmannahöfn í gær. — Talið er að Dönitz hafi rætt við dr. Best og Terboven, lands- stjóra í Noregi fyrir nokkrum dögum \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.