Morgunblaðið - 14.08.1945, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 14. ágúst 1945
Frú Vilborg Einars-
dóttir, sjötug
i í DAG verður frú Vilborg
íinarsdóttir frá Krossgerði, nú
|il heimilis á Barónsstíg 63, sjö
tug. Vilborg er fædd 14. ágúst
Í875 að Hamarsseli í Geithellna
ftreppi. Fyrstu ár ævinnar ólst
hún þar upp með foreldrum sín-
um. Nítján ára gömul fluttist
hún með þeim að Geithellum
cíg dvaldi þar með þeim og
^ystkinum sínum fram undir
aldamót. Meðan hún dvaldist
þar, kyntist hún Tryggva Daní-
elssyni barnakennara. — Feldu
J>au hugi saman og ætluðu sjer
að reisa bú. Það heimili varð
þó aldrei stofnað, því örlögin
tóku þar hastarlega í taumana.
Tryggvi, unnusti hennar, fór
ásamt fleiri mönnum á
báti til Djúpavogs, en á heim-
leið vildi það slys tíí, að bát-
urinn fórst. Missti Vilborg þar
á sviplegan hátt bæði unnusta
sinn'og bróðir, Þormóð að nafni.
Um sumarið fæddist Vilborgu
dóttir, er skírð var Þóra
Tryggvína. Ólst Þóra til ferm-
ingaraldurs upp með móður
sinni, en síðar hjá Þórhalli
Daníelssyni, föðurbróður sín-
um. Hún várð barnakennari.
Giftist Jóhanni Jóhannessyni
bankamanni. Hún ljest árið
1935.
Þrem árum eftir að Vilborg
missti unnusta sinn, var hún
ráðskona á Vattarnesi við Reyð
arfjörð hjá bróður sínum, Sig>
urði Malmquist, útgerðar-
manni. Þar kyntist hún Gísla
Sigurðssyni frá Krossgerði á
Berufjarðarströnd. Giftust þau
og reistu bú í Krossgerði. Þeim
varð sjö barna auðið, en á lífi
eru aðeins fjögur þeirra: Guð-
finna, gift Eiríki Þorvaldssyni
fra Karlsstöðum (hann drukkn
aði 1941), Málfríður, gift Gunn
ari Jóhannessyni póstmanni,
Björgvin, giftur Gósu Gísladótt
ur bóndi í Krossgerði, og Að-
alsteinn barnakennari. Ekki
hefir Vilborg, frekar en margar
aðrar íslenskar mæður, farið
varhluta af sorgum og and-
streymi þessa jarðneska lífs. —
Fyrstu dóttur sína, Guðfinnu,
sem hún eignaðist með Gísla,
manni sínum, mistu þau á 1.
ári. Síðan fekk maður hennar
lömunarveiki síðari hluta vetr-
ar 1905, sama dag og hann kom
frá greftrun móður sinnar. —
Hann náði sjer aldrei og and-
aðist í Krossgerði árið 1937. —
Tvo sonu mistu þau um tvítugs
aldur, Sigurð og Ingólf. Þeir
voru að koma úr skeljafjöru.
Voru þeir komnir upp undir
land og aðeins fáir faðmar voru
eftir í Krosgerðishöfn, er bát-
ur þeirra fórst. Lík þeirra
fundust aldrei.
Gamalt spakmæli segir, að
það þurfi sterk bein til að þola
góða daga. En hversu margfalt
sterkari bein og þolnari taugar
og viljakraft þarf ekki til að
bera þau áföll, sem Vilborg hef
ir hlotið um ævina. Það eru
aðeins hinar þróttmiklu konur,
sem færar eru að bera slíkt. Ein
þessara þróttmiklu — ein þeirra
þróttmestu, er Vilborg Einars-
dóttir. Hún hefir borið harm
sinn í hljóði, gegnt störfum sín-
um mqð sæmd og prýði og ver-
ið sönn fyrirmynd í hvívetna
sem móðir og húsfreyja. Mættu
íslensk heimili eignast sem
flestar slíkar.
Jeg, sem þessar línu rita, var
smali hjá þeim Vilborgu og
Gísla á fyrstu búskaparárum
þeirra í Krossgerði. Minnist jeg
þeirra hjóna ávalt með ástúð
og þakklæti. Það er oft óþægi-
legt að vera smali á Austfjörð-
um þegar þokan er sem dimm-
ust. Þetta var húsfreyjunni í
Krossgerði vel Ijóst — )jósar-þn
flestum öðrum húsfreyjum þar
um slóðir. Enda var það ekki
ósjaldan að hún lánaði mjer úr-
ið sitt í hjásetuna, svo að jeg
gæti vitað hvað tímanum liði.
Jeg óska þjer, Vilborg, allra
heilla með þeijnan merkisdag
í lífi þínu. í dag munu þjer
berast bestu árnaðaróskir frá
skyldmennum þínum og vinum,
sem kynnst hafa þjer á lífsleið-
inni. /
Jón Þórðarson.
Tatarescu kosinn
formaður
LONDON: — M. Tatarescu,
utanríkisráðherra Rúmeníu,
hefir verið kosinn formaður
national-liberala flokksins í
Bukarest.
Leiðfogi kommún-
isfa í Bandaríkj-
unum rekinn
fyrir „villu"
KOMMÚNISTAFORINGI
Bandaríkjanna, Earl Browder,
sem breytti kommúnistaflokki
Bandaríkjanna í svonefnda
„Communist Political Associ-
a4ion“, hefir vérið gerður á-
hrifalaus í^lokknum, en við for
ustu bandarískra kommúnista
hefir tekið William Z. Foster,
sem þrisvar sinnum hefir verið
í forsetakjöri fyrir kommúnista
í Bandaríkjunum.
r Browder var gefin að sök
,,villa“. Fyrsta árásin á Browd-
er kom fyrir þremur mánuðum
síðan, er franski kommúnista-
leiðtoginn og kunnur Stalinisti,
Jaques Duclos, rjeðist heiftar-
lega á Browder fyrir að hafa
leyst upp kommúnistaflokk
Bandaríkjanna. Browder hafði
gefið í skyn, að kommúnismi
og kapitalismi gætu unnið
saman. Það var Browders
,,villa“, sem kostaði hann for-
ystuna í kommúnistasamtökum
.Bandaríkjanna.
Fyrir nokkrum dögum rjeð-
ist Foster, sem fyrr er nefndur,
harkalega á Browder í mál-
gagni kommúnista, „Daily
Worker“. Sagði Foster, að Brow
der væri postuli „hinnar kapí-
talisku Etiopiu“. Forster bætti
við: „Slík þjóðareining, bygð
á stjettafriði við einkaframtak-
ið, væri hin mesta hörmung fyr
ir verkalýðinn“.
Earl Browder áskaði Foster
fyrir „erki anarkisma“, — „hálf
gerðan Trotsky-isma“, en sagði
að lokum, að enn „mætti búast
við því versta“.
Upp úr öllu þessu var Brow-
der rekinn ásamt Robert Minor
fyrverandi skopmyndateiknara
og negranum James W. Ford,
er 3var hefir verið í kjöri sem
varaforsetaefni fyrir kommún-
ista í Bandaríkjunum. Foster
endurreisti kommúnistaflokk-
inn og hóf á stjettarbaráttu og
áróður fyrir Stalin.
(Samkv. „Time“ 6. ágúst).
Manntjón S.-Afríku
LONDON: Til maíloka s. 1.
var manntjón S.-Afríkumanna
í styrjöldinni 37.962, þar af
23.269 fallnir, særðir og týndir,
og 14.693 herfangar.
Tito um afnám
konungssfjórnar í
Júgóslafíu
London í gærkveldi.
TITO marskálkur átti í dag
tal við blaðamenn í tilefni til-
lagna þeirra, sem hann hefir
lagt fyrir þing Júgóslavíu, um
afnám konungdóms í landinu.
Blaðamennirnir spurðu Tito,
hvernig hann hygðist koma
þessum breytingum á, en hann
svaraði, að úr því myndi stjórn
lagaþingið, sem saman kemur
á hausti komanda, skera um
leið og það tæki stjórnarSkrána
til endurskoðunar.
Tito sagði, að PjeturJronung
ur hefði engan rjett til þess aþ
setja ríkisstjóra af, því að hann
hefði selt honum konungsvald
í hendur og væri því sjálfur
valdalaus. — Reuter.
Effirlifsnefnd með
Austurríki
London í gærkveldi:
SKIPUÐ hefir nú vcrið af
hálfu bandamanna eftirlits-
nefnd með málefnum Austur-
ríkis. Eiga í henni sæti full-
trúar frá Bandaríkjamönnum,
Bretum og Rússurn. — Mun
landinu verða skift í eftirlits-
svæði, þanirig að Rússar hafi
austurhlrlta landsins, Bretar
suðurhlutann, en Bandaríkja-
nrenn vesturhlutann. Takmark
ið mun A'era ]rað, að Austur-
ríki' verði aftur sjálfstætt
land og skilji algerlega við
Þýskaland.
- Alþj. vettv.
Framhald af 6. síðu.
Bandalíkjamanna, ekki eins óút-
reiknanlegt eins og hjá rómönsku
þjóðunum, og þeir ekki eins hlje-
drægir og Bretarnir.
Einnig eru hermennirnir hrifn
ir af tæknilegri fullkomnun í
Þýskalandi. Eins og Þjóðverja
þykir þeim vænt um allskonar
vjelar og verkfæri og nýtísku
hús. Á bensínstöð, sem ameríski
herinn nú notar, sýndi liðsfor-
inginn, sem þar yfir rjeði, allan
útbúnaðinn og var mjög hrifinn.
„Jeg get sagt þetta um Þjóð-
verja“, sagði hann. „Þégar þeir
byggja, þá byggja þeir rjett“.
Frá Búnaðarþingi
Á FUNDI búnaðarþings nýl.
voru samþyktar tvær tillögur
er fram voru bornar af alls-
herjarnefnd. — Fyrri tillagan
fjallar .um skiftingu Búnaðar-
sambands Vestfjarða, en hin
þingsályktun um rannsóknir á
búfjársjúkdómum. Tillög-urnar
eru svohljóðandi:
„Búnaðarþing felst á, að sam-
þykkja skiftingu Búnaðarsam,-
bands Vestfjarða, þannig að
Strandasýsla verði sjerstakt
samband, enda fari kosning full
trúa til Búnaðarþings, fyrir
bæði sambandssvæðin eftir fyr
irmælum laga Búnaðarfjelags
Islands, 9. eða 10. grein.
Ennfremur samþyki Búnað-
arfjelag íslands . lög hins ný-
stofnaða sambands“.
„í sambandi við stofnun þá,
er nú mun ákveðið að reisa á
vegum Háskólans, til þess a.ð
rannsaka sjúkdóma þá, er herja
islenskt búfje, vill Búnaðarþing
lóta þá skoðun í ljós, að það hafi
talið að öllu leyti eðlilegast að
stofnun þessi hefði stárfað í
fullum tengslum við Atvinnu-
deild Háskólans (landbúnaðar-
deildina).
Þó leggur Búnaðarþingið á
það sjerstaka áherslu, að við
stofnun þessa starfi fyrst og
fremst menn með fullkomna
dýralæknismentun og auk þess
nauðsynlega þekkingu á stofn-
rannsóknunum og að viðfangs-
efni stofnunarinnar á hverjum
tíma sjeu ákveðin í nánu sam-
starfi við dýralækna landsins,
búfjárræktarráðunauta Bf. ísl.
og Tilraunaráð búfjárræktar.
Vill Búnaðarþing hjer með
vekja athygli ríkisstjórnar og
Alþingis á þessu og væntir það
an fullkomins skilnings á þessu
mikilsverða máli landbúnaðar-
ins“.
DDT reynisl vel
gegn taugaveiki
í FRJETTUM frá Oslo segir,
að formaður nefndar, sem skip
uð hefir verið af Bandarikja-
stjórn, til þess að vinna að því
að hefta útbreiðslu taugaveiki,
sje nú staddur þar í borg.
Hefir hann skýrt blaðamönn
um frá ýmsu, sem gert hefir
verið til þess að hefta útbreiðslu
taugaveikinnar á ýmsum stöð-
um í Evrópu. Segir hann, að
hið nýja skordýraeitur DDT
hafi reynst afbragðsvel í bar-
áttunni gegn taugaveikinni.
1) Á flugVellinum skammt frá Cctla ls: X-9:
- Mjer var sagt á lögreglustöðinni í Wa. hington,
að þjer væruð með böggul til mín, kapteinn. Jeg
er Phil Corrigap. Kapteinninn: — Já, hjerna er
hann!
2) Morguninn'eftir: X-9: — Janie, athugaðu nú
þessar myndir og segðu njjer, ef þú kannast við ein-
hvern mannanna. ,