Morgunblaðið - 02.08.1945, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.08.1945, Qupperneq 1
32, árgangur. 171. tbl. Fimtudagur 2. ág'úst 1945. ísafoldarprentsmiðja h.f. Breyíingar á belg- ísku sljórninni. líiiissel í gærkvöldi. \ A X ACKER hefir nú tek- iú men.n í helgisku stjórnína, í staö þeirra sex ráðherra kat- ólska flokksins, sem sögðu af| s.jer fvrir nokkru vegna þeirra j afstöðn, sem ríkisstjórnin tók gagnvart Eeopold konungi. j Eelgiska stjórnin, eins og hún er nú, er síst róttækari en • hún var fyrir breytinguna. í stjórnina var til dæmis tekinnj einn maðUr, sem fylgir íhalds-j sámasta hluta katólska flokks-j ins. Meðal hipna nýju ráð- herra er de Vðgel, bankastjóri ]’»(•]gíubanka. ’l’ekur hann sæti í‘j á rmála rá ðherra. —Reuter. Skolið á kvik- myndaleikara London í gærkveldi: Kvikmyndaleikararnir Ing- rid Bergman og Jaek Benny, ásamt munnhörpuleikaranum fræga, Larry Adler, eru nú á ferð um býskaland, til þess að skem.tá hermönnum Banda- ríkjanna ]>ar. f fyrrakviild var skotið á bifreið þeirrá, o<> munaði minnstu að slvs yrði af. t’að var amerískur varð- maður, sem skaut, er hann hafði skipað bifreiðastjóran- um.að nema staðar, en Ipinn sá ekki vwðmanninn. Kúlan kom í bifreiðina aftanverða og munaði mjóu, að hún lenti Jaek Benny. — Reuter. Ráðsteinunni í Potsdam lokið London í gærkveldi. Einkaskeyli til Mbl. frá Reuler. RÁÐSTEFNUNNI í Potsdam er nú lokið. Attlee, Truman og Stalin sátu fundi í dag. Þar mun hafa verið gengið frá sáttmála eða yfirlýsingu, en ekkert hefir verið birt opinberlega um slíkt ennþá. I sáttmálanum mun þó fjallað um eftirtöld atriði: — í fyrsta lagi hernám og eftirlit Þýskalands, í öðru lagi viðreisnar- starfsemi, í þriðja lagi ráðstafanir til þess að tryggja frið í heim- inum í framtíðinni, í fjórða lagi Pólland og í íimmta lagi Júgó- slafiu og ástandið á Balkanskaga yfirleitt. Lengsta ráðstefnan. Störf ráðstefnunnar töfðust nokkuð vegna birtingu kosn- ingaúrslitanna í Bretlandi og veikinda Stalins, en hann tók af þeim sökum ekki þátt í ráð- stefnunni sunnudag, mánudag og þriðjudag. Molotov utanríkis ráðherra hefir setið fundi með Truman og Attlee í hans stað. En ráðstefnan hefir staðið yfir í 12 daga, og er því lengsta ráð- stefnan, sem „hinir þrír stóru“ hafa nokkurn tíma setið. Kveðjur. í kvöld verður skilnaðarhóf þeirra Attlee, Trumans og Stal Framh. á bls. 8. Brjef frá Leahy lagt fram í máli Petaias París í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. í DAG var lagt fram í rjettarhöldunum yfir Betain, brjef frá Leahy flotaforingja, til Petains, en Leahy var sem kunnugt er, sendiherra Bandarílcjanna hjá Vichystjórninni 1940 og þar til er.Bandaríkin fóru í stríðið. Var brjefið svar við öðru slíku frá Petain og honum mjög í vil. í brjefinu segir Leahy m. a.: „Þjer segið að uppástungur mínar til yðar um að þjer sýn- ið öxulríkjunum meiri mót- spyrnu, sjeu ekki framkvæman legar vegna þess, að slíkt myndi aðeins hafa í för með sjer meiri kúgun og harðrjetti fyrir frönsku þjóðina. — Mjer er ó- gerlegt annað en trúa því, að þetta svar sje spr.ottið af ein- lægum velvilja yðar og um- hyggju fyrir frönsku þjóðinni í heild“. Þetta brjef Leahys hefir vakið mjög mikla athygli. — Verjandi Petains marskálks hefir gefið í skyn, að hann muni 'ekki leiða Laval, sem nú er kominn til Parísar, sem vitni í málaferlum þessum. Forseti Islaads tekur við eoibætti I FORSETI ÍSLANDS, herra Sveinn Björnsson, undirskrifar eið- stafinn við emhættistöku sína í neðri deildarsal Alþingis í gær- kvöldi. Við hlið forseta er Hákon Guðmundsson, hæstarjettar- ritari. (Ljósm. Morgunbl. Friðrik Clausen). Lavai og kona hans komin til París París í gærkveldi: PIERRE LAVAL, sá maður, sem mest er hataður í Frakk- landi, köm til París í kvöld. Frjettaritari Reuters, var staddur á Le Bourget-flugvell- inum, þar sem flugvjelin, sem flutti Laval og konu hans frá Austurríki lenti. Lavals biðu lögreglumenn og eftiiúitsmenn á flugvellinum. Allmikill mannfjöldi hafði einn ig safnast saman við flugvöll- inn í þeirri von að sjá Laval bregða fyrir. Lögreglumenn tóku Laval í gæslu og óku með hann burt í bifreið. Konu hans var einnig ekið í fangelsi. Þegar bifreið- inni, sem Laval var í, var ekið um mannfjöldann, var hrópað: „Drepið Laval!“ Málshöfðun gegn Laval. Fyrir nokkru var ákveðið að | höfða mál gegn Laval, en þá dvaldist hann á Spáni. Átti að prófa mál hans og dæma, að honum fjarverandi. Nú, þegar hann hefir verið framseldur 1 Frökkum, mun þess væntan-. lega ekki langt að bíða, að hann ! verði látinn standa fyrir máli sínu frammi fyrir dómstólun- um. —Reuter. Skaut konu í bílskúr LONDON: — 18 ára gamall piltur hefir verið tekinn fastur og ákærður fyrir að hafa skoti \ á 28 ára gamla konu, sem var að vinna við bíl sinn í bílskúr. Konan ljest skömmu síðar af sárum. Hátíðleg athöfn \ dómkirkjunni og alþingishúsinu FÝRSTI ÞJÓÐKJÖRNI for seti Islands, herra Sveinn Björrnssön tók við embætti sínu í gærkvöldi og vann eið að stjórnarskránni. Kjörtíma- bil hans er frá 1. ágúst tii 31. júlí 1949. Var athöfnin vió embættistökuna hátjðleg mjög en hún fór fram í dómkirkj- unni og Álþingishúsinu. Við-. staddir voru um 80 boðsgestir, þar á meðal ríkisstjómin, al- þingismenn, allir sendiherrar og sendifulltrúar erlendc-a ríkja hjer í bæ og nokkrir ís- lenskii- emþættismenti. Athöfnin í kirkjunni Athöfnin í kirkjunni bófst. laust eftir klukkan 8. Biskup- inn yfir Islandi, herra Sigur- geir Sigurðsson. og dóm]>ró- fastur, síra Friðrik HaUgríms- son gengu til móts við forseta og forsetafrú og gcngu fyrir þeim í kirkju. Páll Isólfsson tónskáld ljek Præludittm, en síðan var sunginn sálmttr ,,upp þúsund ára þjóð“. Þá las bisk- up upp ritningarkafla úr 95. sálmi Davíðs og þar á eftir var sanctus, en síðan flutti hiskup bæn og veitti drottin- Framh. á bls. 5. Bæjarráð vill láta byagia vararafstöh við Eliiðaár Rafmagnssfjóri kaupi vjelar og annisl undírbúning í Ameríku Á BÆJARRÁÐSFUNDI, sem haldinn var í gærmorgun, var lagt fram brjef frá rafmagnsstjóra varðandi fyrirhugaða eifn- túrbínustöð við Elliðaárnar. Samþykti bæjari'áð tillögu til bæjar- stjórnar um þetta mál og er tillagan á þessa leið: „Bæjarstjórn ítrekar samþykt sína 21. júní 1945, um að reisa svo fljótt sem verða má varastöð hjer í bænum til rafmagns- framleiðslu. Til þess, að svo megi verða fyrir haustið 1946, samþykkir bæj- arstjói'nin að heimila rafmagnsstjóra að festa kaup í Banda- ríkjunum á vjelum og tækjum til 7500 kw. eimfurbínustöðv- ár og hefja aðrar nauðsynlegar framkvæmdir.. Jafnframt heimilar bæjarstjórnin borgarstjóra að taka lán til stöðvarbyggingaiinnar, alt að kr. 7.000.000.00 — og undirrita hverskonar skuldabrjef og veðbrjef vegna þeirrar lántöku, enda samþykki bæjari'ráð lánskjörin“. Jón A. Pjetursson gieiddi ekki atkvæði um tillöguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.