Morgunblaðið - 06.06.1945, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.06.1945, Blaðsíða 8
‘8 ffilORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. júní 1945. í Sexfug: Halldóra Finnbjömsdótiir SEXTUG er í dag fru Hall- dóra Finnbjörnsdóttir. BalduijsV götlz 18 hjer í bæ.. , Hún er ein af hinum hljóðu etjum hversdagslífsins. Margt jiefir drifið á daga henngx, einkum framan af æfinni, þeg- ar fátækt og mikið erfiði var hlutskiftið. Halldóra hefir verið fádæma dugleg kona, og góðvild henn- ■'ar og hjálpfýsi við alla er við ■ brugðið. Um hana má segja, að rhægri höndin hefir ekki vitað hvað sú vinstri gerði, því ör- læti hennar og greiðasemi hafa verið sprottin af meðfæddri góðviid og fórnfýsi. Frú Halldóra er ættuð vestan, ar og góðvildar, senda henni frá Isafjarðardjúpi. Faðir henn ar var Finnbjörn Elíasson, sem lengi var í Hnífsdal. þektur gáfumaður. Hún er tvígift. Fyrri maður hennar var Kristján Egilsson, ættaður frá Arnarfirði. Hann druknaði 1919. Börn þeírra eru: Baldvin Þ. erindreki, Kristín verksmiðj ustúlka í Reykjavík, Elías trjesmiður á Akureyri, og einnig * áttu þau tvær telpur, Sturlínu og Kristjönu, sem dóu í bemsku, báðar í sömu vikunni. Seinni maður frú Halldóru er Þorvaldur Magnússon sjó- máður. Hann er mikill dugn- aðarmaður. Hefir stundað sjó- mensku frá barnæsku og hefir nú í rúm 20 ár samfleytt verið togarasjómaður. Þau hjón hafa eignast tvo syni, Ásgeir mál- .aranema og Finnbjörn skrif- stofum., báða ennþá í foreldra- jhúsum. Á þessum tímamótum í lífi frú Halldóru munu þeir mörgu, sem hafa notið gestrisni henn- Minningarspjöld barnaspítalasjóðs Hringsins fást í verslun frú Ágústu Svendsen, Aðalstræti 12. hugheilar kveðjur og treysta því, að hún í öðru lífi, ef ekki þessu, uppskeri eins og hún hefir sáð. En slíks getur maður ekki óskað öðrum en þeim, sem engum hafa gert nema gott. En slík manneskja er frú Halldóra. Vinur. Kamtal við Ólaf Johnson Framh. af bls.k2. fær til þess að halda vel á st j órnartaumunum. Reykjavík. Að endingu barst talið áð þeim breytingum sem hjer hafa orðið í Reykjavík þau hátt í 6 ár, sem Ólafur hefir verið í burtu, bæði í útliti bæjarins og með þjóðinni yfirleitt. Þó hann hefði heyrt að mikið hefði verið bygt hjer í Reykjavík undan- farin ár, þá kvaðst hann hafa orðið undrandi þegar hann í fyrradag tók sjer ferð á hendur og fór um hin nýbygðu hverfi í útjöðrum bæjarins. V. St. — Innl. vettvangur. Framhald af 6. síðu. legir í sundinu, en samkepnin gríðarleg og rnikið hrópað á Dóru að nú yrði hún að herða sig. ★ Vistlegt er í stofunum þeirra Vigfúsarsystra og íslenska gest- -risnin í hásæti. Þegar jeg var stelpa í Reykjavík og Akureyri var nefnd, datt mjer altaf hún j fröken Valgerður í hug, því við sáum hana stundum þegar hún var að koma úr siglingum og stóð við í Reykjavík. Þá stakk hún altaf Reykjavíkurdömurnar út með Kaupmannahafnar-ele- gansanum sínum og vegna þess, að hún bar sig svo óvanalega vel. Jeg minni hana á þetta, en hún segir: „Ekki var það mjer að þakka, ef jeg bar mig vel; hún mamma Ijet altaf stafprik í beltið mitt, til þess að venja mig við að rjetta úr bákinu“. ★ Einhvernveginn finnur maður það ljóst, að hjer erum við ná- lægt heimskautsbaug ... Enn er hann fagur hann Kaldbakur og jeg er ekkert að hafa á móti því, þegar bæjarbúar segja, að hann sje fegursta fjall í heimi. Ætli við eigum okkur ekki öll eitthvert fjall .... og þótt jeg hafi sjeð Klettafjöllin í dýrð sinni og hátign oft og mörgum sinn- um, þá er nú mitt fjall altaf hann Keilir. 2STÚLKUR sem kunna að búa til algengan mat óskast sem fyrst á veitingahús. Engin matsala eftir kl. 8 síðdegis. Ilerbergi getur fylgt. Upplýsingar í síma 9292, ^t^aalóh Hjónaefni. Laugardag opinber uðu trúlofun sína ungfrú Svein- sína Guðmundsdóttir, Bergstaða- stræti 43 og Vilberg Skarphjeð- insson stud. occon, Freyjugötu 7. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfjelag- anna. Fundur verður haldinn í kvöld kl. 8.30 í Kaupþingsalnum. Forsætisráðherra og þingmenn Reykjavíkur mæta á fundinn. í frásögninni af hátíðahöldun- um á Sjómannadaginn, sem birt- ist í blaðinu í gær, urðu missagn- ir um úrslit kappróðrarins. Skips höfnin á bv. Skutli varð þriðja í róðrinum á 2:21.9, skipshöfnin á bv. Maí fjórða á 2:22.6 mín. ÚTVARPIÐ í DAG: 12.10 Hádegisútvarp. 20.00 Frjettir. 20.25 Útvarpssagan: „Herragarðs saga“ eftir Selmu Lagerlöf, þýð. Björns Jónssonar (H. Hjv.). 21.00 Hljómplötur: Sænsk lög. 21.15 Þýtt og endursagt (Her- steinn Pálsson ritstjóri). 21.35 Hljómplötur: Þjóðkóririn syngur (Páll ísólfsson stjórn- ar). 22.00 Frjettir. Kristófer Kristófersson spari- sjóðsritari Blönduósi 60 ára í DAG 6. júní er Kristófer Kristófersson ritari Sparisjóðs Húnavatnssýslu 60 ára. Fædd- ur að Köldukinn á Ásum þ. 6. júní 1885. Hann er sonur hjón- anna Önnu Árnadótlur og Kristófers Jónssonar bónda í Köldukinn. Hjá foreldrum sínum ólst Kristófer upp og vann að bú- störfum heima til tvítugs ald- urs. Þá var heimilið í þjóðbraut og oft margt gesta, sem öllum var tekið með alúð og rausn. Áttu börnin að fullu sinn þátt þar í og ekki síst elsti son- urinn Kristófer, sem strax í æsku var hvers manns hug- ljúfi. Hann fór í Hóiaskóla og úl- skrifaðist þaðan 1906 með góðri einkun. StundaÚi síðan nám í Gíoðrarstöðinni á Akiueyri og vann svo næstu árin heima í Köldukinn og víðar að jarðrækt arstörfum, kenslu o. fl. Árið 1914 varð hann fyrir því óhappi að fá lömunarveiki mjög slæma og varð eftir það að hætta við sveitavinnu. Vorið 1916 rjeðist hann til Jóns Jónssonar læknis á Blöndu ósi til að afgreiða meðöl o. fl. og við þau störf var hann í 6 V2 ár, en þá hætti Jón læknisstörf um hjer nyrðra. Var samvinna þeirra Jóns og Kristófers hin vinsamlegasla, enda var Jón eins og kunnugt er. gáfaður maður, fróður og fús til að fræða þá, sem hjá honum voru. Eftir burtför Jóns læknis rak Kristófer verslun á Blönduósi um hríð, en stundaði jafnframt smíðar að nokkru. Var hann á þær ákaflega vandvirkur og munir þeir, er hann smíðaði, mjög eftirsóttir. Síðustu 15 árin hefir Kristó- fer verið í stjórn Sparisjóðs Húnavatnssýslu og altaf bók- ari slofnunarinnar. Jafn framt hefir hann gegnt margvísleg- úm trúnaðarstörfum í Blöndu- óshreppi. Verið í skattanefnd, hreppsnefnd, sóknarnefnd, skólanefnd, sáttanefnd, og sýslunefnd sem varamaður. — Einnig verið meðhjálpari, stefnuvottur, úttektarmaður o. fl. Árið 1913 kvæntist Kristófer e. og er kona hans Dómhildur Jó- hannsdóttir, hin mætasta kona. Eiga þau þrjú efnileg börn öll upp komin, Skafta bónda í Hnjúkahlíð, Sverrir bifreiðar- stjóra á Blönduósi og Jónu Sigj ríði, sem hefir undanfarin sex ár stundað nám í Danmörku og getið sjer góðan orðstýr. Kristófer Kristófersson er mjög vinsæll maður og nýtur almenns trausts sökum safn- viskusemi, lipurmensku og góðra gáfna. Hann er iðjumað- ur með afbrigðum og einstak- lega vandvirkur á alt, er hann snertir á. Heimili þeirra hjóna er gest- risnis og glaðværðarheimili. — Þangað á margur erindi, en hin ir eru líka margir, sem koma án þess. Á þessum merku tímamótum æfinnar senda margir vinir og frændur fjær og nær hugheil- ar kveðjur 'og góðar óskir til Kristófers Kristóferssonar og fjölskyldu hans, með bestu þökkum fyrir liðinn tíma. J. P. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband Vilborg Hans dóttir og Richard C. Eckard í U. S. Army. Hjúskapur. Nýlcga yoru gefin saman í hjónaband í Hafnarfirði Þorgerður Sigurjónsdóttir, Rvík- veg 7 og Jón Hansson, Vestur- götu 26 B. Hjónaefni. Á laugardaginn op- inberuðu trúlofun sína Guðrún Sæmundsdóttur, Efstasundi 45 og Guðmundur Finnbogason, Kambs veg 3. X-9 ÍW Eftir Robert Sform 1) Ritarinn: — Hjer eru pbningarnir, Jónas, í tíu og tuttugu dollara seðlum, eins og þú baðst um — álitleg hrúga! Herra Condo: —• Þakka þjer fyrir. Farin! Jeg hefði nú getað tekið þetta út sjálfur. en Frank gamli skammar mig í hvert skifti, sem jeg tek eillhvað út! 2) Herra Condo: — Já annars, þelta er gamall vinur minn, herra Logan. 3) Grímumaður: — T :r. ljekuð hlutverk yðar vel, herra Condo. Fario akkann yðar. Þjer komið með okkur í smaferð!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.