Morgunblaðið - 14.08.1945, Síða 5
iÞriðjudagur 14. ágúst 1945
IORGUNBLABIÐ
Tveir sænskir blaðamenn
komnir tii landsins
Taka myndir og skrifa greinar fyrir
16 blöð og fímarit
FYRRA SUNNUDAG KOMU hingað til landsins tveir
Sænskir blaðamenn, sem ætla að dveljast hjer um tveggja mán-
aða bil og skrifa greinar um ísland og taka myndir hjeðan fyrir
26 sænsk blöð og tímarit. Að lokinni dvölinni hjer, fara þeir ef
til vill til Grænlands.
Menn þessir eru Bohman ritstjóri og Gey ljósmyndari. Þeir
komu hingað með vjelbátnum Skeggja, sem keyptur var í Sví-
þjóð.
Blaðamaður frá Morgunblað-
jnu átti í gær stutt viðtal við
þá Bohman og Gey. Þeir hafa
ihug á því að taka myndir af
Forseta íslands og rita um
hann. Þá ætla þeir sjer norður
til Siglufjarðar og kynna sjer
sildveiðarnar, til Heklu, inn í
óbygðir, ■ út um sveitir lands-
ins, til jarðhitasvæðanna og á
fleiri staði, eftir því sem ástæð-
Ur verða. Ennfremur ætla þeir
að taka myndir af verkum Ein-
ars Jónssonar. Þá hafa þeir í
hyggju að fá myndir af glím-
unni, þjóðaríþrótt íslendinga.
Þeir ætla sjer yfirleitt að reyna
að draga upp fyrir sænskum
lesendum heildarmynd af ís-
landi, eins og það er í dag.
Áhugi, en þckkingarleysi.
Bohman og Gey sögðu, að í
Svíþjóð hefðu menn mikinn á-
huga á því, að kynnast íslandi
og íslendingum, en alþýða
manna vissi yfirleitt ekki ann-
að um Island en að þar veidd-
ist síld og að hús væru hituð
upp með hveravatni.
Þeir sögðu, að Svíar tækju
yfirleitt málstað íslendinga,
þegar rætt væri um sambands-
slitin, og menn þar í landi væru
flestir þeirrar skoðuriar, að sam
bandsslitin hefðu verið eðlileg
og sjálfsögð. Það hefði einnig
tengt íslendinga og Svía traust-
ari böndum, að aðstaða land-
anna var svipuð á styrjaldar-
árunum. Báðar þjóðirnar vildu
varðveita hlutleysi sitt og
hefðu skilið hvor stefnu ann-
arar á því sviði.
Líst vel á sig.
Þeír Bohman og Gey hafa
ekki dvalist hjer nema tvo daga
eins og fyrr segir, en þeir hafa
þegar sjeð flest markvert hjer
í bæ, og list vel á sig hjer. —
Þeim finnst stúlkurnar hjer lag
legar, eins og fleirum, og silki-
sokkarnir fara þeim vel. —1 En
dýrtíðin finnst þeim ótrúlega
mikil og ósambærileg við nokk-
uð, sem þeir þekki til.
16 blöð og tímarit.
Bohman og Gey munu vera
fyrstu sænsku blaðamennirnir,
sem hingað hafa komið síðast-
liðin 9 ár. Eins og áður segir,
muriu þeir taka myndir og
skrifa greinar fyrir 16 sænsk
blöð og tímarit, fyrst og fremst
Se, sem er stærsta myndatíma-
ritið, sem út er gefið í Svíþjóð.
Hin eru: Vecko-Journalen, Vár
Bygd, Husmodern, Hela
Varlden, Nu, Folket í Bild, Vi,
Reformatorn, Dagens Nyheter,
Expressen, Göteborgs-Postén,
Göteborgs Handels- och Sjö-
fartstidning, Till Rors, Sánings-
mannen og Svenska-Journalen.
Verkamannaflokk-
urinn hjeit þing-
sætinu
London í gærkveldi.
ÚRSLIT hafa verið birt í
kosningum í Mið-Hull. Þar var
kosningu frestað vegna þess að
frambjóðandi Verkamanria-
flokksins andaðist skömmu áð-
ur en kosning átti að fara fram.
Úrslit urðu þau, að frambjóð-
andi Verkamannaflokksitts
hlaut kosningu, en þingmaður
kjördæmisins fyrra kjörtíma-
bil var eirinig úr Verkamanria-
flokknum.
Bráðlega fara fram aukakosn
ingar í 3—4 kjördæmum i Bret
landi, vegna þess að þrír þing-
menn hafa andast, en einn ver-
ið aðlaður.
II miangsmikið
verslunariyrirtæki
hjer í bæritim vantar eftirtalið stárfsfólk:
1) Fulltrúa, sem getur veitt fyrirtækinu forstöðu
í fjarveru eiganda. Þarf að vera vel að sjer, hafa
reynslu í innflutningsverslun og góða kunnáttu1
í ensku.
2) Duglegan sölumann.
3) Hraðritunarstúlku.
%
Umsóknir sendist Mbl. f 'rir' Jielgi, merkt „Fulltrúi",
o r
„Sölumaður", „Hraðritunar ' 'ca‘‘.
Endurtekningar Bern
harðs Steídnssonar
ÞAÐ er haft eftir einum
meiri háttar Framsóknarmanni
fyrir nokkrum árumsíðan: að
með því að endurtaka ósanna
sögu sex sinnum á prenti, þá,
Væri allur alnveriningur farinn
að trúa. llvað satt er í þessari
kenningu verður ekki rökrætt
hjer. Hitt er víst, að margir
Frainsóknannenn hafa . hagað
sjer í samræmi við hana og
hersýnilega trúað því, að hún
sje óyggjandi. Þetta hefir ver-
ið reynt með persónulegum á-
rásum, oft tilhæfulausum. og
ýmiskonar rökvillum öðrunv
Bernha-rð Útefánsson er sýni
íega inn-á þessari flokkslíuu í
okkar ritdeiliv. þó ekki hafi
hann enn vaðið niður í dýpsta'
svaöið. llann er búinn að end-
Urtaka finim eða sex sinnum:
sömu blekkingarnarf um að
tveggja í'lokka kerfi hljóti að
leiða til einveldis, að Fram-
sóknarfiokkurinn sje mið-
flokkur og að núverandi rík-
isstjórn sje á einræðisvegi.
Alt þetta. endurtekur Bern-
harð í sinni síðustu grein í
Degi 26. jvilí s.l., en svo ein-
kennilega bregður nú við, að
hann ríflvr þó niðUr í öðru
orðinu það sem hann segir í
hinu.
Bestu sönnunina fvrir ein-
ræðishættu af tveggja flokka
kerfi telur hann nú unvmæli
úr Morgunblaðinu 20. jvilí s.l.
}>ar sem haft er eftir Chur-
shilí forsætisráðherra Breta:
„að sigur „sósialismans"
mundi leiða til einveldis" og
vitnar til kommúnistanna í
Rússlandi. Nokkru síðar í
greininni segir þó Bernharð
orðrjett: ..Jeg álít að sigur
sósialistaflokks, sem fylgir hóf
legri stefnu eins og t. d. Yerka
mannaflokks Bretlands og Só-
sial-demókrata á Norðurlönd-
um þyrfti als ekki að boða
einræði, nema því aðeins að
þjóðin væri orðin svo ófrjáls-
lynd að hún skifti sjer aðeins
í tvær fylkngar".
Er nú hægt að tvístíga öllu
greinilegar ?
f öðru orðinu lætur maður-
inn svo sem tveggja flokka
kerfi geti ekki átt sjer stað
nema að kommúnistar s.jeú
atinars vegar eit Nasistar hins
vegar, en í hintt orðinu á eng-
in hætta að stafa af einlitum
meirihluta sigri eins flokks
eins og nýlega átti sjer stað í
Bretlandi. Slíkar mótsagnir
eru svo augljósar, að ekki ger
ist mikil þörf að svara. Svarið
liggur fyrir frá höfundinum.
Þetta er líka eðíilegt, því þann
ig fer æfinglega þegar menn
fara að verja rangan og von-
lausan málstað.
öll röksemdafærslan byggist
á- þeirri undarlegu villu að öll
vörnin gegn einræði meiri
hlutaflokks, felist í því- siúall-
ræði, að þeir sem móti sianda
Svar írá Jóni
Pálmasyni
skifti sjer í nógu marga flokka
og berjist sjálfir.
Kenningin um miðflokks-
hæfileika Framsóknarmanna
er enn að þvælast í höfðinu
á aumingja Beniharð. En hon-
um gengur öröuglega að rök-
styðja hana, sem ekki er að
furða, ]>egar flokkurinn er á
tvístringi, en meginhlutinn hef
ir skipað sjer hægra megin
við Sjálfstæðisflokkinn. Það
eina, sem Bernharð heblur
dauðahaldi í er að ])enna dá-
samlega miðflokk!!! þurfi *
þjóðin að efla og helst að láta1
hann fá hreinan meiri híuta.
M á segja, að í ]>essu efni eigi
við hið fornkveðna: — „Svo
mæla börn sem vilja". Raunar
hafði jeg ekki að óreyndu bú-
ist við að geta líkt Bernharð ^
við börn í rökvísi, en hann,
kallar á þá samlíkingu svo
greinilega sem verða má. |
Enn lætur Bernharð svo,
sem hann skilji ekki þann
höfuðmun sem er á núverandi
ríklsstjórn, sem bygð er á
friðsamlegri samvinnu atvinnu
rekendanna og verkamanna og
hinni fyi'irhuguðu vinstri
stjórn sem átti að mynda á
árunum gegn stærsta flökki
þjóðarinnar, SjálfStæðisflokkn
um, og þar með gegn öllum
atorkusömustu og fyrnrhyggju
mestu atvinnurekendum lands
ins til sjós og "lands. Að láta
svo íavíslega þýðir Bernharð
ekki neitt. Jeg og aðrir kunn-
ugir vita, að það eru látalæti
ósæmileg fyrir allvel greind-
an mann. Það er líka alveg
þýðingarlaust, að bera annað
eins og það á borð fyrir al-
menning að Kommúnistar sjeU
aðalflokkurinn í núverandi
stjórn. Bernharð veit sjálfur
að þetta eru ósannindi og þó
vera kunni að fáfróðustui
menn Tímaliðsins taki það trú
anlegt, þá gagnar það ekkert,
því þeir eru alt af vísustu
kjósendur þess flokks hvoi't)
sem er.
í næstu grein á undan þeirri
sem hjer er til andsvara, var
Bernharð flúinn frá kenning-
unni um einræðislnettuna af
niverandi ríkisstjói'n. Nú reyn
ir hann aftur að klóra ofur-
lítið í þann moklarbakka, en
stígur annað sporið upp en
hitt niðpr.
Hestu sönnun um einræðis-
vilja stjórnarinnar á nú að
vera grein sem birtist í Morg-
unblaðinu í vor undir fyrir-
sögninni ,.Kengálumarkið‘.‘.
Þar sje lagt til: „að berja
stjórnarandstöðuna niður með
ofbeldi og afnenra ritfrelsi og
málfrelsi stjórnarandstæðinga,,
og láta þá jafnvel sæta refs-
ingum vegna skoðana sinna‘‘.
Ekkért af þéssu er í unrræddri
grein. Bernharð hefir sviðið
undan þeim sannleika sem
]>ar er sagður, eins og fleiri
Framsóknarmenn, og því flyt-
ur hann þessi staðlausu ósann-
indi.
Síðar segir svo Bernharð,
að sjer sje ánægja aö tónninn
í stjórnarblöðunum, eiukum
Morgunblaðinu, sje mikið far-
inn að skána síðan hann fór
að skrifa greinar sínar. Er
helst að skiíja, sem nú sje ein-
valdshættan af núv. stjóru
úr sögunni, þrátt fyrir hina
voðalegu „Keng’álugrein' ‘. Er
því alt spjallið á eina leið:
upp og niður, aftur og fram,
ein málsögnin eftir aðra. Alt
er það Framsóknarlegt.
Eldri hjón
vantar íbúð nú þegar, 3 herbergi og eldhús, með nú-
*
tíma þægindum, róleg og góð umgengni.
Fyrirframgreiðsla eftir samkomulagi.
Tilboð, sendist blaðinu, merkt, „Tvent í heimili".
Húseign í Hafnarfirði
Húsið Vesturbraut 19 í Hafnarfirði er til sölu. 1
húsinu er laus 3 lierbergja íbúð nú þegar. Verðtilboð
í húsið óskast soíid til Guðna Þórðarsonar hjá Vjel-
smiðjunni Kléttur, Hafnarfirði, sem gefúr nánari upp- X
J lýsingar. — Rjettur áskilinn til að táka hvaða til-
boði sem er, eða hafna öllum‘