Morgunblaðið - 14.08.1945, Qupperneq 1
32. árgangur.
180. tbl. — Þ'riðjudagur 14. ágúst 1945
Isafoldarprentsmiðja h.f.
ALLSHERJARÁRÁS HÓTAÐ; EF SVAR
JAPANA BERST EKEI BRÁÐLEGA
Bardögum holdið
áiramáKyrrahafs-
vígstöðvunum
Slórérás á Tokio-hjeraðið og áfram-
Haidandi sókn í Mansjúríu.
London í gærkveldi. Einkaskeyli til Mbl
frá Reuter.
í DAG gerðu á fimmtánda hundrað flugvjelar árás á verk-
smiðjur og «amgönguleiðir á svæðinu umhverfis Tokio. Er
þetta fyrsta stórárásin, sem gerð er á Japan, eftir að samn-
ingaumleitanir hófustu um uppgjöf Ja]>ana.
Rússar halda áfram sókn.
I herstjórnartilkynningu
Rúsa, sem birt var í kvöld, seg-
ir að sveitir Rauða hersins hafi
haldið áfram sókn sinni í Man-
sjúríu í dag. Hafi sveitirnar
brotið á bak aftur harða mót-
spyrnu Japana bæði í austur-
og vesturhluta landsins, tekið
margar mikilvægar samgöngu-
miðstöðvar og borgir og sótt
fram 15—45 kílómetra. Eru
framsveitir Rauða hersins á
góðri leið með að komast til
aðaljárnbrautarstöðvar lands-
iris, Harbin.
Landganga á Sakhalin.
'Útvarpið í Tokio segir, að
hérsveitir Rússa hafi gengið á
land á þeim hluta eyjarinnar
Sakhalin, sem er undlr yfirráð-
um Japana, en eins og kunnugt
er- eiga Rússar og Japanar hvor
ir.sinn hluta eyjarinnar. Tokio-
útvarpið segir Japana hafa gert
harðar gagnárásir geg'n land-
göngusveitunum.
Útvarpið segir ennfremur, að
rússneskar hersveitir hafi brot
ist inn á svæði Japana á suð-
urhluta eyjarinnar frá norður-
hluta hennar, sem Rússar ráða
fýrir.
Forsefahjénin kom-
in heim úr norð-
urförinni
FORSETAHJÓNIN komu heim
úr ferðalagi sínu um Þingeyj-
arsýslu sunnudagskvöldið 12.
þ. mán.
A ferðalaginu skoðaði forseti
Laxárvirkjunina og HveraVelli
í Reykjahverfi með leiðsögn
Júliusar Havsteen sýslumanns.
Var síðan haldið til Reykjavík-
ur með næturgistingu á Akur-
eyri og Blönduósi.
Heildsöluverð á
M I •••*•
nyju kjoti
kr. 12.70
í GÆR ákvað Kjötverðlags-
nefnd heildsöluverð á dilka-
kjöti í sumarslátrun kr. 12.70.
Smásöluálagning á súpukjöti
verður sú sama og áður, eða
13%. Útsöluverð á því er þá
kr. 14.35. Smásöluálagningu á
kjöti í lærum og öðrum völdum
stykkjum úr skroltknum,
ákveður Kjötverðlagsnefnd
ekki, heldur kaupmennirnir.
Kjötverðlagsnefnd hvetur
sláturleyfishafa til þess að hefja
slátrun nú þegar, vegna þess að
mjög litlar birgðir eru til af
frystu dilkakjöti.
ifwi ■■ ■■ I ■!!■■■ B I i ■■■-. —II. !■■■ III— M1 I « I
Kjölkaupmenn
neifa að selja
nýja kjötið
í GÆRKVÖLDI var
haldinn fundur í Fjelagi
kjötverslaná í Reykjavík,
og var þar samþykt svo-
hljóðandi ólyktun:
,,Vegna hins háa kjöt-
verðs og vegna þess, að
drcifingarkostnaður okk-
ar er of lágt nietinn í á-
lagningarákvæðum kjöt-
verðlagsnefndar, verður
nýtt dilkakjöt ckki til sölu
í búðum okkfir að óbrcytt
um aðstæðum.
Dsmdur í dag!
Rjettarhöldin í máli Petains
marskálks. hins 89 ára gamla
öldungs, hafa nú staðið í rúm-
ar þrjár vikur. Mörg vitni liafa
verið leidd í málinu, ba'ði af
varnar- og sóknaraðiljunum. I
dag er búist við að dómur verði
kveðinn upp yfir Petain, og er
lítinn vafi á því, að hann verð-
ur dæmdur til lífláts.
Sigurhátíð ekki haldin,
fyrr en samningar.
eru undirritaðir
Borið til baka
LONDON: — Yfirherstjórn
bandamanna í Þýskalandi hef-
ir neitað fregnum um það, að
negrahermenn á vegum Frakka
hafi nauðgað nokkrum þúsund
um þýskra kvenna í borginni
Stuttgart,
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
í TILKYNNINGU frá Hvíta húsinu, sem út var gefin
í gærkvöldi, segir, að enn sje ókomið svar frá Japönum
við orðsendingu bandamanna, þar sem tekið var tilboði
Japana um uppgjöf. Er nú liðið töluvert á þriðja sólar-
hring síðan sendiherra Sviss í Washington var afhent orð-
sending bandamanna. Ritari Trumans forseta ljet svo um
mælt i dag, að ef svar Japana bærist ekki alveg á næst-
unni, myndi ekki líða á löngu, þar til allsherjarárás yrði
hafin á Japan.
_____________________________Viðbúnaður.
Starfslið svissneska utanrík-
isráðuneytisins hefir fengið
fyrirmæli um að vera viðbúið
allan sólarhringinn, ef svar
Japana skyldi berstst. Sviss-
hershöfðingi neskar stuttbylgjustöðvar
standa í stöðugu sambandi við
Tokio, samkvæmt beiðni út-
varpsstöðvarinnar þar.
Tilkynnt samtímis.
Ríkisstjórnir Bandamanna
munu ræða svar Japana, þegar
er það berst. Ef svarið verður
jákvætt. mun efni þess tilkynt
í öllum höfuðborgun Banda-
mannalandanna samtímis. En
sigurhátið verður ekki haldin
fyrr en samningar hafa verið
Eísenhower
í Moskva
Dómur í múli Petains
væntanlegur í dag
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
Á MORGUN (þriðjudag er búist-við, að dómur verði
kveðinn upp í iuáli Petains marskálks, en rjettarhöldin hafa
nú staðið yfir í rúmar þrjár vikur.
Við rjettarhöldin í dag sagði
verjandi Petains, að saksókn-
arinn hafi orðið að taka aftur
þá ákæru á hendur Petain, að
hann hafi gerst sekur um sam-
særi gegn heill og öryggi Frakk
lands.
Petain hefði aldrei beðið um
miskun. Stjórnmálamennirni-
ir, sem vitni höfðu borið gegn
Petain, væru yfirleitt þeir sömu
og alment væru álitnir hafa átt
sök á hinum hörmulegu örlög-
um Frakklands.
Rjettarhöld yfir Laval
hefjast bráðlega.
Pierre Laval var í dag til yf-
irhe.vrslu fyrir sakadómara, og
er búist við að rjettarhöld í
máli hans hefjist innan skams.
EisenhoWer
dvelst nú í Moskva. 1 dag
horfði hann ó skrúðgöngu í-
þróttámanna á Rauðatorgmu,
en í dag var. dagur íþrótta-
manna í Rússlandi. Stalin bauð
Eisenhower að horfa með sjer
á skrúðgönguna af þaki graf-
hýsis Lenins.
1 dag flutti Eisénhower
ræðu. Kvað hann hafa skýrt
Bandaríkjaþingi frá afstöðiv
Bandaríkjahersins og Rauða|Undirritaðir, en það getur dreg
hersins í málefnum Þýska - (ist 2—3 daga eftir að svarið
lands. jberst. Á sigurdagmn mun Ge-
org Bretakonungur flytja ræðu.
Ósammála um komu svarsins.
Útvarpið Tokio fullyrðir, að
orðsending bandamanna hafi
ekki borist Japönum í hendur
fyrr en í dag, og heldur því
fram, að svissneska sendiráðið
í Tokio hafi afhent hana. En
sendisveitin fluttist burt frá
Tokio í mestu loftárásunum á
borgina og dvelst nú í borg upp
til fjalla, en þaðan er þriggja
klukkustunda ferð með ýárn-
braut til Tokio. Vill útvarpið
kenna þessari óhægu aðstöðu
sendiráðsins um, hve seint orð-
sendingin barst Japönum í hend
ur. -
Segir í tilkynningu frá svissn
eska utanríkisráðuneytinu, er
lesin var í svissneska útvarpinu
að frásögn Tokio-útvarpsins
sje ekki á rökum reist. Stað-
festing hafi borist ráðunéytinu
þess efnis, að orðsendingunni
hafi verið veitt viðtaka í gær
(sunnudag) kl. 9,30, en hins-
vegar er þess ekki getið, hvort
miðað sje við svissneskan eða
japanskan tíma.
I tilkynningu ráðuneytisins
segir, að japanski sendiherrann
i Bern hafi komið orðsending-
Fromhald á bls. 11,
Brelakonungur
heiðrar Niemilz
Hotaforingja
London í gærkvöldi.
í DAG sátu Bruce Frazer,
flotaforingi Breta, og Niemitz,
flotaforingi Bandaríkjanna, á
ráðstefnu um borð í breska her-
skipinu „Hertoginn af York“.
Að ráðstefnunni lokinni fór
fram hátíðleg athöfn um borð
í skipinu, og sæmdi Frazer, fyr-
ir hönd Georgs Bretakonungs,
Niemitz einu æðsta heiðurs-
merki Bretlands.
Reuter.