Morgunblaðið - 02.08.1945, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.08.1945, Blaðsíða 2
2 SíORG ÖNBIiAÐIÐ Fimtudagur 2. ágúst 10 ío, Millibilsástand milli styrjaldar og friðar UM LEIÐ og jeg tek nú við starfi sem þjóðkjörinn forseti lýðveldisins um næstu fjögur ár, læt jeg í ljós innilegt þakk- læti mitt fyrir það traust, sem rryer hefir verið sýnt með því að fela mjer þessa vandasömu virðingarstöðu. Það mun verða mjer styrkur í starfinu. En jeg kenni enn meira þakk lætis í hjarta mínu fyrir eining . una, sem varð um þetta fyrsta þjóðkjör forseta íslenska lýð- veldisins. Ekki sjálfs míns vegna, heldur vegna íslensku þjóðarinnar. Það mun verða til að treysta hið unga lýðveldi, ■ bæði inn á við og út á við. Jeg marka það meðal annars á brjef um og skeytum, sem mjer hafa , borist og öðrum ummælum, sem hníga ákveðið í þá átt. Nú kemur til kasta okkar allra, íslendinga, að auka ör- yggi hins íslenska ríkis með bverjum þeim hætti, sem í okk ar valdi stendur. Ætti hverjum Islendingi að verða það metnað armál og ábyrgðar, að færa jþær fórnir á því altari, sem með þarf, og láta ekki ágreining um mál sem minnu skipta,. verða að þröskuldi á þeirri b-raut. Vinsamleg samvinna við aðrar þjóðir. Öryggi lýðveldisins verður •ekki tryggt án vinsamlegrar í5amvinnu við aðrar þjóðir. Þess vegna á það við, að gera sjer jgrein fyrir afstöðu íslands til annara ríkja eins og hún er nú og mun sennilega verða í fram- tíðinni. Um leið og lýðveldið var atofnað, IV- júní 1944, hlaut það -viðurkenningu margra okkur vinveittra ríkja. Meðal þeirra dremstu í þeim flokki voru stór veldin Bandaríkin og Stóra- IBretland. En eins og kunnugt er, gáfu einmitt þessi tvö stór- veldi þá yfirlýsingu, með At- ilantshafssáttmálanum 1941, að nver þjóð ætti rjett á að ráða isjálf og ein stjórnarformi sfnu. IHikuðu þau ekki við að standa við þá yfirlýsingu gagnvart Is- landi. Við hljótum að bera þakk arhug í brjósti fyrir þetta, bæði i;il þessara tveggja stórvelda og annara velda sem þá strax og isíðar sýndu okkur sömu viður- jkenningu. Það er kennt í þjóðarrjetti, að iil þess áð ríki geti tekið þátt í alþjóðastarfsemi sem fullgildur aðili, þurfi viðurkenningu ann- ara ríkja. Ennfremur, að ef eitt oða fleiri stórveldanna veiti wlíka viðurkenningu, muni að jafnaði ekki standa á viðurkenn ángu annara ríkja. En rjettar- ríki munu gæta þess að veita ]pví aðeins viðurkenninguna, að talið sje í samræmi við alþjóða- 2ög. Með þessUm viðurkenning- -um, sem jeg hefí minnst á, hef- dr þannig fengist traustur grund völlur fyrir íslenska lýðveldið að byggja á. •Sambandsslit við Norðurlönd. Fyrir rúmuiti fjórum árum Aók jeg fyrst við ríkissíjórastarf tnu. Við það tækifæri Ijet jeg i'alla orð um, að það væri nú, *iem fyrr, eindreginn vilji og iósk íslendinga, að þótt við ósk- Forseti Islands ræðir um fram- tíðina og vandamál þjóðarinnar í hópi frjálsra Norðurlanda- þjóða, mættum við einnig í framtíðinni eiga heima í hópi þeirra annara lýðræðisþjóða, sem vilja byggja líf sitt, fram- tíð og gagnkvæm viðskipti á grundvelli rjettarins. með gagn kvæmri virðingu fyrir rjetti bver annarar og orðheldni. Þau ummæli voru í samræmi við stefnu stjórnar og þings ,þá, eru það nú, og jeg hygg að yfir- gnæfandi meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi verið þeirrar skoðunar þá, sje það enn í dag og' muni verða í framtíðinni. — Þetta samrýmist að öllu fyrri atburðum í þjóðlífi okkar, og atburðum, sem orðið hafa síðan. I sambandi við afgreiðslu lýð veldismálsins, gerði Alþingi þá ályktun vorið 1944, að það teldi „sjálfsagt, að íslenska þjóðin kappkosti að halda hin- um fornu frændsemi- og menn- ingarböndum, er tengt hafa saman þjóðir Norðurlanda, enda er það vilji Islendinga, að eiga þátt í norrænni samvinnu að ófriði loknum“. Þessi yfir- lýsing markar ákveðið óskir okkar um nána frarhtíðarsam- vinnu við hinar Norðurlanda- þjóðirnar. Eitt af táknum um einlægni íslensku þjóðarinnar í þessu efni tel jeg vera þá inni- legu samfagnaðaröldu, sem reis meðal alls almennings hjer í landi, er Danmörk og Noregur fengu aftur frelsi sitt. Og það, sem gerst hefir síðan, sýnir að samvinnan er nú þegar hafin. Danir og Islendingar. Það hafa borist frjettir, eftir að samband er aftur komið á milli landanna, þótt slitrótt sje enn, um óánægju sem gert hafi vart við sig í Danmörku, vegna þess að við frestuðum ekki lýð- veldisstofnuninni fram yfir ó- friðarlok. í stað þess að gera of mikið úr þessum frjettum, ætti okkur að vera ljúft að minnast þeirra hlýju kveðja frá konungi og stjórn Dana, sem borist hafa eftir lýðveldisstofnunina, og annara vinsemdarvotta af hálfu danskra manna. Því miður var samgöngu- teppa af völdum ófriðarins, er sá tími var kominn, að heimilt var að slíta fyrra sambandi, samkvæmt samningum þeim, sem þjóðirnar höfðu gert með sjer af fúsum og frjálsum vilja. Vegna óvissunnar taldi yfir- gnæfandi meirihluti þjóðarinn- ar ekki rjett að láta þetta óvið- ráðanlega ástand, valda frest- urr lýðveldisstofnunarinnar. Tilfinningar manna eru stað- reynd engu síður en lögmætar athafnir. Okkur hefir verið ljóst að hörmungar þær, er Dan ir hafa orðið að þola undanfarin ár, hafa hlotið að valda dönsku þjóðinni með hinn aldraða og hugprúða konung í broddi fylk ingar mikilla sársauka. Slíkt gerir tilfinningarnar enn næm- ari. Með fullum skilningi á þessu, ættum við að forðast ?uðum fyrst og fremst að teljastað mæta óánægju með óánægju þar sem hún kann að gera vart við sig. Nú standa fyrir dyrum samningar við Dani. Það er von okkar og ósk að þeir fari fram í andrúmslofti vinsemdar og gagnkvæms skilnings. Að því viljum við vinna. Við trúum því að vinsamleg samvinna verði j einnig í framtíðinni milli okkar ' og þessarar fyrri sambandsþjóð ar okkar. Og það er okkur á- nægjuefni, að vita að ýmsir merkir áhifamenn meðal Dana bera einnig þessa trú í brjósti. Afsíaðan til ágengni Þjóðverja. Misseri áður en styrjöldin hófst, eða snemma á árinu 1939, neituðu Islendingar að verða við þeim tilmælum Þjóðverja að þeir fengju flugstöðvar, og aðrar stöðvar í sambandi við þær, hjer á landi, þótt boðin væru á móti freistandi friðindi. Þá höfðu margar aðrar þjóðir undanfarið sýnt þeim undanláts semi á ýmsan hátt. Mjer er það minnisstætt, að erlendur maðuf samfagnaði mjer þá vegna þjóð ar minnar, að ísland, sem væri meðal minnstu ríkja Norður- álfunnar, skyldi hafa tekið þessa ákveðnu afstöðu gegn ágengni Þjóðverja. Hvað sem annars má um þetta segja, hafði ísland þannig þegar fyrir styrjöldina neitað samvinnu við Þjóðverja, sem afdrifarík hefði getað orðið er til styrjaldar kom. Enda er það haft eftir einum aðalráðamanna Þjóðverja þá, að þeir hefðu haft áform um að hernema ís- land snemma í styrjöldinni, en hætt við þau áform vegna þess að hjer voru engir flugvellir. Eins og kunnugt er, háðu lýð ræðisþjóðirnar nær 6 ára blóð- uga baráttu í Norðurálfu, á At- lantshafi og víðar, uns einræðis vald ráðamanna Þjóðverja var að velli lagt. Við höfðum að vísu lýst yfir ævarandi hlut- leysi og höfðum ekki enn fallið frá þeirri yfirlýsingu. En öll ó- friðarárin áttum við slíkt sam- starf við andstæðinga Þjóðverja í baráttu þeirra fyrir frelsi og lýðræði, að ekki gat leikið vafi á því hverju megin væri samúð stjórnarvaldanna og alls þorra þjóðarinnar í þeirri baráttu. Arekstralítil sambúð við Breta. Jeg vil í því efiji minna á það, hve árekstralítil var sambúðin við breska setuliðið, þótt það kæmi hingað gegn mótmælum okkar. Mjer er ekki kunnugt að Islendingar gerðu tilraunir til þess að gera því erfitt fyrir, því síður um skemmdarverk. Er til tals kom, sumarið 1941, að Bandaríkin tækju að sjer her- vernd Islands, gerðum við hik- laust samninga við þau um það. Sambúðin við bandaríska setu- liðið var góð frá byrjun og virt ist ganga æ betur fram ásíðustu stundu. Þó mun hjer hafa verið í landi óvenjumikill fjöldi her- liðs þeirra, er mest var, saman- ’ borið við fólksfjölda í landinu. Við hjeldum áfram þrotlaust að flytja bandamönnum björg í bú, þrátt fyrir miklar hættur og hlutfallslega óvenjumiklar mannfórnir og skipstapa, sem ^ við máttum illa við. Gat vopn- laus þjóð sýnt virkari samúð með ■ bandamönnum ? Jeg minnist þessá ekki í því 1 skyni, að'jeg álíti að okkur beri J að miklast af því. En þar fyrir rpá það ekki gleymast. Við 1 gleymum heldur ekki þakklæt- isskuld okkar við þessar vina- þjóðir, bæði fyrir það hve ant ráðamenn þeirra ljetu sjer um að gera sambúðina sem besta og fyrir margskonar aðra sam- vinnu og góða aðstoð þeirra. Islendingar samvinnuþjóð bandamanna. Sameinuðu þjóðirnar notuðu aðstöðu sína hjer á landi með beinu og þegjandi samþykki okkar, til hernaðaraðgerða, sem voru þeim væntanlega ekki lít- ilsvirði í baráttunni við öxul- veldin. Við vissum, að þær háðu baráttu sína fyrir hugsjónum, sem við metum öllu ofar. Af greindum ástæðum munum við hafa verið taldir- samvinnuþjóð þeirra („associated nation“). Því höfum við og verið boðnir og búnir til þátttöku í ýmis- konar alþjóðastarfsemi, er þess ar þjóðir stofnuðu til og okkur var gefinn kostur á að taka þátt í. Því erum við og boðnir og búnir til áframhaldandi sam- vinnu við þessar þjóðir til þess að tryggja framtíðarfrið og ör- yggi í heiminum, á þann hátt sem okkur er fært. Þótt hjer sje um staðreyndir að ræða, sem hvorki eru neín nýjung nje leyndarmál, tel jeg rjett að rifja þær upp, vegna afstöðu okkar út á við. Sú af- staða hefir jafnan verið óbreytt öll styrjaldarárin og óháð vopna láni þjóðanna í styrjöldinni. Enda á hún rætur sínar í sams- konar þjóðræknishugsunar- hætti, sem ríkir meðal lýðræð- isþjóðanna. Við trúum á farsæld þess stjórnskipulags, að þjóð- inni sje stjórnað með hagsæld allrar þjóðarheildarinnar fyrir augum af stjórn sem þjóðin ræður sjálf, eins og Abraham Lincoln orðaði það fyrir tæpri öld. Um þessa stefnu vona jeg að haldast megi eining meðal is- lensku þjóðarinnar hjer eftir sem hingað til. ► Margir þeirra íslendinga, sem nýkomnir eru heim eftir margra ára fjarveru í ófriðar- eða hernámslöndum, hafa lýst undrun og ánægju yfir breyt- ingum, sem hjer hafa orðið til bóta í fjarveru þeirra og yfir því, hve fólki líði hjer alment vel samanborið við líðan Jólks í löndum þeim, sem þeir hafa dvalið í. Þeir hafa gleggra auga, sem getur gert saman- burð, er byggist á eigin reynslu. Jeg efast ekki um að við ber- um öll þá ósk í brjósti, að þessl vellíðan megi haldast og að við eigum framundan miklu meiri breytingar til bóta. Millibilsástand. En — enginn má gleyma því, að undanfarin ár hafa vcrið óvenjuleg ár á margan hátt. Við erum nú að byrja millibils- ástand, sem hlýtur að verða, milli óvenjulegra styrjaldar- tíma og öruggari friðartima. Sem betur fer, er mannlífiö svo auðugt af tilbrigðum, að ekk- ert er til sem mætti neína „venjulega tíma“. Ymsir eru bölsýnir á það, sem framundan er, aðrir bjartsýnir. Hvort- tveggja getur gengið úr hófi fram, frekar en sennileg rök liggja til. Ástin á föðurlandinu byggist mjög á trú á landi og þjóð, Þá trú getum við tæp- lega varðveitt nema nokkurar bjartsýni gæti. Bjartsýni og' trú á landi og þjóð var uppistaðan hjá Jóni Sigurðssyni, samherj- um hans og þeim sem tóku við af þeim í baráttunni uns full- komið sjálfstæði fjekst. Sama hefir verið uppistaðan hjá þeim þjóðum, sem hafa þolað hvers- konar hörmungar stýrjaldar- innar í baráttunni fyrir nýjum og betri heimi. Þekking er nauðsynleg. ■ En hjer kemur meira til. Smátt og smátt er verið að lyfta blæju leyndarinnar af ýmsum átökum styrjaldarþjóðanna. Hugkvæmni, þol og þrek, og’ síðast en ekki síst staðgóð þekking hefir gert að veruleika margt, sem áður mundi hafa verið talið annað hvort hreinir draumórar eða framtíðardraum ar, sem ættu mjög langt í land að rætast. Það mætti verða okkur lær- dómsríkt, hve miklu þessi stað- góða þekking hefir orkað um örlög þjóðanna í þessum mikla hildarleik, og á eftir að orka í því, sem framundan er. Það er lögð mikil áhersla á mikil- vægi þekkingarinnar í áform- um þeim, sem eru, um að búa öllum þjóðum betra lít en áð- ur. Sú fræðilega þekking, sem öll vísindi vinna með, hlýtur að verða hjer á landi sem annars- staðar, sá grundvöllur sem öll þróun byggist á, jafnt á verk- legum sviðum sem öðrum. Nið- urstöður vísindanna vísa leið- irnar. En þörf er aukinnar þekk ingar á mörgum öðrum sviðum, svo sá leiðarvísir komi að not- um. „Það er eitthvað sjerstakt við hvaðeina og ekkert verk er svo lítilfjörlegt eða auðvelt, að mað ur verði ekki að læra það“, sagði danskur bóndi við ungan Islending fyrir mörgum árum. íslendinginn langaði til að fylgjast með samstarfsmönn- um sínum við fremur óbrotna sveitavinnu en gat það ekki, vegna þess að hann kunni ekki nógu vel til verksins. Ætli þetta geti ekki átt við um nokkuð marga íslendinga nú í dag? Aukin þekking á öllum sviðumi ætti að vera markvisst takmark okkar. í því munu felast fjár- sjóðir, sem hvorki mölur nje ryð fær grandað. Framh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.